Dagur - 03.01.1980, Side 5

Dagur - 03.01.1980, Side 5
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS Skrifstofur Tryggvabraut 12, Akureyri Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207 Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167 Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON Blaðamaöur: ASKELL ÞÓRISSON Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf. Við áramót Áramót eru tími reiknisskila. Þá gera menn upp reikninga liðins árs og í Ijósi niðurstöðunnar eru gerðar áætl- anir fyrir árið, sem í hönd fer og metnir þeir valkostir sem eru fyrir hendi. Enn mun líða nokkur tími þar til tölulegar niðurstöður liggja fyrir um síðasta ár og því of snemmt að gera það að um- ræðuefni sem einkanlega byggist á tölum. Á öðrum sviðum þjóðiífsins ætti myndin að vera skýrari og óviss- an minni — en því fer fjarri að svo sé. Við þessi áramót stöndum við íslend- ingar frammi fyrir margvíslegum vanda, en þannig hefur það verið og mun jafnan verða. Hins vegar er það eflaust svo, að flestir mikli þennan vanda fyrir sér, og geri sér ekki grein fyrir í hverju hann er fólginn og það er áhyggjuefni. Ekki hrjáir íslendinga atvinnuleysi eins og flestar ná- grannaþjóðirnar — a.m.k. ekki enn sem komið er. Þetta er athyglisverður og mikilvægur árangur sem vert er að undirstrika. Ekki síst vegna hinnar miklu og varnanlegu verðbólgu sem ekki hefur tekist að halda í skefjum. Líklegt er taiið að jöfnuður hafi náðst í viðskiptum landsins við aðrar þjóðir á síðasta ári þrátt fyrir olíu- og bensínhækkunina sem olli okkur rúmlega 40 milljarða króna útgjalda- aukningu á árinu. Á hinu pólitíska sviði er allt í óvissu um þessi áramót. Landið er stjórn- laust og hefur svo verið um 3ja mán- aða skeið. Þrátt fyrir ítrekaðar til- raunir til að leita eftir grundvelli til myndunar starfshæfrar ríkisstjórnar þá hefur enn ekkert gerst sem bendir til þess að það muni takast í bráð. Hætt er við að alþingismenn muni sæta vaxandi gagnrýni ef þetta ástand varir mikið lengur. Hvort- tveggja er að ýmis mál bíða nú úr- lausnar og tæpast verður tekið á þeim meðan núverandi ástandið varir. En nú fer mjög að reyna á langlundargeð þeirra sem í hlut eiga og svo hitt að vandamálin stækka óðfluga og blátt áfram hrannast upp eftir því sem lengra líður. Og ekki eru þeir fáir sem telja það mjög ámælisvert ef dagar þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr verða fleiri en þeir eru þegar orðnir. Ástandið í stjórnarmyndunarmál- unum er uggvænlegt og lofar ekki góðu. Það er ekki nóg með að skoð- anamunur milli flokkanna sé mikill í mörgum veigamiklum málum — svo mikill að vandséð er hvort málamiðl- un næst. Innan sumra flokkanna er ástandið engu betra. Þar er hver höndin upp á móti annarri og engin forysta sem virðist hafa möguleika á að ná samstöðu um neitt. Hjá því get- ur varla farið að til stórtíðinda dragi innan fárra vikna í þessum flokkum — en tii hvers það kann að leiða skal ósagt iátið. Það gefur auga leið að forystumenn þeirra flokka, sem hvorki hafa dug eða hæfileika til að stjórna eigin flokki, eru tæpast lík- legir tii að ná samstöðu mllli flokka um lausn á þeim vandamáium þjóð- arinnar sem