Dagur - 21.02.1980, Síða 4
Utgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur Tryggvabraut 12. Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreiöslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaöamaður: ÁSKELL ÞÓRISSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Of mikil
yfirvinna
í viðtali sem Dagur átti nýlega við
Ófeig Baldursson, rannsóknar-
lögreglumann á Akureyri, lætur
hann Þá skoðun sína í Ijósi, að
mikil vinna umráðamanna barna
og unglinga, sé meginástæða
þess, að unglingar ieiðist til af-
brota. Hann segir að í flestum til-
fellum sé eitthvað athugavert við
heimilisaðstæður þeirra unglinga,
sem fremja afbrot.
Þetta er athyglisverð skoðun
manns, sem byggir á reynslu og
afskiptum af afbrotaunglingum.
Það er hárrétt sjónarmið, að eitt-
hvað sé athugavert við heimilis-
aðstæður, þegar foreldri, annað
eða bæði, eru svo niðursokkin í
yfirvinnu, að þeim gefst enginn
tími til að sinna börnum sínum.
Skiptir ekki meginmáli í þessu
sambandi, hvort nauðsyn ber til
að vinna yfirvinnuna, vegna fram-
færslu heimilisins, eða hvort
ástæðan er lífsgæðakapphlaup
umfram þarfir. Vanræksla barna
er jafn slæm, hvort heldur sem er.
Hitt er svo aftur á móti allt of
algengt, að menn neyðist til að
vinna mikla yfirvinnu og kemst
varla nokkur Evrópuþjóð með
tærnar þar sem íslendingar hafa
hælana í þeim efnum.
Ofmikið vinnuálag hefur einnig
aðrar aukaverkanir. Það er al-
þekkt hve erfiðlega gengur að fá
fólk til félagsstarfa. Það er of
þreytt að afloknum löngum vinnu-
degi, til að mæta á fundi, hvað þá
að taka virkan þátt í félagsstarfinu.
Þetta getur svo valdið því, að ör-
fáir stjórnendur taka afdrifaríkar
ákvarðanir fyrir fjölmenn féiags-
samtök, án þess að hinir almennu
félagar komi þar nærri. Hefur því
meðal annars oft verið haldið
fram, að mikilvægar ákvarðanir
verkalýðsfélaga geti verið ákaf-
lega ólýðræðislegar og ekki endi-
lega í fullu samræmi við vilja þorra
félagsmanna.
Hér hafa aðeins verið nefnd tvö
dæmi um þá miklu ókosti sem
fylgja of miklu vinnuálagi. Nefna
mætti mörg fleiri, en foreldrar
ættu að vera þess minnugir, að
börn þeirra lenda miklu fremur á
glapstigum vegna skorts á um-
hyggju, heldur en vegna þess að
gjafirnar eru of fáar og fjárhagur-
inn bágur.
Loftur Magnússon, augnlæknir
Brýn þörf að
fa annan augn-
lækni til starfa
— Fólk þarf að panta tíma með góðum fyrirvara
LOFT MAGNÚSSON þekkja
víst flestir Norðlendingar, en
hann hefur um nokkurra ára
skeið verið eini starfandi augn-
læknirinn á Norðurlandi.
Starfssvæði Lofts er stórt —
nær frá Siglufirði til Vopna-
fjarðar. Á svæðinu búa nokkrir
tugir þúsunda, mun fleiri en einn
maður getur með góðu móti
annað. Til þess að ræða við Loft
og fá upplýsingar um starfið
fóru tvær stúlkur úr verslunar-
deild Gagnfræðaskólans á fund
hans, þær Anna Guðný Sigur-
Brýnt að fá annan
augnlækni til starfa
— Ég hóf nám í augnlækning-
um í Svíþjóð árið 1964, og var ég
þar í um það bil 8'/2 ár, en til Akur-
eyrar kom ég svo árið 1972 og hef
verið hér síðan.
— Hve stóru svæði þjónar þú?.
