Dagur - 17.07.1979, Page 5
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur Tryggvabraut 12. Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Simi auglýsinga og afgreiöslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): ERLINGUR DAVlÐSSON
Blaöamaöur: ASKELL ÞÖRISSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf
Óskiljanlegt
frumhlaup
Fátt hefur á síðustu tímum vakið
meiri undrun en sú ákvörðun ut-
anríkisráðherra, að rýmka veru-
lega ferðaleyfi varnarliðsmanna á
Keflavíkurflugvelli. Með þeirri
ákvörðun var horfið frá þeirri
stefnu, sem Framsóknarflokkur-
inn beitti sér ffyrir og tók upp fyrir
aldarfjórðungi í ráðherratíð dr.
Kristins Guömundssonar. Ástæð-
ur fyrir ákvörðun sinni nú, um
aukið ferðafrelsi, segir utanríkis-
ráðherrann, vera gagnrýni í blöð-
um vestanhafs og skerðingu á
mannréttindum. Hins vegar
minntist ráðherrann ekki á skerð-
ingu mannréttinda íslensku þjóð-
arinnar, ef hermennirnir geta farið
um landið að vild, stofnað til sam-
skipta við þjóðina að geðþótta,
eins og var fyrir ráðherratíð dr.
Kristins Guðmundssonar.
Getur það verið, að utanríkis-
ráðherra hafi verið búinn að
gleyma hvers konar. ástand var í
landinu á meðan ferðafrelsi ríkti
bæði að og frá herstöðinni?
Gleyma árekstrunum og úlfúð-
inni?
Það var ekki átakalaust að
koma fram þeirri breytingu, að
einangra varnarstöðina sem mest
frá þjóðinni. Og hafa menn ekki
tekið eftir því, hve mjög hijóðnaði
um þessi mál og því meira, sem
samskiptin hafa orðið minni? Það
er með öllu óskiljanlegt, að ís-
lenskir yfirmenn herstöðvarinnar
skuli æskja breytinga til aukinna
samskipta við þjóðina, þar sem
reynslan sýnir, að það myndi leiða
til árekstra og meiri pólitískra
átaka um herstöðina, en verið
hefur um árabil? Hafa þeir engar
áhyggjur af því?
Einar Ágústsson hvikaði aldrei
frá einangrunarstefnunni í valda-
tíð sinni og vann markvisst að því,
að útfæra hana til hins ýtrasta og
lét sem vind um eyru þjóta hjal um
ómannúðlega einangrun varnar-
liðsins. Örðugt er að skýra frum-
hlaup núverandi utanríkisráð-
herra og ekki hefur honum tekist
það sjálfum. En hann hefur minnt
á, hve hæpið það er að treysta
krötum til forystu í viðskiptum við
erlent vald.
Það rifjar upp landhelgis-
samninginn við Breta 1961 og það
sem Emil Jónsson sagði á Alþingi
1971, að „það væri siðleysi að
segja þeim samningi upp“, sem
þýddi nánast það, að við mættum
ekkert hafast að í landhelgismál-
inu. Hvernig stæði þjóðin nú, ef
hún hefði farið eftir þeirri leið-
sögn? Hið sama gerist nú, en
þjóðin hafnar leiösögn þessara
forystumanna Alþýðuflokksins því
Benedikt Gröndal tók ákvörðum
sína til baka.
Bífreukwerkstœóí
Ffölnís Stgurjónssonar
atigl&sir
Hef á lager
pústkerfi í flestar tegundir bif-
reiða.
Ennfremur kúplingsdiska, kúp-
lingspressur og legur í flestar
gerðir bifreiða.
Þaó sem ekki er til á lager út-
vega ég meó stuttum fyrirvara.
Bifreiðaverkstæði
Fjölnis Sigurjónssonar
Hafnarstræti 22, Akureyri
,sími 23704
t
Kveðjuorð
BJÖRN BESSASON
aðalendurskoðandi
Til SÖIu
Akureyri
Einbýlishús við Engimýri,
gott hús á góðum stað.
Raðhús við Vanabyggð.
Raðhús á 2 hæðum með
bílskúr við Stapasíðu,
selst fokhelt og lítilshátt-
ar af efni með.
4ra herbergja íbúð við
Oddeyrargötu, eignar-
lóð, hitaveita komin.
Þægileg íbúð nærri mið-
bæ.
