Dagur - 08.01.1980, Blaðsíða 5

Dagur - 08.01.1980, Blaðsíða 5
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS Skrifstofur Tryggvabraut 12, Akureyri Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207 Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167 Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON Blaðamaður: ÁSKELL ÞÓRISSON Augl. og afgr: JÓHANN KARL SIGURÐSSON Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf Af stjórnarmyndun Ekki verður séð, að á næstunni finnist leið út úr þeirri stjórnarkreppu, sem þjóðin þýr nú við. Það má til sanns vegar færa, að ekki hafi komið á óvart, að Steingrími Hermannssyni skyldi ekki takast að mynda ríkisstjórn. Sem fyrr reyndust Alþýðuflokkurinn og Al- þýðubandalagið ekki reiðubúnir að fórna þröngum flokkshagsmunum fyrir þjóðarhag. Sýndarmennskan sem þessir flokkar viðhöfðu við til- lögugerð sýndi það glögglega. Al- þýðuflokkurinn kom með hugmyndir sínar, þegar nær Ijóst var orðið, að ekki gat orðið að samkomulagi og meira að segja Alþýðubandalags- menn sjálfir sáu hverslags ómynd þeirra eigin tillögur voru, og þorðu ekki svo lítið sem að láta Þjóðhags- stofnun reikna út, hvað þær gætu haft í för með sér. Þetta var engin ný hlið, sem þessir tveir flokkar sýndu á sér, heldur rofnaði fyrra stjórnarsamstarf einmitt vegna óheilinda og tortryggni þeirra hvors í annars garð. Kjósendur Framsóknarflokksins vildu vinstri stjórn, — stjórn sem kæmi í veg fyrir atvinnuleysi og tryggði kaupmátt lægstu launa, drægi úr verðbóigunni og minnkaði að- stöðumuninn í þjóðfélaginu. Þess vegna var ekki óeðlilegt þó Steingrími Hermannssyni tækist ekki að mynda meirihlutastjórn, því hann vildi vera trúr sínum kjósendum og gat því ekki gengið tii samstarfs við Sjálfstæðis- flokkinn á grundvelli leiftursóknar- hugmynda hans, eða öllu heldur for- ystusveitarinnar. Ekki virðast teljandi líkur á að Lúð- vík Jósepssyni takist að mynda meirihlutastjórn. Alþýðuflokkurinn hafnaði Lúðvík sem forsætisráðherra á sínum tíma og gerir svo vafalaust aftur, ef til kemur, og Sjáifstæðis- flokkurinn fer varla að svíkja vini sína í vestri með því að stuðla að því, að „kommúnistaleiðtogi“ verði forsæt- isráðherra í Natóríki. Það verður auk heldur ekki séð, að Alþýðubandalagið hafi mikinn áhuga á að skipa ríkis- stjórn, þegar stjórnmálaleiðtogar þurfa að axla þá ábyrgð sem fylgir því, að allir kjarasamningar eru lausir og næsta ríkisstjórn getur vart setið að- gerðarlaus þegar tekist verður á við kjaraborðið. Ekki þarf að fjölyrða um möguleika Benedikts Gröndals til að mynda ríkisstjórn, þar sem allir hinir telja sig vafalaust, og með rétti, betur til þess fallna. Líklegt má telja, að boltinn verði látinn fara annan hring og reynt til þrautar, hvort ekki takist að mynda meirihlutastjórn. Tæpast er um það að tala, að mynda meirihlutastjórn með þátttöku beggja A-flokkanna, eins og afstaða þeirra hvors til annars hefur leitt í Ijós. Eins og fyrr verður það að líkindum