Dagur - 02.08.1979, Blaðsíða 8
DAGUR
Fimmtudagur 2. ágúst 1979
ÞJÓNUSTA
FYRIR
OLÍUSLÖNGUR og BARKA
PRESSUM
TENGIN Á
FULLKOMIN TÆKI
VÖNDUÐ VINNA
Bæjarstjórn lékk sjóriðu
SAUÐÁRKRÓKI 31. júlI. Segja má,
að heyskapur sé nokkurn veginn
kominn af stað i héraðinu, nema í
Fljótum. j síðustu viku var sæmi-
legasta hcyskapartíð. Allvíða hef-
ur Ijár þó ekki enn verið borinn í
jörð.
Afli togaranna er ágætur og til
marks um það komu tveir togar-
arnir, þeir Skafti og Hegranes,
báðir með fullfermi og lönduðu i
gær og dag. Drangey er á veiðum
Atvinna er mikil f kring um þetta
auk annars.
Það bar til hér á Sauðárkróki,
eftir því sem gárungamir segja,
að gangstéttarlagning, sem að var
unnið, þótti ekki sem best. Þegar
bæjarstjórnarmönnum barst
þetta til eyma, fóru þeir á staðinn
til að sjá handarverkin og stöðva
framkvæmd ef til minnkunar
væm. Er þeir höfðu horft litla
stund fengu þeir sjóriðu. Urðu
þeir þess þá fullvissir, án rök-
ræðna, að framkvæmd verksins
væri í einhverj áfátt.
Nú er fólk sem óðast að taka
sér sumarfrí. Með minnsta móti
fara menn þó til útlanda, eins og
við hefur viljað brenna á undan-
fömum árum.
Hestamannafélögin Léttfeti og
Stígandi halda kappreiðar og
góðhestasýningu á Vindheima-
melum um næstu helgi. Skag-
firðingar snúast mikið um hesta á
síðustu tímum og láta hesta snú-
ast um sig. Er vel að sú íþrótt á
Þennan steinnökkva á að gera að bryggju fyrir Reyðarárfeðga. Mynd á.þ.
Gamall steinnökkvi
gerður að bryggju
Síðan á stríðsárunum liggja þrír
steinnökkvar í Siglufjarðarhöfn. Á
Siglunesi er bærinn Reyðará einn
eftir og búa þar þrír feðgar. Sam-
göngur þangað frá Siglufirði eru
aðeins á sjó, því þangað liggur
enginn vegur. Feðgarnir hafa barist
fyrir því að fá bryggju í Neskrók-
inn. Vaknaði þá hugmyndin um að
flytja einn steinnökkvann þangað
út og gera úr honum bryggju við
hinn afskekkta bæ. Á síðasta hafn-
arnefndarfundi var samþykkt að
aðstoða þessa framkvæmd pen-
ingalega, en síðan mun Vita- og
hafnarmálastjórn lána tæki til
flutninga og koma nökkvanum
fyrir. Mun Árvakur koma til að-
stoðar, en „kerfið" ræður fram-
kvæmdatíma, sem vonandi verður
siðar í þessum nánuði. (Upplýsing-
ar frá Sveini Björnssyni, Siglufirði).
vaxandi vinsældum að fagna í
hinu kunna hrossahéraði.
Veiði í ám er sögð með tregara
móti í sumar og veldur það veiði-
mönnum, svo og eigendum
hlunnindajarðanna vonbrigðum.
G.Ó
Snæfell
með
ágætan
afla
Togaraaflinn hefur verið ágætur.
Snæfellið landaði hér 150 tonnum
á fimmtudaginn var, eftir viku
veiðiferð. Var aflinn vænn þorsk-
ur. Ekki er lokið vinnslu hans.
Atvinna er mjög mikil og unnið
langt fram á kvöld flesta daga.
Dekkbátar og trillubátar hafa
verið á færum og er afli fremur
tregur, en einn báturinn er á
snurvoð og gengur sæmilega.
Sagt er mér, að „sumargleði"
verði hér annað kvöld og verður
víst ekkert við því gert.
Búið er að slá og hirða tún hér
suður á eyjunni, á vegum nauta-
stöðvarinnar. Á þeirri stöð er
faliegur hópur nautpenings, en
annar búpeningur er ekki leyfður
á eynni. Búist er við, að fyrsta
sæðið verði verði flutt héðan í
haust og á það að verða „holda-
nautakjöt vandlátra húsmæðra".
Ferjan okkar varð nýlega fyrir
vélarbilun. Reynt er að tjasla upp
á hana með varahlutum úr öðrum
gömlum vélum. Tíu tonna dekk-
báturinn, Eyfellið, er leigður á
meðan og í haust eiga menn von á
nýju ferjunni frá Seyðisfirði. G. '
ffi _ T ti rar - f—i DÍ1 “p
LÍi íll UJ Jj öD- —- 1
Erlendur og
heyskapur-
Heyskapur er nú víðast haf-
inn og þykir mörgum bænd-
um sem grassprettan sé í
rýrasta lagí. Og ekki var hún
mikil hjá Erlendi á Stóru-
Giljá, en fyrir skömmu sló
hann skika nokkurn og var
þar með fyrstur manna í
Húnaþingi. Vegfarendur
drógu það í efa að Erlendur
gæti notað hefðbundin hey-
vinnutæki til að ná upp strá-
unum og töldu það líklegra
að ryksuga heimilísins yrði
notuð í þetta skipti.
