Dagur - 19.02.1980, Page 8
DAGUR
Akureyri, þriðjudagur 19. febrúar 1980
TABAHurrm
TIBQEBÐm
SÍMI
22875
22701
Hættir Gallerý
11 Sýningargestum fækkar og salan
ndílUII ■ _________dregst saman
NÚ ERU að verða fjögur ár
síðan Óli G. Jóhannsson stofn-
setti Gallery Háhól á Akureyri.
Haldnar hafa verið um 45 sýn-
ingar. Aðsókn hefur yfirleitt
verið góð, en hefur að undan-
förnu dregist verulega saman.
Nú kann svo að fara að Háhóll
verði lagður niður, sem verður
mikill hnekkir fyrir bæjarlífið.
Að sögn Óla G. Jóhannssonar
Gfsli Konráðsson.
Danne-
brogsriddari
MARGRÉT Danadrottning hefur
útnefnt ræðismann Dana á Akur-
eyri Gísla Konráðsson, riddara
Dannebrogsorðunnar. Heiðurs-
merkið var afhent í veislu hjá
danska sendiherranum í Reykjavtk
7. febrúar sl.
hefur komið til tals að leggja Háhól
niður, þar sem aðsókn og sala hefur
dregist svo mjög saman. Fyrstu tvö
til tvö og hálft árið var aðsóknin
mjög góð og ótrúlega mikið seldist
af myndum. Að sögn Óla er e.t.v.
búið að metta markaðinn fyrir
myndlist á Akureyri.
Flestir sem sótt hafa sýningar í
Háhól hafa komið til að kaupa
myndir og þessi hópur hefur lítið
látið sjá sig á sýningum í vetur.
Nokkuð er um að fólk komi af ein-
skærum myndlistaráhuga og þá
aðeins til að skoða sýningarnar.
Ekki er selt inn á sýningar í Háhól,
heldur hefur reksturinn verið fjár-
magnaður með sölulaunum af
seldum myndum. Eins og áður
sagði seljast nú mun færri myndir
en áður. Fastakostnaðurinn við
Háhól hefur hins vegar ekki farið
lækkandi og er nú um 300 þúsund
krónur á mánuði.
Óli G. Jóhannsson var inntur
eftir því, hvort ekki hefði komið til
tals að leita eftir styrk frá bænum
eða öðrum opinberum aðilum, til
að halda þessari sýningaraðstöðu
gangandi. Hann sagði að ekki hefði
verið farið fram á slíkt.
Fyrsta sýning Háhóls á ný-
byrjuðu ári var opnuð á laugardag.
Þetta er samsýning, sem stendur til
24 febrúar. Myndir eru eftir Eirík
Smith, Gunnlaug Stefán Gislason,
Guðmund Ármann Sigurjónsson,
Gísla Guðmann, Valtý Pétursson
(úr einkasafni en allar til sölu),
Jónínu Guðnadóttur og Örn Þor-
steinsson. Samtals eru 49 myndir á
sýningunni. Sýningin er fjölbreytt
og skemmtileg. Hún er opin á
helgum kl. 15-22 og á virkum dög-
um kl. 20-22.
Næstu sýningar í Háhól, sem
ráðgerðar eru, verða á verkum Úlfs
Ragnarssonar, grafíkverkum
enskrar listakonu, Gísla Sigurðs-
sonar og Gunnars Arnar.
Ólafsfjörður:
Þorskurinn
vill loðnuna
og forðast
netin
„AFLINN er ósköp lítill á
bátana, en togararnir hafa
fiskað vel. Nú eru sex sem
stunda net, en enginn er á
linu,“ sagði Jón Sigurpáls-
son vigtarmaður á Ólafsfirði
Jón sagði að bátarnir hefðu
komið með skást um 4 tonn s.l.
föstudag — en þá var sumt búið
að liggja. Á laugardag komu
bátarnir inn aftur með nætur-
gamalt og þá var aflinn á bát
undir tonni. „Sjómenn segja að
nú sé komin loðna í fiskinn og
er þá erfitt að ná honum. Það
getur verið í eina trossu og svo
ekkert í þá næstu. Þegar loðna
er á miðunum heldur fiskurinn
sig lítið við botninn — er upp
um allan sjó,“ sagði Jón.
Stórfurðuleg bókun
bæjarfulltrúa Alþýðubandalagsins á Siglufirði
„EF S.M.S. leggst á móti nauð-
syniegum og skynsamlegum
breytingum á starfsmannahaldi
og stjórnarkerfi Siglufjarðar-
kaupstaðar þá verður hreinlega
ekki við S.M.S. talað um þau
mál.“ Þannig hljóðar bókun er
kemur frá bæjarráði Siglufjarð-
ar og eru þetta ummæli Gunnars
Rafns Sigurbjörnssonar, full-
trúa Alþýðubandalagsins í bæj-
arstjórn.