Framsóknarflokkur- inn, sem ieiðir þjóðina út úr ógöngum stjórnarkreppunnar. Við síðustu stjórnarmyndun tók hann þjóðarhag fram yfir flokkshagsmuni og at- kvæðasmölun. Fólkið í landinu kunni að meta það og ef til vill er von til þess, að hinir flokkarnir sjái nú að sér, þó ekki væri nema fyrir það, að ábyrg stefna getur leitt til kosninga- sigurs. Það kom í Ijós í síðustu kosningum. — Nú tókst Steingrími Her- mannssyni ekki að mynda ríkis- stjórn og horfurnar hjá Geir Hall- grímssyni sýnast ekki góðar. Hvernig líst þér á möguleika for- ystumanna hinna flokkanna tveggja að mynda meirihluta- stjórn? — Þó að illa virðist horfa með stjórnarmyndun flokksforingj- anna, er ekki útséð með að aðrir í flokkunum geti ekki náð saman stjórn. Ég er þeirrar skoðunar, að þingmenn flokkanna hafi ekki rætt þessi stjórnarmyndunarmál eins og þurft hefði. Mjög margir þingmenn eiga það sammerkt, að hafa miklar áhyggjur af atvinnu- ástandinu í landinu, ástandinu í landbúnaði og ýmsum fleiri mál- um. Allir þingmenn Framsókn- arflokksins, meirihluti þing- manna Alþýðubandalagsins um um helmingur þingmanna Sjálf- stæðisflokksins hafa ekki ólík viðhorf til þess, hvernig eigi að leysa atvinnumálin og landbún- aðarmálin. Sérstaklega eru það landsbyggðaþingmennirnir, sem hafa svipaðar skoðanir á lausn vandamálanna. Með því að beina orðum mínum þannig að þing- mönnum þessara flokka, er ég sérstaklega að gagnrýna forystu Sjálfstæðisflokksins sem virðist vera orðin eitthvert einangrað fyrirbæri í Reykjavík. En þessir þrír flokkar sem ég nefndi, ættu að geta unnið saman til þess að bjarga atvinnuástand- inu og leysa viss verkefni, en láta ágreiningsmálin að öðru leyti eiga sig. Ég fæ ekki séð að Al- þýðuflokkurinn eigi neitt erindi í ríkisstjórn, og ætti að vera óþarft að rökstyðja það. Alþýðuflokkurinn kemur síst til greina — En hvað með möguleika á minnihlutastjórn ? — Ég fæ ekki séð að það sé fær leið. Ástandið í þjóðfélaginu er orðið þannig, að það þarf að taka á vandamálunum og ég held að minnihlutastjórn geti ekki leyst þau sem skyldi. Það er einnig ljóst, að ekki verður tekið á þess- um vandamálum nema með samstöðu við verkalýðshreyfing- una. Ég hef heyrt sögusagnir um að Alþýðuflokksmenn láti sér detta í hug minnihlutastjórn, og þá jafn- búnaðarmála, samvinnumála og annarra veigamikilla málaflokka. Þeir kæmu síst til greina í minni- hlutastjórn með Framsóknar- flokknum. — Hvað með þjóðstjórn, þar sem allir flokkar tœkju höndum saman? Ábyrgðarleysi að efna til kosninga — Er einhver möguleiki á því, að þessi stjórnarkreppa verði ekki leyst nema með nýjum kosningum? — Ég held að nýjar kosningar myndu ekki breyta miklu. Þó hef aukningin mest og er það e.t.v. ekki óeðlilegt. Við höfum tekið samvinnustefnuna í okkar þjón- ustu og farið inn á fleiri svið at- vinnurekstrar, en víðast hvar annars staðar á landinu. Reynsl- an af samvinnustefnu okkar hef- ur verið góð og fólkið metur það að verðleikum. „Við leysum ekki vanda