Dagur


Dagur - 17.07.1979, Qupperneq 1

Dagur - 17.07.1979, Qupperneq 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐiR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI DAGUR LXII. árg. Akureyri, þriðjudagur 17. júlí 1979 45. tölublað Róleg helgi hjá lögreglunni AÐ sögn lögreglunnar var helgin fremur róleg, en þó voru óvenju margir ökumenn teknir grunaðir um ölvun við akstur. Viðmælandi blaðsins hjá lögreglunni sagði að ferðamanna straumurinn til bæjarins væri greinilega hafinn, því aldrei hefðu verið jafnmörg tjöld á tjald- stæðinu við sundlaug- ina. ■K* Amtsbókasafn- inu á Akureyri berst höföing- leg gjöf NÝLEGA afhenti Jón B. Jónsson múrara- meistari, Höfðahlíð 11 Amtsbókasafninu að gjöf mikið safn nótna- bóka og nótnahefta. Eru þetta alls 357 titlar, svo til allt tónlist eftir inn- lenda höfunda. Amtsbókasafninu er hinn mesti fengur í þess- ari ágætu gjöf, því margt af þessum nótnaheftum er nú ófáanlegt með öllu og eykur þetta drjúgum við nótansafn bóka- safnsins. * Kynníngarfund- ur um málef ní minjasafna FROSTI Jóhannsson, þjóðháttafræðingur, hefur gert úttekt á stöðu minjasafna á Norður- landi á vegum Fjórð- ungssambamds Norð- lendinga. í framhaldi af því ákvað síðasta fjórð- ungsþing að kannað skyldi hvort vilji væri fyrir hendi að koma á fót samtökum minjasafna á Norðurlandi t.d. með sama hætti og á sér stað á Austurlandi. Til kynn- ingar og frekari um- ræðná um þetta mál hefur verið boðað til fundar um þetta við- fangsefni að Möðruvöll- um á Akureyri 12. ágúst. Rætt verður á fundinum um stofnun samtaka minja safna á Norður- landi. Mynd: á.þ. Rafmagnsskömmtun á Norðurlandi næsta ár? „REKSTRARÖRYGGI í Kröfluvirkjun er í algjöru lág- marki. Við erum nú að dýpka eina holu og ef hún kemur upp með svipað orkumagn og áður má gera ráð fyrir að viö fram- leiðum 5-6 mw fram á vetur, en spurningin er hvað þetta gengur lengi. Það má ekkert koma fyrir eina eða neina holu og þá erum við orðnir stopp,“ sagði Gunnar Ingi Gunnarsson stöðvarstjóri Kröfluvirkjunar Eins og alkunna er orðin gerði Alþýðuflokkurinn það að úrslita- atriði að engar umfram fjárveit- ingar yrðu veittar til borunar á tveim holum við Kröflu er ríkis- stjómin fjallaði um það. „Kröfluvirkjun er mannvirki upp á 20 milljarða og ég veit ekki hvað þessir menn ætla að gera við fyrirtækið. Það er fátt áþreifanlegt í málatilbúningnum hjá þeim. Ef halda á Kröfluvirkjun áfram, þá fæst ekki gufa án þess að bora og til þess þarf fjármagn. Ég býð ekki í orkuskortinn á Norð-Austurlandi næsta eða þarnæsta vetur. Það má búast við miklum skömmtunum þá,“ sagði Gunnar. Gunnar telur það ekki vafamál að gufa sé næg við Kröflu, en ekk- ert markvisst hefur verið gert í gufuöflun frá því á árinu 1976. Útsvör hækka um 61,70% SKATTSKRÁ Norðurlandsum- dæmis eystra var lögð fram fimmtudaginn 12. júlí. Hefur hún að geyma sundurliðaðar itpplýsingar um álögð gjöld i umdæminu á yfirstandandi ári. Samkvæmt skattskránni er heildarfjárhæð álagðra gjalda kr. 11.116.159.000, sem lögð eru á 12.599 einstaklinga og 706 félög. Nemur meðaltalshækkun álagðra gjalda frá árinu 1978 67.16%. Heildarfjárhæð álagðs sölugjalds er 4.000.613.000 og hefur hækkað um 44,46% frá árinu á