Dagur - 28.02.1980, Side 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LXIII. árgangur Akureyri, fimmtudagur 28. febrúar 1980
14. tölublað
Þorskaflinn
jókst um 75%
ÞORSKAFLI í Norðlendinga
Qórðungi, það er á svæðinu frá
Hvammstanga til Þórshafnar,
jókst um hvorki meira né
minna en 74,8% í janúar s.l.,
Vatnsnotkun
Hinn 5. febrúar s.l. fór fram
mæling á neysluvatnsþörf Akur
eyrar og bæja í Kræklingahlíð
ásamt Þelamerkurskóla. Þá fór
einnig fram mæling á neyslu-
vatni frá lindum á Glerárdal og
úr Hlíðarfjalli.
Vatnsþörf veitusvæðis vatns-
veitunnar reyndist 146 l/sek eða
miðað við janúar í fyrra.
Þorskaflinn í janúarmánuði
s.I. varð 7.115 lestir, en í
janúar í fyrra varð hann 4.070
lestir.
bæjarins
12.6I4m’ meðalnotkun á sólar-
hring.
Frá Glerárdal koma 27 1/sek =
2.332m’ á sólarhring.
Frá Hlíðarfjalli koma 53 1/sek =
4.579m3 á sólarhring.
Frá Vaglaeyrum þarf að dæla 66
1/sek = 5.703m3 á sólarhring en
dælustöðin á Vöglum getur afkast-
að 85 1/sek = 7.344m3 á sólarhring.
Á sama tíma jókst botnfiskafli
Norðlendinga um rösklega 34%.
Heildarbotnfiskaflinn í janúar s.l.
varð 8.052 lestir, samkvæmt
bráðabirgðatölum Fiskifélagsins,
en á sama tíma í fyrra varð
heildarbotnfiskaflinn 5.996 lestir.
Norðlendingar voru vel yfir
meðallagi í aflaukningunni sem
orðið hefur, þegar þessir tveir
mánuðireru bornir saman. Þann-
ig varð aukning þorskaflans yfir
landið í heild 48,2 prósent og
heildarbotnfiskaflinn yfir landið
jókst um 21% milli ára í janúar.
Botnfiskafli bátanna í janúar
s.l. varð 1566 lestir og þorskafii
bátanna 1495 lestir. Botnfiskafli
togaranna varð 6.486 lestir og
þorskafii þeirra varð 5.620 lestir í
janúar.
Kvótakerfið kemur
víða illa niður sjálfsagða hluti
Gunnarsstöðum í Þistilfirði 25. febr.
Árni Jónasson erindreki
Stéttarsambands bænda, hélt
hér fund um daginn og var að
kynna mönnum kvótakerfið. í
gær var Grímur Jónsson ráðu-
nautur á ferðinni og var að
aðstoða menn við að gera
athuga semdir við kvótann, sem
kemur ákaflega misjafnlega út.
Sérstaklega virðast þeir bændur
sem byrjaðir voru að búa fyrir
viðmiðunarárin, sem eru 1976-
’77 og ’78, og hafa staðið í að
auka bústofninn, koma illa út,
en tekin er meðalframleiðsla
umsvif
hjá KEA
slðasta ár
- Sjá auka-
blað bls. 5
þessara ára og kvótin miðaður
við hana.
Frumbýlingum. þ.e. mönnum
sem hófu búskap eitthvert um-
umræddra ára, verður úthlutaður
kvóti. Þeir sem voru byrjaðir að
búa fyrir þennan tíma teljast ekki
frumbýlingar og hafa margir hverj-
ir verið að ala upp bústofn þessi ár,
en kvótinn mælir ekki bústofns-
stækkun og því kemur hann illa
niður á bændum sem hafa verið að
NÚ ER BÚIÐ að tengja hita-
veitu við meirihluta íbúðarhúsa
á Svalbarðseyri. Fyrstu húsin
voru tengd í desember síðast-
liðnum, en síðan hefur verið
unnið áfram að tengingum.
Auk íbúðarhúsanna er búið að
leggja hitaveituna í sundlaugina,
barnaskólann, sláturhús og fisk-
vinnsluhús kaupfélagsins og unnið
er að tengingu í verslunarhúsið.
Áætlað er að þeir 8 sekúndulítrar af
52 gráðu heitu vatni, sem fást úr
holunni, nægi handa þorpinu, og
að lokið verði við að tengja öll hús í
sumar. Þá verður komið heitt vatn í
um helming húsa í hreppnum.
f haust sem leið var undirbúin
önnur boráætlun og feginn högg-
bor, sem þegar hefur skilað hlut-
verki sínu og tekið fyrir nýrri holu.
Síðan hefur ekki verið unnið að
borframkvæmdum, en menn eru
vongóðir um að fjárveiting fáist og
byggja upp viðmiðunarárin og eru
með verðtryggð lán.
