Dagur - 04.10.1979, Blaðsíða 1

Dagur - 04.10.1979, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI DAGUR LXII. árg. Akureyri, fimmtudagurinn 4. október 1979 65. tölubiað Milljónatjón í Sveinbjarnar- gerði Fyrir tæpum tveimur vikum stöðvaði land- læknir dreifingu frá kjúklingabúinu í Svein- bjarnargerði á Sval- barðsströnd, en salmon- ella sýklar fundust í bú- inu. Sala hefur ekki ver- ið leyfð á kjöti fyrr en endurbætur á meðferð þess hafa verið gerðar og er ljóst að tjón búsins skiptir milljónum. Hægt er að koma í veg fyrir sýkingu með því að sjóða kjötið vel eða djúpsteikja, og draga úr henni með því að kaupa aðeins fryst kjöt og láta það þiðna vel áður en það er matreitt. * Almennir stjórnmála- fundir verða haldnir helgina 13. og 14. okt. n.k., sem hér segir: Dalvík, laugar- daginn 13. okt. kl. 14.00, Húsavík, sunnudaginn 14. okt. kl. 14.00, Kópa- skeri, sunnudaginn 14. okt. kl. 21.00, Fram- sögumenn verða Stein- grímur Hermannsson, landbúnaðarráðherra og Hákon Hákonarson varaform. S.U.F. * RagnarLár heldur sýningu Laugardaginn 6. okt- óber opnar Ragnar Lár málverkasýningu í Gall- erý Háhól á Akureyri. Sýninguna nefnir lista- maðurinn „Land og fólk“, og ætti sú nafngift að gefa til kynna inni- hald hennar. Á sýning- unni verða fjölmörg myndverk, unnin í olíu, akríl, vatnslit, svartkrít o.fl. Þetta er fyrsta einkasýning Ragnars Lár á Ákureyri, en hann er félagi í „Myndhópn- um“, sem stofnaður var sl. vetur. Ragnar Lár hefur haldið margar einkasýningar áður, heima og erlendis og tekið þátt í samsýning- um. Sýningunni lýkur um aðra helgi. Hríseyingar óttast mjög rafmagnsskort í vetur „í SÍÐUSTU viku bilaði sæ- strengurinn til eyjarinnar (Hrís- eyjar) og hefur síðan legið við aigjöru neyðarástandi, sem er með öllu óviðunandi fyrir jafn einangrað byggðarlag og Hrísey. Viljum við benda á eft- irfarandi í því sambandi að ekki hefur verið hægt að hafa raf- magn í íbúðarhúsum nema að litlu leyti og nær ekkert, þegar fiskvinnslustöðin hefur verið í gangi.“ Þannig hljóðar kafli úr bréfi sem Hríseyingar skrifuðu flestir undir og sendu þingmönnum, rafveitu- stjóra og viðkomandi ráðamönnum í síðustu viku. Þá hafði strengurinn til lands verið bilaður í vikutíma, en s.l. vetur kom ekkert rafmagn úr landi í heilan mánuð. 1 bréfinu segir ennfremur: „Hef- ur fiskvinnslustöðin ekki getað starfrækt beinaverksmiðju neitt vegna þess og hefur einnig þurft að stöðva alla framleiðslu á ís og ligg- ur nú fiskur undir skemmdum af þessum sökum. Auk þessa hefur fiskvinnslustöðin daglega orðið fyrir stöðvunum vegna rafmagns- truflana. Einnig hefur símasam- band úr eyjunni oft fallið niður eða verið mjög slæmt af þessum sökum. Það er alveg ljóst að þetta ástand getur ekki gengið lengur, ef ekki á að stofna eðlilegu lífi fólks hér í hættu svo og atvinnulífinu. Við Hríseyingar horfum nú með kvíða til komandi vetrar meðal annars vegna reynslu okkar af rafmagns- málum síðasta vetur, ef okkur verða ekki tryggðar nú þegar þær vélar sem duga til rafmagnsfram- leiðslu handa þorpinu öllu miðað við eðlilega notkun." Á sama tima og loðnuveiöiskipin þurfa að sigla norðan frá Kolbeinsey og allt suður fyrir land, bíða þar eftir löndun í 2-3 daga, þá stendur þessi gamla sfldar- móttaka á Hjalteyri aðgerðariaus, og verður ryði og annarri hrörnun að bráð. Æfa Gísl á Dalvík LEIKFÉLAG Dalvíkur hefur byrjað æfingar á leikritinu Gísl eftir Bertold Brecht. Leikstjóri er Sólveig Halldórsdóttir. Áætlað er að frumsýna í nóvem- ber. Alls taka 14-15 manns þátt í leikritinu. Stálu drátt- arvélinni og stökktu út fénu BÓNDANUM að Orrastöðum í Húnavatnssýslu, brá í brún einn morgun, nú nýverið er hann kom á fætur, og ætlaði