Dagur - 25.10.1979, Blaðsíða 4
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SlCPifstofur Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreiöslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): ERLINGUR DAVÍÐSSON
Blaöamaöur: ÁSKELL ÞÓRISSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun. Prentverk Odds Björnssonar hf
Það andar köldu
að sunnan
Húsfreyja úr Eyjafirði komst þannig að
orði í ótíðinni í sumar, „Það er engu líkara
en að skaparinn sé genginn í Alþýðu-
flokkinn." Þetta gerðist áður en Geir
Hallgrímsson gerði Braga Sigurjónsson
að landbúnaðar- og Kröflumálaráðherra,
en löngu eftir að útgöngumennirnir tóku
viðreisnarmarsinn út úr neðri deild Al-
þingis, sem frægt er orðið. Bændur og
búalið hafa ekki gleymt því, af hvaða til-
efni viðreisnarmarsinn var tekinn. Fjölda-
margir í þéttbýli, sem eru í einhverjum
tengslum við sveitirnar hafa ekki gleymt
því heldur, ekki síst þeir sem skilja að
atvinnuöryggi þeirra er ógnað, ef sam-
dráttur verður að ráði í framleiðslu land-
búnaðarafurða, en þeir eru margir.
Utgangan sjálf er einsdæmi í sögu Al-
þingis, það var beinlínis marserað út úr
þingsalnum. Sighvatur Björgvinsson hóf
marsinn, Matthías Bjarnason fylgdi fast á
eftir, Geir Hallgrímsson og Vilmundur
Gylfason gengu út hlið við hlið, og hafa
gengið það síðan a.m.k. í landbúnaðar-
málum, síðan hver af öðrum, Árni Gunn-
arsson var hálf flóttalegur eins og hann
fyndi á sér, að stórir atburðir væru að
gerast, sem gætu skipt sköpum fyrir hann
sjálfan, en fylgdi þó Vilmundi fast eftir að
vanda. Þetta gerðist á harðasta vori, sem
yfir landbúnaðinn hefur lengi komið, til-
efnið var, að til afgreiðslu var að tryggja
bændum að verulegu leiti umsamið verð
fyrir framleiðslu þeirra, um var að ræða 3
milljarða króna. Fyrir lá að, ef þetta fjár-
magn fengist ekki, til viðbótar þeirri út-
flutningstryggingu sem bændur eiga lög-
um samkvæmt, mundi vanta 1300 þúsund
á grundvailarbú til að umsamið verð
fengist, eða um 30% á laun bóndans. Til-
lagan var til þriðju umræðu í neðri deild
og var búið að samþykkja hana með eins
atkvæðis mun. En til að hindra að málið
kæmist út úr deildinni þó fyrlr lægi að
meirihlutafylgi væri fyrir henni, þá var
tekið það fangaráð að marsera út úr
þingsalnum. Þó sexmannanefnd kæmist
að einróma niðurstöðu hvað verðið á
iandbúnaðarframleiðslunni ætti að
hækka 1. sept. s.l. þá hindruðu ráðherrar
Alþýðubandalagsins og Alþýðuflokksins,
að verðið tæki gildi 1. september, eins og
lög mæla fyrir um. Þegar verðið tók gildi
um miðjan september þá ætlaði Alþýðu-
fiokkurinn af göflunum að ganga, og
sömuleiðis Geirsliðið í Sjálfstæðis-
flokknum. Þá lá það fyrir að þessar
hækkanir voru aðeins afleiðing af þeirri
verðlagsþróun sem verið hefur í landinu.
Þegar Alþingi kom saman í haust lá það
fyrir að mikill fóðurskortur er um norðan-
vert landið, afurðatjón gífurlegt eftir kald-
asta sumar sem yfir landið hefur komið
a.m.k. á þessari öld. T.d. er tekjutap
bænda sem skipta við kaupfélagið á
Kópaskeri rúmar 2 millj. króna á býli að
meðaltali af þeirri ástæðu einni. Ekki þótti
guðföður ríkisstjórnarinnar, hvað þá ráð-
herrum hans, ástæða til að rétta bændum
hjálparhönd í neyð þeirra. I stað þess rjúfa
þeir þingið og efna til kosninga í svartasta
skammdeginu, þegar allra veðra er von.
