Dagur - 03.01.1980, Blaðsíða 2
sSmáausflvsinéar
Þiónusta
Höfum til leigu snittvél og kerr-
ur. Uppl. í síma 23862.
Tökum að okkur hreingerning-
ar á ibúðum, stigahúsum, veit-
ingahúsum og stofnunum.
Hreinsum teppi og húsgögn
með háþrýstitæki og sogkrafti.
Sími 21719.
Ýmisle&t
Þrifnir kettlingar fást gefins.
Uppl. í síma 24234.
Húsnæði
2ja herbergja íbúð óskast til
leigu um mánaðarmótin jan-
úar-febrúar n.k. Upplýsingar í
síma 25232 eftir kl. 5 á daginn.
Slippstöðin h.f. óskar að taka á
leigu 2ja og 3ja herbergja
íbúðir. Upplýsingar gefur
starfsmannastjóri sími 21300.
Óska að taka á leigu 2ja her-
bergja íbúð strax. Fyrirfram-
greiðsla ef óskað er. Upplýs-
ingar í síma 22605 eftir kl. 17.00
á daginn.
2ja-3ja herb. íbúð óskast á
leigu. Uppl. í síma 52112 á
kvöldin.
Sala
Vélsleði til sölu. Polaris Colt
S/S 340 árg. -77. Uppl. í síma
21748.
Poodle hvolpar til sölu. Upp-
lýsingar í síma 23582.
Húsnæói
3 herb. íbúð óskast til leigu sem
fyrst. Uppl. ísíma 24643 eftir kl.
6 á daginn.
2-3ja herbergja íbúð til leigu
strax. Uppl. gefur Sævar í síma
21794 milli kl. 5 og 7 næstu
daga.
Þú sparar þér 1000 krónur
með staðgreiðslu á smáauglýsingum
I
I
I
I
I
I
DAGUR>
Tryggvabraut I
12 ■
Götulýsing á Hörgárbraut
FYRIR áramót fóru bæjaryfir-
völd þess á leit við Vegagerð
ríkisins að hluti Hörgárbrautar
yrði lýstur upp. Svar hefur nú
borist frá forráðamönnum
Vegagerðar ríkisins og í bréfinu
segir m.a. „Engin fjárveiting er
til þessa verks skv. núgildandi
vegaáætlun og verður erindi
þetta lagt fram við næstu endur-
skoðun hennar.“
Bæjarráð fól rafveitustjóra að
gera kostnaðaráætlun um götulýs-
ingu á Hörgárbraut frá gatnamót-
um við Hlíðarlund og norður fyrir
íbúðabyggð annars vegar og hins
vegar norður að Lónsbrú.
Kjörmarkaður KEA:
110 milljónir í
nóvember
ÞAÐ MUN víst flestum fé-
lagsmönnum kunnugt, að
stærstu kjörbúð kaupfélags-
ins, Hrísalundi 5, var breytt f
svokallaðan kjörmarkað
þann 2. apríl sl. en jafnframt
var kjörmarkaðinum í Gler-
árgötu 28 lokað. Sölusvæði
hins nýja Kjörmarkaðar er
um 600 m2 en að auki er góð
bakaðstaða, svo sem frystir,
kælir, vinnslu- og pökkunar-
aðstaða, lager, kaffistofa
o.fl. Einnig er á sömu hæð
kaffitería fyrir viðskiptavini
en f kjallara sérvöruverzlun
ca. 200 m2.
Óhætt mun að fullyrða, að
félagsmönnum og öðrum við-
skiptavinum hefur líkað vel
aukið vöruval og hagstætt
vöruverð Kjörmarkaðarins.
Styrkur slíkra stórmarkaða
sem Kjörmarkaðarins liggur í
stærri og færri afgreiðslum, þ.e.
fjölskyldur gera gjarnan kaup
til margra daga í einu. Hefur því
tekist að lækka ýmsa kostnað-
arliði verulega sem prósent af
veltu. Launakostnaður Kjör-
markaðsins, sem hlutfall af
veltu, hefur þannig lækkað um
40-50% eða í fyllilega sambæri-
lega tölu stórmarkaða í Reykja-
vík. Kjörmarkaður KEA veitir
þó meiri þjónustu en almennt er
um stórmarkaði og mætti þar
nefna kjötborðið og sérstök
verðtilboð.
45% af vikusölu Kjörmark-
aðarins fer fram á föstudegi og
til hádegis á laugardegi. Þessi
mikla verzlun tvo síðustu daga
vikunnar hefur óhjákvæmilega
leitt til biðraða við kassaborðin.
Nýverið var bætt við einu
kassaborði en full ástæða er þó
til að benda viðskiptavinum á
að beina verzlun sinni í auknum
mæli á fyrri hluta vikunnar.
í Kjörmarkaði KEA, Hrísa-
lundi 5, vinna að staðaldri 15
manns en á álagstímum er að
sjálfsögðu bætt við starfsliðið. I
nóvember sl. nam sala Kjör-
markaðarins 110 milljónum
króna.
HAPPDRÆTTI
ÞAR SEM ALLIR HUÓTA
VINNING
Þetta er happdrættið sem leggur meiri áherslu á marga
notadrjúga vinninga en fáa sérlega háa. Þó er hægt að vinna 5
milljónir og milljón krónu vinningarnir eru 25.
Og nú verða það þrír sparneytnir og eftirsóttir bílar sem dregnir
verða út sem aukavinningar í júní, Honda Civic.
Umboösmaöur
á Akureyri
er
Björg Kristjánsdóttir
Strandgötu 17
Það kostar aðeins 1200 kr. á mánuði að vera með í happcjrætti
SÍBS - happdrættinu þar sem fjórði hver miði hlýtur vinning.
Og allir landsmenn njóta ávaxtannaaf farsælu starfi SÍBS - svo
eiginlega er þetta happdrættið þar sem allir hljóta vinning
2. DAGUR