málin með kosningum“ Lítið hefur miðað í stjórnarmyndunarviðrœðum, eins °g alþjóð er kunnugt. Litlar likur eru á að Geir Hall- grímssyni verði nokkuð ágengt, enda eiga leiftur- sóknarhugmyndir Sjálfstœðisflokksins ekki upp á pallborðið hjá forystumönnum hinna flokkanna, frekar en hjá kjósendum. Dagur rœddi fyrir helgi við Stefán Valgeirsson, alþingismann, um stöðuna í stjórnmálunum og fer viðtalið hér á eftir. Stefán Valgeirsson. vel með okkur framsóknarmönn- um. Ég fæ ekki séð, að það gangi, eins og afstaða þeirra er til land- — Ég hef enga trú á því að það sé yfirleitt hægt að mynda neina stjórn með „A-flokkunum“ báð- um. Það gæti verið ágæt lausn að mynda þjóðstjórn til að taka á ákveðnum verkefnum til stutts tíma, en sambúðarerfiðleikar standa því fyrir þrifum að mínu mati. Ég hygg að auðveldara yrði að koma á stjórn Framsóknar- flokksins, Alþýðubandalagsins og Sjálfstæðisflokksins og ég tel að ekki sé útséð um að slík stjórnar- myndun geti tekist. Eðlilegt er að sigurvegari kosninganna leiði slíkar stjórnarmyndunarviðræður og ég sé ekki að það yrði minni vinstri stjórn heldur en mað þátt- töku Alþýðuflokksins, að því til- skyldu, að leiftursóknarhug- myndum afturhaldsins í Reykja- vík yrði kastað fyrir róða. ég orðið var við það, að fylgi Framsóknarflokksins hefur verið að aukast allt til þessa dags, þannig að pólitískt stöndum við vel að vígi miðað við hina flokk- ana. Við stöndum hins vegar frammi fyrir því, að ef ekki verð- ur tekið raunhæft á málum nú þegar, blasir við atvinnuleysi, lík- lega í verulegum mæli, og því væri það algjört ábyrgðarleysi, að fara að stofna til nýrra kosninga. Við hyggjumst gera allt sem í okkar valdi stendur til að standa við okkar stefnu, meðal annars þau markmið, að halda uppi fullri atvinnu, reyna að ná niður verðbólgunni og minnka að- stöðumuninn í þjóðfélaginu. Við gerum það ekki með því að efna enn á ný til kosninga." Alþýðuflokkurinn — vinstri fiokkur? — Nú vann Framsóknarflokk- urinn mikinn sigur í síðustu kosningum og endurheimti fvrra fylgi sitt. Hvað finnst þér svo um frarnhaldið — það sem gerst Itefur í stjórnmálunum að lokaum kosningunum? Niðurstaða kosninganna var mjög ánægjuleg, ekki síst fyrir Norðlendinga. Hér var fylgis- Varðandi stjórnarmyndunar- viðræður að loknum kosningum verður að hafa það í huga með hverjum hætti störfum fyrri ríkis- stjórnar lauk. Það hlaut að liggja nokkuð ljóst fyrir, að erfitt yrði að ná saman vinstri stjórn, í fram- haldi af því sem á undan var gengið. Það er reyndar íhugunar- efni, hvort hægt sé að kalla Al- þýðuflokkinn vinstri flokk, miðað við það hvernig afstaða er tekin til mála í þeim herbúðum. Það sem helst hefur hins vegar komið á óvart, er hinn takmark- aði vilji sem Alþýðubandalagið virðist hafa á því að ný vinstri stjórn verði mynduð. Um skýr- ingar á þeirri afstöðu er bágt að segja, en það kann að vera, að það hafi einhver áhrif að í vetur verð- ur kosið til Alþýðusambands- þings, og með