4ra herbergja íbúð á
neðri hæð við Norður-
götu.
Góð 3ja herbergja íbúð í
fjölbýlishúsi við Skarðs-
hlíð.
3ja herbergja íbúð á
neðri hæð við Löngu-
mýri.
2ja herbergja íbúð á
jarðhæð við Hólabraut.
2ja herbergja íbúð viö
Hafnarstræti.
Hjalteyri
Einarshús, Hjalteyri til
sölu. Tiivalið sem sumar-
hús, en annars fullkomið
einbýlishús.
rulilfa ir||ín|óAir.
Fastclgnlr vld allra hnfl~.
Traust þjonusta...
•pfcfkl.5'7
jími 2X878
VASTetGHASALAH HJ.
Hofoarstræti 999 amarohusltm
□ODao
□□□□□
Bæjarstjóri ráð-
inn á Siglufirði
MIKIL átök urðu á fundi gæj-
arstjórnar Siglufjarðar f sl. viku
um kosningu f bæjarstjóraemb-
ættið. Niðurstaða í annarri at-
kvæðagreiðslu varð sú að Ingi-
mundur Einarsson lögfr., Hóla-
vallagötu 5, Rvík, var ráðinn
bæjarstjóri. Hann mun taka við
embætti sínu í byrjun september.
Umsækjendur um stöðuna voru
alls 8.
F. 5. mars 1916 - D. 9. júlí 1979
Úr skattskránni
alúðarfyllstu þakkir fyrir störfin
öll, jafnframt því sem ég óska
honum alls velfarnaðar í austrinu
eilífa, þar sem öll orka guðdóms-
ins á uppruna sinn. Persónulega
færi ég Birni innilegustu þakkir
fyrir samstarf og vináttu, um leið
og ég sendi eftirlifandi eiginkonu
hans, dætrunum og fjölskyldunni
allri, mínar dýpstu samúðarkveðj-
ur- Valur Arnþórsson.
•H*
Björn Bessason er dáinn. Harma-
fregnin segir mér afdráttarlaust:
Skoðunarferðir ykkar Björns,
ykkar tveggja út í guðs græna
náttúruna, verða ekki fleiri og
eigi heldur verða þær fleiri, land-
könnunarferðir ykkar, undir
merkjum Ferðafélags Akureyrar.
Þetta er liðin tíð.
Það var á fyrri hluta áratugsins
1940-1950, að ég átti því láni að
fagna að kynnast Birni Bessasyni
í ferðum og félagsstarfi FFA, og
með okkur tókst órjúfandi vin-
átta. Björn var sannur og heill
náttúruunnandi og bjó yfir hafsjó
af fróðleik um land og þjóð.
Grasafræðin var honum hug-
stæðust allra fræðigreina. Suður á
Vatnahjalla veitti hann sam-
ferðafólkinu fróðleik um dýja-
mosa, jöklasóley og hverja þá
jurt, er skaut rótum í urðinni.
í fámennum hópi var ánægju-
legast að vera með honum, því þá
kom í ljós hin víðfeðma þekking
hans, sem hann flíkaði aldrei.
Stórhrikalegt landslag var óþarft
og gilti einu hvar gengið var,
skoðaðar starir á Kaupangsbakka
eða Staðarbyggðamýrum eða
fjandafæla í Glerágili. Hann
opnaði sýn til innri fegurðar
blómanna. Ekkert ferðalag gat
mistekist ef Björn Bessason var
með í för. Hann lagði til hina
sönnu lífsgleði. Veður skipti
raunar engu máli. 1 slagveðurs-
rigningu sýndi líf og allur gróður
jarðar ný og ný fyrirbæri, sem
hreif huga Björns og hann vakti
athygli á svo enginn viðstaddur
hefði viljað án vera.
Er séð er á bak svo góðum
dreng, hvílir sorg yfir. Dýpst er
sorg konu hans, Þyri Eydal, barna
og annarra nánustu vandamanna.
Ég sendi þeim öllum minar inni-
legustu samúðarkveðjur. Megi
hin ljúfa minning veita huggun.
Sigurjón Rist.
