Dagur - 19.02.1980, Page 5
Útgefandi: ÚTGAFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur Tryggvabraut 12. Akureyri
Ritstjórnarsimar: 24166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaðamaður: ASKELL ÞÖRISSON
Augl. og afgr : JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf
Stefnan í landbún-
aðarmálum
í málefnasamningi ríkisstjórnar-
innar, þar sem fjallað er um land-
búnaðarmál, segir meðal annars,
að stefnan í málefnum landbún-
aðarins verði mörkuð með ályktun
alþingis og við það miðuð, að
tryggja afkomu bænda, sporna
gegn byggðaröskun og fullnægja
þörfum þjóðarinnar fyrir búvörur
til neyslu og iðnaðar. Lögum um
Framleiðsluráð landbúnaðarins
verði breytt í því skyni að tryggja
stefnuna í framkvæmd.
Rannsóknar- og leiðbeiningar-
starfsemi landbúnaðarins verði í
auknum mæli beint að nýjum
búgreinum, svo sem fiskeldi, loð-
dýrarækt og bættri fóðurfram-
leiðslu í því skyni að auðvelda að-
lögun framleiðslunnar að mark-
aðsaðstæðum. Þá er gert ráð fyrir
að byggingu nýrra grasköggla-
verksmiðja verði hraðað, átak
verði gert til markaðsöflunar og að
rekstrarlán verði sem næst í sam-
ræmi við þróun búvöruverðs.
Auk þessa er í málefna-
samningnum gert ráð fyrir því, að
aðsteðjandi vandamál landbún-
aðarins verði leyst. Bændum verði
bættur óverðtryggður útflutningur
landbúnaðarvara frá síðasta verð-
lagsári, sem nemur um þremur
milljörðum króna. Leitað verði
samkomulags um viðunandi
lausn á fyrirsjáanlegum vanda
vegna halla á útflutningi búvara á
þessu varðlagsári í tengslum við
heildarstefnumótun í landbúnaði.
Þá er gert ráð fyrir, að ákvörðun
um vinnslu- og dreifingarkostnað
og smásöluálagningu frá því í
desember verði tekin til endur-
skoðunar, bjargráðasjóði verði
útvegað lán vegna harðindanna á
síðasta ári og tekjustofnar sjóðs-
ins verði teknir til endurskoðunar í
þeim tilgangi, að hann geti gegnt
hlutverki sínu.
Þegar hlutur landbúnaðarins í
málefnasamningnum er skoðað-
ur, kemur greinilega í Ijós, að þar
er á ferðinni, í öllum meginatrið-
um, stefna Framsóknarflokksins í
landbúnaðarmálum. Það sem
segir í málefnasamningnum um
landbúnaðarmál, er lítið annað en
úrdráttur úr ítarlegri stefnumörk-
un Steingríms Hermannssonar,
fyrrverandi landbúnaðarráðherra,
sem hann vann að í tíð síðustu
vinstri stjórnar, ásamt þingmönn-
um flokksins og starfsmönnum
ráðuneytisins. Þó að framsóknar-
menn eigi ekki landbúnaðarráð-
herrann í núverandi ríkisstjórn, er
samt augljóst hverjir hafa mótað
stefnuna. Framsóknarflokkurinn
mun hér eftir, sem hingað til,
standa dyggastan vörð um þessa
undirstöðuatvinnugrein, með
hliðsjón af hag alls þjóðarbúsins.
bjamargerði til að kynna sér
hverjir þessir nýju réttir væru —
og síðast en ekki síst — til að
bragða á þeim.
Jónas Halldórsson, bóndi vís-
aði tíðindamanni Dags í rúm-
góðan sal þar sem unnið vár við
að útbúa pizzur sem væntanlega
eru nú allar komnar á markaðinn,
Þetta var þriðji dagurinn sem
pizzur voru framleiddar og því
voru starfsstúlkurnar ekki búnar
að ná upp þeim hraða sem síðar
verður. Jónas sagði að fyrsta
daginn hefðu verið búnar til 200
pizzur, en þann næsta 300.
