Dagur - 19.02.1980, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LXIII. árgangur Akureyri, þriðjudagur 19. febrúar 1980
12. töiubláð
Drukkinn unglingur
með riffil í bænum
FYRIR NOKKRU var tilkynnt
til lögreglunnar á Akureyri að
dularfullur maður væri á ferð við
strætisvagnana er standa vestan
við lögreglustöðina. Skömmu
síðar var hringt til lögreglunnar
og sagt að á Byggðavegi væri
maður með riffil. Lögreglan fór
þegar á JJvang, en hvergi sást
maðurinn. Þá var hringt úr
Kringlumýri og lögreglunni til-
kynnt að skotið hafi verið úr
riffli.
Eftir nokkra leit fann lögreglan
spor hins dularfulla riffilmanns og
voru þau rakin vestur yfir Kotárgil
niður hjá ullarþvottastöðinni og að
heystabba. Við leit í stabbanum
fannst 222 cal. riffill. Ein patronan í
rifflinum var tóm og önnur hwðin.
Við athugun á spjaldskrá fannst
eigandinn og þá kom sannleikurinn
í ljós. Tveir piltar höfðu fengið
riffilinn að láni hjá félaga sínum,
sem hafði aftur á móti tekið hann
ófrjálsri hendi. Þeir félagar, sem
voru undir áhrifum áfengis, héldu
af stað á skellunöðru og ætluðu að
skjóta einhversstaðar í mark. Lög-
reglunni fannst aksturinn grun-
samlegur og stöðvaði skelli-
nöðruna, en þá stökk riffilmaður-
inn í burtu. Ekki gat hann gefið
nákvæma skýringu á hvað hann
ætlaðist til við lögreglustöðina, en
þegar hann fór þaðan missti hann
skot úr rifflinum og skrámaði það
annan fótlegginn. Lögreglan hafði
hendur í hári hans daginn eftir.
niður?
Kópaskeri 18. febrúar
H AFRANNSÓKN ARSTOFN-
UN hefur lagt til við sjávarút-
vegsráðuneytið að rækjukvótinn
í Öxarfirði verði skorinn niður
um 140 tonn. Ráðherra mun
taka ákvörðun í þessari viku
hvort farið verður að ráðlegg-
ingum stofnunarinnar. Kvótinn
var 550 tonn og yrði þá 410 tonn.
Þetta þýddi að Kópasker og
Húsavík fá 200 tonn í sinn hlut
og að bátar frá Kópaskeri eiga
eftir að veiða um 50 tonn til að
ná 200 tonna markinu.
Við heimamenn höfum heyrt að
Hafrannsóknarstofnunin beri fyrir
sig ofveiði í Öxarfirði. M.ö.o. er
stofnunin loks búin að samþykkja
þá skoðun heimamanna að rækjan
í Öxarfirði hafi verið ofveidd. Ó.F.
Páll Pétursson.
Páll Pétursson
formaður
þingflokksins
PÁLL Pétursson var síðasta
miðvikudag kjörinn formaður
þingflokks Framsóknarflokksins.
Hann tekur við af Ingvari Gísla-
syni, sem er orðinn ráðherra.
Gengið frá
kaupunum
á Bústólpa
K.E.A. og K.S. stofna sameiginlega
fóðurvörudeild
Á FÖSTUDAGINN var end-
anlega gengið frá samningum
um kaup Kaupfélags Eyfirð-
inga á Akureyri og Kaupfélags
Svalbarðseyrar á Bústólpa h.f.
á Akureyri. í framhaldi af því
munu kaupfélögin nú stofna
sameiginlega fóðurvörudeild,
sem rekin verður í sameignar-
félagsformi.
Þessi sameiginlega fóðurvöru-
deild verður með starfsemi sína í
húsnæði Bústólpa og fóðurvöru-
húsum KEA á Oddeyrartanga,
einnig til bráðabirgða í Skipa-
götu. Fóðurvörudeildin mun hafa
á boðstólum bæði FAF og KFK
fóður, og verður leitast við að
tryggja öllum viðskiptavinum
sem besta þjónustu á sem hag-
kvæmastu verði að sögn Vals
Arnþórssonar, kaupfélagsstjóra
KEA. Hlutabréfin í Bústólpa h.f.
voru keypt á nafnverði.
fbúðir á Svalbarðseyri:
250% aukning
á 6 árum
Svalbarðseyri 18. febr.
ÍBÚÐAFJÖLDI á Sval-
barðseyri hefur aukist um
hvorki meira né minna en 250
prósent á síðast liðnum sex
árum, ef með eru taldar þær
íbúðir sem nú eru í smíðum
og byrjað var á í sumar og
haust.