nú bíða úrlausnar. Kveðja f rá blaðstjórn Dags í tilefni ritstjóraskipta Erlings Davíðssonar. Grundvallarskoðanir hafa ekki brenglast og rólegyfirvegun hefur ráðið ríkjum. Sanngirni og hlútlœgni gagnvart mönnum og málefnum hefur verið höfð að leiðarljósi. Sókndirfsku fyrir byggðastefnu og lýðræðislega félagshyggju hefur hvergi skort og blaðið reyndar verið mjög mótandi í viðhorfum þjóðarinnar til byggðastefnunnar. Málvöndun hefur verið með því bezta, sem þekkist í íslenzkri fjölmiðlun, og svo áberandi hefur hún verið, að einn hinn mesti núlifandi mál- snillingur þessarar þjóðar sá eitt sinn fyrir nokkrum árum ástœðu til þess að minnast Dags séstaklega í þessu efni. Festa hefur ríkt i útgáfu blaðsins og hefur Erlingur lagt mjög ríka áherzlu á, að kaupendur blaðsins gœtu treyst á reglubundna útkomu þess. Á síðustu árum hefur verið unnið að endurnýjun á allri aðstöðu blaðsins og öflunar nýjustu tœkni tilprentunar þess og hefur Erlingur sýntþessu mikinn áhuga og lagt drjúgan skerf af mörkum tilþessara mála. Á þessum tímamótum, þegar hann kýs að láta af störfum sem ritstjóri má með sanni segja, að staða blaðsins á flestum sviðum sé traust og heilbrigð. Fyrir höndblaðstjórnarinnar vil égþví viðþessi tímamót fœra honum alúðar þakkir fyrir góða ávöxtun þess punds, sem honum var fengið til varðveizlu fyrir aldarfjórðungi síðan. Jafnframt óska ég honum, eiginkonu hans, frú Katrínu Kristjánsdóttur, og fjölskyldunni allri framtíðarheilla. Erlingur hefur, eins og kunnugt er, haslað sér völl sem þjóðkunnur rithöfundur og er ég þess fullviss, að stílvopn hans muni enn leiftra um mörg ókomin ár lesendum hans til gagns og ánœgju. Eins og áður sagði tekur Hermann Sveinbjörnsson við rit- stjórninni frá byrjun þessa árs. Hermann er œttaður frá Nes- kaupstað, lögfrœðingur að mennt og kunnur fréttamaður við Ríkisútvarpið. Kona hans er A uður Sœmundsdóttir. Ég býð þau hjónin hjartanlega velkomin til mikilvœgra starfa í höf- uðstað Norðurlands. Engin dul eráþað dregin, að mjög miklar vonir eru bundnar við störf Hermanns sem ritstjóra Dags. Ég örfáum orðum og þá í þeim tilgangi að bera fram verðskuld- aðar þakkir og góðar óskir. Það mun nánast óumdeilt, að staða Dags sem fjölmiðils sé mjög sterk áAkureyri og í Eyjafirði, og reyndar á Norðurlandi yfirleitt. Það mun einnig nánast óumdeilt, að Dagur nýtur víðtœks trausts sem heiðarlegur, málefnalegur fjölmiðill og ein helzta brjóstvörn byggðastefnu og lýðrœðissinnaðrar félags- hyggju í þessu landi. Þetta traust, sem við finnum að Dagur nýtur, er dýrmœtasta eign blaðsins og fjöregg þess. Þetta traust hefur ekki áunnist fyrir tilviljun, heldur aðeins fyrir óþrjótandi elju og áhuga þeirra, sem blaðið hafa leitt og fyrir það starfað, og eiga þar lang drýgstan hlut að máli ritstjórarnir, sem mótað hafa stefnu blaðsins og málflutning allan í sókn og vörn. Er- lingur Davíðsson fékk það erfiða hlutverk fyrir u.