Hvenær dagsframleiðslunni
verður náð er ekki gott að segja,
en aukningin milli daga lofar
góðu.
*
Úr upp-
skrifta-
bókinni
hennar
Sólveigar
Fyrir þá sem eru f megrun
1 grillaður kjúklingur
Va dós af heilum sveppum
20 g smjör
1-2 dl vatn eða sveppasoð
4 tómatar
Persilja
Kjúklingurinn er skorinn niður og
sveppirnir eru soðnir i smjörinu. Alll
sett I einn pott. Sallað og piprað.
Sveppasoði eða vatni helll yfir og látið
sjóða i 15 núnútur. Þá eru afhýddir
tómatar látnir i pottinn og látið sjóða
áfram í 5 minútur. Hökkuð steinselja
látin yfir áður en borið er á borð.
I skammtur ca: 265 kaloriur
Kjúklingasalat (4-5)
I kaldur grillaður eða djúpsteiktur
kjúklingur
1 poki með djúpfrystu grænmeti (250
1-2 stilkar af sellerý
Agúrkubiti (6cm)
Sósan
2 dl. sýrður rjómi
2 matsk. tómatpúrre
4 matsk. persilja
salt
Gœtið að þvl að skera kjúklinga-
kjötið ekki niður i of smáa bita. Skolið
djúpfrysta grœnmetið með köldu vatni.
Skera sellerý og agúrku. Þegar búið er
að blanda öllu saman er það borið fram
sem aðalréttur. Brauð og smjör œtti að
vera á borðinu.
Karrýkjúklingur með ananas
Djúpsteiktur kjúklingur
1 dós af annanas
400 g majones
l'/i matsk. karrý
1 epli
hakkaðar möndlur
Ananasinn skorinn i smált og kjúk-
lingurinn skorinn niður i bita. Hrœra
saman majones og karry og eplin.
Blanda saman við kjúklinginn og
ananasinn. Skreytl með möndlunum.
Hreppsnefnd Saurbæjarhrepps:
Saurbæjarhreppur
býr við lökustu
símaþjónustuna
í Eyjafirði
ÞAR SEM símaþjónusta í
Saurbæjarhreppi hefur nú ný-
lega verið tekin til umfjöllunar í
blaðinu Degi, vill hreppsnefndin
benda á nokkrar staðreyndir í
þessu máli, til frekari skýringar.
Eins og fram hefur komið, hefur
um árabil ríkt megn og almenn
óánægja meðal íbúa hreppsins,
vegna þessarar þjónustu, er á
nútíma mælikvarða verður að
teljast mjög ófullkomin. Skal í
því sambandi bent á fundarsam-
þykktir er gerðar hafa verið, og
erindi þau er hreppsnefnd hefur
sent yfirvöldum þessara mála.
Fyrir þessu liggja margarorsakir.
í fyrsta lagi eru bæði línur og tæki
símans orðin gömul og úr sér
gengin og bilanir því tíðar. Síminn
gegnir því oft ekki hlutvíerki sínu
þegar mest á ríður.
f öðru lagi eru símalínur í
hreppnum 7 að tölu. Samband frá
einni línu til annarar næst aðeins í
gegn um símstöðina í Saurbæ. Sú
stöð veitir þjónustu kostaða af
Landssímanum 6 klst. á dag, eða 'A
sólarhrings. Á helgum dögum er
þessi tími þó helmingi styttri.
Til þess að fá einhverja þjónustu
utan þessa tíma, greip hreppsnefnd
til þess ráðs, að greiða úr sveitar-
sjóði, sem svaraði til 1 klst. vinnu á
dag allt árið til stöðvarstjóra. Fyrir
þetta var símnotendum hjálpað að
ná sambandi milli lína innan sveit-
ar og ennfremur til Akureyrar þeg-
ar nauðsyn krafði.
Nú hefur símstöðvarstjórinn sagt
upp þessari þjónustu frá áramót-
um, sem er stórt spor aftur á bak.
Hafa símnotendur því aðeins hinn
afmarkaða símatíma til afnota
hvað varðar þjónustu. Á þessum
tíma er stöðin oft það yfirhlaðin að
löng bið verður eftir afgreiðslu.
