Dagur - 17.04.1980, Síða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGOR
LXIII. árgangur Akureyri, fimmtudagur 17. apríl 1980
28. tölublað
Rafmagnsmál Skag
firðinga í ólestri
Ljósin dofnuðu þegar rafmagshitunin fór í gang í næsta húsi
„Ég var staddur í húsi á Hofsósi
um daginn og allt í einu dofnuðu
ljósin. Ég spurði sem svo hvort
rafmagnið væri að fara, en svar-
ið var það að svona væri þetta
alltaf þegar rafmagnshitunin
færi í gang í næsta húsi,“ sagði
Gunnlaugar Steingrímsson,
sýslunefndarmaður á Hofsósi í
samtali við DAG, en rafmagns-
mál í Skagafjarðarsýslu hafa
mjög verið til umræðu að und-
anförnu.
Sýslunefnd Skagafjarðarsýslu
hélt aukafund á Sauðárkróki fyrir
skömmu þar, sem samþykkt var
skorinorð ályktun um það ófremd-
arástand sem ríkt hefur í raforku-
málum héraðsins í vetur, en
spennufall og truflanir og raf-
magnsleysi hafa verið tíðir við-
burðir.
Á fundinum kom það fram að
Dregið í sjöttu
myndagátunni
Síðastliðinn þriðjudag kom
Vöruhúsritari KEA, Alda
Bridde, á ritstjórn DAGS og dró
úr bréfabunkanum sem hafði
borist vegna sjöttu myndagát-
unnar. 1 Ijós kom að vinnings-
hafinn var Sonja Gunnarsdóttir,
Skarðshlíð 6b, Akureyri, og
vinningurinn 20 þús.kr. vöruút-
tekt.
Sonja kom í Vöruhús KEA á
þriðjudag og þá var þessi mynd
tekin af henni og ungum fylgd-
arsveini, Borgari Ragnarssyni.
f dag, á blaðsíðu sex, birtist
níunda myndagátan. Sú tíunda
verður birt þann 8. maí. Það er
sú síðasta og 22. maí verður
dregið um aðalverðlaunin, sem
er stórglæsilegur ferðavinning-
ur.
sýslunefndarmenn töldu það yfir-
leitt mun skárra, af tvennu illu, að
rafmagnið færi af, en hið sífellda
spennufall, sem er mjög hættulegt
ýmsum rafmagnstækjum. Iðulega
logar ekki á sjónvarpstækjum
nema öll önnur tæki á bænum séu
tekin úr sambandi og ljós slökkt!
Enn eitt dæmið um furðulegt
ástand er að Hallgrímskirkja í
Saurbæ borgar sextíu sinnum
hærra raforkuverð en Jámblendi-
verksmiðjan á Grundartanga, mið-
að við hverja orkueiningu.
Gunnlaugur sagði í gær að
spennufall hefði verið algengt á
Hofsósi á undanförnum árum —
bæði af völdum gamalla spenna og
gamalla og veikra dreifilagna.
„Unnið hefur verið að úrbótum, en
í mjög smáum áföngum og virðist
nokkuð í land að allir hafi fengið
viðunandi lausn. Það hefur þótt
seinlegt að fá leyfi fyrir rafhitun og
þegar leyfi hefur borist hefur ekki
verið hægt að tengja húsin vegna
lélegs dreifikerfis," sagði Gunn-
laugur.
Sem dæmi um lélega þjónustu
RARIK nefndi Gunnlaugur að
fyrirtækið ætti að sjá um uppsetn-
ingu Ijósa við götur á Hofsósi, en
það hefur ekki fengist gert, þrátt
fyrir ítrekaðar beiðnir heima-
manna. Þess skal getið að sveitar-
félagið kostar framkvæmdina
ásamt RARIK. Þess er einnig dæmi
að straumfrek tæki til iðnaðar hafa
ekki fengist tengd.
„Hér er mikil óánægju með af-
lestur rafmagnsmæla. Af mælum er
lesið 2var á ári, en rafmagnsnotkun
áætluð þess á milli. Ónákvæmnin
er svo mikil að oft verður að end-
urgreiða þegar lesið er af,“ sagði
Gunnlaugur.
Ástandið er mjög misjafnt í sýsl-
Óvenjulegir tónleikar
Næstkomandi laugardag 19.
apríl kl. 17 verða 3. tónleikar
Philip Jenkins og Guðnýjar
Guðmundsdóttur á vegum
Tónlistarfélagsins, þar sem
þau flytja sónötur Beet-
hovens.
A þessum tónleikum leika
þau m.a. Vorsónötuna og
Sónötu í c-moll, sem báðar eru
mjög þekktar og vinsælar. Tón-
leikamir fara fram í sal Gagn-
fræðaskólans.
Guðný og Philip hafa nú
þegar flutt 7 af 10 sónötum
Beethovens á tvennum tónleik-
um og hafa hlotið lof fyrir
ágætan flutning. Aðsókn hefur
verið góð, en þetta er í fyrsta
skipti á íslandi sem allar sónöt-
ur Beethovens, sem hann samdi
fyrir fiðlu og píanó, eru fluttar á
þremur tónleikum í röð og er
óhætt að segja að vel hafi til til
tekist. Á næstunni munu þau
einnig flytja allar lOsónöturnar
í Norrænahúsinu í Reykjavík.
unni, en einna skást virðist það vera
í Gönguskörðum og á Skaga, en
dreifilína er þar nýleg. Ályktun sem
sýslunefndarmenn samþykktu var
send orkuráðherra og þingmönn-
um kjördæmisins með þeirri ein-
dregnu beiðni að Skagfirðingar fái
nú þegar leiðréttingu mála sinna.
