Dagur - 04.10.1979, Side 2

Dagur - 04.10.1979, Side 2
Smáauðlvsinúar Bifreiðir Fíat 127 árg. ’78 til sölu. sími 22215. Fíast 127 árg. 1974 til sölu. Útlit gott. Þarfnast smá lagfæringa. Góð kaup ef samið er strax. Upplýsingar í síma 22037 milli kl. 20 og 21. Moskvits árg. 1972 til sölu. Út- varp og góð vetrardekk fylgja. (selst ódýrt.) Upplýsingar gefur Haukur í síma 61721 á kvöldin og 61759 á vinnutíma. Húsnæði Sala Atvinna Ungur maður með verslunar- menntun óskar eftir vinnu við bókhald eða skyld störf. Lyst- hafendur leggi nöfn sín inn á afgreiðslu DAGS fyrir 15. þ.m. merkt atvinna 77. Ný tveggja herbergja íbúð í Glerárhverfi til leigu. Tilboð sendist í pósthólf 110 Akureyri merkt Fyrirframgreiðsla. 2ja-3ja herbergja íbúð óskast til leigu. Fyrirframgreiðsla. Upplýsingar í síma 25092. Kennari óskar eftir 2ja-3ja her- bergja íbúö sem fyrst. Upplýs- ingar í síma 25274 eftir kl. 8 á kvöldin. Vantar íbúð til leigu í nokkra mánuði, helst á eyrinni. Upp- lýsingar í síma 22262. Farfuglaheimilið. Herbergi til leigu í lengri eða styttri tíma. Verð frá kr. 1.000 pr. sólar- hringinn. Sími 23657. Candy þvottavél til sölu. Selst ódýrt. Upplýsingar í síma 25265 eftir kl. 7 á kvöldin. Hagstæð kaup. Til sölu eru 5 lítið slitin negld jeppadekk á felgum (Landróver) Stærð 750x16. Pétur Þórarinsson Hálsi sími 23100. Sem nýr Royal kerruvagn til sölu. Upplýsingar í síma 61416. Yamaha rafmagnsorgel til sölu, 2ja borða. Uppl. í síma 22215. Tækifæriskaup. Sænskt sex sæta sófasett, strigaáklæði, þrjú sófaborð. tveir danskir svefnbekkir. Laglegt, notaö. Hagstætt verð. Upplýsingar í síma 24549 milli kl. 19 og 21 næstu kvöld. Tapað Kaup Vantar 150 I. neysluvatnsdunk með 3ja kw túbu. Uppl. í síma 97-4135 eftir kl. 7 á kvöldin. Óska eftir að kaupa notuð húsgögn (gömul) Upplýsingar í síma 24853 eftir kl. 17.00. Tapast hefur lyklakippa á Ak- ureyri. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 23609. Góð fund- arlaun. mjslegt 4(JC[ý Stíflulosun? Nýtt, nýtt. Stíflu- losun, fjarlægjum stíflur úr vöskum, WC rörum, baðkerum og niðurföllum. Erum með raf- magnssnigil af fullkomnustu gerð einnig loftbyssu. Prufið og sannfærist um þjónustu okkar. Vanir og snöggir menn. Upp- lýsingar í símum 22371 Ingimar og 25548 Kristinn. Minna slátrað Endurskinsmerki eru okkur mikil vöm f myrkri. Með jieim vekjum við athygli ökumanna. Þau era ódýr líftrygging. Merkin fást á eftirtöldum stöðum: Verslunin Ásbyrgi, ” Brynju, ” Esju, Kjörbúð Bjarna, Essó Nestunum og Olís v/Tryggvabraut Kvennadeild Slysavarnafélagsins Akureyri. Grenivík 1. október SLÁTRUN hófst á Grenivík þann 21. september. Gert er ráð fyrir að slátra alls um 5 þúsund kindum, en það er um 1000 kindum færra en í fyrra. Þessi fækkun stafar af því að þeir Stefán Þórðarson í Hvammi og Sverrir Guðmundsson á Lóma- tjörn hættu báðir sauðfjárbú- skap í fyrra. Ekki hafa aðrir komið í þeirra stað. Ekki eru stór tíðindi frá sjávar- síðunni. Fiskirí er frekar dræmt. Stærri bátarnir þrír eru á netum og hefur aflinn verið frekar lítill. Tíð hefur verið risjótt og hamlað veið- um hjá litlu bátunum. P. A. S.T.A.K. leggur fram kröfur S.T.A.K., félag starfsmanna Akureyrarbæjar, hefur lagt fram kröfugerð um kaup og kjör, sem í felast megintillögur S.T.A.K., en sá fyrirvari er gerður, auk þessa fyrirvara um launastiga og fl., sem fram koma í sjálfri kröfugerðinni, að Starfsmanna- félag Akureyrarbæjar áskilur sér rétt til að gera viðbótarkröfur, svo og breytingar og leiðrétt- ingar á kröfugerð, ef ástæða þykir til á viðræðustigi um væntanlegan samning. Bæjarráð hefur vísað kröfu- gerðinni til kjarasamninga- nefndar Akureyrarbæjar. Anna Sæmundsdóttir frá Fagrabæ Fædd 22. janúar 1937 Dáin 5. september 1979 „Inn í dauðans hljóðu hallir hurfu þeir mér einn og tveir.