þ.b. aldar- fjórðungi að taka við ritstjórastarfinu af Hauki heitnum Snorrasyni, hinum fœrasta blaðamanni og ritstjóra, sem hafið hafði Dag til aukins vegs og virðingar og ávaxtað dyggilega það pund, sem hann tók við frá sínum mikilhœfu forverum í ritstjórastarfinu. Erlingur hafði áður starfað við blaðið um 5 ára skeið og hefur hann því alls starfað við blaðið um helming af œviskeiði þess, en Dagur varð 60 ára 1978, eins og menn muna. Mikið vatn hefur til sjávar runnið þann aldarfjórðung, sem Erlingur hefur ritstýrt blaðinu, og meiri breytingar og efnahagslegar framfarir orðið í landinu en á nokkru öðru aldarfjórðungsskeiði fyrr í sögu þjóðarinnar. Breytingunum og framförunum hefur að sjálfsögðu fylgt mikið umrót ogþví verið vandasamt landsfeðrum og öðrum, sem að stefnumótun og upplýsingu fyrir almenning hafa starfað, að sjá til átta og leiða mál á farsælar brautir. Fjölmiðlar hafa fengið vaxandiþýðingu og um leið lagst á þá aukin ábyrgð, sem þeir margir hverjir því miður hafa ekki verið í stakk búnir til þess að axla og því brugðist hlutverki sínu sem nauðsynleg kjalfesta heilbrigðrar skoðanamyndunar sem grundvallar skynsamlegrar framtíðar- lausnar á vandamálum hvers tíma. Frá þessu eru vissulega til ánœgjulegar undantekningar og í þeim hópi er Dagur alveg tvimœlalaust eins og hann hefur mótast undir öruggri ritstjórn telþað mikið happ, að við skyldum eiga því láni að fagna að fá hann til þessa starfs. Honum fylgja því beztu óskir blaðstjórn- arinnar, sem vissulega mun leitast við að styðja hann ogstyrkja í vandasömu hlutverki. Það mun hiklaust létta honum byrjun- arsporin að hafa við hlið sér sem blaðamann Áskel Þórisson, sem öðlast hefur góða reynslu á sviði blaðamennsku, m.a. með því að vera staðgengill Erlings Davíðssonar að undanförnu. Því hlutverki hefur hann gegnt með prýði, sem hér með erþakkað að verðleikum. Þá mun Hermann einnig njóta atfylgis'.okkar ötula framkvœmdastjóra, Jóhanns Karls Sigurðssonar, svo og annarra starfsmanna blaðsins í bœ og byggð. Ég vil að lokum fœra öllu þessu góða fólki þakkir og árnaðaróskir blaðstjórn- arinnar á nýbyrjuðu ári. Valur A rnþórsson. Erlingur Davíðsson. Árið 1979 hefur kvatt með gleði sinni og sorg. Arið 1980 hefur gengið í garð og þjóðin heilsar því með eftirvœntingu — bíður atburða þess og uppskeru milli vonar og ótta í heimi umróts og óvissu. Áramót eru jafnan þau miklu tímamót í lífi einstaklinga og þjóða, þegar staldrað er við og skyggnst til átta, reynt að meta árangur og áhrif hins liðna og jafnframt hugað að nútíð og reynt að ráða í rúnirframtíðarinnar. Hjá okkur á Degi urðu áramótin nú enn meiri tímamót en venjulega. Þegar gamla árið kvaddi lét Erlingur Davíðsson af störfum ritstjóra og þegar nýja árið heilsaði tók við starfinu Hermann Sveinbjörnsson. Þessa atburðar vil ég fyrir hönd blaðstjórnarinnar minnast Hermann Sveinbjömsson. 4.DAGUR Þáttaskil við blaðið Við þessi áramót verða þau þáttaskil hjá Degi, að undirrit- aður lœtur af ritstjórastarfi en við því tekur Hermann Sveinbjörnsson. Þessi þáttaskil voru mér áður ofarlega í huga, einkum til þess að geta um skeið unnið við aðra tegund ritstarfa, enýmsar breytingar hjá blaðinu og nokkur óvissa um framtíð þess, komu í veg fyrir þau þá. Nú hafa mál þróast á þann veg, að auðvelt er upp að standa, því hagur blaðsins er góður, miðað við blaðaútgáfu í þessu landi, útgáfan hefur tvöfaldast, blaðið eignast sína dýrmætu offsetprentvél og húsnœði, sem