Dagur - 22.05.1980, Qupperneq 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LXIII. árgangur. Akureyri, fimmtudagur 22. maí 1980
36. tölublað
Mikil aukning
á útflutningi
hrefnukjöts
„Þá er beinið komið heim eftir 32ja ára fjarveru," sagði
'Irjggvi Gfslason, skólameistari, þegar hann tók á móti
beini Sigurðar Guðmundssonar fyrrv. skólameistara. Beinið
margumtalaða kom til Akureyrar s.l. þriðjudag ásamt
gjafabréfi örtygs Sigurðssonar listmálara. Það var borið
inn á sknfstofu skólameistara, en þar tóku þeir Árni Frið-
geirsson gjaldkeri og Tryggvi Glslason utan af beininu.
Viðstaddir komu beinsins voru allmargir af kennurum skól-
ans.
Mvndráþ.
Mokafli á skrapinu
en afraksturinn rýr
Hrefnuveiðarnar máttu hefjast
20. maí og aðfararnótt þess dags
héldu þeir bátar sem stunda
þessar veiðar frá Eyjafirði þegar
á miðin. Veður var hins vegar
heldur slæmt, þannig að ekkert
hafði veiðst þegar síðast fréttist
í gær. Veiða má 200 hrefnur við
landið að þessu sinni, sem er
sami kvóti og í fyrra.
Taiverðum erfiðleikum hefur
verið bundið að ljúka við
uppfyllinguna undir svokall-
aða Drottningarbraut sunn-
an við Torfunefsbryggju.
Mjög miklu efni hefur verið
ekið í uppfyllinguna, en mikill
hluti þess hefur horfið í Pollinn,
sem mun nokkuð aðdjúpur á
þessum slóðum. Þá bar það
við á þriðjudag, þegar einn
vörubílanna var að losa á
uppfyllingunni, að pallurinn
lagðist á hliðina, en framhluti
bílsins þrjóskaðist við að fara á
hvolf, með þeim afleiðingum að
bíllinn var allur undinn og snú-
inn þegar yfir lauk. Var hann
talinn að mestu ónýtur til flutn-
inga, að loknum þessum um-
snúningi. Myndina tók h.s. af
hinum „afundna“ vörubíl.
Á Heilsuverndarstöðinni f gær.
Bátarnir sem stunda veiðar frá
Eyjafirði eru Sólrún frá Árskógs-
strönd og Njörður og Sólfaxi frá
Akureyri. Töluvert af hrefnukjöti
fer á innanlandsmarkað, en út-
flutningur á frystum hrefnuafurð-
um til Japans hefur stóraukist á
síðustu árum og er Sambandið lang
stærsti aðilinn, sem annast þennan
útflutning.
Áætlaður útflutningur á þessu
ári eru 250 tonn, í fyrra voru flutt út
tæplega 150 tonn og var útflutn-
ingsverðmætið 130-140 milljónir
króna, 1978 nam útflutningurinn
tæplega 120 tonnum, rösklega 40
tonnum 1977 og aðeins rúmum 7
tonnum 1976. Innanlandsneyslan á
síðasta ári var um 160 tonn, en talið
er að heildarframleiðslan í fyrra
hafi numið um 310 tonnum, að
sögn Benedikts Sveinssonar, full-
trúa hjá sjávarafurðadeild Sam-
bandsins. Auk áðurnefndra út-
flytjenda á vegum sambandsins,
hefur Rækjustöðin á Isafirði gert út
tvo báta og tveir bátar voru gerðir
út frá Brjánslæk í fyrra.
Að sögn Benedikts eru helstu
kostir þess að flytja hrefnuafurð-
imar til Japans þeir, að hægt er að
skjóta stærri dýr, þar sem íslend-
ingar vilja helst aðeins borða kjöt af
litlum dýrum, nýtingin er betri, þar
sem allt kjötið er hirt, og auk þess
rengi, spik o.fl. Þá eru afskipanir
öruggar og greiðslur tryggar, og
hærra verð fæst heldur en á innan-
landsmarkaði.
Gert er ráð fyrir að vertíðin
standi að þessu sinni í um tvo
Nú eru hafnar mótefnamælingar
gegn rauðum hundum í konum á
Akureyri á aldrinum 14-40 ára,
þ.e. sem fæddar eru 1939-1967,
að báðum árum meðtöldum.
Þessari mótefnamælingu var
hrundið af stað fyrir einu ári
síðan og nær til alls landsins.
Tilgangurinn með þessum mót-
efnamælingum er sá, að koma í veg
fyrir fósturskemmdir af völdum
rauðra hunda, en eins og flestum
mun kunnugt, eru yfir 50% líkur á
að fóstur skaðist, ef vanfær kona
fær sjúkdóminn á fyrstu 3-4 mán-
uðum meðgöngu. Þær geta hafa
fengið rauða hunda, án þess að
hafa orðið þess varar og það hefur
Mjög góður grálúðuafli hefur
verið hjá Akureyrartogurunum
frá því í lok apríl, þegar þeir
byrjuðu á skrapi, eins og það
kallast núna, eða á öðrum veið-
um en þorskveiðum. Á þessum
tíma hafa fjórir togarar Útgerð-
einnig sýnt sig, að ekki er hægt að
treysta því, þótt konur álíti sig hafa
fengið sjúkdóminn og þar með
öðlast mótstöðu gegn honum.