“ Eftir því sem á ævina líður, verða þeir æ fleiri og fleiri sem hverfa inn í hinar „hljóðu hallir" hins ókomna, er bíða okkar allra. Þetta er lögmál lífsins, en þó er alltaf eins og maður hrökkvi við þegar góður vinur hverfur. Anna mín ég ætla ekki að hafa þetta mörg orð, aðeins að þakka þér góða kynningu sem hófst fyrir 19 árum, þegar sex ungar konur komu saman og stofnuðu sauma- klúbb, sem hefur haldist fram á þennan dag, en nú er stórt skarð þar sem þig vantar í hópinn, hann verður ekki sá sami. En eins og þú manst, var margt skrafað og margt 2.DAGUR til gamans gert og varst þú alltaf sami félaginn, góðum gáfum gædd, trygg, glaðlynd og góð. Alla laðaðir þú að þér, að gott var, að vera í návist þinni. Ég kveð þig, því með söknuði og þakka þér einlæga vináttu og tryggð. Ég votta eigirimanni þínum Grétari Melstað, börnum ykkar og öðrum ástvinum, innilega samúð mína, í sárri sorg eftir mæta konu sem þeim var mikils virði. „Hennar hlýja bros og hljóða prúða ró “ mun geymast í minningu vina hennar, þó árin líði. „Klúbbsystir Meðalvigtin mikið minni Á þriðjudaginn var búið að slátra á Blönduósi samtals 23.800 kindum og var meðalvigtin 12.83 kg. í fyrra var búið að slátra 23.302 kindum og var vigtin þá 14.88 kg. Mismunurinn er því hvorki meiri né minni en rúm 2 kíló. Gert er ráð fyrir að slátrun ljúki eftir mánuð. Aðalfundur Skákfélags Akureyrar verður haldinn sunnudaginn 7. október kl. 2 e.h. í Félagsborg. Venjuleg aðal- fundarstörf. Stjórn Skákfélags Akureyrar Sjónvarpið óskar eftir að taka á leigu húsbúnaö af öllu tagi til að nota í leikmynd. Húsbúnaóurinn á að vera frá árunum 1920-1940 t.d. myndir í römmum, mynda- albúm, hörpu, dúkkur og leikföng, málverk, sófa- sett og fleiri mublur, vegna kvikmyndatöku sem fer fram á Akureyri nóvember-desember 1979. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ofannefnda hluti eöa eiga þá sjálfir vinsamlegast hafi samband við Gunnlaug Jónasson á Hótel Akureyri 12-14. okt. eða í síma 23800 Reykjavík. Jörð til sölu Erum með í einkasölu jörðina Króksstaði í Önguls- staðahreppi Eyjafirði. Á jörðinni er nýtt íbúðarhús með tveimur íbúðum, hlaða, hesthús og fjárhús. Jörðin sem er ca. 7 km. frá Akureyri er liðlega 20 ha innan girðingar og vel fallin til kartöfluræktar. Sala á vélum og áhöfn kemur einnig til greina. Þriggja herbergja úrvals raðhúsaíbúö við Einiiund. Nánari upplýsingar á skrifstofunni. Fasteignasalan Strandgötu 1, Akureyri símar 21820 og 24647. Gunnar Sólnes hdl. Jón Kr. Sólnes hdl., Námskeið í gömlu dönsunum hefst þriðjudaginn 9. október kl. 20.00 í Dynheimum. Þátttökugjald er kr. 4.000,- Gömludansaklúbburinn Sporið Tæmdu úr peninKaskúffunum í pokann hér, annars segi ég konunni þinni aö þú hafir fengið óvænt launahækkun. Þetta var hörkugóð spurning hjá þér. (pöö) Kaupum hreinar (pofci) léreftstuskur ^ ^ Prentverk Odds Björnssonar h.L, (POD) Tryggvabraut 18-20. HÉR á dögunum voru foreldrar oft hvattir í fjölmiðlum til þess að leiðbeina börnunum, sem voru að hefja skólagöngu sína. Foreldrum var bent á að finna beztu leiðina fyrir börnin á leið þeirra í umferðinni til skólans. Þegar hugsað er um einu ferðina, sjálfa ævibrautina, þá hafa foreldrar og uppalendur hlutverkið að leiðbeina börnum sínum og hjálpa þeim, á leiðinni er þeim var kjörin í upphafi vegferðar við skírnarlaugina. Þessum orðum er beint til foreldra, þar sem kirkjuklukkur kalla enn á ný á börnin til Ak- ureyrarkirkju annanhvorn sunnudag. Á sunnudaginn 7. okt. kl. 11 f.h. hefst barnastarfið og þangað eru öll börn velkom- in. Yngstu börnin (undir skóla- skyldualdri) koma í kapelluna, en önnur börn í kirkjuna, með sama hætti og verið hefur und- anfarin ár. Það er ósk okkar — sóknar- prestanna — að þið, kæru for- eldrar vekið athygli barna ykkar á boði kirkjunnar. f vikunni verður komið með boðsmiða í formi auglýsingar með sjón- varpsdagskrá, sem borin verður í húsin. Börnin geta að sjálf- sögðu komið án miðanna og fengið þá í kirkjunni. Margt er það sem glepur bömum sýn, og því varðar miklu að foreldrar hjálpi hinum ungu að finna leið trúar og bænalífs í „umferðinni miklu.“ Preslarnir.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.