veitir starfsmönn- um blaðsins ágæta aðstöðu. Má segja, að Dagur standi nú traustari fótum en nokkru sinni áður, hvernig sem á er litið. Á þessum tímamótum er mér Ijúft og skylt að þakka samstarfsmönnum mínum við blaðið um nær 30 ára skeið, fréttamönnum þess mörgu og ágætu prentiðnaðarmönnum, blaðstjórn og síðast en ekki síst hinum almennu kaupendum og lesendum, sem hægt en ákveðið fjölgar ár frá ári. Hlutverk Dags hefur œtíð verið almenn fréttamiðlun og sú víðtœka þjónusta sem blað getur veitt almenningi í um- hverfi sínu og auðveldar samskipti fólks á sviði fjárhags- félags- og menningarmála, og að koma á framfœri hug- myndum og hugsjónum og auðvelda skoðanaskipti um framfara- og menningarmál í landsfjórðungnum. Dagur hefur reynt að vera jákvœðari í frétta- og málflutningi en önnur blöð, hefur frá upphafi stutt samvinnuhugsjónina, einnig Framsóknarflokkinn og þar með þá landsbyggðar- stefnu, sem miðast við búsetu fólks sem víðast um land til að nýta auðlindir lands og sjávar, og aðþað fólk beri eins mikið úr býtum og þjóðarhagur leyfir. Um leið og ég ber fram þá ósk, að blaðið haldi œtíð vöku sinni í þessum efnum og verði jafnan frjálst og þróttmikið frétta- og þjóðmálablað Norðlendinga, árna ég því allra heilla í höndum nýs ritstjóra, og annarra ágœtra starfs- manna blaðsins og kveð yngri og eldri velunnara þess með virðingu og kœrri þökk. Erlingur Davíðsson. Við undirritaðir vildum þakka Erlingi Davíðssyni ánœgjuleg samskipti á undanförnum árum. Um leið bjóðum við velkomin tilstarfa Hermann Sveinbjörnsson. Áskell Þórisson —Jóhann Karl Sieurðsson. Landbúnaðarafurðir: Þess vegna hækkar verðið UNDANFARIN ár hefur verð á landbúnaðarafurðum hækkað á þriggja mánaða fresti. Einstaka sinnum hafa stjórnvöld gripið í taumana og aukið niðurgreiðsl- ur, þannig að neytendur hafa ekki orðið varir við hækkanir á verðinu til bænda, nema þá óbeint. Því einhversstaðar koma peningarnir frá, sem varið er til að greiða niður vöruverðið. Það eru allir skattgreiðendur, sem taka þátt í þeim kostnaði, það eru framleiðendur og neytendur. Tekjur eða kaup bænda miðast við kaup nokkurra launþega hópa, sem eru þó allir í svokölluðum lág- launahópum. Þegar kaup þessara stétta er hækkað, þá verður að reikna hækkað afurðaverð til bænda svo tekjuhlutföllin raskist ekki. Þá hafa breytingar á verði allra rekstrarvara landbúnaðarins áhrif á afurðaverðið. Venjan hefur verið, að þar sé um einstefnu að ræða, sífelldar hækkanir. Nokkuð mótvægi gegn þessum hækkunum eru aukin afköst í landbúnaðinum. Þegar afurðamagn í verðlags- grundvallarbúinu er aukið en vinnuframlae óbreytt, þá dregur það úr hækkunum á afurðaverð- inu. f verðlagsgrundvelli landbún- aðarins er áætlað að laun og launatengd gjöld bóndans og þess fólks, sem starfar við búreksturinn nenii um 55.6% af því, sem kemur inn fyrir seldar afurðir, en 44.4% fari til að standa undir öðrum kostnaði við framleiðsluna. Þar vegur kjarnfóður mest eða 12.4%, þá eru það útgjöld vegna véla 9.7% og áburðar 7.7%. Það hefur því veruleg áhrif á búvöru- verðið hér á landi þegar heims- markaðsverð á korni hækkar eða þegar skráð verð á olíu á Rotter- dammarkaði hækkar. Einnig hefur það áhrif