Dagur - 06.11.1979, Síða 8
DAGTJR
Akureyri, þriðjudagur 6. nóvember 1979
Utvarp Akureyri:
Aðstaðan stórbætt
LOKIÐ ER framkvæmdum við
hús Ríkisútvarpsins við Norður-
götu á Akureyri. Miklar breyt-
ingar voru gerðar innan dyra á
húsinu og nú er hægt með lítilli
fyrirhöfn að taka upp dagskrár
eða senda efni beint til Reykja-
víkur. Ef að líkum lætur mun
Gamla Reykhúsið. Mynd á.þ.
Sjónvarpið fá inni á neðri hæð
hússins, sem er bakhús og var
áður m.a. notað sem reykhús.
Er fyrstu útsending á Morgun-
póstinum frá Akureyri lauk í gær-
morgun — fyrstu á þessu hausti, þá
fórum við á stúfana og hittum að
máli Pál Heiðar, tæknimennina
Þóri Steingrímsson, Magnús
Hjálmarsson, að ógleymdum
Björgvini Júníussyni, — okkar
manni á Akureyri.
Búið er að rífa allt innan úr efri
hæðinni og byggja herbergi innan í
húsinu þ.e. upptökuherbergið
tengist varla útveggjum, og sá
veggur sem snýr að tækjaherberg-
inu er tvöfaldur þannig að hvor
veggur er sjálfstæð eining, sem ekki
snertir hina. Gluggi er á milli upp-
tökuherbergis og tækjaherbergis og
í honum er tvöfalt 10 mm. gler, en í
glugga sem snýr að götunni er
þrefalt gler. Þetta gerir það að
verkum að ekki heyrist hljóð út
fyrir upptökuherbergið eða inn í
það öðruvísi en um magnarakerfi
eða sambærilegt.
HVERNIG VAR
ÞETTA HÆGT?
ER VIÐ höfðum samband við
Guðmund Jónsson í Grímsey s.l.
þriðjudag sagði hann að fyrir
dyrum stæði á miðvikudag að
skipa út miklu af saltfiski, sem á
að fara til Miðjarðarhafsland-
anna, Grikklands, Ítalíu og
Spánar.
„Aflinn er búinn að vera afburða
góður. Við erum búnir að fá 1100
tonn á móti 849 tonnum allt árið í
fyrra,“ sagði Guðmundur. „Flokk-
Ætla að kaupa
stóla handa
Kristneshæli
LIONSKLÚBBURINN Vitaðs-
gjafi er fimm ára um þessar
mundir. Hann hefur miðað
starfsemi sina við það að geta
hjálpað bágstöddu fólki á fé-
lagssvæði sínu eftir því sem til-
efni hefur gefist og efni klúbbs-
ins hafa leyft. Stundum hefur
hann einnig tekið höndum sam-
an við aðra Lionsklúbba, þegar
um stærri verkefni hefur verið
að ræða. Má þar nefna tækja-
kaup til Fjórðungssjúkrahússins
og Sólborgar ásamt aðstoð við
Sjáifsbjörg.
Nú hyggst Vitaðsgjafi senn efna
til sölu á ljósaperum í innanverðum
Eyjafirði og á Svalbarðsströnd, og
afla með því fjár til kaupa á
þægilegum stólum handa gömlu
fólki á Kristneshæli. Samkvæmt
upplýsingum frá forstöðukonu
hælisins er mikil þörf fyrir slíka
stóla í setustofu hælisins og einnig
inni á herbergjum. Klúbburinn
hefur að vísu ekki efni á að kaupa
nema fáa stóla nú, en hann hefur
sem aðalverkefni að hlynna að
öldruðu fólki á Kristneshæli og
mun þess vegna einnig leita til al-
mennings í sveitinni með kaup á
blómum, fiski o.fl. síðar í vetur.
Létu þeir félagar vel af þessari
aðstöðu og sögðu að hér væri gam-
all draumur að rætast. Nú er kom-
inn grundvöllur til að senda út
heimasmíðaða dagskrá en þó að-
eins talað mál svo sem viðtöl, leikrit
og því um líkt, en ennþá vantar
plötuspilara, segulbönd og
„mixer“. Ekki er vitað hvenær
þetta kemur, en Þórir hélt að fyrir
helgina hefði verið leyst út tæki
sem notað verður við upptökur
utan Reykhússins.