Tiilitsleysið við dreifbýlisfólkið er eins á
flestum sviðum hjá þessum herrum. Og
nú fer Alþýðuflokkurinn með landbúnað-
armálin í ríkisstjórn Geirs Hallgrímsson-
ar. Er mælirinn ekki orðinn fullur og vel
það, eða eru íslendingar orðnir skap-
lausir?
Vandamál nútímans
verða ekki leyst með
19. aldar formúlu
Áhugamannahljómsveitin sem spilaði fyrir Akureyringa i vor.
nútíma þjóðfélagi, íslensku 20.
aldar þjóðfélagi. Sá vandi sem
þessu fylgir verður ekki leystur
eftir formúlum 18. og I9. aldar.
Karl Marx er dauður. Adam
Smith er dauður. Yfirleitt eru allir
formúlusmiðir dauðir, guði sé
lof: Hitler, Staiín, Mao Tse-tung
og hvað þeir heita allir saman.
IV.
Að afneita körlum af þessu tagi er
ekki sama og að láta eins og allt sé
í stakasta lagi í þjóðfélaginu. Við
framsóknarmenn bendum á að
í kosningum þeim sem í hönd
fara skiptir mestu máli að kjós-
endur átti sig á þeim meginlinum
sem markaðar eru í íslenskum-
stjórnmálum. Aldrei hefur verið
meiri þörf á því en nú að menn
geri sér grein fyrir raunverulegri
stefnu stjórnmálaflokkanna. Ég
vil vara við þeirri skoðun, sem oft
er alið á í hálfkæringi að allir
pólitískir flokkar séu eins og að
engu máli skipti hvaða: flokkur
eða flokkar fari með völd.í land-
inu.
Tónlistarfélagið
Aðsóknin er alltof
lítil
Boðað til fundar í Borgarbíói
STJÓRN Tónlistarfélags Akureyrar hefur ákveðið að gangast fyrir
fundi um tónleikahald og tónlistarstarf í bœnum á Hótel Varðborg
sunnudaginn 28. október Kl. 16. Til fundarins er boðið stjórnendum
og forsvarsmönnum kóra og hljómsveita, fulltrúum skóla, tónlistar-
kennurum og öðrum aðilum, sem á einn eða annan hátt tengjast
málefni fundarins.
Tónlistarfélagið hefur á undan-
förnum árum gengist fyrir 6-7
tónleikum á vetri, auk þess sem
það hefur tekið þátt i undirbún-
ingi tónlistardaga.
Reynt hefur verið með vali
tónlistarfólks að forðast beina
samkeppni við aðra tónlistar-
starfsemi í bœnum, en þess í stað
boðið upp á dagskrár með ein-
leik, einsöng og samleik.
Því er ekki að leyna, að að-
sókn á tónleika er óviss, og sá
kjarni er sœkir reglulega tón-
leika allt of lítill til að standa
undir jafn kostnaðarsamri og
fjölbreyttri starfsemi.
Jafnan hefur verið litið svo á, að
starf tónlistarfélagsins eigi að
örva almennan tónlistaráhuga í
bœnum, sem beint eða óbeint
stuðli að aukinni þátttöku bœj-
arbúa í annarri tónlistarstarf-
semi, s.s. kórstarfi eða hljóm-
sveitarstarfi.
' Það er því eðlilegt að lónleika og
tónlistarstarfsemi sé tekin til
umrœðu, þegar svo er komið að
tónlistarfélagið getur vart haldið
sinni starfsemi áfram vegna slœ-
legrar aðsóknar á tónleika fé-
lagsins.
Þeirri spurningu er því varpað
fram, hvernig skólar, félög og
einstaklingar geti sameinast um
að tryggja áframhald í blómlegu
tónleikahaldi á Akureyri, og
hvernig breyta megi vinnubrögð-
um til að auka áhuga bœjarbúa
fyrir starfseminni.
Benda má á sameiginlegt hag-
rœði af samvinnu, þannig að
heimsóknir tónlistarfólks hefðu
víðtœkara hlutverki að gegna t.d.
Einsöngvaratónleikar
í tengslum við raddþjálfun
kóra, eða kórnámskeið.
Blásaratónleikar í tengslum
við námskeið lúðrasveitar.
Tónleikar í tengslum við
skólakynningar og kennslu.