Önnur hæstu félög skv.
skattskrá umdæmisins eru:
Krónur
Slippstöðin hf. Ak. 99.145.000
Útgerðarfél. Ak. h.f. 79.190.000
Kaffibrennsla Ak. h.f. 77.885.000
Kaupfélag Þing. Húsav. 55.780.000
Fiskiðjusaml. Húsav. h.f. 44.818.000
Höldur s.f. Akureyri 27.307.000
K. Jónsson & Co. h.f., Ak. 27.239.000
Kaupfél. Svalbarðseyrar 23.828.000
Kaupfél.Norður-Þing. Kópask. 21.826.000
Hæsti einstaklingur í hverju sveitarfélagi
umdæmisins ber samtals gjöld sem hér segir:
Akureyri: Krónur
Jónas H. Traustason, Ásvegi 29 10.483.000
Húsavík:
Ólafur Ólafsson, Stóragerði 13 10.647.000
Ólafsfjörður:
Bjöm Kjartansson, Hlíðarvegi 53 4.671.000
Dalvík:
Ingólfur Lilliendahl, Goðabraut 4 9.823.000
Grímsey:
Óli Bj. ólason, Sveinstúni 2.800.000
S varfaðardalshreppur
Gísli Þorleifsson Hofsá 4.032.000
H riseyjarhreppur:
Ámi Kristinsson, Hólabraut 3a 3.992.000
Á rskógshreppur:
Sveinn E. Jónsson, Y.-Kálfskinni 7.726.000
A rnarneshreppur:
Magnús Stefánsson, Fagraskógi 3.894.000
Skriðuhreppur:
Sturla Eiðsson, Þúfnavöllum I 8.189.000
Öxnadalshreppur:
Steinn D. Snorrason, S.-Bægisá 4.960.000
Glœsibœjarhreppur:
Gunnar Kristjánsson, Dagv.eyri 4.791.000
H rafnagilshreppur:
Snorri Halldórsson, Hvammi 6.420.000
Saurbcejarhreppur:
Hreinn Kristjánsson, Hríshóli 6.748.000
Öngulsstaðahreppur:
Sigurður Snæbjörnss., Höskuldss. 5.886.000
S valbarðsstrandarhreppur:
Bjami Hólmgrímsson, Svalbarði 9.040.000
Grýtubakkahreppur:
Ásmundur Kristinsson, Höfða 2 7.148.343
Hálshreppur:
Ragnar Jónsson, Fjósatungu 3.508.000
Ljósavatnshreppur:
Viktor A. Guðl.son, S.-Tjarnarsk. 2.948.000
Bárðdœlahreppur:
Svanhildur Hermannsd., Barnask. 2.285.000
Skútustaðahreppur:
Birgir F. Haraldsson, Bjargi 4.867.000
Reykdœlahreppur:
Þorleifur Matthíasson, Laugum 9.279.000
A ðaldœlahreppur:
Harald Chr. Jespersen, M-hvammi 3.028.000
Reykjahreppur:
Stefán óskarsson, Rein 6.458.000
Tjörneshreppur:
Jóel Friðbjarnarson, ísólfsstöðum 2.226.000
Kelduneshreppur:
Jóhann Gunnarsson, Víkingav. 1 2.137.000
Öxarfjarðarhreppur:
Björn Benediktsson, Sandf.hagi 2 3.518.000
Fjallahreppur:
Kristján Sigurðsson, Grímsstaðir 2 1.041.000
Presthólahreppur:
Jóhann Helgason, Leirhöfn 4.095.000
Raufarhafnarhreppur:
Helgi Ólafsson, Nónási 4 5.679.000
S valbarðshreppur:
Stefán Eggertsson, Laxárdal 1.788.000
Þórshafnarhreppur:
Jóhann Jónasson, Langanesv. 33 4.200.000
Sauðaneshreppur:
Marinó Kristjánsson, Sauðanesi 1.463.000
Hæsta meðaltal álagðra
gjalda á hvern framtelj-
anda er í eftirtöldum sveit-
arfélögum sem hér segir:
Krónur
1. Svalbarðsstrandarhr. 1.074.000
2. Hrafnagilshreppur 1.061.000
3. Saurbæjarhreppur 945.000
4. Raufarhafnarhreppur 852.000
5. Glæsibæjarhreppur 851.000
6. Skriðuhreppur 819.000
7. öngulsstaðahreppur 775.000
8. öxnadalshreppur 748.000
9. Akureyrarkaupstaður 734.000
10. Reykjahreppur 731.000
ii. Húsavíkurkaupstaður 718.000
12. Grýtubakkahreppur 710.000
13. Dalvíkurkaupstaður 701.000
14. ólafsfjarðarkaupstaður 678.000
15. Skútustaðahreppur 657.000
Kærufrestur er til og með fimmtudeginum
26. júlí.
