Dagur - 03.01.1980, Blaðsíða 6

Dagur - 03.01.1980, Blaðsíða 6
Akureyrarkirkja. Messað n.k. sunnudag kl. 2 e.h. Sálmar 29,26, 108,51,49. B.S. Messað i Dvalarheimilinu Hlið kl. 4 á sunnudaginn. B.S. Framvegis verða kaþólskar messur á Akureyri alla sunnudaga og aðra helgi- daga kl. 18 (klukkan 6). Messað verður í Glerárgötu 34 — 4. hæð (Myndlistar- skólanum) þangað til við- gerð kapellunnar í Eyrar- landsvegi 26 verður lokið. -MKOMUR Hjálpræðisherinn. N.k. sunnu- dag kl. 13.30 er sunnudaga- skóli og kl. 17 almenn sam- koma. Mánudaginn 7. janú- ar kl. 16. Heimilissamband. Allir velkomnir. Kristniboðshúsið Zíon. Sunnu- daginn 6. janúar samkoma kl. 20.30. Ræðumaður Björgvin Jörgensson. Börn munið sunnudagaskólann kl. 2.00. Biblíulestur hvern fimmtudag kl. 21.00. Allir velkomnir. □ RÚN 5980167 — Frl. Atkv. Brúðkaup. Þann 22. des. voru gefin saman í Akureyrar- kirkju brúðhjónin ungfrú Jóhanna María Gunnars- dóttir og Kristján Sævar Þorkelsson verkamaður. Heimili þeirra er að Selja- hlíð 13d Akureyri. Þann 23. des. voru gefin saman í Akureyrarkirkju brúðhjónin ungfrú Matthildur Egils- dóttir rannsóknardama og Sigursveinn Kristinn Magn- ússon ketil- og plötusmiður. Heimili þeirra er að Bakka- hlíð 8, Akureyri. Þann 25. des. voru gefin saman í hjónaband í Akureyrar- kirkju brúðhjónin ungfrú Sigurbjörg Þorsteinsdóttir afgreiðslustúlka og Har- aldur Guðmundsson af- greiðslumaður. Heimili þeirra er að Oddeyrargötu 22, Akureyri. Þann 26. des. voru gefin saman í hjónaband í Akureyrar- kirkju brúðhjónin ungfrú Alfa Vilhelmína Hjaltalín verkakona og Hjalti Sigur- jón Hauksson bifreiðar- stjóri. Heimili þeirra er að Vesturgötu 63, Akranesi. Þann 29. des. voru gefin saman í hjónaband í Akureyrar- kirkju brúðhjónin ungfrú Una Sigurlína Rögnvalds- dóttir fóstra og Albert Leonardsson stýrimaður. Heimili þeirra er að Ásgötu 1, Raufarhöfn. Þann 29. des. voru gefin saman í Minjasafnskirkju brúðhjón- in ungfrú Þórdís Guðrún Ingvadóttir kennari og Tor- ben Cairns Kinch litunar- meistari. Heimili þeirra er að Seljahlíð 3c, Akureyri. Þann 31. des. voru gefin saman í hjónaband að Hamarsstíg 24 brúðhjónin Kristín Dúa- dóttir afgreiðslustúlka og Ólafur Kjartansson línu- maður. Heimili þeirra er að Helgamagrastræti 17, Akureyri. Gjafir til Náttúrulækningafé- lags Akureyrar árið 1978: Fridrich Grohe 20 vatns- nuddtæki kr. 400.000,00 Hallfríður Gunnarsdóttir kr. 100.000,00 Árni Ásbjarnar- son og frú kr. 100.000,00 Marinó L. Stefánsson kr. 100.000,00 Ólafur Jóhann- esson kr. 10.000,00 Jóhanna Gunnlaugsd. kr. 100.000,00 Margrét Antonsd. kr. 5.000,00 B.S. kr. 29.400,00 L.T. kr. 29.400,00 Jón B. Jónsson. kr. 34.400,00 Hall- grímur Tryggvason kr. 10.000,00 Fyrir þessar gjafir sendum við hugheilar þakk- ir svo og öllum þeim er á einn eða annan hátt tóku þátt í jólapakkasölu félags- ins nú í haust og veittu okkur stuðning til fjáröflunar í byggingarsjóðinn. Fyrir allt þetta sendum við þakkir með ósk um gleðileg