Um þessi efni og fleiri er œtlunin
að rœða sunnudaginn 28. okt., og
stuðla þannig að aukinni sam-
vinnu áhugafólks í bœnum.
Við vonumst til að málaleitan
okkar verði vel lekið og „vel sé
mœtt til vinafunda “ á Varðborg.
F.h. Tónlistarfélags Akureyrar
Jón Hlöðver Áskelsson formaður
Lilja Hallgrimsdóttir ritari
Stefán Bergþórsson gjaldkeri
Ingimar Eydal meðstjómandi.
Vissulega skiptir þáð máli hvað£j
viðhorf ríkja hjá ráðantíi öflum í
landinu. Þjóðfélagið' er fullt af
togstreitu og hagsmunaárekstr-
um. Stjórnmálaflokkar starfa i á
þeim grundvelli ■ að menn líta
misjöfnum augum'á það hvernig
leysa beri hagsmunaérekstrasem
fyrir koma. Auk þess eru menn
ekki sammála um af hverju hags-.
munaárekstrar stafa.' Sumir nefna
slika árekstra stéttabaráttú. og
kalla til vitnis Kari Marx. siem
fæddur er 1818 ög dáinn 1883.
Aðrir eru að veifa visku: úr enn
eldri körlum eins og AtíamSmith
(f. 1723, d. 1790) og kalla frjáís-
Ingvar Gislason.
hvggjtt. En allt þetta fjas um
.Méttabaráttu" og „frjálshyggju"
með vísan til margdauðra kenn-
ingasmiða frá 18. og 19. öld er
einskisvirði fyrir íslensk stjórn-
mál dagsins í dag.
, Framsóknarmenn gera sér ljósa
grein fyrir hagsmunaárekstrum í
fólk býr við misjöfn kjör eftir
stöðu og starfsgreinum. Ein stétt-
in skammtar sjálfri sér laun, önn-
ur lepur dauðann úr skel. Samtök
launafólks fá ekki við það ráðið.
Hvers vegna? Mönnum er mis-
munað eftir búsetu, atvinnu og
menntun. Launamunur fer vax-
andi, næstum að segja í skjóli
verkalýðshreyfingarinnar. Hvers
vegna?
Þessu eru framsóknarmenn
andvígir. Við viljum eyða þeim
mun sem er á kjörum manna,
ekki með byltingu, heldur um-
bótum. Umbótaleiðin er kannski
seinfarin, en hún er þó mann-
eskjuleg.
Ingvar Gishtson.
Að vera staddur út a
veraldar
Margur er veraldarhjarinn og er þá
oftast átt við það sem afskekkt erog
ekki mannmargt, jafnvel einangr-
að, svo sem eyjar, annes og heiðar-
býli. En enginn finnur þó meira til
veraldarhjarans en sá, sem ein-
angrast í fjölmenni því þar finna
menn mest til smæðar sinnar og
umkomuleysis. Þetta fór ég að
hugleiða þegar einn af velunnurum
blaðsins spurði á þess leið:
Hvernig finnst þér að vera kom-
inn út að Glerá, norður á Oddeyri,
út á hjara veraldar?
Þar sem atvikin gáfu ekki svig-
rúm til svars á því augnabliki, gæti
skriflegt svar e.t.v. komið í staðinn.
Tilefnið var sjálfsagt það, að
Dagur flutti með skrifstofur sínar
fyrir meira en ári síðan að
Tryggvabraut 12, en það er sunnan
Glerár og á því svæði sem hún bjó
til. Það eru á að giska tvær til þrjár
götubreiddir frá Tryggvabraut
norður að ánni. Hún er raunar hinn
eini og sanni eigandi að öllu því
svæði, sem hún hefur búið til, sem
er öll Oddeyri og Gleráreyrar, þótt
henni finnist ekki taka því að inn-
heimta lóðagjöldin.
Nei, við erum ekki nálægt því út
á hjara veraldar á meðan byggð
þéttist og umferð vex allt í kring. Ég
skal segja þér nokkuð: Hér út um
vesturglugga skrifstofanna blasir
Hlíðarfjallið við og oft er fegurð
þess mikil, einkum fyrri hluta dags
þegar það er baðað sól, en einnig á
kvöldin þegar rafljósin teygja sig
hátt upp í skíðabrekkurnar, við
togbrautir og skíðalyftur og það
þarf nú ekki meira en að líta upp
frá ritvélinni til að hafa þetta allt
fyrir augum. Hlíðarfjall er miðstöð
vetraríþrótta hér á landi.