Þann 9. júlí s.l. andaðist hér í bæ
Björn Bessason, aðalendurskoð-
andi. Hann fæddist í Kýrholti,
Viðvíkursveit í Skagafirði, þann 5.
marz 1916 og var því aðeins 63 ára
gamall, er hann lést. Foreldrar
hans voru hjónin Bessi Gíslason
og Elínborg Björnsdóttir, er um
áratugaskeið bjuggu í Kýrholti.
Björn lauk stúdentsprófi frá
MA 1941 og nam síðan við Há-
skóla íslands jafnframt endur-
skoðunarstörfum hjá Samb. isl.
samvinnufélaga. Þann 9. mai 1942
kvæntist hann eftirlifandi eigin-
konu sinni, Þyri Eydal, og eign-
uðust þau tvær dætur, Elínborgu,
sem gift er og búsett f Svíþjóð, og
Þyri Guðbjörgu, sem dvelst í
heimahúsum og starfar hjá KEA.
Var hjónaband þeirra og heimilis-
líf allt einkar farsælt og traust.
Þann 18. apríl 1942 hóf Björn
störf hjá Kaupfélagi Eyfirðinga á
Akureyri og var aðalendurskoð-
andi þess um áratugaskeið, allt
þar til í apríl s.l., að hann lét af
störfum sakir sjúkleika þess, er
varð hans banamein. Hann starf-
aði því 37 ár á vegum samvinnu-
samtakanna hér i Eyjafirði, eða
nær alla sína starfsæfi. Störf hans
voru mikil að umfangi og ábyrgð
og jukust slfellt með árunum eftir
því sem umsvif samvinnufélagsins
jókst um byggðir Eyjafjarðar. I
öllu llfi sfnu var Björn Bessason
einstaklega samviskusamur og
trúr og mátti hvergi vamm sitt
vita. Þeir eiginleikar voru leiðar-
Ijós í öllu starfi hans hjá kaup-
félaginu. Bjöm var jafnframt
mjög góðum gáfum gæddur og
voru störf hans því afar heilla-
drjúg og farsæl.
Að leiðarlokum vil ég fyrir
kaupfélagsins hönd færa Birni
4.DAGUR
LAND^
^ROVER
eigendur
Höfum á lager varahluti í Land rover.
Sendum hvert á land sem er.
TELATAL
Varmahlíð, sími 95-6118.
loftverkfæri
m.a.
skröll
borvélar
skrúfvélar
hnoötengur
lofthamrar
loftpressur
herzlulyklar
blikkklippur
slöngur
og tengi
brettaheflar
brettaskífur
□G VIÐ ONNUMST ALLA ÞJQNUSTU
VARÐANDI ’RODAC’ LOFTVERKFÆRIN
LOFTIÐ KOSTÁH LÍTII)
Þór náði í stig
á Neskaupstað
Á föstudagskvöidið léku í ann-
arri deild Þróttur frá Neskaup-
stað og Þór, og fór ieikurinn
Sigríður í
landliðskeppni
FRJÁLSÍÞRÓTT AKON-
AN úr KA, Sigríður Kjart-
ansdóttir, keppti um helgina í
Bremen í Þýskalandi í
fimmtaþraut og var sú keppni
landskeppni nokkurra þjóða.
Sigríður hefur áður keppt í
landsliðinu, enda verið ein af
okkar bestu frjálsíþróttakvenna
undanfarin ár. Þá mun hún
einnig keppa á Kalottleikunum
nú bráðlega. Oddur Sigurðsson
er einnig erlendis um þessar
mundir við keppnir og æfingar.
Þór: O
Þróttur: O
fram fyrir austan. Þórsarar
hófu leikinn af fullum krafti og
stóttu stíft að marki Þióttar. I
fyrri hálfleik sóttu þeir nær
stanslaust, en allt kom fyrir
ekki, í netið vildi boltinn ekki
fara. í síðari hálfleik héldu þeir
uppteknum hætti, sóttu og
sóttu en tókst ekki að skora.
Síðustu mínútur leiksins náðu
Þróttarar sér á strik en þeir gátu
ekki heldur skorað, þannig að
leiknum lauk sem marklausu
jafntefli.