hliðsjón af því get- ur verið gott, að þurfa ekki að bera ábyrgð á aðgerðum, sem geta verið nauðsynlegar, en ekki að sama skapi vinsælar. Aðgerðarleysi þýðir atvinnuleysi Alþýðubandalagið segist ekki vilja taka þátt í kjararýrnunarað- gerðum, en horfir fram hjá þeirri staðreynd, að kjararýrnunin kann að verða ennþá meiri og ábyrgðin að sama skapi meiri, ef ekki næst samkomulag um aðgerðir. Al- þýðubandalagið hefur ekki kom- ið fram með neinar afgerandi til- lögur um að ná niður verðbólg- unni, á annan veg en til dæmis Framsóknarflokkurinn hefur lagt til. Alþýðubandalagsfólk úti á landi er farið að sjá þetta og gera sér grein fyrir því, að það sem máli skiptir, er að halda uppi at- vinnu og sjá til þess, að kjara- skerðing vegna þeirra erfiðleika sem blasa við í þjóðfélaginu verði sem minnst. Það er ekkert nema öfugmæli að segja, að Fram- sóknarflokkurinn vilji fara launalækkunarleið, því vísasta leiðin til launalækkunar er að gera ekki neitt. — Ertu með þessu að segja, að framleiðni — og framleiðsluaukn- ing, sem A Iþýðubandalagið leggur áherslu á, sé ekki raunhœf leið, eins og á stendur? — Það stendur svo sannarlega ekki á okkur að vilja auka fram- leiðsluna og bæta, en það verður ekki gert í einu vetfangi heldur þarf til þess langan tíma. Þetta eru ekki úrræði sem eiga við í dag, en ber að stefna að. Með því að vera utanstjórnar hindrar Al- þýðubandalagið beinlínis, að stetnt verði að þessu marki. Uppgjöf að mynda embættismanna- stjórn Alþingi hefur siðferðilega skyldu til að mynda stjórn og taka á málum. Ég tel það vera algjöra uppgjöf, ef grípa þarf til þess að mynda embættismannastjórn. Það yrði ekki til að auka-á virð- ingu Alþingis. Það eykur svo enn frekar á erfiðleikana við stjórnar- myndun nú, að innan Alþýðu- flokksins og Sjálfstæðisflokksins vantar alla samstöðu, svo ekki sé kveðið fastar að orði. Myndir úr sögu Menntaskólans á Akureyri UNNIÐ ER að ritun sögu Menntaskólans á Akureyri og er ætlunin að hún komi út á vori komanda. Allmikið er til í eigu skólans af myndum sem tengjast sögu hans; ennfremur hafa honum borist nokkrar myndir af kennurum og nem- endum skólans. Mikið skortir á að allir þeir sem á myndunum eru verði nafngreindir, og á það þó einkum við um elstu myndirnar. Eru nokkrar þess- ara mynda nú birtar hér í blaðinu ef ske kynni að les- endur gætu veitt einhverjar upplýsingar um þá sem á myndunum eru. Upplýsingum má koma til blaðsins ellegar til Tómasar Inga Olrich, kon- rektors Menntaskólans á Ak- ureyri. Myndin, sem hér er birt, er tekin vorið 1901. Á henni sitja þeir fremstir ( frá vinstri) Halldór Briem, kennari, Jón A. Hjaltalin, skólameistari og Stefán Stefáns- son kennari og síðar skólameist- ari. Drengurinn að baki Stefáni Stefánssyni er Valtýr sonur hans, 8 ára gamall. Lengst til vinstri í miðröð er maður sem sýnilega er nokkuð eldri en námssveinarnir og ekki ólíklegt að þar sé Þor- steinn Jónsson, síðar bóndi á Bakka í Öxnadal, en hann var á þessum árum