•— Ég þarf að anna svæðinu frá
Siglufirði um N.-Austurland til
Vopnafjarðar. Hingað kemur
einnig töluvert af fólki úr Skaga-
fjarðar og Húnavatnssýslum því
landfræðilega séð er það hag-
kvæmt og ferðir augnlæknis að
sunnan í þessar sýslur eru strjálar.
-***!'■■■ * ISgp d
1 - 'jK'*
Anna og Inga ræða viö Loft i sfðustu viku.
geirsdóttir og Inga Óskarsdótt-
ir, en þær voru í starfskynningu
hjá DEGI dagana 13-15. febrú-
ar. Þær spurðu Loft í upphafi
hvenær hann hefði hafið starf
sem augnlæknir á Akureyrj.
— Er vinnuálag ekki mikið
þegarsinna þarf svona stóru svæði?
— Það má segja að svo sé, þar
sem ég þarf að sinna þessu einn, en
vonandi stendur það til bóta á
næstunni.
— Hvernig er ástandið í augn-
lækningamálum hér á Akureyri?
— Ástandið gæti betra verið hér
eins og annarsstaðar. Brýnust er
þörfin að fá annan augnlækni til
starfa. Eins og kunnugt er þá er
þröngbýli mikið á sjúkrahúsinu og
verða allar sérgreinar að gjalda
fyrir það. Við bíðum óþreyjufullir
eftir því að næsti áfangi nýbygg-
ingar sjúkrahússins verði tekinn í
notkun.
Langur biðtími
— Hvað þarf fólk að bíða lengi
eftir því að fá tíma?
— Það þarf að bíða lengur en
mörgum þykir æskilegt, en biðtími
nú er um það bil 216 mánuður. Ef
um bráð tilfelli er að ræða svo sem
slys og fleira þá er því tafarlaust
sinnt, en nokkuð er um þessháttar
tilfelli á degi hverjum. Held ég þó
að við stöndum ekkert verr að vígi
heldur en þeir sem búa á Suðvest-
urlandinu.
— Við höfum heyrt að óánægja
ríki í sambandi við tímapantanir.
Hvernig er þeim málum háttað?
— Það gengur þannig fyrir sig
að hringi fólk fær það úthlutað
tíma fyrri hluta dagsins frá
9,15-12,00, og er þá biðtíminn 216
mán. eins og ég sagði áðan. Hins
vegar hef ég reynt að halda í þá
reglu, að ráðstafa ekki seinni hluta
dagsins fyrr en þann sama dag og
koma þannig til móts við þá, sem
þurfa að komast í skoðun með
stuttum fyrirvara. Þessi númeraút-
hlutun á morgnana er tilorðin af
biturri reynslu. Upphaflega var
þetta hugsað svo, að þegar ég
byrjaði mína eftirmiðdagsmóttöku
Loftur: ,Við bfl óþreyjufullir eftir því að næsti áfangi nýbygg ingar sjúkrahussins verði tekinn í notkun.“ Mynd: á.þ.
kl. tvö, þá fengi fólk á biðstofunni
númer eftir mætingarröð ásamt
upplýsingum hvenær það kæmist
að. Fólk gæti þá notað sinn tíma til
annars betra en að bíða á bið-
stofunni. Þetta stóðst ekki því
sjúklingarnir fóru þá að mæta sí-
fellt fyrr til að tryggja sér af-
greiðslu. Því var afhendingartími
númeranna fluttur fram til kl. níu.
Utanbæjarfólk á oft erfitt með að
mæta svona snemma og finnst það
lítil greiðasemi að ekki er hægt að
taka tillit til þess. Endanlega hef ég
þó orðið að hafa svigrúm til þess að
breyta út af þessum aðalreglum
þegar sérstakar aðstæður krefjast.
Vandinn er sá að þetta er of mikið
starf fyrir einn mann, vilji hann
halda sínum vinnutíma innan
nokkurnveginn skynsamlegra
marka. Ég vil leggja áherslu á að
fólk sýni þá fyrirhyggju að panta
sér tíma með góðum fyrirvara, en-
það er hægt þegar aðdragandinn er
langur, eins og þegar maður finnur
að gleraugun eru að verða ófull-
nægjandi, svo tekið sé dæmi.
