Dagur - 17.05.1979, Blaðsíða 8
DAGUR
Akureyri, fimmtudagur 17. maí 1979
Félagsheimili á
miðbæjarsvæðinu?
Á SÍÐASTA bæjarstjórnar-
fundi var fjallað um bréf frá
ýmsum stéttarfélögum á Ak-
ureyri og er þar greint frá eft-
irfarandi tillögu, sem þar var
samþykkt.
„Þar sem nú er verið að ljúka
gerð nýs deiliskipulags fyrir mið-
bæ Akureyrar, beinir fundurinn
Saumastofan
þrettán sinnum
Fréttaritari Dags á Dalvík,
Valdimar Bragason, bæjarstjóri,
sagði blaðinu eftirfarandi á
mánudaginn: Föstudaginn 4.
maí var hér 13. og síðasta sýning
á Saumastofunni, sem Leikfélag
Dalvíkur æfði undir stjórn Guð-
rúnar Alfreðsdóttur. Sýningarn-
ar voru undir stjórn Guðrúnar
Alfreðsdóttur. Sýningarnar voru
mjög vel sóttar. Þrjár voru utan
heimabæjar, ein í Freyvangi og
tvær í Skagafirði. Formaður
Leikfélags Dalvíkur er Rúnar
Lund, tannlæknir.
Laugardaginn 30. apríl gekkst
æskulýðsráð Dalvíkur fOr mara-
þonkeppni í diskódansi. Hófst
hann klukkan hálf ellefu á laugar-
dagsmorgun og þátttakendur voru
56.
Fimm dansendur voru eftir þeg-
ar dansinn var að lokum stöðvaður.
Þá voru sigurvegarar valdir og
reyndust þeir vera: Valur Júlíus-
son, Edda Gunnarsdóttir, Magnea
Helgadóttir, Signý Kristinsdóttir og
Stefán Hauksson. Tvö þau síðast-
töldu voru jöfn.
þeim eindregnu tilmælum til
bæjaryfirvalda, að séð verði fyrir
hentugri lóð fyrir félagsheimili á
miðbæjarsvæðinu.
1 þessu sambandi bendir fund-
urinn sérstaklega á svæðið vestan
við gamla verkalýðshúsið í
Strandgötu 7.“
Bæjarstjórn lýsti jákvæðri af-
stöðu sinni til erindisins, en vísaði
erindinu að öðru leyti til umfjöll-
unar skypulagsnefndar. Þess má
geta, að í áratugi hafa verkalýðs-
félögin verið að velta fyrir sér
byggingu félagsheimilis og út-
hlutaði bæjarstjórnin þeim fyrir
hálfum öðrum áratug lóð undir
félagsheimili á svæðinu austan
við Nýjabíó.
Kópaskeri:
Mikifll snjór
og ófærð
í Öxarfirði
í VIÐTALI við Ólaf Frið-
riksson, kaupfélagsstjóra á
Kópaskeri kom m.a. eftirfar-
andi fram: Um helgina setti
niður mikinn snjó og er nú
álíka fannfergi og oft í janú-
ar-febrúar. AUt var orðið
ófært en vegir voru hreinsað-
ir á mánudag og þriðjudag.
Sauðburður stendur sem
hæst og eru þrengsli mjög til-
finnanleg og farið að minnka
um hey og sumir mjög heylitlir.
Menn hafa drýgt hey sín með
mikilli kjarnfóðurgjöf. Kjarn-
fóður hefur verið nægilegt og
verður svo fram í júnímánuð.
Hvort það nægir, veit ég ekki og
útlitið er ekki gott í siglinga- og
vegabanni.
Grásleppuveiðar hafa gengið
með fádæmum illa og hefur
hafísinn og síðar hvergarðurinn
af öðrum hamlað veiðum. Þar
er netatjón mjög tilfinnanlegt.
$ Reiðubúnir
til skemmd-
arverka
Við elgum mikið f hættu ef
svo illa tekst til að ekki verði
ráðið við verðbólguna eða
efnahagsmálin yfirleitt. Menn
láta sér e.t.v. fátt um finnast,
benda á það sem miður fer og
það er margt, en vilja > engu
taka þátt í viturlegu viðnámi.
Skfpulagðir hópar lands-
manna hafa jafnvel lýst sig
reiðubúna að brjóta þau lög,
sem þeim líkar ekki.