á verðið þegar Seðla- bankinn ákveður hækkun á vöxtum. Bændum er ekki síður en öðrum illa við verðbólguna og mundu leggja sitt að mörkum til að kveða hana niður, en þeir verða eins og aðrir að sætta sig við hana og lifa sínu lífi með tilliti til hennar. Það er ekki á valdi bænda að rjúfa þann vítahring sem við lifum í, því ef þeir fengju ekki hækkað afurðaverð í samræmi við aukinn kostnað við framleiðsluna, þá leiddi það aðeins til þess að þeir hefðu engar tekjur og landbúnaðarframleiðsla leggð- ist niður. Ekki yrði það til að auka velsæld á íslandi. SKÖMMU FYRIR jól var haldið svokallað Ýlismót í Júdó. Keppt var í karla- og kvennaflokki og voru kepp- endur tíu. Keppt var um Ýlis- bikarinn sem er farandbikar gefin af Sporthúsinu. Dóm- ari var Guðmundur Kr. Guð- Finnskur skíða- kennari kemur til Akur- eyrar í MARS er væntan- legur til Akureyrar á vegum Skátafélags Akureyrar finnskur skíðakennari, sem kenna mun notkun gönguskíða. Hann mun fyrst og fremst kenna notkun skíðanna til annars en keppnisíþrótta, og hefur hann langa reynslu sem kennari hjá finnskum skátum. Reiknað er með að hann muni kenna al- menningi í Kjarna- skógi og verður það auglýst síðar. Nánari upplýsingar um komu finnans gefur Þor- steinn Pétursson í síma 21509, ef ein- hverjir hópar hafa áhuga á að fá að njóta leiðsagnar hans. mundsson og mótsstjóri Hjalti Þorsteinsson. Jón Hjaltason bar sigur úr býtum á mótinu og fékk Ýlis- bikarinn til varðveizlu í eitt ár, og afhenti bikarinn Steindór Steindórsson f.v. skólameistari. Annars urðu úrslit þessi: Karlaflokkur vinningar 1. Jón Hjaltason 5 2. Þorsteinn Hjaltason 4 3. Kristján Friðriksson 3 Kvennaflokkur vinningar 1. Ásgerður Ólafsdóttir 3 2. Sigríður Stefánsdóttir 2 3. Anna Einarsdóttir 1 Kvenfólkið glimdi af mikilli hörku. Hér sést Sigríður Stefánsdóttir (með flétturnar) sækja að Ásgerði Ólafsdóttur sem verst fimlega. Mynd: Ó.Á. Jólamót í hand- knattleik Akureyrarliðin Þór og KA léku jólaleik í handknattleik, miili jóia og nýjárs. í þessum leik voru bæði liðin að reyna nýja menn og í leiknum var mikið skorað af mörkum. Þórsarar sem nú léku með Pálma Pálmason voru mun sterkari aðilinn en þeir gerðu 32 mörk á móti 26 hjá KA. Ekki er að efa að Pálmi mun styrkja Þorsliðið mikið. I KA liðinu eru ný andlit, en þeir Ármann Sverrisson og Frið- jón Jónsson sem fyrr í vetur léku með HK léku með KA í þessum leik. Þeir hafa nú tilkynnt félagsskipti yfir í sitt gamla félag KA, aftur og munu verða löglegir til keppni seinni hluta janúar. Innanhússknattspyrnumót MILLI jóla og nýjárs gekkst knattspyrnuráð Akureyrar fyrir innanhúsknattspyrnu- móti og var keppt í öllum flokkum karla. Keppendur voru frá Akureyrarfélögun- um Þór og KA. Þórsarar voru sterkari aðilinn á þessu móti en þeir unnu fimm flokka en KA aðeins tvo. Annars urðu úrslit þessi: 5. fl. 4. fl. 3. fl. 2. fl. í.n. m. fl. old boys KA — Þór KA —Þór KA — Þór KA — Þór KA — Þór KA — Þór KA — Þór 5-1 2-5 2- 5 5-6 7-10 9-6 3- 7 „Leitað bragða“. Dómarinn Guðmundur Kr. Guðmundsson fylgist með hverri hreyfingu glfmumanna. Mynd: Ó.Á. Jón Hjaltason bar sigur úr- býtum á mótinu DAGUR.5

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.