# Vilja telja
íbúana
Þegar bæjarráð Sauðárkróks
hélt fund fyrfr skömmu,
spunnust um það umræður
hvort ekki væri rétt að fá
starfsmenn bæjarins til að
ganga hús úr húsi til að ath-
uga hverjir byggju á Sauðár-
króki. Mikið hefur verið um
flutninga til og frá bænum og
f mörgum tflfellum hafa við-
komandi dregíð úr hömlu að
láta yfirvöld vita um flutning-
inn.
Ólafsfjaröar
Samkvæmt bráðabirgðalög-
um ríkisstjórnarinnar vegna
orkumála, verður varið 620
milljónum króna lánsfé tii
raflínulagna á vegum Raf-
veitna ríkisins. Þar eru 250
milljónfr áætlaðar til að
leggja raflínu milli Dalvíkur
og Ólafsfjarðar, og þar með
tengingar Skeiðsfossvirkjun-
ar í Fljótum við byggðalín-
una. Staurar eru komnir til
Dalvíkur. Línan á að iiggja
gamla ferðamannaleið á milli
Svarfaðardals og Ólafsfjarð-
UPPBYGGING VATNS-
VEITU Á BLÖNDUOSI
FYRSTI ÁFANGI framkvæmda
við vatnsveitu á Blönduósi hóf-
ust í upphafi júlímánaðar.
Verið er að virkja brunn í
Laugahvammi við Blöndu í 4 km
fjarlægð frá staðnum og að því
er Eyþór Elíasson sveitarstjóri
tjáði okkur er stefnt að því að
tengja brunninn við vatnsveit-
una í september.
Tenging nýja brunnsins verður
framtíðarlausn á vatnsþörf staðar-
ins, en núverandi vatnsveita hefur
hvorki staðist gæðakröfur né verið
nægjanleg. Áætlað er að í þennan
áfanga vatnsveitunnar verði varið á
milli 65-70 M.Kr. og er næsta skref
að bjóða út lagningu aðveituæðar.
Ráðgert er að á næstu tveimur ár-
um verði vatnsveitukerfið í bænum
bætt og að byggður verði safn-
geymir við brunninn.
LaxeldistiEraunir í Lóni í Kelduhverfi
,Beita þarf annarri tækni‘
„Mér finnst árangur vera bærileg-
ur, en þetta á talsvert í land til þess
að hægt sé að fara út í laxeldi þarna
í einverju magni, þannig að það
standi undir ser fjárhagslega, sagði
ingimar Jóhannsson líffræðingur
er hann var spurður um árangur
laxeldistilrauna í Lóni í Keldu-
hverfi og bætti því við að það væri
vart fyrr en í haust sem hægt væri
KEA sækir um
á Grenivík fyrir útibú
„Hér er vissulega mikil þörf
fyrir aukiö verzlunarhúsnæði og
aukna þjónustu. Við höfum
samþykkt hér i hreppsnefndinni
að veita KEA umbeðnar lóðir á
Grenivík, en með þvi fororði að
skipulagstjóri ríkisins sam-
þykki. Skipulagsstjóri hafði
bent á aðra staði undir verzlun
og það þótti rétt að fá hans
samþykki svo það ylli ekki nein-
um erfiðleikum“, sagði Stefán
Þórðarson sveitarstjóri Grýtu-
bakkahrepps í viðtali við blaðið.
KEA hefur sótt um lóðirnar
undir verzlunarhús, þar sem verða
dagverzlun, kvöldsala, benzínsala
og þvottaplan, og óskað eftir að
þær yrðu nær þjóðveginum niður í
þorpið, frekar en þar sem búið var
að teikna verzlunarlóðir inn á
skipulagið. Nú í vikunni sótti KEA
um viðbótarland, sem er landskiki
milli lóðanna og aðalvegarins niður
í þorpið.
„Ég hef ekki ennþá sent form-
lega beiðni frá okkur til skipulags-
stjóra um samþykki. Jónas Vigfús-
son verkfræðingur sem starfar fyrir
okkur hefur haft samband við for-
ráðamenn Kaupfélagsins á Akur-
eyri og við skipulagsstjóra og ég
vildi fyrst vita hvað komið hefur út
úr þeim viðræðum“, sagði Stefán
að lokum.
Ingimar Jóhannsson við athuganir við Lónið fyrir skðmmu. Mynd: á.þ.
að tala um niðurstöður eldistil-
raunanna.
„Það stendur til að halda þessum
eldistilraunum með lax áfram út
þetta ár og erum við nú aðallega að
mæla vaxtarhraða. Lónið er lag-
skipt, salta undirlagið er töluvert
hlýrra, en hið ferska yfirborðslag.
Hitastig salta lagsins er mun hærra
en hitastig sjávar á þessum slóðum
að vetrinum, og ætti þetta hitastig
að geta framkallað öran vaxtar-
hraða. En netpokinn sem við erum
með nær ekki niður í hitann að
vetrarlagi. Þessi tilraun sýnir að til
þess að laxeldi þarna væri fjár-
hagslega arðbært, þá þyrftum við
annað hvort að dýpka nótina eða
beita annarri tækni, s.s. sökkva
niður eldisbúrum, sagði Ingimar.
Fiskifélag íslands hefur staðið
fyrir þessum rannsóknum á annað
ár og hefur Framkvæmdastofnun
styrkt verkefnið. Samstarfsmenn
Ingimars í tilrauninni eru Dr. Björn
Jóhannesson og Jónas Bjarnason.
I Noregi er laxeldi orðin allmikil
atvinnugrein og þar fást um 8000
tonn á ári hverju af laxi sem er al-
inn í girðingum, en aðstæður hér
eru ekki hinar sömu, s.s. erfið
veðrátta, en að sögn Ingimars ætt-
um við að geta framleitt seiði á
ódýrari hátt en Norðmenn vegna
jarðhitaða vatnsins.