að fara að aka fé sínu til slátrunar, því fjárhúsin stóðu opin og fénað- urinn hafði dreifði sér út um tún og úthaga. Ekki var öll sagan sögð með því, að hann þyrfti að endurtaka samanrekstur frá deginum áður, heldur var dráttarvélin á bænum líka komin á eitthvert flandur. Fannst hún þó fljótlega, sokkin í mýrarfen, en þar hafði hún verið skilin eftir í gangi, og snérist á henni annað afturhjól- ið, en hitt var fast. Upplýstist þetta mál fljótlega, og reyndust þarna hafa verið á ferð piltar úr Reykjavik, í fylgd með Húnvetningi og Bakkusi. Eimskip flytur um set ÞAÐ HEFUR orðið að satn- komulagi á milli Jónasar H. Traustasonar v/Skipaafgreiðslu Jakobs Karlssonar og H.f. Eim- skipafélags fslands, að Skipaaf- Fiðlarinn sýnd- ur á nýjan leik Á LAUGARDAGINN kl. 16 hefjast á ný á Húsavík sýningar á Fiðlaranum á þakinu. Ætlunin er að sýna leikritið allan október og e.t.v. fram í nóvember. Alls koma fram 44 í leikritinu og leikstjóri er Einar Þorbergsson, en aðalleikari er Sigurður Hallmars- son. Fiðlarinn á þakinu var sýndur s.l. vetur við miklar vinsældir. T.d. fjölmenntu Akureyringar á sýning- ar leikfélagsins og eru sýningarnir kl. 16 á laugardögum sérstaklega miðaðar við utanbæjarfólk. greiðsla Jakobs Karlssonar láti af störfum afgreiðslumanna fyr- ir H.f. Eimskipafélag íslands, frá og með 1. október. Frá sama tíma mun H.f. Eim- skipafélag íslands reka skrifstofu og vöruafgreiðslu á Akureyri fyrir eigin reikning. Skrifstofan verður fyrst um sinn í sömu húsakynnum og skrifstofur Skipaafgreiðslu Jakobs Karlssonar hafa verið, við Kaupvangsstræti, en verður síðar flutt í nýbyggingu Eimskipafélags- ins á Oddeyri, eins fljótt og við verður komið. Aðalstöðvar vöruaf- greiðslu félagsins verða í Oddeyr- arskála. Afgreiðsla H.f. Eimskipa- félags íslands á Akureyri verður undir stjórn Jónasar Traustasonar til 31. mars 1980, en frá þeim degi verður stjórn afgreiðslunnar í höndum Kristins Jónssonar skrif- stofustjóra og Helga Sigfússonar afgreiðslustjóra. Nýja stöðin. Mynd: Rúnar Hreinsson. Heilsugæslu- stöð tekin í notkun FYRIR NOKKRUM dögum var flutt í nýja heilsugæslustöð á Vopnafirði. Bygging hennar hófst 1976 og er henni ætlað að þjóna Vopnafirði og Skeggja- staðahreppi. I þessari heilsu- gæslustöð, sem kostaði um 100 milljónir, eru 2 sjúkrastofur, 3 3 sjúkrarúm og lyfjageymsla. Einnig eru þarna gömul tæki til röntgenmyndunar og fleiri tæki gömul, en fjárveiting til tækja- kaupa er væntanleg á næstu fjárlögum. Starfsfólk við þessa heilsugæsiu- stöð eru læknir, hjúkrunarkona og ljósmóðir. Sagði Kristján Magnús- son sveitarstjóri, er blaðið hafði samband við hann, að þeir hefðu verið mjög heppnir með að fá þann lækni sem væri hjá þeim, en það er Þengill Oddsson, sem er búinn að vera á Vopnafirði síðan 1972. Einnig sagði Kristján að búið væri að kaupa ný tannlæknatæki, sem ætti að setja upp í gamla læknabú- staðnum, og til mála hefði komið að ungur tannlæknir settist þarna að, en undanfarin ár hefur tann- læknaleysi einmitt háð þessum landshluta. Rækjuveiðar hef jast á Kópaskeri: Fengu góðan afla fyrsta daginn Á ÞRIÐJUDAGINN fóru Ieyfður dagsefli. Alls mega bát- rækjubátar frá Kópaskeri í sinn fyrsta róður á vertíðinni, Nú eru gerðir út sex rækjubátar frá Kópaskeri og í róðrinum fengu allir nema einn 1200 kg., sem er arnir veiða 270 tonn, en það er töluvert minna en í fyrra. „Einn nýr bátur er kominn í flotann í stað þess sem sökk í fyrra. Sá heitir Fiskanes og er 17 tonn að Georg Ólafur stærð. Eigandinn er Valentínusson,“ sagði Friðriksson, kaupfélagsstjóri. „Rækjan sem fékkst var jöfn og falleg; það eru 170-180 stykki í hverju kílói.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.