Dagur - 25.10.1979, Blaðsíða 8

Dagur - 25.10.1979, Blaðsíða 8
DAGUR Akureyri, fimmtudagurinn 25. október 7 Leikskóli á Hvammstanga ÞAÐ TELST til nýjunga að á Hvammstanga starfar leikskóli, og sér Þórveig Hjartardóttir um hann. Geta mæður nú haft börn sín þama hluta og hluta úr degi, og er það vinsælt eins og víða annars staðar þar sem slíkt þekkist. Barn- eignir á staðnum eru líka með meira móti, og hefði hér fyrr meir slíkt t.d. tengst ísaárum eða ein- hverju álíka, en sennilega setur olíukreppan strik í reikninginn að þessu sinni. Aðalfundur Framsóknar- félags Eyja- fjarðar NÝLEGA var haldinn aðal- fundur Framsóknarfélags Ey- firðinga. Margir komu á fund- inn og var Ijóst að menn voru ákveðnir að berjast fyrir næstu kosningar. í stjórn félagsins voru kjörnir: Stefán Valgeirsson Auðbrekku, formaður, Helgi Jónsson Dalvík, varaformaður, Snorri Kristjánsson Krossum, ritari og meðstjórnendur þeir Stefán Halldórsson Hlöðum og Sigurður Jósepsson Torfufelli. Varamenn: Guðlaugur Halldórs- son Merkigili, Árni Hermannsson Bægisá, Ármann Þórðarson Ólafs- firði og Jóhann Ólafsson Hvarfi Svarfaðardal. * Ekki í Ljósa- vatnsskarði 1 „Smátt og stórt" í síðasta blaði var sagt frá hálku á vegi í Ljósavatns- skarði. Þetta var ekki alveg rétt, því hálkan, sem átti rætur sínar að rekja í kúamykju var í Fnjóskadal. * Bókauppboð í Varðborg ÞRIÐJA bókauppboð Jóhannesar Óla Sæmundssonar fornbókasala verður í Hótel Varðborg laugar- dagirrn 3. nóvember n.k. og hefst kl. 15.30. Þar verða á boðstólunr um 150 bækur og rit. Nefna má: Arsril Frœðifélagsins I-XI, Bóndinn ú heiðinni. Búalög I-i, Búfrœðingur- inn, Dvöl l-XV, Einvaldsklærnar i Hornafirði, Faguri er I Fjörðum, Forlagaspár Kirós, Fornar grafir og frœðimenn, Forordning um garða- og þúfnasléllun, Haruldur Björns- son 1915-1945, Heima og erlendis (Guðm. Magn.), Horfnir góðhestar 1-11, Iðunn '-XX.Jónsbók liin forna, Jörð I-IX, Komandi úr I- VI, Kristrún i Hamravík, Kvœði Jóns Tlioroddsen (1871), Laxamýrarœtt- in, Minningar og skoðanir E.J., Viðeyjar-Njála (1844), Saga Skag- strendinga og Skagamanna, Sagnir og þjóðhættir (O.O.), Sterkir stofn- ar, Yoga, Þingeysk Ijóð, Skútu- staðaætt. Bækurnar eru til sýnis í fornsölunni Fögruhlíð kl. 16-18 virka daga. Menntaskólanemi að viða að sér efni í ritgerð. Mynd: G.M. ÞANN 13. október síðastliðinn var haldinn í Amtsbókasafninu á Akureyri fundur bókavarða úr Eyjafjarðarhéraði, að tilhlutan bókafulltrúa ríkisins og Amts- bókasafnsins. Voru þar mættir bókaverðir og stjórnarmenn bókasafna frá Ólafsfirði, Dal- vík, Hrísey, Skriðuhreppi, Öxnadal og Þelamörk, einnig bókavörður Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri og bóka- verðir Amtsbókasafnsins svo og bókafulltrúi ríkisins Kristín H. Pétursdóttir. Gafst fundarmönnum þarna tækifæri til að ræða við bókafull- trúa, greina frá sínum vandamálum og leita ráða og upplýsinga. Kristín H. Pétursdóttir greindi frá hvert væri hlutverk bókafulltrúa og ræddi tengsl hans við almennings- bókasöfnin í landinu. Lagði hún mikla áherslu á gott og náið sam- band við bókasöfnin og nauðsyn þess að söfnin