Ef slys eða önnur óhöpp verða á
öðrum tímum, getur því orðið fátt
til bjargar. Okkar velferðarþjóðfé-
lag getur tæplega verið þekkt fyrir
að búa þegnum sínum slíkt
öryggisleysi.
Það er því álit hreppsnefndar-
innar að Saurbæjarhreppur búi við
lökustu símaþjónustu i Eyjafirði.
Urbætur í þessum efnum eru því
afar aðkallandi, og þótt misskilja
megi ummæli þau er höfð eru eftir
einum hreppsnefndarmanni í Degi,
hafa þau við nokkur rök að
styðjast.
Þess vegna lýsir hreppsnefndin
fyllsta stuðningi sínum við þá hug-
mynd umdæmisstjóra Pósts og
síma, að tengja hreppinn beinu
sambandi við símstöðina á Akur-
eyri, sem veita myndi hreppnum
þjónustu allan sólarhringinn. Er
þess fastlega vænst að sú endurbót
komist á á yfirstandandi ári.
SÍFELLT eykst vöruúrvalið og framleiðendur miða að því að
gera vinnu neytenda í eldhúsinu sem allra minnsta. Við tökum
e.t.v. harðfrosinn kjötklump upp úr öskju og eftir nokkrar mín-
útur fyllist íbúðin af dásamiegum matarilmi. Sósuna þarf ekki
lengur að hræra úr margvíslegum efnum því þær eru fáanlegar í
pökkum úti í næstu matvöruverslun. Flestum líkar þessi þróun
mæta vel og sjálfsagt mun mannskepnan eyða mun minni tíma í
matartilbúning eftir því sem fram líða stundir.
Kjúklingabúið Fjöregg í
Sveinbjarnargerði ætlar ekki að
láta sitt eftir liggja í þessum efn-
um, Nú eru komnir, eða að birtast
á markaðnum, ýmsir réttir sem
óefað eiga eftir að njóta mikilla
vinsælda meðal sælkera. Reyndar
hefðu þessir réttir verið komnir á
markað fyrir jól ef ekki hefði
komið upp vandamál í Svein-
bjarnargerði sem óþarft er að
rekja hér, en búið er að koma í
veg fyrir að endurtaki sig.
300 pizzur á dag
Blaðamaður Dags fór á stúfana
í síðustu viku og heimsótti Svein-
Bakkar með pizzum á borðinu. Starfsfólkið við pizzugerðina stráir ýmsum efnum á pizzubotninn. F.v. Sólveig, Anny
og Jónas Halidórsson. Mynd: á.þ.
Kjúklingasalat úr afgöngum
3-4 dl af kjúklingakjöti í teningum
I epli
150 g ostur
1-1 '/2 dl niðursoðin paprika (án vökv-
ans)
Salatsósa
2 dl sýrður rjómi
2 hakkaðar ediksgúrkur (fáanlegar í
dósum frá Felix)
salt og grófmulinn pipar
Eplið og osturinn er skorið niður i
litla leninga. Kjúklingakjötinu, eplinu,
ostinum og paprikunni blandað saman.
Sýrði rjóminn og ediksgúrkurnar eru
settar i skál. Bragðbætt með salt og
pipar. Hellt yfir kjötskálina. Borið
fram með grófu brauði og osti.
Guðrún, ein starfsstúlkan, er hér að taka upp kryddsoðinn kjúkling. Mynd: á.þ.
„Það eina sem við erum byrjuð
á að framleiða er pizza, en til-
raunir hafa verið gerðar með
að framleiða „pie“ og fylltar
pönnukökur. Við höfum líka
gert tilraunir til að krydda
kjúklinga og setja í steiking-
arpoka — þannig að það þarf
bara að stinga þeim í ofninn.“
Anny sagði að aðdragandinn
að fjölbreyttara vöruúrvali væri
orðinn langur en um langt skeið
hefði verið ætlunin að auka fjöl-
breytnina. Byrjað var að teikna
nýjar umbúðir fyrir nýju fram-
leiðsluna í mars í fyrra og eru þær
væntanlegar fyrir páska.