Við getum einnig litið hið næsta
okkur til sömu áttar og þér er fyrst
fyrir stærsta verslun skipaþjónust-
unnar utan Reykjavíkur og nokkr-
um metrum sunnar er frægasta
súkkulaðiverksmiðja landsins,
Linda. Lítið eitt vestar og upp með
Glerár, eru verksmiðjur Sam-
bandsins og mestur ullar-og
skinnaiðnaður á landi hér og einn
fólksflesti vinnustaður á Islandi.
Nú getum við lituð út um aust-
urglugga skrifstofanna og er þá
stærsta bílaleiga landsins í næsta
húsi og enn nær, þ.e. á neðri hæð-
inni hjá okkur, er einn snjallast
bílasali Norðurlands. En þessir
tveir aðilar hafa bíla raðir hér undir
gluggunum, stóra og smáa, gamla
og nýlega.
Ef gluggi er opnaður á þessari
hlið er líklegt að ilmur berist frá'
Kaffibrennslu Akureyrar, sem er ‘í
þarnæsta húsi, einnig í austurátt.
Þar er framleitt „hið "hressandi
Bragakaffi“, sem landfrægt er a
síðari árum.
Næst austan við Kaffibrennsl-
una og Bragakaffið er Prentverk
Odds Bjömssonar hf, gamálgróið ’
fyrirtæki frá 1897. Lengrá frá pg-
dálítið til hægri er fiskve'rkun LJt-
gerðarfélags Akureyringa- hf, sejn-'
sennilega er eitt best rekna útgerð'-
arfyrirtæki á landinu og gerir út
fimm togara með góðum árangri,
auk fiskverkunar, Ef heppnin eSr :
með, sést einhver togarínnú útleið
eða innleið til löndunar.
Rennum nú augunumndrðaustiu.
ur og þá blasa við stefni:skipa, sem
tekin hafa verið upp i dráttarbraut:
hjá Slippstöðinni hf. Þaðan er
skammt frá sú stórbygging Slipp-
stöðvarinnar, sem hýst getur stór
skip, á með an þau eru í smíðum og
skilað þeim af sér beint í sjó fram út
úr öðrum endanum, og hefur það
reynst auðveld fæðing.
Hér er um að ræða fullkomnustu
stálskipasmíðastöð þessa lands,
með sína 280 starfsmenn. Það er
varla von að maður taki eftir
Iþróttaskemmunni, sem er þó í be-
inni línu og skemmra frá. Hún læt-
ur ekki mikið yfir sér, en þar er
unga fólkið í þjálfun og keppni og
talið hollt og skemmtilegt jjar að
vera. Beint í norður er Eyjafjörð-
urinn með allar sínar dásemdir og
fjöllin friðu til beggja hliða og
undir þeim blómlegar byggðir og
þar býr duglegt fólk með of margar
ær og kýr, samkvæmt nýjustu vís-
indum, En því miður er hér galli á.
Einhverjum datt í hug að byggja
Þórshamar norðan við okkur og
byrgir hann alla sýn í þá áttina.
Glerá rennur norðan við húsvegg
hans og hún hefur ekki sýnt neina
tilburði í þa’átt síðustu árin, að
hrista hann af bakka sínum og þess
vegna sjáum við mikinn múrvegg í
stað allra dásemda Eyjafjarðar.
Á milli húss okkar og Þórsham-
ars er Tryggvabraut og þer er lát-
laus straumur bíla allan daginn, því
auk þess sem nefnt er hér að fram-
an eru verkstæði, kennd við vélar,
járn, tré og nýbyggingar allt um
kring. Við erum á einu mesta at-
hafnasvæði bæjarins og því ekki á
neinum veraldarhjara og þar hefur
þú svarið, ásamt bestu kveðjum —
E.D.
Gylfi Þórhallsson skrifar um:
SKAK
HELGINA 29. og 30. september héldu
Flugleiðir h.f. mikið og skemmtilegt
15 minútna hraðmót á Hótel Esju. 24
sveitir kepptu þar um vegleg verðlaun,
og einnig voru í boði utanlandsferðir
fvrir bestu útkomuna á hverju borði.