Til tals hefur komið að Sjón-
vaarpið fái að geyma tæki því við-
komandi á neðri hæðinni og í
framtíðinni verði þar komið upp
aðstöðu fyrir sjónvarpsvél þannig
að hljóð frá henni komi ekki inn á
upptökur því tengdar.
un fisksins er góð og vinnuaðstaða
er orðin betri. Ný verkfæri sem
hafa fengið fólk til þess að spyrja,
hvernig var þetta hægt áður?“
„Áður en við tókum nýja húsið í
notkun voru aðeins notaðar hjól-
börur o.þv.l. en nú eru komnir
lyftarar, og fiskurinn er settur beint
á fleka og allur meðhöndlaður á
annan hátt en áður.“
Skortur á vinnuafli er það sem
háir okkur Grímseyingum núna,
þegar skólafólkið er farið til lands.
Fjórir bátar eru að fara á netaveið-
ar í stað tveggja áður, þannig að
það er nóg að gera,“ sagði Guð-
mundur að lokum.
Sótt um heimild til
útimarkaðar
BJARNI Kristjánsson, for-
stöðumaður Vistheimilisins
Sólborgar hefur ritað bæjaryfir-
völdum bréf og farið þess á leit
að bæjarstjórn veiti vistheimil-
inu leyfi til að setja upp úti-
markað dagana 1. til 8. desem-
ber n.k.
Ætlunin er að selja ýmsa muni
sem hafa verið unnir af vistmönn-
um og er óskað eftir aðstöðu fyrir
markaðinn á miðbæjarsvæðinu.
Þegar málið kom til umfjöllunar
bæjarráðs varð það niðurstaðan að
ráðið féllst á umsóknina og benti á
Ráðhústorg sem markaðssvæði.
Kosið í kjördæm-
is- og miðstjórn
Á KJÖRDÆMISÞINGI fram-
sóknarflokksins í Norðurlands-
kjördæmi eystra um s.l. helgi
var kosið í stjórn kjördæmis-
ráðsins. Eftirtaldir aðilar eiga
sæti sem aðalmenn í stjórninni:
Haukur Halldórsson, Hákon
Hákonarson, Egill Olgeirsson,
Þóra Hjaltadóttir, Tryggvi
Gíslason, Björn Guðmundsson
og Aðalbjöm Gunnlaugsson.
Einnig var kosið í miðstjórn
Framsóknarflokksins og hlutu
eftirtaldi kosningu: Ingi
Tryggvason, Sigurður Óli
Brynjólfsson, Tryggvi Gíslason,
Hilmar Daníelsson Jóhann
Helgason, Hákon Hákonarson,
Egill Olgeirsson og Pétur
Björnsson.
TTjT
LuU
0 Fyrrverandi
bankamenn
féllu
Þau tíðindi hafa gerst í Norð-
urlandskjördæmí eystra, að
tveim bankaútibússtjórum á
Akureyri, Jóni G. Sólnes og
Braga Sigurjónssyni var vikið
til hiiðar af sinu stuðnings-
fólkl þegar framboðslistar
sjálfstæðfs og krata voru í
undirbúningi. Virðist margur
stuðningsmaðurinn hafa
snúið við þeim bakl, er þeir
hurfu úr peningastofnunum.
0 Bragiand-
stæður
vinstri stjórn
Bragi Slgurjónsson var and-
stæðingur vinstri stjórnar-
innar, þótt einkennilegt væri
og vakti sérstaka athygll á því
á Alþingi. f prófkosnlngum
Atþýðuflokks hafa þeir menn
víða fallið út af lista eða verið
færðir niður, sem andstæðir
voru fráfarandi vinstri stjórn
og er Bragi einn þeirra. En
auk þess er Ijós hinn dvín-
andi áhugi á prófkjöri hjá
þeim flokki nú.
0 JóniG.Sól-
nes sparkað
Jóni G. Sólnes var hrelnlega
sparkað út af lista flokkslns í
þessu kjördæmi, í einstakri
einlngu kjördæmisráðs, að
því er fregnir herma, en hann
skipaði áður fyrsta sætl. En
Sólnes er maður baráttu-
glaður og er efsti maður á
lista í sérframboði. Segist
hann þannig vera helmingur-
inn af tviarma Ijósastlku
flokksins f Norðurlandskjör-
dæmi eystra, en Geir Hali-
grímsson, kallar það vlllu-
Ijós, sem Jón hefur sín megin
á stjakanum. Jón mun berjast
við fyrri samherja til þrautar.