Samtals er þarna um að ræða
16 hús, flest einbýlishús, en
einnig raðhús, og á þessum sex
árum hefur íbúðum fjölgað um
26. Þess utan hafa nokkur
íbúðarhús verið byggð í sveit-
unum í kring, sem ekki eru
beint viðkomandi jörðunum
sjálfum. Þetta er glöggt dæmi
um þá miklu uppbyggingu sem
verið hefur á landsbyggðinni á
síðustu árum, þess má geta, að
ekkert hús var byggt á Sval-
barðseyri í ein 30 ár, þ.e. frá
1944.
Þeir sem íbúðirnar byggja á
Svalbarðseyri eru bæði ungt
fólk og eldra fólk, sem hætt
hefur búskap. Sv. Lax.
Unglingarnir spjölluðu saman, átu pvlsur og drukku gos meðan þeir dönsuðu. Mynd: á.þ.
Dansaði í 23 klst. og lór
af dansgólfinu í 2 mín.
Plötusnúðurinn setti Islandsmet
SÍÐASTLIÐINN laugardags-
morgun hófst maraþondans-
keppni í Dynheimum og lauk
ekki fyrr en kl. 09 á sunnudags-
morguninn, en þá voru 3 kepp-
endur eftir af 51 sem létu skrá
sig til keppninnar. Þórhalla
Karlsdóttir 14 ára var hlut-
skörpust, en þær Katrín Páls-
dóttir og Katrín Reynisdóttir
urðu í öðru sæti. Þórhalla dans-
aði í 23 tíma og vék sér aðeins
frá í 2 mínútur, en hinar tvær
brugðu sér frá eitthvað lengur.
Haraldur Hansen, forstöðumað-
ur Dynheima, sagði að krakkarnir í
keppninni hefðu verið á aldrinum
13-14 ára — stúlkur í meirihluta
eða 36. Síðasti karlmaðurinn hætti
keppni eldsnemma á laugardags-
morgun.
Plötusnúðurinn, Viðar Garðars-
son, setti íslandsmet í plötuþeyti.
Hann hóf að spila kl. 09 á laugar-
dagsmorguninn og hætti ekki fyrr
en um nónbil á sunnudag. Blaðið
hefur frétt að til bæjarins sé kom-
inn sunnlenskur plötusnúður sem
ætlar sér að slá met Viðars um
næstu helgi.
Verður kvótinn á
Öxarfirði skorinn
Haraldur sagði að mikill fjöldi
áhorfenda hefði komið í Dynheima
milli kl. 1 og 5 á laugardag því þá
var húsið opið almenningi. Um
kvöldið var almennur dansleikur á
þeim hluta gólfsins sem keppendur
notuðu ekki. Sumir dansgesta fóru
ekki heim um kvöldið heldur
fylgdust með keppninni og sváfu
þess á milli á bekkjum meðan
dansinn dunaði.
Sýningum á
Puntila og Matta
fer nú senn að
fækka
SÝNINGUM á „Puntila og
Matta“ hjá Leikfélagi Akureyrar
fer nú senn að fækka. Verkið
hefur verið sýnt ellefu sinnum og
næstu sýningar verða á fimmtu-
dag og föstudag.
Sýningin hefur hlotið góðar
undirtektir áhorfenda og leik-
dómar hafa yfirleitt verið mjög
góðir. Þrátt fyrir þetta hefur að-
sókn ekki verið sem skyldi, og er
fólk hér með hvatt til að sjá þetta
ágæta verk sem fyrst, því eins og
áður sagði fer sýningum nú
fækkandi.
Frumsýning í
Mývatnssveit
UNGMENNAFÉLAGIÐ
Mývetningur frumsýndi leikritið
Óvænt heimsókn s.l. laugardag-
kvöld í félagsheimilinu Skjól-
brekku. Leikendur eru 7. Leik-
stjóri er Ragnhildur Steingríms-
dóttir og gerði hún einnig leik-
mynd ásamt Ásmundi Jónssyni.
Önnur sýning var s.l. sunnudags-
kvöld. Aðsókn hefur verið góð og
undirtektir leikhúsgesta með
ágætum.
Menntskælingar
æfa leikrit
LEIKFÉLAG Menntaskólans á
Akureyri æfir nú af krafti leikritið
„Týnda teskeiðin" eftir Kjartan
Ragnarsson. Leikrit þetta var
frumsýnt í Þjóðleikhúsinu fyrir *?:
rúmum tveimur árum. Fékk það
þá mikið lof gagnrýnenda og
mjög góða aðsókn.
Til að leikstýra verkinu hefur
verið fengin Steinunn Jóhannes-
dóttir frá Reykjavík.
Ráðgert er að frumsýna leik-
ritið mánudaginn 3. mars.