Þórsarar eru ennþá ..í topp-
baráttu í deildinni, og er því ekki
fyrstu deildar sæti næsta ár af-
skrifað ennþá. FH og Breiðablik
hafa að vísu nokkuð örugga for-
ustu í deildinni, en hefur gengið
nokkuð illa í síðustu leikjum.
þannig að næstu lið fara að ná
þeim að stigum.
K A-Feyen oord
Undirbúningur vegna komu Hollenska félagsins Feyenoord til Ak-
ureyrar er f fullum gangi. Leikurinn fer fram á grasvellinum föstu-
daginn 27. þ.m. kl. 19.30.
Reynt verður að vanda til leiksins á ailan hátt — fyrir leikinn mun
lúðrasveit leika á vellinum og í hálfleiknum verður keppt í sprett-
hlaupum.
Þá verða liðin kynnt fyrir leikinn á viðeigandi hátt. Um kvöldið
verður dansleikur í Sjálfstæðishúsinu og verða Hollendingarnir
heiðursgestir.
Forsala miða á leikinn verður sama dag á Ráðhústorgi. Þá verður
reynt að efna til hópferða úr nágrenninu til bæjarins.
Slórtap hjá
K.A.
Óskar í leikbann
Á laugardaginn léku í fyrstu
deild Valur og KA og var
þetta síðasti leikur í fyrri
umferð og fór leikurinn fram
á Laugardalsvelli.
Það er skemmst frá að segja
að KA fékk svokallað „bust“,
en Valsmenn skoruðu fimm
mörk en KA eitt.
f hálfleik var staðan tvö mörk
gegn engu. en fyrri hálfleikur
var nokkuð jafnari, og KA
Arthur í
landsliðið
ARTHUR Bogason eða
„Norðurhjaratröllið“ eins og
hann er stundum nefndur í
sunnlenskum blöðum hefur
verið valinn í landslið fslands
í kraftlyftingum.
Hann keppir í flokki 110 kg
og yfir, sem er þyngsti flokkur-
inn. Hann hefur aldrei áður
verið valinn í landslið, og hefur
aðeins æft lyftingar í um það bil
eitt ár. Hann mu keppa fyrir ís-
lands hönd á Norðurlanda-
meistaramótinu sem fram fer í
haust.
Næstu
leikir
I kvöld (þriðjudag) kl. 20.00
leika á grasvellinum Þór og
KA í Akureyrarmótinu.
Þórsarar urðu meistarar f
fyrra, og ætla eflaust að
reyna að halda þebn títli I ár.
Á föstudagskvöldið leikur
KA við ÍA í fyrstu deild.
Þama verður um hörku-
leik að ræða, og bæði liðin
hafa eflaust fullan hug á
stigunum, ÍA f toppbarátt-
unni og KA I fallbaráttunni.
Sama dag leika á Greni-
víkurvelli Magni og Selfoss I
annarri deild.
Daginn eftír fara Þórsarar
tíl Eskifjarðar og leika við
Austra.
menn áttu nokkur góð mark-
tækifæri, sem ekki tókst að nýta.
í byrjun síðari hálfleiks
komst Gunnar Blöndal inn í
sendingu hjá Valsmönnum á
þeirra vallarhelmingi og gaf á
Elmar, sem aftur renndi bolt-
anum til Gunnars sem þá skor-
aði af öryggi. Valsmenn gerðu
síðan út um leikinn nteð þremur
mörkum til viðbótar. Um miðj-
an síðari hálfleik lét Óskar
Ingimundarson hnefana ráða,
eftir samstuð við Valsmann og
góður dómari leiksins vísaði
honum umsvifalaust af leik-
velli.
Óskar fer því í leikbann í
næsta leik sem verður gegn
Akurnesingum.
Happdrætti
HSSA
Eins og auglýst hafði verið var
dregið í happdrætti Hjálpar-
sveitar skáta á Akureyri þann
17. júní.
Vinningsins, sem kom á miða
nr. 2156, hefur verið vitjað.
Stjórn Hjálðarsveitarinnar
þakkar öllum þeim, sem studdu
starf sveitarinnar með þvt að
kaupa miða, og minnir um leið
á að aðalfjáröflun sveitarinnar
er flugeldasala um áramót, og
verður þá boðið upp á stórkost-
legt úrval flugelda að vanda.
DAGUR.5