0 Glundroði í
Sjálfstæðis-
flokknum
Þ egar Iftið er til framboðs-
mála Sjálfstæðlsflokksins,
verða þau sannindi Ijós hve
miklll gtundroði, átök, ósam-
komulag og valdabarátta ríkir
innan þess flokks, hversu vel
sem þess er gætt í blekklng-
arskyni, að breiða yfir brest-
ina. i tveim stærstu kjör-
dæmum utan Reykjavfkur,
Norðurlandi eystra og Suð-
urlandskjördæmi, bjóða
sjálfstæðismenn fram tvo
lista vegna ósamkomulags,
en flokksforystan hafnar
aukaframboðunum og neitar
Sóines hér og Haukdal syðra
um blessun sína. Aukafram-
boðin geta haft hinar örlaga-
ríkustu afleiðingar f kosning-
unum, auk þess sem þau
sýna innri glundroða í
stærsta stjórnmálaflokknum.
Minkur á rækju!
SÁ ÓVENJULEGI atburður
gerðist fyrir skömmu um borð í
rækjubátnum Trausta ÞH 8 frá
Kópaskeri að þegar báturinn var
u.þ.b. tvær mílur frá landi stökk
mórauður minkur upp úr neta-
hrúgu og út í sjó. Þegar síðast
sást til minksins stefndi hann á
haf út. Talið er að þetta sé
minkur sem hefur búið í grjót-
garði sem er utaná hafnargarð-
inum á Kópaskeri. Annaðhvort
hefur minknum tekist að komast
til lands og heim aftur eða að
eftirlifandi ættingjar séu á vappi
um bryggjuna, því sést hefur til
minks eftir atburðinn um borð í
Trausta.
„Ég var afturá, en félagi minn
fram við spilið. Hann sá hvar
minkurinn stökk upp úr hrúgunni
— rétt við hliðina á mér. Hann
kallaði og ég leit við, en þá var
minnkurinn að lenda í sjónum. Það
ver eins gott að það var ekki ég sem
sá minkinn, því ég hefði eflaust
stokkið fyrir borð. Mér er illa við
svona kvikindi,“ sagði Barði Þór-
hallsson, skipstjóri á Trausta. „Við
höfðum engin vopn til að vinna á
minknum og eltum hann lítið, enda
vorum við á arðbærari veiðum."
Eins og fyrr segir heldur minkur
til í grjótgarði í höfninni á Kópa-
skeri og sjálfsagt lifir hann á úr-
gangi ýmiskonar. Barði sagði að
menn hefðu reynt að veiða
„bryggjuminkana" með bogum og
eins hefur sést til manna með bar-
efli á harðaspretti um bryggjuna.
Minkurinn er fótfrár og enn sem
komið er hefur hann sneitt fram hjá
bogum og vopnum sem menn hafa
notað. „Við sjómenn göngum nú
orðið ákaflega varlega um lúkar-
ana, því við eigum alltaf von á að
minkurinn taki sér bólfestu í ein-
hverri kojunni," sagði Barði að
lokum.
Tjón bænda er mikið
Nýlega lauk sláturtíð á
Vopnafirði og var slátrað um
17.000 fjár á þessu hausti.
Meðalvigt er 1,5 kg. minni en
í meðalári, sem þýðir tjón á
400 dilka innleggi um 1 millj.
króna.“ sagði Jörundur
Ragnarsson kaupfélags-
stjóri.
Hann sagði að fjöldi dilka
sem slátrað var nú sé svipaður
og í fyrra, en aftur á móti hefðu
bændur slátrað fleiru fullorðnu
en áður og það mun vera af-
leiðing þess að heyfengur er um
15% minni en í fyrra.
Ekki munu öll kurl komin til
grafar og getur verið að tjón
bænda sé mun meira en um
getur í upphafi því flokkun
dilkanna er verri en á árum áð-
ur, fyrir utan lélegri meðalvigt.
Þeir eru ekki beint snoppufriðir minkarnir. Mynd: á.þ.