0 En hvað
eigum víð
í hættu?
Undanfarin ár hafa í fram-
leiðslu og markaði verið okk-
ur mjög hagstæð I flestum
greinum og lífskjör bæði ver-
ið betrl og jafnari en áður. Þá
hafa margir þættir menningar
eflst verulega. Þetta eru
staðreyndir, sem ekki verður
móti mæit, þrátt fyrir ailt það,
sem aflaga hefur farið og
þrátt fyrir verðbólguna en
ekki vegna hennar. Verði
verðbólgunni nú sleppt
lausri, hrynur efnahagskerfið
í rúst á skömmum tíma. Það
er hvorki meira né minna,
sem er f hættu.
t Nýtthljóðí
strokknum
„Samningana í gildi,“ voru
einkunnarorð Alþýðubanda-
lags og einníg Alþýðuflokks
lyrir sfðustu alþingiskosn-
ingar. Þá höfðu stjórnvöld
sett hömlur á verðlagshækk-
anir og m.a. var dregið úr
launahækkunum, mest hjá
þeim sem hæst laun höfðu.
Þessi lög voru brotin niður
með harkalegum aðgerðum
Verkamannasambandsins
og þessi lög voru notuð sem
Grýla í kosningunum, með
miklum árangri.
Nú er komið annað hljóð í
strokkinn. Þjóðviljinn seglr
það nú eitt meginatriðlð í til-
lögum Aiþýðubandalagsins,
að „lögfest verði að nýju þak
á verðbótagreiðslur á laun.“
Húsavik á fögram sumardegi. Mynd: Róbert.
Velta K.Þ. fimm milljarðar
aClAöCto SN Fjárhagsstaða fyrirtælcisins
vlvfld liM fll I betri en á næsta ári á undan
AÐALFUNDUR Kaupfélags
Þingeyinga var haldinn 25. apríl
s.l. Fundinn sátu 120 fulltrúar
auk stjórnar, endurskoðenda,
kaupfélagsstjóra og nokkurra
gesta. Formaður Teitur Björns-
son, gerði grein fyrir störfum
stjórnarinnar og kaupfélags-
stjórinn, Finnur Kristjánsson,
las og skýrði reikninga félags-
ins. Kaupfélagsstjóri og ein-
stakir starfsmenn kaupfélagsins
höfðu mætt á öllum deildar-
fundum á félagssvæðinu. Deild-
irnar eru níu. Hringborðsum-
ræður voru á flestum fundunum,
reyndist það fundarform mjög
vel og tóku flestir fundarmenn
deildanna virkan þátt í
fundarstörfunum.
Fjárfest var fyrir rúmlega 100
millj. króna á árinu. Breytingar
voru gerðar á einu húsi félagsins
þannig, að nú er þar hægt að taka á
móti lausu kornfóðri og flytja það
án umbúða í kornflutningabíl heim
til bænda. Lokið var á árinu inn-
réttingu nýrrar byggingavöruverzl-
unar. Áður var þeirri byggingu
raunar svo langt komið, að hægt
var að reka verzlunina í henni allt
árið. Þar er nú glæsileg verzlunar-
aðstaða og gekk rekstur hennar vel
á s.l. ári. Reykhús var í byggingu á
árinu og ýmsar smærri
framkvæmdir.
Vörusala í verzlunarbúðum fé-
lagsins varð 2,4 milljarðar og sala
þjónustugreina og á framleiðslu-
vörum nam rúmlega þeirri upphæð
og varð því heildarsala kaupfélags-
ins um fimm milljarðar króna.
Innstæður viðskiptamanna
höfðu vaxið verulega bæði á við-
skiptareikningum og í innláns-
deild, en skuldir viðskiptamanna
eru ekki miklar.
Vörubirgðir höfðu aukist mikið
og eru nú um 500 millj. á útsölu-
verði. Það er tilfinnanlegt vegna
hinna háu vaxta, sem nú eru, en
vaxtakostnaðurinn hækkaði frá
fyrra ári um 132%. Fjárhagsstaða
félagsins var betri en á næsta ári á
undan.
Allir kostnaðarliðir höfðu hækk-
að stórlega, vegna verðbólgunnar,
hinsvegar hefur verzlunarálagn-
(Framhald á bls. 2).