Skipulagning og framkvæmd mótsins
var stjórnendum til mikils sóma.
Röð cfstusveita var þessi:
Búnaðarbankinn 55 v. af 59.
Kleppsspítali 53(A v. 3. Otvegsbank-
inn 52 v. 4. Fjölbrautarskólinn i
Kefiavík 49'/2 v. 5. Landsbankinn 48
v. 6.-7. Háskólinn og Islenska járn-
blendiféiagið 44 v. 8, Skákfélag
Akureyrar 43'/i v. 9. Taflfélag Árnes-
inga 42ÍÓ v. 10. Rafmagnsveita
Reykjavíkur 37'/> v.
I sveit Skákf. Akureyrar voru Hall-
dór Jónsson, en hann tefldi á 1. borði.
og fékk 11/2 v. af 21. 2. borð Ólafur
Kristjánsson l'ö v af 16. 3. borð Gylfi
Þórhallsson 1816 v. af 22, og varamenn
voru Þór Valtýsson 2 v. og Haraldur
Ólafsson 4 v. af 5 mögulegum. r:"-
Skák þáttarins er úr deildardeppn-
inni sem nú stendur yfir.
Hvítt: Gunnlaugur Guðntundsson
Akurevri.
Svart: Jón Baldur Lóransson
Taflfél. Seltjarnarness.
Sikileyjarvörn.
1. e4—c5
2. f4—d6
3. Rf3—Rf6
4. d3—e6
5. c3—Rc6
6. Be2—Be7
7. 0-0—0-0
8. Del—a6
9. Dg3—
(þessa stöðu hefur Gunnlaugur fengið
oft upp og unnið niarga glæsilega
sigra)
9. —He8
10. Ra3—b5
11. Be3—d5
12. e5—Rd7
13. d4—cxd4
14. cxd4—bxa3?!
15. bxa3—Da5
16. Rg5—Dxa3
17. Hf31?—h6?
(óþörf veiking, best cr 17. —Db2, ef nú
18. f5—Rxd4 og svartur stendur betur,
en ekki 18. —Dxal 19. Hfl—Db2, 20.
Bh5—gó, 21. fxg6—fxgó, 22. Rxlt7 og
vinnur)
18. Rh3—g6?
19. Dh4—Kg7
20. f5!—Hh8
21. Bxh6!!—HxB
22. f6—Kh7
23. Rg5—Kg8
24. DxH— gefið.
BLAKIÐ
ÍÞRÓTTASÍÐIJNNI hefur
nýiega borist tvö síðustu
fréttabréf Blaksambandsins.
í þessum blöðum er sagt frá
þvi helsta sem á döfinni er
hjá Blaksambandinu. Um
leið og blaksambandið sendir
öllum iðkendum þessarar
íþróttar kveðjur sínar í byrj-
un vetrarstarfs boðar það til
byltingar í starfi sínu.
Stjórn BLl hefur ákveðið að
helga þessu starfsári sérstakléga
krafta sína við uppbyggingu á
„innra“ starfi félagsins og út-
breiðslu íþróttarinnar meðal
hinna yngri.
Ráðinn fram-
kvæmdastjóri
Stjorn BLl hefur nú ráðið
Gunnar Árnason, íþróttakenn-
ara. framkvæmdastjóra sam-
bandsins. I því starfi felst dag-
legur rekstur Blaksambandsins.
skipulags og stjórnunarmál.
Gunnar er þaulreyndur
blakmaður og hefur m.a. leikið
29 landsleiki fyrir Islands hönd.
Hann kynntist þessari í íþrótt í
Reykjavík árið 1967 hjá Páli
Ólafssyni og síðan var hann á
Laugarvatni á árunum 1968-74.
Hann er öllu blakfólki því
mjög vel kunnur vegna félags-
starfa sinna hjá Blaksamband-
inu.