ráðsmaður Stefáns Stefánssonar. Aðrir á myndinni eru væntanlega allir nemendur skólans. Samkvæmt skrá sem gerð var í febrúar 1901, að loknu miðsvetrarprófi, voru 19 nem- endur í neðri bekk, en 22 í efri bekk. Af þessum 22 neme.ndum efri bekkjar luku 18 burtfarar- prófi um vorið. Er hér með birt skrá sú yfir nemendur skólans sem gerð var í febrúar 1901 ef hún gæti auðveldað lesendum blaðs- ins að nafngreina þá sem á myndinni eru. Möðruvallaskóli nremendur 1900-1901 Neðri bekkur 1. Ásgeir Þorvaldsson, f. 4/8 1882 að Hjaltabakka í Húnavatnssýslu. 2. Bergsteinn Kolbeinsson, f. 20/5 1877 að Stóru Mástungu í Arnes- sýslu. 3. Björn Jónasson, f. 30/9 1879 að Hrappsstöóum i Hjaltadal i Skagafjarðarsýslu. 4. Björn Jónsson, f. 12/II 1880 að Ytra-Holti i Svarfaðardal í Eyjafjarðarsýslu. 5. Bogi Ólafsson, f. 16/10 1879 að Sttmarliðabæ i Holtum i Rangár- vallasýslu. 6. Einar Bogason, f. 11/1 1881 í Hringsdal i Ketildölum við A rnar- fjörð. 7. Einar Tómasson, f. 12/5 1881 að Barði i Fljótum i Skagafjarðar- svsltt. 8. Gisli Helgason, f. 9/2 1881 að Seljateigi í Reyðarfirði. 9. Gisli Þórarinn Ólufur Gislason, f. 26/11 1884 að Skeiði i Arnarfirði. 10. Grímur Jónsson, f. 7/4 1884 að Bæ við Steingrimsfjörð. 11. Jóhannes Friðlaugsson, f. 27/9 1882að Hafralœk i Aðalreykjadal. 12. Jón Magnús Friðriksson, f. 11/5 1880 að Hóli i Ketildölum við A rnarfjörð. 13. Lárus Bjarnason, f. 1/8 1876 að Prestsbakka á Síðu. 14. Leifur Haraldur Hansen, f. 18/5 1885 i Isafjarðarkaupsslað. 15. Magnús Sigurðsson, f. 4/5 1882 á Mýrnesi i Eiðaþinghá i Suður— Múlasýslu. 16. Páll Árnason, f. 9/7 1879 að Hreiðarstöðum i Svarfaðardal i Eyjafjarðarsýslu. 17. Snorrt Einarsson, f. 20/1 1884 á Oddeyri við Eyjafjörð. 18. Stefán Sigurðsson, f. 25/12 1882 að Kjartansstöðum i Skagafjarð- arsýslu. 19. Þorbergur Guðmundsson, f. 30/4 1879 að Fannardal i Norðfirði í Sttður-Múlasýslu. Möðruvallaskóli nemendur 1900» 1901 Efri bekkur /. Adam Þorgrimsson, f. 8/7 að Nesi i A ðaldal. 2. Arni Jónsson, f. 20/7 1882 að A rnarnesi við Eyjafjörð. 3. Asgeir Gislason, f. 3/10 1882 að Hrisgerði i Fnjóskadal. 4. Ásgrimur Þorgrímsson, f.3/1 1879 að Hofsstaðaseli í Skagafjarðar- sýsltt. 5. Baldttr Jónsson, f. 15/1 1878 að Baldursheimi við Mývatn. 6. Björn Magnússon, f. 26/4 (ár ?) að Garðakoti i Hjaltadal i Skaga- fjarðarsýslu. 7. Einar Eiríksson.f. 9/4 1881 að Bót i Hróarstungu i Norðttr-Múla- sýslu. 8. Jakob Frímannsson.f. 4/8 1879 að Vindhœli i Húnavatnssýsht. 9. Jón Guðmundsson, f. 12/2 1873 að Utnyrðingsstöðum i Suður-Múla- sýslu. 10. Jón Kristjánsson, f. 20/8 1881 að Dagverðareyri i Eyjafjarðarsýslu. 11. Jörgen Kjerulf, f. 15/6 1877 að Melum i Fljótsdal Norður Múla- sýsht. 12. Óddur Jónasson, f. 27/2 1885 að Fellsmútla i Rangárvallasýslu. 13. Oddur Kristjánsson, f. 1412 1883 að Dagverðareyri í Eyjafirði. 14. Ólafttr Jónsson, f. 21/11 1881 að Fjöllum í Kelduhverfi i Norður Þingevjarsýsiu. 15. Páll Skúlason, f. 24/2 1881 að Dœli i Fnjóskadal i Þingeyjar- sýslu. 