stæðu ætíð skil á ársskýrslum sínum til bókafulltrúa, því skýrslur þessar eru mikilvægur liður í því að skapa þá heildarmynd af bókasafnsstarfseminni í landinu sem nauðsynleg væri við gerð framtíðaráætlana í bókasafnsmál- um. Bókafulltrúi greindi einnig frá því að í ráði er að koma af stað námsskeiði í bréfaskólaformi fyrir bókaverði og kynnti einnig starf- semi Þjónustumiðstöðvar bóka- safna sem væntanlega mun nú taka að sér útgáfu og dreifingu á skrá- ningarspjöldum, auk þess sem hún hefur á boðstólum ýmsar vörur til bókasafna, eða annast útvegun þeirra. Á síðastliðnu ári gekk í gildi ný reglugerð um almenningsbóka- söfn. Samkvæmt henni skal land- inu skipt í bókasafnsumdæmi og í hverju umdæmi skal vera eitt mið- safn. Akureyri og Eyjafjarðarsýsla er eitt umdæmi, með Amtsbóka- safnið á Akureyri sem miðsafn. Ólafsfjörður og Dalvík eru sérstök umdæmi. Hlutverk miðsafna gagnvart öðrum bókasöfnum í umdæminu er meðal annars að „veita hrepps- söfnum, skólasöfnum og stofnana- söfnum í umdæminu aðstoð og þjónustu og efla samvinnu þeirra," eins og segir í áðurnefndri reglu- gerð. Dagblöðin lesin á Amtsbókasafninu. „MIÐSAFN“ SÝSLUNNAR Til þessa hefur nokkuð skort á að samband væri á milli hinna ein- stöku bókasafna í héraðinu og var því, í samráði við bókafulltrúa rík- isins, brugðið á það ráð að boða til þessa fundar. Verður hann vænt- anlega til þess að efla samstarf og auka kynni milli bókasafnanna hér um slóðir. Daginn eftir fór bókafulltrúi ásamt tveim bókavörðum Amts- bókasafnsins til Ólafsfjarðar til skrafs og ráðagerða við forráða- menn bókasafnsins þar og bæjar- fulltrúa kaupstaðarins. Bókasafn Ólafsfjarðar hefur um skeið verið í nokkrum öldudal, en heimamenn hafa fullan hug á að ráða þar bót á og reyna að efla safnið og bæta í framtíðinni. Myndhópurinn: ÓSKAR EFTIR LISTAVERKUM FYRSTA samsýning sem Myndhópurinn á Akureyri stendur fyrir, síðan hann var formlega stofnaður í janúar sl., verður haldin í félagsheim- ilinu Hlíðarbæ, dagana 17. til 25. nóvember nk. Sú nýbreytni verður upp tekin, að öllu norðlensku myndlistar- fólki er boðið að senda verk til sýningarnefndar Myndhópsins, en hún sker úr um það, hvort verk verður tekið til sýningar eða ekki. Engin takmörkun er á fjölda inn- sendra verka, en sýningarnefnd er að sjálfsögðu bundin stærð sýningarsalar. Senda má hverskonar gerðir myndverka, t.a.m. málverk, teikningar, höggmyndir, grafík, vefnað, textil, keramik og ljós- myndir. Verkum skal skila í Hlíðarbæ, fimmtudaginn 15. nóvember nk. kl. 17 til 19. Þátttökugjald skal þá greiðast um leið, en það er kr. 5000 fyrir utanfélagsmenn, en kr. 7000 fyrir félagsmenn. Það er ósk sýningarnefndar Myndhópsins, að sem flestir norðlenskir myndlistarmenn taki þátt í þessari sýningu, en þátttak- an mun að sjálfsögðu skera úr um það, hvort framhald verður á sýningum sem þessum. Nánari upplýsingar um sýn- inguna gefur sýningarnefndin, en hana skipa Guðmundur Ármann, símar 24895 og 22196, Jón Bjarni, sími 21704 og Ragnar Lár, sími 23688. Amtsbókasafnið á Akureyri: SlMI 9622700

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.