7 vikur fara í ferðalög
— Hve mörgum sjúklingum
getur þó sinnt á dag?
— Ég get tekið á móti u.þ.b.
25-30 sjúklingum á dag og í sumum
tilvikum geta þeir orðið 40. Slíkt
gerist helst úti á landi, en þar byrja
ég móttökuna fyrr og hætti se.inna.
Ólafur Oddsson, héraðslæknir:
Lúsar hefur orðið vart
á Akureyri
Enginn þarf að skammast sín fyrir að fá lús
í NÓVEMBER síðastl. varð
vart við höfuðlús á Akureyri.
í því sambandi var gerð leit
í skólum og á barnaheimilum
bæjarins. Nú hefur aftur orðið
vart við lús hjá nokkrum ein-
stakiingum á skólaskyldualdri.
Leit í nánasta umhverfi hefur
ekki gefið tilefni til að ætla að
um neina útbreiðslu sé að ræða.
Ég tel rétt að taka fram að í
venjulegri heilsufarsskoðun í skól-
um er ekki leitað að lús sérstaklega.
Slík leit getur verið bæði tímafrek
og erfið hjá hármiklum einstak-
lingum. Einfaldast er og ef til vill
árangursríkast að húsráðendur leiti
sjálfir vandlega í hári heimilisfólks
síns.
Höfuðlúsin er tveggja til þriggja
millimetra langt gráleitt skordýr.
Hún heldur sig venjulega í hár-
sverðinum og festir egg sín, nitina,
á höfuðhárinu. Nitin, sem er egg-
laga, situr föst við hár, ef strokið er
eftir því með þumal og vísifingri,
en flasa dettur aftur á móti af.
Höfuðlús veldur kláða og stundum
koma sár á hnakka ef viðkomandi
hefur klórað sér mikið.
Verði lúsar vart á heimili ber að
tilkynna slíkt heimilislækni. Sé um
böm á skólaskyldualdri að ræöa er
rétt að láta einnig skólahjúkrunar-
konu strax vita. Nauðsynlegt er að
fólk sýni hreinskilni ef það verður
vart við höfuðlúsina á heimili sínu.
Nauðsynlegt er að láta alla vita sem
nýlega hafa komið á heimilið, til-
dæmis leikfélaga barna.
Það þarf enginn að skammast sín
fyrir að fá lús. Sá þrifnaður sem
almennt ríkir nú hér á landi er
slíkur að varla verður lengra komist
í þeim efnum. Það er því ekkert
samband á milli óþrifnaðar og þess
að fá á sig lús, en lúsin getur borist
hratt á milli fólks.
Meðferð: Þvoið hárið og þerrið á
venjulegan hátt. Gegnvætið hárið í
kólfenótan spritti. Kembið hárið
með þéttum kambi á meðan það er
vott. Þannig næst nitin best úr.
Þvoið sprittið ekki úr, heldur látið
það sitja í hárinu í 5-6 daga. Þá fyrst
má þvo hárið. Nú er klófenótan
sprittið borið aftur í hárið og látið
vera í 1 dag og hárið þá þvegið.
Klófenotan spritt fæst í lyfjabúð
án lyfseðils. Geymið það þar sem
börn ná ekki til.
Héraðslæknir,
Ólafur H. Oddsson.
Ort í tilefni stjórnarskipta
Til menntamála-
ráðherra
Brátt mun slóð hins fallna fennt.
Frelsast þjóð úr böndum.
Landsins hróður, list og mennt,
lentu I góðum höndum.
Stjórnarskiptin
Traustir fírar, tiu i sveit,
taka stýri valda.
Út I mýri á mannorðsbeit
möppudýrin halda.
— Hve langan tíma er hverjum
einstaklingi ætlaður?
— Það er u.þ.b. 15-20 mínútur,
en í sumum tilfellum nægir sá tími
ekki og færast þá allir tímar aftur
sem því nemur.