Á umbúðunum verða reitir
fyrir þær upplýsingar sem hið
opinbera krefst s.s. pökkunar-
dagur, síðasti söludagur og
nækvæm lýsing á vörunni.
Nú vinna tvær stúlkur við
pizzugerðina, en verður fjölgað ef
þörf er á. „Annars líst mér vel á
að pizzan og nýju vörurnar yfir-
leitt muni ná fótfestu á markað-
inum. Það tekur tíma, fyrir fólk
að venjast nýjum matvörum, en
ég er bjartsýn," sagði Anny
Anny pakkar pizzu.
SÓLVEIG Hákonardóttir
hefur annast matseld í Svein-
bjarnargerði undanfarin 2 ár.
Hún hefur yfirumsjón með
hinni nýju framleiðslu, sem
Anny Halldórsdóttir, greinir
frá annarsstaðar á síðunni.
Sólveig er útlærður kokkur —
hefur lokið námi við Hótel- og
veitingaskóla íslands, og
stundað framhaldsnám i
Svíðþjóð í sjúkrafæði.
— Ég er ekki viss hvort fólk
kann nógu vel að matreiða kjúkl-
inga, en þá er hægt að meðhöndla
á ótal mismunandi vegu,“ sagði
Sólveig „Það er hægt að grilla þá,
pönnusteikja, ofnsteikja og
kryddsjóða. Kalda kjúklinga er
hægt að nota í kjúklingasalöt og
þannig matreiddir eru þeir mjög
góðir. Sama má segja um ýmsa
pottrétti."
Sólveig gaf okkur uppskriftir
að lokum og er ekki ástæða til að
ætla annað en það bragðist vel —
nógu var salatið fallegt í bókinni
hennar Sólveigar.
Sólveig Hákonardóttir.
Anny Halldórsson:
Pizzan er kom-
in á markað
o
og fleira er
á leiðinni
Sólveig Hákonardóttir:
Kjúklinga er
hægt að mat-
reiða á marg-
víslegan hátt
Alifuglabúið Fjöregg
HEFUR FRAM-
LEIÐSLU Á
IIÝJUM RÉTTU
Stórsigur Þórsara
gefur þeim möguleika
á sæti í úrvalsdeild
Á SUNNUDAGINN fór
fram einn af úrslitaleikjum
fyrstu deildar í körfubolta.
Þá léku Þórsarar við Ár-
mann. Ef Ármann hefði
sigrað hefði liðið haft örugga
forustu og sætið í úrvalsdeiid
í seilingarfjarlægð. Þórsarar
mættu mjög ákveðnir til
þessa leiks, og léku stórvel.
Allir leikmenn lögðu sig
fram, og er þetta eflaust einn
besti leikur sem Þórsliðið
hefur átt i langan tírna.
Þórsarar unnu með 110 stig-
um gegn 105, eftir að í hálf-
leik hafði verið 56-46 Þór í
vil.
Það voru Bandaríkjamenn-
imir í báðum liðum sem voru
atkvæðamestir. Ármenningar
státa sig af besta leikmanninum
í íslenskum körfubolta, þrátt
fyrir það að honum yrðu oft á
mistök í þessum leik. Hann er
ekki ýkja hár í loftinu af körfu-
boltamanni að vera, en leikni
hans og stökkkraftur er yfir-
náttúrulegur. Hann leikur sér
að því að troða boltanum í
körfuna, með ýmsum tilbrigð-
um, og er það ekki á færi nema
afburðamanna.
Það var hins vegar Þórsarinn
Cary sem stal senunni í þessum
leik. Hann stóð sig frábærlega,
og hittni hans var stórkostleg.