Skrifstofa sam-
bandsins
I vetur verður skrifstofa BLÍ í
íþróttamiðstöðinni opin alla
virka daga frá kl. 15-18. Þar
verða til viðtals auk fram-
kvæmdastjórans aðrir stjórnar-
menn sambandsins og eru fé-
lagar hvattir til að koma á
skrifstofuna til skrafs og ráða-
gprða. Vinnsla mótaskrárinnar
fyrir yfirstandandi ár er 1 fullum
gangi en ritstjóri hennar er
Bjarni Bjarnason og honum til
aðstoðar Jóhann Sigurjónsson
og eru þeir báðir úr Víkingi. I
mótanefnd sambandsins eru
þeir Kjartan Páll Einarsson,
Bjarni Bjarnason og Jóhann
Sigurjónsson.
0
Keppnir
Lið UMSE leikur í fyrstu
deild í blaki, og hefur gert það
undanfarin ár. Fyrsti leikurinn
á þessum keppnistímabili verð-
ur í íþróttahúsinu í Glerárhverfi
þann 3. nóvember kl. 15.00 og
leika þeir þá við lið stúdenta.
Stúdentar hafa á að skipa
mjög sterku liði, og hafa verið
Islandsmeistarar í mörg ár.
I annarri deild keppa Fram,
UBK, ÍMA, KA, Völsungur og
Þróttur Neskaupsstað.
Fyrsti leikurinn í deildinni
verður einnig þann 3. nóv. og
hefst á eftir leiknum hjá UMSE
og stúdentum.
Þá leika KA og ÍMA en þau
lið eru nokkuð jöfn að styrk-
leika. Sigurður Harðarson leik-
maður með UMSE þjálfar lið
KA og sagði hann mjög vaxandi
áhuga á þessari íþrótt hjá þeim
og á æfingum væri fjöldi
manns. Samkvæmt alþjóðleg-
um skrám eru iðkendur blaks
fleiri en nokkurrar annarrar
iþróttar.
Flöskudagurinn er á sunnudag
N.K. SUNNUDAG 28. október munu yngstu knattspyrnumenn Þórs
ganga í hús hér í bænum og safna tómum gosdrykkjaflöskum. Þetta gera
þeir til styrktar starfsemi knattspyrnudeildarinnar. Fyrr i sumar söfn-
uðu frjálsíþróttafólk KA tómum flöskum, og nú er koniið að fólki að
styrkja starf Þórs á sama hátt. Bæjarbúar eru hvattir til að taka vel á
móti söfnunarfólki, og láta einhverjar flöskur af hendi rakna.
Þór tapaði
fyrsta leikn-
um í körf-
unni.
UM SÍÐUSTU helgi
léku Þórsarar sinn
fyrsta leik á þessu
keppnistímabili í
fyrstu deildinni í
körfubolta.
N
Þeir léku við Ar-
menninga og fór leik-
urinn fram í Reykja-
vík. Ármenningar
unnu öruggan sigur,
en þeim er spáð góðu
gengi í deildinni. Eins
°g hjá öðrum fyrstu
deildar liðum hafa
þeir bandaríkjamann
í liði sínu og átti hann
stórleik í þessum leik.
Hjá Þór bar mest á
Bandaríkjamannin-
um Cary Schwarts og
Eiríki Sigurðssyni.
Cary skoraði 30 stig
en Eiríkur 24.
Handbolti
um helgina
UM NÆSTU helgier
meistaraflokkur
Fram í handknattleik
(karla) væntanlegur
til Akureyrar og mun
hann keppa við Þór
og KA á föstudag og
laugardal.
Á sunnudag er
hraðkeppni sömu
liða. Áhorfendur eru
hvattir til að fjöl-
menna í skemmuna
og sjá skemmtilega
leiki. Eins og allir
vita, leikur Fram í
fyrstu deild
ÞAÐ VORU ÞEIR SEM SIGRUÐU
Sameiginlegt lið Gunnars Óskarssonar múrarameistara og Trésmiðjunnar Reynis sigraði í Firmakeppni
KRA í knattspyrnu. Fyrirliði liðsins Pétur Sigurðsson heldur á verðlaunagripnum, stýrishjólinu, sem
gefið var á sfnum tíma af Slippstöðinni. Nú eru svo margir verðlaunaskildir komnir á hjólið að ekki
komast fleiri fyrir og verður því ekki keppt um það aftur. I fyrsta sinn sem keppt var um þennan grip unnu
hann starfsmenn Óskars Gíslasonar föður Gunnars.
4 . DAGUR
DAGUR.5