16. Sigurður Kristinsson, f. 2/7 (ár ?) að Öxnafellskoti i Eyjafjarðar- sýslu. 17. Sigurðttr Sveinsson, f. 6/4 1875 að Gunnfriðarstöðum i Svínavatns- Itreppi i Húnavatnssýslu. 18. Sigurbjörn Stefánsson, f. 1/81880 að Guðmundarstöðum i Vopna- firði. 19. Valdimar Valvesson, f. 22/8 1883 að Þórisstöðum á Svalbarðsströnd i Þingeyjarsýslu. 20. Þorkell Guðnason, f. 2/1 1876 að Jódísarstöðum i Skriðultverfi i Þingeyjarsýsht. 21. Þorlakur Marleinsson, f. 8/4 1880 að Hofsstöðum við Mývatn. 22. Þorsteinn Sigurgeirsson, f. 14/8 1880 að Álftagerði i Skagafjarð- arsýslu. Fyrstu stigin til Þórsara Á FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ lék Þór við Ármann í annarri deild karla í handknattleik. iþrótta- maður ársins UM SÍÐUSTU helgi kunn- gjörðu íþróttafréttamenn val á íþróttamanni ársins 1979. Það eru íþróttafréttamenn dagblaðanna, sjónvarpsins og útvarpsins sem standa að Hreinn Halldórsson. þessu kjöri. Að þessu sinni var Hreinn Halldórsson fyrir valinu, en hann hefur þrisvar áður hlotið þetta sæmdar- heiti. Það verður að segjast eins og er að valið á Hreini kemur nokkuð á óvart því síðasta ár var ekki eins gott eins og flestir höfðu vonað, þar er veikindi hrjáðu Hrein. Hreinn er hins vegar eins og allir vita sá íþróttamaður sem fremst stendur á heimsmæli- kvarða í dag. Þó verður að telja að öll heimsmet Valbjörns Þor- lákssonar í öldungaflokki komi þar einnig til álita. í öðru sæti var KA maðurinn og sprett- hlauparinn Oddur Sigurðsson, en hann skaust upp á stjörnu- himininn á síðasta ári. og er ókrýndur konungur sprett- hlauparanna. Blaðið óskar þeim Hreini og Oddi til hamingju með þennan góða árangur. Þegar íþrótta- maður ársins er valinn á þessum tíma árs gleymast venjulegast þeir sem áttu góð afrek fyrir tæpu ári síðan. Þannig er t.d. farið með skíðamenn okkar. í 10 efstu sætunum var enginn skíðamaður! Mundi enginn eft- ir Hauki Sigurðssyni frá Ólafs- firði en hann er margfaldur ís- landsmeistari og vann flest öll punktamót í göngu á sl. ári. Leikurinn var mjög jafn og skemmtilegur og lauk honum með sigri Þórs sem gerði 25 mörk á móti 23 hjá Ármanni. Sá sem fyrst og fremst skóp sigur Þórs í þessum leik var Pálmi Pálmason, en hann lék nú sinn fyrsta deildarleik 25:23 með Þór og stóð sig með prýði. í kring um hann myndast meira spil en áður hefur verið og sem sagt, leik- ur Þórs var allur meiri og betri en hann hefur verið. Þá lék Arnar Guðlaugsson þjálfari Þórs með þeim í leiknum og stóð sig einnig vel, en þessir leikmenn léku saman hjá Fram hér áður fyrr og þekkja því vel hvorn ann- an. Markverðir Þórs vörðu sam- tals 6 víti, Ragnar 3 og Davíð 3, en þeir vörðu annars ágætlega. Þegar 8 sek, voru eftir af leikn- um varði Davíð víti, og boltinn hrökk til Pálma sem sendi hann viðstöðulaust í mark Ármanns, en markmaðurinn hafði sótt heldur langt fram á völlinn, og með þessu marki og markvörslu Davíðs varsigurinn innsiglaður. Flest mörk Þórs gerði Pálmi 11, 5 úr víti, Valur 