Ella mætti búast við tíðindum, því
óánægjan með hið lélega rafmagn
er mjög almenn.
Silungsveiði
hafin
Sveinsstöðum 15. aprfl
Vorhugur er nú kominn í menn,
enda er sólin farin að skína,
jörð er svo til klakalaus og ár
búnar að ryðja sig að mestu
leyti.
Byrjað var að veiða silung í net í
Vatnsdalsá strax upp úr 1. apríl,
eða um leið og veiðarnar máttu
hefjast, sem er nokkuð óvenjulegt.
Nokkuð margir bændur hafa beitt
fé í vetur og sparað með því mikið
hey, þannig að ekki eru horfur á
heyskorti í vor ef heldur sem horfir.
M. Ó.
678 milljónir til F.S.A.
samkvæmt fjárlögum
,,Vona að lánsheimildin verði notuð“ segir framkvæmdastjóri F.S.A.
Samkvæmt nýjum fjárlögum fær
Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri 678 milljónir króna til ný-
bygginga á þessu ári, auk þess
sem í lögunum er heimildar-
ákvæði fyrir ríkisstjórnina, að
ábyrgjast með einfaldri ábyrgð
lán, sem Akureyrarbær kynni að
taka til byggingar tengiálmu við
sjúkrahúsið.
Fjórðungssjúkrahúsið fær þann-
ig langhæstu upphæðina sem ríkið
ver að þessu sinni til nýbygginga
sjúkrahúsa, heilsugæslustöðva og
læknabústaða, annarra en ríkis-
sjúkrahúsa. Næst á eftir kemur
Borgarspítalinn með 420 milljónir,
en samtals er veitt til þessara bygg-
inga 3 milljörðum og 80 milljónum
króna.
Ásgeir Höskuldsson, fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri, sagði í viðtali
við Dag, að samanborið við fjár-
veitingar til sjúkrahúsa almennt,
væri ekki annað hægt en að vera
ánægður með þessa útkomu. Það
bæri hinsvegar að hafa í huga, að
hér á Akureyri væri tvímælalaust
mesta þörfin fyrir aukið rými.
Ásgeirsagði, að nú væri unnið að
hönnun tengibyggingarinnar, en
hún er forsenda |)ess að þjónustu-
byggingin verði tekin i notkun.
Unnið verður samkvæmt gerðum
samningum við súrefnisstöð, sem á
að ljúka við í sumar, og þjónustu-
byggingu. Stefnt er að því að hálfur
kjallari þeirrar byggingar og öll
önnur hæðin verði tilbúin um mitt
næsta ár, en um svipað leyti þyrfti
hluti tengiálmunnar að vera tilbú-
inn.
Ásgeir sagðist vona, að láns-
heimildin yrði nýtt í sumar. Auk
fjárveitingarinnar núna var til
ónotuð 50 milljóna króna fjárveit-
ing og Akureyrarbær leggur fram
148 milljónir króna, sem er nokkuð
hærri upphæð en sem svarar mót-
framlagi ríkisins.
Beðið eftir Godot
frumsýnt annað
kvöld hjá Leik-
félagi Akureyrar
Leikfélag Akureyrar frumsýnir
annað kvöld síðasta verkið á
þessu leikári, sem er Beðið eftir
Godot eftir Samuel Beckett.
Oddur Björnsson leikstýrir verk-
íu og leikmyndir eru eftir
Magnús Tómasson. Leikendur
eru fimm, þar á meðal Árni
Tryggvason, en hann fer með
stærsta hlutverkið ásamt Bjarna
Steingrímssyni. Höfundur varð
heimsfrægur fyrir þetta verk, sem
er skemmtileg blanda af skopi og
alvöru.
Oddur Björnsson, leikhússtjóri,
hættir störfum hjá L.A. að loknu
þessu starfsári, og hyggst þá hefj-
ast handa við ritstörf á ný.
Gengið á reka
sýnt um helgina
í Freyvangi
Leikfélag Öngunlsstaðahrepps og
U.M.F. Árroðinn sýna leikritið
Gengið á reka á föstudags-, laug-
ardags- og sunnudagskvöld kl.
20.30. Miðasala er í Bókabúð
Jónasar. Þetta eru síðustu sýn-
ingamar í Freyvangi.
Frumsýning á
Skáld-Rósu hjá
Leikfélagi
Blönduóss
Leikfélag Blönduóss frumsýnir
leikritið Skáld-Rósu eftir Birgi
Sigurðsson laugardaginn 19. apríl
klukkan 21 í Félagsheimilinu á
Blönduósi. Verkið verður síðan
sýnt fjórum sinnum á Húnavöku,
sem hefst þriðjudaginn 22. apríl.
Leikstjóri er Ragnheiður Stein-
dórsdóttir og fer hún jafnframt
með titilhlutverkið. Verkið lýsir
hluta úr lífi Vatnsenda-Rósu og
er langt og viðamikið. Það var
upphaflega frúmsýnt hjá Leikfé-
lagi Reykjavíkur og fór Ragn-
heiður þá einnig með hlutverk
Rósu. Með önnur aðalhlutverk
fara Þórhallur Jósefsson, og
Sveinn Kjartansson.