undan. Tekjuskattur er lagður á 7.940 einstaklinga kr. 4.152.547.000 og hefur hækkað frá fyrra ári um 78,06%. Tekjuskattur er lagður á 212 fé- lög kr. 428.100.000 og hefur hækk- að um 85,58%. Eignarskattur er lagður á 1395 einstaklinga kr. 119.544.000, hækkun 118,96% og 317 félög kr., 276.600.000, hækkun 180,93%. Útsvör eru lögð á 11.297 gjald- endur í öllu umdæminu kr. 3.645.462.000 og hækka um 61,70%. Aðstöðugjöld eru lögð á 1.709 einstaklinga kr. 86.789.000 og er hækkunin 43,85% og 448 félög kr. 668.088.000 og hækka um 53.21%. Sjúkratryggingagjald greiða 10.779 einstaklingar kr. 569.802.000. Hækkun 27.04%. önnur gjöld samkvæmt skatt- skrá (aðallega atvinnurekstrar- gjöld) hjá einstaklingum og félög- um eru 1.169.224.000 og hafa hækkað um 107,96% frá fyrra ári. Hæsti gjaldandi umdæmisins er Kaupfélag Eyfirðinga á Akureyri, sem greiðir samtals gjöld, að með- töldum útibúum kr. 329.729.000. Einnig greiðir það hæsta sölu- gjaldið kr. 864.520.000 á s.l. ári, sem er 21,6% af álögðu sölugjaldi í umdæminu. Næst hæsti gjaldandinn og jafn- framt hæsti tekjuskattsgreiðandi er Johns Manville h.f. Húsavík með kr. 110.076.381. Kaupfélag Þingeyinga á Húsavík er næst hæsti gjaldandi sölugjalds á s.l. ári með kr. 237.474.000. Sjá opnu Bæjárráð öttast raforkuskort A SÍÐASTA fundi lagði bæjarráð til, að bæjarstjórn samþykkti eftirfarandi ályktun tíl rfkisstjórnarinnar: „Bæjarstjórn Akureyrar telur fyrirsjáanlegt að raforkuskortur verði norðan- og austanlands næstu tvo vetur eða þar til rekstur Hrauneyjar- fossvirkjunar hefst, ef unnt á að vera að mæta nauðsynlegri raforkuþörf á svæðinu. Bæjarstjórn Akureyrar bendir á að mikilvægt er að nú þegar verði hafist handa um aðgerðir til aukinnar raforkuöflunar og álýtur að ríkisstjórnin eigi að hafa um það forgöngu." Ekkert ákveðið hvað tekur við hjá Slippnum UM ÁRAMÓT mun Slipp- stöðin h/f afhenda Útgerðar- félaginu Hilmi h/f á Fá- skrúðsfirði nýtt nótaveiðiskip, en ekki hefur stöðin önnur samningsbundin verkefni á sviði nýsmíði. Keflvíkingar höfðu í hyggju að kaupa samskonar skip og Hilmir h/f, en hættu við og sömuleiðis sá aðili er ætlaði að kaupa nóta- veiðiskip það sem Slippstöðin fékk frá Danmörku á sínum tíma. „Við höfum séð hann svartari áður, en það breytir því hins veg- ar ekki að það er ákveðin óvissa í þessum iðnaði, sem gerir rekstur stöðvarinnar ákaflega erfiðan,“ sagði Gunnar Ragnars, fram- samtali við Dag. kvæmdastjóri Slippstöðvarinnar í Gunnar sagði það vera ákafleg Séó yfir alhafnasvæði Slippstöðvarinnar. Mynd: á.þ. slæmt að ekki skuli vera hægt að gera neinar ráðstafanir vegna nýs skips nú þegar, því nauðsynlegt er að panta efni og tæki með löng- um fyrirvara. „Það er ljóst að það kemur eyða í starfsemina í vetur, þrátt fyrir að við fengjum verk- efni nú þegar,“ sagði Gunnar. Hafnar eru viðræður við Út- gerðarfélag Akureyringa h/f um smíði á skuttogara fyrir félagið og er ráðgert að hann yrði svipaður og togarinn sem smíðaður var fyrir Magnús Gamalíelsson h/f í Ólafsfirði. Hvort Slippstöðin h/f tekur að sér smíði skips fyrir Ú.A. er með öllu óvíst. Fulltrúum stjórnvalda hefur verið gerð grein fyrir vandamál- um fyrirtækisins.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.