— Hvernig skiptist vinnuvikan
þegar þú ert ekki í ferðalögum?
— Ég tek á móti sjúklingum á
stofunni fjóra daga í viku. Á
þriðjudögum er ég á sjúkrahúsinu
við aðgerðir. Um helgar hef ég
einnig störfum að gegna á sjúkra-
húsinu.
— Er mikið um að fólk leiti til
Reykjavíkur til lækninga?
— Það er eitthvað um það að
fólk leiti þangað til augnlæknis, en
þó ekki mikið. Til þess geta verið
margvíslegar ástæður. Aðstæður til
rannsókna eru betri þar, að sumu
leyti og einnig vilja sumir leita til
fleiri en eins læknis, og er ekkert
við það að athuga.
Hvað um ferðalög til nær-
liggjandi kaupstaða í sambandi við
starfið?
Ég ferðast töluvert mikið út um
landsbyggðina. Það fara um það bil
7 vikur á ári hverju í slík ferðalög.
Ég fer þrisvar á ári til Húsavíkur og
tvisvar til Siglufjarðar og er þá eina
viku í senn á þessum stöðum. Til
Vopnafjarðar, Þórshafnar Raufar-
hafnar og Kópaskers fer ég einu
sinni á ári og er það hálfsmánaðar
ferðalag.
Engir tveir sjúklingar
eru eins
— Hver kostar ferðalögin sem
farin eru í sambandi við starfið?
— Landlæknisembættið hefur
borgað útlagðan kostnað við ferð-
imar, hafi ég t.d. orðið að fara með
flugvél eða kaupa mér bíl. Við-
komandi sveitarfélög borga hins
vegar uppihald á staðnum. Fari ég
á eigin bíl stenda ég fyrir þeim
kostnaði sjálfur
— Hvernig er aðstöðunni úti á
landsbyggðinni háttað?
— Á Húsavík og Siglufirði eru
tæki til augnskoðunar flest keypt
fyrir mína milligöngu. Þau eru ekki
nægjanleg og verð ég því að hafa
með mér eigin tæki í þessar ferðir
og mest þegar ég fer á minni stað-
ina. Annars fæ ég ómetanlega að-
stoð hjá starfsfólki á þessum stöð-
um og hef aldrei þurft yfir aðbún-
aði að kvarta.
— Erstarfið einhæft?
— Á landsvæði með ekki hærri
íbúatölu koma að sjálfsögðu ekki
upp mörg óvænt og sérstök tilfelli.
Þá vandamál fólks séu mörg hins
sömu þá eru engir tveir sjúklingar
eins og má því segja að starf læknis
sé alltaf fjölbreytilegt og skemmti-
legt.
Ég vil að lokum taka það fram að
ég kann vel við mig hér á Akureyri
og vildi hvergi annars staðar vera.
Afmæliskveðja
Þórhallur Guðnason
Lundi Fnjóskadal
75 ára, 21. febrúar 1980
ÞÓRHALLUR Guðnason hefur
manna lengst unnið hjá Skógrækt
ríkisins, Vöglum. Fyrst hóf hann
þar störf 12 eða 13 ára gamall og þá
við fræsöfnun hjá Stefáni
Kristjánssyni, sem þá var skógar-
vörður. Síðustu 40 árin hefur Þór-
hallur stundað vinnu hjá Skóg-
ræktinni á Vöglum, fyrst samhliða
búskap, en nú hin síðustu árin
samfelda vinnu.
Þegar ég fluttist norður i byrjun
júní 1949, var heldur kuldalegt um
að litast í Fnjóskadal og kafsnjór og
ófærð í skóginum.
Þá var ég svo lánsamur að fá
Þórhall fyrir samstarfsmann. Alla
tíð hefur Þórhallur unnið stofnun-
inni af einstakri trúmennsku og
ósérhlífni.
Það er sama hvaða verkefni Þór-
halli hafa verið falin, girðinga-
vinna, skógarhögg, húsbyggingar
eða margvísleg störf í gróðrarstöð,
svo eitthvað sé nefnt, því er vel
borgið sem hann tekur að sér.