jól og heillaríkt komandi ár. Náttúrulækningafélag Ak- ureyrar. Ég hefi móttekið frá starfsfólki Útgerðarfélags Akureyringa til minningar um Karí Frið- riksson yfirfiskmatsmann kr. 210.000,- Tvö hundruð og tíu þúsund krónur, til Hjarta- og æðaverndunarfé- lags Akureyrar. Með þakk- læti móttekið. Eyþór H. Tómasson. MINNING AÐALSTEINN ÞORSTEINSSON F. 24. janúar 1904. D. 17. desember 1979 Þar sem góðir menn fara eru Guðsvegir. Góður vinur okkar hjónanna og fyrrverandi samstarfsmaður minn, hjá Pósti og síma, hér á Akureyri — A ðalsleinn Þorsteinsson — hefur nú kvatt þennan heim, og fluttst til æðri heima, þar sem eilíf birta og ylur ríkir. En hann andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu hér, við sólarupprás mánudaginn 17. des- ember s.l., eftir tveggja mánaða legu þar. Aðalsteinn var fæddur 24. janúar 1904 að Óslandi í Óslands- hlíð, en hann flutti með foreldrum sínum til Siglufjarðar, þá er hann var aðeins tveggja ára, og átti þar heima til 12 ára aldurs, en þá fluttu þau hingað, að Kjarna við Akur- eyri, en fijótlega byggðu foreldrar hans býlið Mela hér innan við bæ- inn, og nokkrum árum siðar fluttu þau að Þingvöllum hér á Akureyri, en Aðalsteinn flutti þá í bæinn og fór að vinna fyrir sér. Hann giftist Freyju Hallgrímsdóttur 12. nóv- ember 1938 og lifir hún mann sinn. Þau bjuggu sér gott heimili að Strandgötu 13 og bjuggu þar í 31 ár, en síðustu 9 árin hafa þau búið í eigin húsi að Fróðasundi 4. Freyja og Aðalsteinn eignuðust eina dótt- ur, Erlu, sem gift er Elíasi Sveins- syni, bifreiðastjóra og eru þau búsett á ísafirði. Þau hafa eignast 6.DAGUR tvo drengi 12 og 5 ára, sem nú sakna sárt elskulegs afa. Aðalsteinn var eins og fyrr segir, starfsmaður Pósts og síma hér á Akureyri, um ellefu ára skeið, og annaðist húsvörslu og vann að ýmsum öðrum störfum. Vann hann verk sín af sérstakri samviskusemi og einstæðri vandvirkni, af gleði og ánægju. Ég er viss um, að það var hans mesta ánægja að hafa alltaf nóg að starfa, og láta aldrei verk úr hendi falla. Þeir voru ekki fáir dagamir sem hann var mættur til vinnu fyrir klukkan sjö að morgni, ekki síst að vetrum, þá er snjó setti niður, svo hann bæri búinn, að gera greiðan gang að húsinu fyrir starfsfólkið, sem mætti til starfa klukkan átta. Þannig var ávallt hugsun hans, að reyna gera öðrum gott, að fremsta megni. Áður en ég réði hann til starfa, ók hann vörubifreið, en það var hans aðalstarf, sem og almenn vinna, á meðan líkaminn þoldi það, en sem kunnugt er, voru vörubif- reiðarnar hér áður fyrr, ekki eins þægilegar og nú er. Hann starfaði mest við höfnina, og þá við ferm- ingu og affermingu skipa, m.a. mikið hjá skipaafgreiðslu Jakobs Karlssonar. Að hvaða vinnu sem hann gekk, vann hann ávallt af mikilli samviskusemi og ósérplægni. Við hjónin, svo og fyrrverandi samstarfsfólk hans hjá Pósti og síma, vottum Freyju konu hans, Erlu dóttur þeirra, tengdasyni og drengjum þeirra, sem og öðrum vandamönnum hans, einlæga samúð og biðjum Guð að veita þeim styrk í sorg þeirra. Þá líður nóttin ljúfum draumi í, svo ljúft, að kuldagust þú finnur eigi, og, fyrr en veistu, röðull rís á ný, og roðinn lýsir yfir nýjum degi. H.H. Guð blessi minningu vinar okk- ar, Aðalsteins Þorsteinssonar. Drottinn gefðu dánum ró, hinum líkn sem lifa. Maríus Helgason. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við minningar- athöfn og útför SIGURÓLA BJÖRGVINS JÓNSSONAR frá Hrísey Áslaug Kristjánsdóttir María Árnadóttir, Jón Valdimarsson Narfi Björgvinsson, Hanna Hauksdóttir Teitur Björgvinsson, María Narfadóttir Stjúpsynir, tengdadætur, barnabörn, systkini og fjölskyldur þeirra. Alúðar þakkir til alira þeirra er sýndu okkur samúð og heiðruðu minningu eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa AÐALSTEINS ÞORSTEINSSONAR Fróðasundi 4, Akureyri. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Gjörgæsludeildar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri fyrir mjög góða umönnun Freyja Hallgrímsdóttir Erla Aðalstelnsdóttir, Ellas Sveinsson Aðalsteinn Elíasson, Árni Freyr Elíasson Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir ÁRNI ÞORLEIFSSON Lækjargötu 11, Akureyri andaðist að morgni 29. desember í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 8. janúar kl. 13.30 Guðrún Jónsdóttir Bergþóra Árnadóttir, Jón V. Árnason Ari Árnason, Guðrún Jónsdóttir Laufey Árnadóttir, Friðrik Ketilsson Klara Árnadóttir, Karl Ásgeirsson Jarðarför eiginkonu minnar BJARGAR HAFLIÐADÓTTUR, Hríseyjargötu 2, Akureyri fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 4. janúar kl. 13.30 Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem vilja minn- ast hinnar látnu er bent á krabbameinsfélagið. f.h. vandamanna Gústav Júlíusson Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför GUÐNA SIGURJÓNSSONAR frá Stóra-Hamri. Ólöf Ólafsdóttlr, örn Pétursson, Haraldur Ólafsson, Brynja Hermannsdóttir. Þ ökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu SIGRÚNAR JÚLfUSDÓTTUR Garði, Dalvík Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarfólki hand- læknisdeildar Fjóröungssjúkrahússins á Akureyri. Garðar Björnsson, Anna Björnsdóttir Hörður Björnsson, Guðný Rögnvaldsdóttir Hrönn Björnsdóttir, Mikael Jóhannesson Gylfi Björnsson, Elín Skarphéðinsdóttir barnabörn og aðrir aðstandendur Ég þakka öllum þá auðsýndu hjálp og samúð sem mér var sýnd við lát og útför mannsins míns KRISTJÁNS BENEDIKTSSONAR Elita Benediktsson og fjölskylda Efri-Dálksstöðum. Faðirokkar JÓN GUÐMUNDSSON Naustum sem andaðist 22. desember sl. verður jarðsunginn laugardaginn 5. janúar kl. 1.30 e.h. Anton Jónsson, Davíð Jónsson, Guðrún Jónsdóttir, Anna Jónsdóttir Hugdetta Földu eigi fólsku sína fingralangar myrkraverur, er staðnæmst var hjá jólatrénu framar hér ei fengu að skína við kjörbúð KEA í Glerárhverfi í friði þrettán ljósaperur. annan jóladag: Nábúi.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.