4, Arnar og Benedikt 3, Sigtryggur 2 og Árni og Gunnar 1. Friðrik var mark- hæstur hjá Ármanni með 8 mörk og 1 úr víti. Dómarar voru Guðmundur Lárusson og Stefán Arnaldsson og dæmdu vel. I þessum leikj- um sýndu heimadómararnir það að þeir dæma ekki verr en þeir sem fá þarf úr Reykjavík, og með því að nota þá sparast mikill kostnaður fyrir þau lið sem leika. Sanngjörn úrslit: Jafntefli hjá KAog Ármanni Á LAUGARDAGINN léku KA og Ármann í annarri deild í handbolta, og ætluðu Ár- menningar að hefna fyrir tapið á móti Þór daginn áður. Leikur þessi var nokkuð góður og spennandi, og allt fram á síðustu mín. var ekki Ijóst hvort liðið færi með sig- ur af hólmi. Urslitin urðu hins vegar jafntefli, 22 mörk gegn 22 og var það sann- gjarnt eftir gangi leiksins. Sóknarleikur beggja liðanna var á köflum mjög góður, en þess á milli datt allt niður í meðalmennskuna. Sérstak- lega var það áberandi hjá Ármanni. Þeir áttu nokkrar mjög vel útfærðar sóknir sem enduðu með því að hafa tvístrað KA vörninni og stóð þá venjulega einn leikmanna þeirra einn og óvaldaður og átti yfirleitt auð- velt með að skora. Ekki verður þó Gauti sakaður um mörkin sem KA menn fengu á sig þvi hann varði heilt yfir mjög vel m.a. þrjú víti. KA leikur mjög hraðan sóknarleik og sennilega einn þann skemmtilegasta í annarri deild, en það er eins og ógnunin sé ekki nægjanlega mikil, þrátt fyrir það að boltinn gangi með leifturhraða á milli manna. Þegar fjórar mín voru eftir af leiknum voru KA menn yfir 22-20, en þá reyndu þeir ótíma- bær skot í staðinn fyrir að hanga á boltanum og skjóta ekki nema í dauðafæri. Þá varði mark- maður Ármanns vítaskot frá Þorleifi sem annars hafði verið öruggur í vitaskotum sínum, á síðustu mín. og þá rann annað stigið út í sandinn. í fyrstu var leikurinn mjög jafn, og í fyrri hálfleik skildu aldrei meira en tvö mörk, en Ármann hafði yfirleitt forust- una. I hálfleik var staðan 11 gegn 10 fyrir Ármann. í byrjun síðari hálfleiks voru Ármenn- ingar betri aðilinn og komust mest í þriggja marka forskot, og þá virtist á tímabili sem KA væri að tapa leiknum. Á 24 mín jafnar Þorleifur úr víti 20-20, og stuttu síðar bætir hann svo öðru marki við. Þá kom mark frá Alla og KA allt í einu komið með tveggja marka forustu eins og áður sagði. Á siðustu stundu tókst Ármenn- ingum að jafna og úrslitin urðu jafntefli 22-22. Friðrik Frið- riksson ver besti maður Ár- manns en hann er mjög skot- fastur og skemmtilegur leik- maður. Gunnar Gislason og Gauti voru bestir hjá KA. Að vísu var Gunnar óheppinn með skot sín sérstaklega í fyrri hálf- leik, en harðfylgi hans og dugnaður er með einsdæmum. Flest mörk KA gerðu Þorleifur 7 fjögur úr víti, Alli gerði 5. Gunnar og Jói 3, Guðmundur tvö og Guðmundur Lár eitt. Dómarar voru Gunnar Jó- hannsson og Guðmundur Skarphéðinsson, en þetta var einn af fyrstu alvöruleikjum sem þeir dæma og sluppu þeir ágætléga frá því. 4.DAGUR DAGUR.5

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.