Ég veit t.d. um einn bónda sem
byrjaði að búa um 1970. Hann er
kominn núna með 370 ærgildi, en
fær ekki nema 240 kinda kvóta. Eitt
árið t.d. skipti hann á 50 lömbum
við bónda sem var að hætta og fékk
50 ær í staðinn. Þetta mælir
reikniskerfið ekki! Lögin eru þann-
ig úr garði gerð að þau heimila
engin frávik frá reglunni. ó.H.
að borað verði á yfirstandandi ári.
Nú er unnið að áætlun fyrir
hitaveitu í allan hreppinn og er
talið, að 10-12 sekúndulítrar til
viðbótar nægi sveitinni allri.
Sv. Lax.
Bilun í
búnaði
Eins og lesendur DAGS er
kunnugt kom blaðið ekki út
s.l. þriðjudag. Ástæðan er su
að hluti tækjabúnaðar í prent-
smiðju bilaði
Ákveðið var að gefa út tvö-
falt blað í dag, þ.e. sextán
síður en í næstu viku verða
gefin út tvö blöð, hið fyrra á
þriðjudag og hið síðara á
fimmtudag.
Unnið aðtengingum
Bílasalan á grænu
svæði og leikvelli
íbúar mótmæla við skipulagsnefnd
Þorskafli togaranna í Norðlendingafjórðungi í janúar varð 5620 lestir. I
Norðlendingafjórðungi jókst þorskaflinn milli ára í janúar um tæp 75%. Myndin
sýnir þegar verið var að taka Kaldbak EA í slipp í Slippstöðinni á Akureyri. -
Mynd. h.s.
„Það er ekki búið að ræða við
eiganda bílasölunnar, en það
verður farið í málið mjög
fljótlega“, sagði Finnur Birgis-
son, skipulagsstjóri ísamtali við
DAG um rekstur bílasölu í
Stórholti 1. fbúar í hverfinu
mótmæltu því að eigandi bíla-
tækja-
kom I veg fyrir
útgáfu blaðsins
Ritstjórn DAGS harmar
mjög að blaðið kom ekki út s.l.
þriðjud en ekki var við neitt
ráðið. Þar sem Ijóssetningar-
tæki P.O.B. eru enn biluð var
brugðið á það ráð að fá hluta
blaðsins unninn í Skjaldborg
og kann ritstjórn DAGS for-
ráðamönnum Skjaldborgar
bestu þakkir fyrir aðstoðina.
sölunnar legði undir sig grænt
svæði austan Hörgárbrautar og
sunnan Undirhlíðar.
Finnur sagði að á umræddu
svæði væri m.a. leiktæki og að
bílar ækju nú yfir svæðið, sem
samkvæmt skipulagi erleikvöll-
ur og grænt svæði. Nú standa
þar fjölmargir bílar, sem auk
þess að standa á bannsvæði, eru
til lítillar prýði fyrir umhverfið.
Bílasalan hóf að nota græna
svæðið sem bílastæði fyrir
nokkrum vikum síðan.
Málið kom til kasta skipu-
lagsnefndar þann 22. febrúar,
eftir að íbúar höfðu mótmælt
staðsetningu bílanna. Skipulags
efnd fól byggingafulltrúa og
skipulagsstjóra að láta stöðva
þessa notkun svæðisins. Á
fundinum upplýsti bygginga-
fulltrúi að ekki væri leyfi fyrir
þessum rekstri að Stórholti 1.
íbúar í hverfinu mega eiga von á
aðgerðum næstu daga.
Nýr sjó- og
verslunardómur
NÝLEGA var skipaður nýr sjó-
og verslunardómur á Siglufirði.
Hann er nú skipaður eftirtöldum
mönnum: Björn Friðbjörnsson,
Eyþór Hallsson, Knútur Jónsson,
Kristinn J. Þorkelsson, Pétur
Þorsteinsson og Hörður Hannes-
son
Þriðja mynda-
getraunin
ÞRIÐJA myndagetraun DAGS í
samvinnu við Ferðaskrifstofuna
ÚTSÝN er birt í aukablaðinu í
dag. í dag er jafnframt síðasti
skiladagur fyrir fyrstu gátuna, ef
menn vilja eiga möguleika á fyrstu
aukaverðlaununum. Hins vegar
er alls ekki of seint að vera með í
baráttunni um aðalvinninginn,
sem er utanlandsferð að verð-
mæti allt að 500.000 krónur. Þeir
sem senda inn lausnir, eru vin-
samlegast beðnir um að hafa
aðeins eina lausn í hverju umslagi
og merkja það jafnframt með
númeri þeirrar getraunar, sem um
er að ræða.
Samningur um
kaup jarðhita-
réttinda að
Hrafnagili
Bæjarráð hefur samþykkt að
heimila bæjarstjóra að ganga til
samninga við Hjalta Jósepsson
bónda á Hrafnagili í Hrafnagils-
hreppi um jaðhitaréttindi á jörð-
inni.
Verkalýðs-
félögin
Helgi Guðmundsson, f.h. undir-
búningsnefndar verkalýðsfélag-
anna að byggingu félagsheimilis,
hefur óskað eftir viðræðum við
bæjarráð Akureyrar um hugsan-
legt samstarf bæjarstjórnar og
verkalýðsfélaganna um bygg- í
ingu félagsheimilis.