Þórhalli er vel ljós þýðing skóg-
ræktar til landverndar og nytja á
völdum stöðum og því vil ég fyrir
hönd stofnunarinnar færa honum
sérstakar þakkir fyrir framlag hans
til skógræktar í landinu.
Ég á Þórhalli mikið að þakka,
ekki aðeins sem samstarfsmanni,
heldur einnig vináttu hans og
tryggð. Með ljúfmennsku sinni og
grandvarleik hefur Þórhallur
áunnið sér almennar vinsældir og
virðingu samstarfsmanna og sveit-
unga sinna.
Kona mín og ég sendum Þórhalli
og fjölskyldu hans hjartanlegar af-
mælisóskir og vonumst til að eiga
enn um ókomin ár samleið með þér
í skóginum.
ísleifur Sumarliðason.
TSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS
j
Alþjóðlegt skíðamót
HLUTI Vetraríþrótta-
hátíðarinnar verður alþjóð-
legt skíðamót, en það er
keppnin í svigi og stórsvigi
karla og kvenna, sem fer
fram í Hlíðarfjalli 1. og 2.
mars.
Á s.l. vetri var óskað heim-
ildar SKÍ um að fram færi á
Akureyri alþjóðlegt skíðamót
í alpagreinum og var um það
sótt til alþjóðaskíðasam-
bandsins (FIS) í Bern í Sviss.
Á þingi FIS s.l. vor var sam-
þykkt að þetta mót færi hér
fram.
Boð á þetta mót hefur verið
sent flestum skíðasambönd-
um innan FIS, en ekki er þeg-
ar þetta er skrifað, vitað um
endanlega þátttöku erlendis
frá.
Eftirlitsmaður var tilnefnd-
ur Haakon Rygh frá Noregi.
Haakon Rygh er verkfræð-
ingur, útskrifaðist úr háskóla í
Kaupmannahöfn. Hann hefur
starfað að skíðamálum
Noregi síðan 1939 og gengt
mörgum störfum fyrir Skíða-
samband Noregs (NSF) og
Alþjóða skíðasambandið
(FIS). Er nú í alpanefnd NSF,
tækninefnd NSF um skíða-
staði, skipulagsnefnd um
málefni NSF. Þá er hann í
ráshópanefnd FIS. Þá hefur
Haakon Rygh verið yfirdóm-
ari á fjölda alþjóðamóta og
fararstjóri norskra skíðahópa
á skíðamót og leiðbeinandi á
dómaranámskeiðum hjá
NSF.
Maiiau au SKioamatum í c
> s
rsssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssfj
„Stiýta“
Dagskrá vetrar-
íþróttahátíðar
Fimmtudagur 28. febr.
15.00 Fararstjórafundur í Lundar-
skóla. Útdráttur í skíða- og
skautakeppni föstudagsins 29.
febrúar.
18.00 Opnun sögu- og vörusýnlngar í
Alþýðuhúslnu.
20.30 Skrúðganga frá Dynhelmum aö
skautasvæðinu sunnan við
Höepfner. Ávörp: Formaður Vetr-
aríþróttahátiðarnefndar Hermann
Sigtryggsson, formaður SKl Sæ-
mundur Öskarsson, forseti bæjar-
stjórnar Akureyrar Freyr Öfeigs-
son. Fánar dregnir að hún. Flug-
eldasýning. Listhlaup á skautum.
Mótsetning: Forseti ISl Gísli
Halldórsson.
Föstudagur 29. febr.
11.30 Svig unglinga: Drengir 13-14
ára. Stúlkur 13-15 ára. Drengir
15-16 ára.
12.00 Ganga: 15 km karlar 20 ára og
eldri. 10 km 17-19 ára drengir. 7.5
km 15-16 ára drengir. 5 km 13-14
ára drengir. 5 km konur 19 ára og
eldri. 3.5 km 16-18 ára stúlkur. 2.5
km 13-15 ára stúlkur.