Að sögn Helga Antonssonar,
formanns Starfsmannafélags
Siglufjarðarbæjar (S.M.S.) snið-
gekk bærinn félagið í ákveðnu máli
og mótmælti Helgi því fyrir hönd
félagsins, en vinnuveitandinn,
Siglufjarðarbær, hefur ekki heim-
ild til að gera t.d. breytingar á
vinnutíma starfsmanna án þess að
hafa samráð við félagið. Samskon-
ar reglur eru í gildi í öðrum bæjar-
félögum. Hins vegar er fulltrúi Al-
þýðubandalagsins ekki tilbúinn til
að fara að settum leikreglum og
bjóst þegar til bardaga I stað þess
að ræða málin í bróðerni.
Ný sauma-
stofa
Mývatnssveit 18. febr.
í GÆR VAR stofnað hér hluta-
félag um rekstur prjóna- og
saumastofu. Hlaut það nafnið
Krafla h/f. Hluthafar eru yfir
50, allt Mývetningar. Fyrirhug-
að er að hefja rekstur fljótlega í
húsnæði sem er í eigu hreppsins.
Veiðitímabilið í Mývatni hófst 1.
þessa mánaðar. Allmargir eru með
net undir ísnum. Reitingsveiði var
fyrstu dagana, en heldur farið
minnkandi. Nokkuð hefur verið
reynt að dorga í gegnum ísinn, en
lítið veiðst.
Hér hefur verið gott tíðarfar að
undanfömu. Snjór er óvenjulítill
miðað við árstíma og vélsleðaeig-
endur því óhressir. Hrossaeigend-
ur, sem fer fjölgandi, hafa notfært
sér vel góða veðrið að undanförnu.
JJ-
Ólafsfjörður:
Æskan gaf 2,6 milljónir
Fyrr í mánuðinum afhenti Kristjana Sigurjónsdóttir, formaður Kvenfé-
lagsins Æskunnar í Ólafsfirði, Pétri Má Jónssyni bæjarstjóra 2,6 milljónir
króna. Þetta var gjöf kvenfélagsins til dvalarheimilis aldraðra i Ólafsfirði.
Kristjana afhenti gjöfina á þorrablóti sem haldið var i Laugarborg. Mynd-
ina tók Jón Ævar Klemensson — Ijósm. DAGS í Ólafsfirði.
Siglufjörður:
Nýttskóg-
ræktarland
Áhuginn leynir sér ekki.
Lilja Sigurðardóttir og Gísli Guðmann. Á
Steindórssyni. Mynd: h.s.
milli þeirra er mynd Gísla af Steindóri
FYRIR skömmu ritaði Jóhann
Þorvaldsson, fyrir hönd Skóg-
ræktarfélags Siglufjarðar, bréf
til bæjarstjórnar Sigluf jarðar og
óskaði eftir að hún tæki
ákvörðun um nýtt skógræktar-
land, þar sem núverandi land-
svæði væri fullnýtt. Benti hann á
landsvæði í Skarðsdal, norðan
núverandi skógræktargirðingar,
og svæði sunnan girðingar, frá
Leyningsá.
Þegar málið kom til kasta bæjar-
ráðs var samþykkt að veita Skóg-
ræktarfélagi Siglufjarðar land-
svæði til skógræktar í Skarðsdal,
norðan við núverandi girðingu, þ.e.
efri hluta Skarðsdalslands, það sem
er óræktað, ofan vegar heim að
Skarðsdal. Um nákvæmari stað-
setningu skyldi hafa samráð við
bæjartæknifræðing.
# Jón G. Sól-
nes
uppboðs-
haldari
f dagblaðínu Vísi í gær er
sagt frá því, að Jón G. Sólnes,
fyrrverandi alþingismaður,
hafi fengið leyfi til uppboðs-
halds á Akureyri, og muni
ætlun hans að hatda þar
uppboð á málverkum, bókum
og fleiru. Jón mun nú vera
staddur erlendís.
% Óhófleg
áfengis-
neysla
Áfengisneysla er mest í stór-
borgunum. en margt bendir
til þess, að ofdrykkja breiðist
einnig út til minni staða úti á
landi. Fjöldi þeirra, sem
brúka áfengi í óhófi, nálgast
milljón í Svíþjóð, segir
sænska blaðið Land.
Blaðið getur ifka um, að
unglingar úr sveitum, sem
hafi flust til bæja, eigi oft erf-
itt með að aðlaga sig bæjar-
lífi. Mjög oft hafi þeir neyðst
tii að flytja úr sveitinni í at-
vinnuleit. Unglingarnir komi
heim í sveitina um helgar,
þegar þeir geta, og reyni
jafnan að neyta færis að flytja
aftur í sína heimasveit.
Þegar þeir koma heim
snögga ferð eða til lengri
tíma, segir blaðið, hafa sumir
þeirra heim með sér drykkju-
venjur, sem þelr hafa lært í
leiðtndum sínum og vanlíðan
á öðrum stöðum.