Þórsarar tóku það ráð að láta
tvo af yngri leikmönnum sínum
gæta Shouse, en hann hafði
krók við því bragði því hann
hreinlega stakk þá af, og reyndi
síðan „gegnumbrot" inn í vörn-
ina hjá reyndari leikmönnum,
og strax á fyrstu mín. hrúguðust
á þá villurnar. Um miðjan fyrri
hálfleik voru strax nokkrir
Þórsarar komnir með fjórar
villur og m.a. Cary. Það sem
eftir var leiksins urðu þeir að
haga leik sínum eftir því. Á 7.
mín. síðari hálfleiks þurfti fyrsti
Þórsarinn að yfirgefa leikvöll-
inn með 5 villur en það var Ell-
ert Finnbogason, og hafði hann
þá staðið sig mjög vel og gert 8
Alfrcð Tulinius sýndi góðan leik. Mynd: Ó.Á.
Gunnar ekki í
unglingalandsliðið
Ármann
vinnur
Tindastól
Á LAUGARDAGINN
léku í fyrstu deild í körfu
Tindastóll frá Sauðárkróki
og Ármann. Ármenningar
unnu auðveldan sigur í
þessum leik, gerðu 85 stig
gegn 51. í fyrri hálfleik
gerði blökkumaðurinn
Shouse 34 stig af 44 Ár-
menninga, en hann dró sig
í hlé í síðari hálfleik og lék
ekki heldur gaf félögum
sínum kost á að spreyta sig.
Kári var stigahæstur og
langbestur Tindastóls-
manna með 33 stig.
FURÐU HEFUR vakið við val-
ið á unglingalandsliðinu í hand-
knattlcik að Gunnar Gíslason er
ekki á meðal þeirra er valdir
hafa verið. Gunnar var í liðinu á
siðasta Norðurlandamóti og
stóð sig þá mjög vel. Hann er nú
einn af burðarásunum í K.A.
liðinu og hefur staðið sig mjög
vel á þessu keppnistímabili.
Hann er kominn með mun meiri
reynslu en á síðasta ári þegar
hann var á fyrsta ári í meistara-
flokki. Það er því von að menn
séu undrandi þegar Gunnar er
settur út úr unglingalandsliðinu.
jks.
ÖnnUr körfubolta úrslit
Á LAUGARDAGINN léku í bikarkeppni 2 fl. Þór og Valur. Leikur
þessi var mjög jafn og spennandi og lauk með eins stigs mun Val I vil.
Þórsarar gerðu körfu á elleftu stundu en hún var dæmd af þar sem
leiktíminn var talin búinn áður en boltinn smali í körfunni.
Þá léku einnig lið 3. fl. Tindastóls og KA og sigruðu Sauðkræklingar.
Á sunnudag léku 14. fl. KA og Þór og sigruðu Þórsarar með yfirburðum.
stig. Næstur þurfti Cary að yf-
irgefa völlinn með 5 villur en þá
var aðeins eftir ein mín. af
leiknum og Þórsarar þá 9 stig-
um yfir. Þá lögðu Ármenningar
allt í sölumar að jafna, og náðu
strax að gera fjögur stig. Þá var
röðin komin að Alfreð að yfir-
gefa völlinn með 5 villur, en þá
var aðeins tæplega hálf mín. til
leiksloka.
Þá náðu Þórsarar boltanum
og Eiríkur brunar upp og
hreinlega treður boltanum í
körfuna með miklum tilþrifum,
og Þórssigur í höfn í þessum
mikilvæga leik.
Þórsarar voru yfir allan leik-
inn og voru ávallt betri aðilinn á
vellinum. Þeir komust mest í 20
stiga mun, en minnstur var
munurinn 5 stig í síðari hálfleik.
Þórsarar voru mjög ánægðir
eftir leikinn og sögðu sumir að
nú væri úrvalsdeildin í seiling-
arfjarlægð.
Vonandi tekst þeim vel upp í
leikjum sínum sem þeir eiga
eftir, en aðeins eitt lið fer upp í
úrvalsdeild á hverju ári.
Danny Shouse er yfirburða-
maður í sínu liði og gerði hann
72 stig. Cary var stigahæðstur
Þórsara með 56 stig, Alfreð
gerði 21, Eiríkur 17, Ellert 8,
Sigurgeir 6 og Valdemar 2, en
allir áttu Þórsarar stórleik.
Dómarar voru Hörður
Tuliníus og Kristbjörn Alberts-
son og dæmdu þeir mjög vel.
4.DAGUR
DAGUR.5