16.00 Skautahlaup: 500 m og 1500 m.
18.00 Fararstjórafundur i Lundar-
skóla. Útdráttur í skíöa- og
skautakeppni laugardagsins 1.
mars.
20.30 Ishockeykeppni, Islandsmót,
fyrri leikur.
Laugardagur 1. mars
10.00 Stórsvig unglinga: Drengir
13-14 ára. Stúlkur 13-15 ára.
Drengir 15-16 ára.
11.00 Svlg karla.
12.00 Svlg kvenna.
12.30 stökk 13-14 ára, 15-16 ára,
17-19 ára, karlaflokkur.
15.00 Skautahlaup 500 m og 1500 m.
16.00 Ishockekeppni, 18 ára og yngri.
18.00 Fararstjórafundur í Lundar-
skóla. Útdráttur í skíða- og
skautakeppni sunnudagsins 2.
mars.
20.30 Skautasýnlng. Ishockeykeppni.
Sunnudagur 2. mars
11.00 Stórsvig karla.
12.00 Stórsvig kvenna.
13.00 Boðganga, 3x10 km eldri flokkur
karla og 3x5 km yngri flokkur
karla.
16.00 Skautasýning.
16.30 Ishockeykeppni, úrslitaleikur í
fyrsta (slandsmóti í íshockey.
20.00 Verðlaunaafhendin á skauta-
svæðinu.
21.00 Flugeldasýning og mótslit.
Vetrariþróttahátíðin er m.a.: Alþjóð-
legt mót í alpagreinum karla og
kvenna. Hermannsmótið, punktamót í
alpagreinum karla og kvenna.
Punktamót unglinga í alpagreinum.
Punktamót í norrænum greinum,
göngu og stökki.
Heimild er áskilin til breytinga á
dagskrá ef veður eða óviðráðanleg
atvik hamla framkvæmd hennar.
Lágmarksþátttaka í hverri keppnis-
grein svo hún fari fram eru 3 kepp-
endur.
Æfingatímar í svig- og stórsvigs-
brekkum eru sem hér segir: Unglingar:
Fimmtudag 28. febrúar kl. 10-16. Full-
orðnir: Föstudagur 29. febrúar kl.
10-16 (svigbrekkur þegar keppni ung-
linga er lokiö).
Göngubrautir verða opnar eftir þvi
sem aðstæður leyfa daginn fyrir
keppni.
Stökkbrautin verður opin til æfinga
frá 24. febrúar til kl. 18.00 daginn fyrir
keppni.
Ishockeysvæði og hlaupabrautir
verða opnar til hádegis keppnisdag-
ana til æfinga.
Fararstjórar, keppendur og þjálfarar
eru beðnir að mæta í skrúðgönguna
við Dynheima kl. 19.30 og vera helst í
skiðafötum og þæglilegum göngu-
skóm.
Lokahóf í boði ISf fer fram eftir
verðlaunaafhendingu við lok mótsins
fyrir keppendur, gesti og starfsmenn.
Skrifstofa Vetrarhátíðarnefndar er í
Skipagötu 13, sími 25823. Einnig verður
skrifstofa nefndarinnar mótsdagana í
Skíðastöðum, sal á suðvestur lofti. Simi:
25827
Einar Bolla
og Co. sigruðu.
Á FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ
léku í íþróltaskemmunni Þór og
KR b lið í bikarkeppni KKl.
Lið KR var skipað fyrrverandi
leikmönnum KR sem margir
hverjir æfa ennþá af fullum
krafti. Leikur þessi var mjög
jafn og skemmtilegur, en KR-
ingar fóru með sigur af hólmi
gerðu 87 stig gegn 81. KR-ingar
höfðu miklar gætur á Cary í
Þórsliðinu, en gekk samt erfið-
lega að hemja hann.
Kolbeinn Pálsson var yfir-
burðamaður hjá KR, en hann
var áður burðarás KR og
landsliðsins.
4.DAGUR
DAGUR.5