Dagur - 14.06.1979, Side 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LXII. árg.
Akureyri, fimmtudagur 14. júní 1979 39. tölublað
KodaU] \m. r
FlLMUHÚilt AKUMYtH
Gránar í f jöll
Þegar bæjarbúar komu á
fætur í morgun hafði
snjóað örlítið í Vaðla-
heiði og Hlíðarfjall.
: '
■
n
vmm
*
Strjúka ullina
af fénu
Vélklippingin létti störf
rúningsmanna, enda
lætur véltæknin ekki að
sér hæða. En Sovétmenn
ætla þó að létta störf
hinna vélvæddu rún-
ingsmanna, og hafa
fundið upp lyf til þess.
Lyfið er gefið sauðfénu á
hæfilegum tíma og inn-
an skamms er reifið
laust, og má strjúka það
af eins og hárkollu, en
eftir er nokkur þeli til
skjóls.
ÍSII
Mi
■
III
■
■
Vaðlaheiði
lokuð
Ástand vega fer nú víð-
ast hvar batnandi hér á
Norðurlandi, þó að ekki
sé komið sumarfæri. Hjá
vegaeftirlitinu fengust
þær upplýsingar að
Vaðlaheiði væri lokuð,
ekki hefði enn unnist
tími til að lagfæra veg-
inn. Á jeppum er hægt
að komast úr Mývátns-
sveit og lengra austur og
ekki er loku fyrir það
skotið að sú leið verði
orðin fær öllum bílum
um næstu helgi. í Eyja-
firðinum eru vegirnir
með sæmilegasta móti.
X
mm
■
Togararnir
Kaldbakur landaði 6.
júní 304 tonnum. 75%
aflans var þorskur. Sval-
bakur landaði 4. júní 243
tonnum. 65% aflans var
þorskur. Afgangurinn
var grálúða, ufsi og
karfi. Harðbakur land-
aði 11. júní 244 tonnum.
Tæplega 80% aflans var
þorskur, en hitt aðallega
ufsi. Sólbakur landaði
31. maí 129 tonnum. 80
% aflans var ýsa og karfi.
TAP Á REKSTRI Ú.A.
AÐALFUNDUR Útgerðarfé-
lags Akureyringa var haldinn
s.I. mánudag. Á aðalrekstrar-
reikningi kemur fram að halli
varð á rekstri félagsins og nam
hann röskum 32 milljonum
króna.
Mestur varð ágóðinn af
rekstri hraðfrystihússins; þrír
togarar félagsins skiluðu
hagnaði, en tveir voru reknir
með tapi. Verulegur halli varð
á saltfiskverkuninni.
í landi voru 927 á launaskrá
hjá fyrirtækinu og sjómenn á
launaskrá voru 295. Launa-
greiðslur til landverkafólks los-
uðu 1 milljarð og tæpar 800
milljónir voru greiddar til sjó-
manna.
Togararnir losuðu á Akureyri,
til Útgerðarfélagsins, röskum 17
þúsund tonnum og aflahæsti tog-
arinn var Harðbakur EA 30 með
rösk 4.600 tonn. Frystihúsið
framleiddi rúmlega 5.500 tonn af
freðfiski til útflutnings, fullverk-
uð skreið er áætluð um 158 tonn,
óverkaður saltfiskur, 660 tonn,
og verkaður saltfiskur til sölu
innanlands er 10 tonn. Þess má
geta að lokum að framleiðsla
Ú.A. á signum fiski er sögð í
reikningum félagsins vera 342
kl,° Sjá nánar á bls 6
Valdimar Pálsson við bílinn, sem hann endursmíðaði. Mynd: á.þ.
Glæsilegur fararskjóti
á göturnar á nýjan leik
ÞANN 17. JÚNÍ verður Bíla-
klúbbur Akureyrar með sýningu
á ýmsum tegundum farartækja á
lóð Oddeyrarskólans. Þar á
rneðal verður þessi gamla glæsi-
kerra, sem er Citroen BL 11,
árgerð 1946, en Valdimar Páls-
son hefur endursmiðað bílinn
með dyggri aðstoð nokkurra
kunningja. Bíll þessi var síðast í
eigu þeirra bræðra Eiríks og
Teits Jónssona, og gáfu þeir
Valdimar bílinn I ársbyrjun
1977. Hundruðum klukku-
stunda hefur verið eitt í að gera
bílinn upp, en hann var að flestra
mati ónýtur, þegar Valdimar hóf
viðgerðina.
Bílar af þessari gerð voru fram-
leiddir í Frakklandi frá 1934 til
1955, og þóttu þá bera höfuð og
herðar yfir alla aðra bíla á mark-
aðnum. Valdimar sagði í samtali
við Dag að lögð hefði verið áhersla
á að nota upphaflega hluti, fyrir
utan stefnuljósin, en þau voru ekki
„ÞAÐ ER allt óvenju seint á
ferðinni núna, en frostið og
snjórinn er nú loksins að
hverfa. Litlar skemmdir eru á
trjágróðri eftir veturinn en
vegirnir um skóginn eru afleit-
ir og þarfnast nauðsynlega
viðgerðar,“ sagði Isleifur
Sumarliðason skógarvörður á
Vöglum í Fnjóskadal, í samtali
við Dag.