Því er ákaflega mikilvægt, að
konur á þessum aldri láti mæla í sér
mótefni gegn rauðum hundum.
Rannsóknin er þeim að kostnaðar-
lausu og þær konur, sem ekki hafa
nægileg verndandi mótefni fá
bólusetningu, einnig þeim að
kostnaðarlausu. Konurnar verða
boðaðar með bréfi, þar sem til-
greindur er sá tími, þegar þær eiga
að mæta í Heilsuverndarstöð Ak-
ureyrar, Hafnarstræti 104 (s.
25831). Gert er ráð fyrir að þessum
mótefnamælingum verði að mestu
lokið í lok júní.
arfélags Akureyringa h.f., Kald-
bakur, Harðbakur, Sléttbakur
og Sólbakur, fengið 1.360 Iestir.
Hafa 3 skipanna nú lokið
tveimur veiðiferðum á skrapinu.
Á þriðjudag var verið að ljúka
við að landa 310 lestum úr Harð-
baki, Kaldbakur beið eftir löndun
með fullfermi eða um 360 lestir, og
þann dag var Sólbakur að koma
inn til Akureyrar með fullfermi um
160 lestir, nema hvað búið var að
landa 60 lestum á Grenivík, þegar
skipið kom til Akureyrar.
Að sögn Vilhelms Þorsteinsson-
ar, framkvæmdastjóra hjá Ú.A. er
grálúðan flökuð í sérstakri flatfisk-
flökunarvél, sem fyrirtækið fékk í
fyrra, fryst og seld þannig til
Sovétríkjanna að mestu leyti.
Þjóðverjar kaupa eitthvað af heil-
frystri grálúðu.
Þrátt fyrir þennan góða afla tog-
aranna, eru sjómennirnir og út-
gerðaraðilarnir ekkert allt of
ánægðir með útkomuna, því afla-
verðmæti grálúðunnar er ekki
nema um helmingur af aflaverð-
mæti þorsks. Kostnaður er hins
vegar heldur meiri, ef eitthvað er.,
Grálúðan hefur einkum veiðst út af
Víkurál.
Nú er lokið mjög mikilli endur-
nýjun á fimmta togara fyrirtækis-
ins, Svalbak. Hann hefur verið
stopp síðan 11. febrúar. M.a. hefur
verið skipt um öll togspil í skipinu,
en slíkt hefur einnig verið gert í
systurskipinu, Sléttbak.
Mynd: h.s.
Þrír Akureyrartogarar voru I höfn sl. þriðjudag.
mánuði.
Akureyri
Mótefnamælingar
Albert heldur
fund í kvöld
Albert Guðmundsson og Bryn-
hildur Jóhannsdóttir komu til
Akureyrar í gær. Hafa þau hjónin
heimsótt vinnustaði á Akureyri
þ.á.m. Slippstöðina, Útgerðarfé-
lagið, Verksmiðjur S.Í.S. o.fl.
Almennur fundur verður hald-
inn í Sjálfstæðishúsinu í kvöld og
hefst kl. 20.30.
Stutt ávörp flytja Albert og
Brynhildur og Indriði G. Þor-
steinsson en fundarstjóri verður
Jón G. Sólnes fv. alþm. Kaffi-
veitingar verða ásamt léttri tónlist
sem Ingimar Eydal leikur af
fingrum fram.
Nýleg var opnuð í Geislagötu
10. skrifstofa stuðningsmanna
Alberts. Skrifstofan er opin alla
daga kl. 14.00-19.00. Jón Arn-
þórsson er framkvæmdastjóri.
Guðlaugur
með fundi
Guðlaugur Þorvaldsson, fram-
bjóðandi til forsetakjörs, var
væntanlegur hingað norður í dag,
fimmtudag, og mun dvelja hér
fram yfir helgi. Guðlaugur mun,
ásamt konu sinni, heimsækja
vinnustaði og hitta menn að máli,
og auk þess efna stuðningsmenn
hans til óformlegra funda, „opins
húss“ og verður fyrsti fundurinn í
Freyvangi annað kvöld, föstudag,
Á laugardag heldur Guðlaugur
til Húsavíkur, en síðdegis á
sunnudag verður svo opið hús í
Sjálfstæðishúsinu á Akureyri,
milli klukkan 14.30-17.00. Síðasti
fundurinn verður svo á Dalvík kl.
14 á annan hvítasunnudag,
mánudag, i Víkurröst í Dalvík, en
Guðlaugur mun einnig fara til
Ólafsfjarðar og víðar.
Pétur Behrens
sýnir í Listhúsinu
Pétur Behrens opnar sýningu í
Listhúsinu laugardaginn 24. mai
kl. 16.00. Sýningin verður opin
virka daga kl. 20-22 og urn helgar
16-22.
Á sýningunni eru um 40 verk,
teikningar, grafik, vatnslita- og
olíumyndir. Þær eru málaðar á
síðastliðnum tveimur árum.