á bílnum er hann kom til landsins.
Sjón er sögu ríkari - bíllinn
verður á sýningunni við Oddeyrar-
skólann eins og fyrr sagði.
1 Fnjóskadal hefur klaki víðast
hvar verið um 30 cm. í jörðu og í
Vaglaskógi var hann um 20 cm.
Blaðlús herjaði á gróðurinn í
skóginum 1976 og 1977 en í fyrra
og nú í vor lætur hún lítið á sér
kræla vegna vorkulda.
1 Vaglaskógi verða í sumar
leyfð hjólhýsastæði í svonefndu
Flatagerði og unt 25. júní geta
ferðantenn farið að leggja leið
sína í skóginn.
Könnun á dagvöru-
verslun K.E.A.
Meirihluti
aðspurðra
hlynntur
stórum
verslunum
STÖÐUGT er unnið úr þeim
gögnum er nemendur félags-
fræðideildar M.A. söfnuðu hjá
viðskiptavinum KEA á Akur-
eyri í apríl, en þá var fólk spurt
um ýmis atriði er varða dag-
vöruverslun félagsins. Einnig
bárust svör frá viðskiptavinum
utan Akureyrar.
Alls svöruðu 515 og miðað við
þann fjölda svara sem barst mun
láta nærri að það séu um 20.600
svör sem verður að athuga. Við
úrvinnslu var tekið tillit til vægis
verslana eftir sölu þeirra, en þó
var vikið út frá þeirri reglu þegar
borin voru saman svör frá Akur-
eyri og útibúum við fjörðinn.
Þegar viðskiptavinir voru
spurðir hvað betur mætti fara í
sambandi við verslunarþjónust-
una töldu 58% á Akureyri að
vöruúrvalið mætti vera meira,
10% að starfsfólkið ætti að vera
liðlegra, 5% að húsnæði og lóð
væri ófullnægjandi og 27% taldi
fram ýmislegt annað. Allmargir
höfðu ekkert við þjónustuna að
athuga.
Greinilegt var að fólk óskaði
eftir meira vöruúrvali, enda gaf
spurningin tilefni til slíks svars.
Spurt var um hvað væri til fyrir-
myndar í santbandi við verslun-
arþjónustuna og í svörunum er
það sérstaklega áberandi hvað
starfsfólkið kemur vel út úr
könnuninni.
Fólk var m.a. spurt hver'væri
afstaða þess til þeirrar þróunar
síðustu ár að verslanir væru færri
en stærri og sagði 41% þeirra sem
spurðir voru á Akureyri að slíkt
væri óæskilegt, en 59% aðspurðra
voru jákvæðir. í útibúunum voru
82% jákvæðir og 18% neikvæðir.
Að sögn Björns Baldurssonar.
verslunarfulltrúa KEA, er ljóst að
könnunin mun verða til mikillai
hjálpar í sambandi við skipu-
lagningu og stjórnun, en á þessu
stigi væri ekki hægt að greina frá
hugsanlegum viðbrögðum Kaup-
félagsins við lokaniðurstöðum
könnunarinnar, enda væri úr-
vinnslu ekki endanlega lokið.
Vaglaskógur opnaður
25. þessa mánaðar
Skorað á samvinnufélögin að
styðja Vinnumálasambandið
Á AÐALFUNDI K.E.A. í síð-
ustu viku urðu mjög miklar um-
ræður , m.a. um yfirstandandi
erfiðleika landbúnaðarins og
kom fram mjög hörð gagnrýni á
ncitun Alþingis um ábyrgð á
láni, sem samtök bænda höfðu
beðið um til að dreifa tekju-
skerðingu bænda yfir nokkurt
árabil. Á fundinum var sam-
þykkt eftirfarandi tillaga:
„Aðalfundur KEA, haldinn 6. og
7. júní 1979, lýsir ánægju yfir þeirri
sérstöðu, sem Vinnumálasamband
samvinnufélaganna hefur mótað
sér í yfirstandandi vinnudeildum,
m.a. með því að lýsa ekki yfir
verkbanni á undirmenn kaup-
skipaflotans. Fundurinn lýsir yfir
þeim vilja sínum, að efld verði
samvinna samvinnuhreyfingarinn-
ar, samtaka bænda og verkalýðs-
hreyfingarinnar svo takast megi að
skapa hér jafnari lífskjören nú eiga
sér stað. — Felur fundurinn full-
trúum KEA að vinna þessu máli
fylgi á næsta aðalfundi SÍS. Jafn-
framt skorar fundurinn á sam-
vinnufélögin að fylkja sér undir
merki Vinnumálasambandsins."
Úr stjórn félagsins áttu að ganga
Gísli Konráðsson, Akureyri og Jón
Hjálmarsson, Villingadal, en þeir
voru báðir endurkjörnir. Ragnar
Steinbergsson, hrl., Akureyri, var
endurkjörinn endurskoðandi og
Steingrímur Bernharðsson, Akur-
eyri, sem varaendurskoðandi. Jó-
hannes Óli Sæmundsson, Akureyri,
var og endurkjörinn í Menningar-
sjóð KEA. Þá voru kjörnir 18 full-
trúar á aðalfund Sambands ísl.
samvinnufélaga.