Dagur - 22.05.1980, Blaðsíða 8
DAGUR
Akureyri, fimmtudagur 22. maí 1980
(oronot [qrts
EIRROR -TENGI
SMURKOPPAR
Evita frumsýnd í
Sjálfstæðishúsinu
Föstudaginn 30. maí verður
frumsýnt í Sjálfstæðishúsinu á
Akureyri söng- og dansleikritið
EVITA, sem byggt er á ævisögu
Evu Peron, fyrrum forsetafrú í
Argentínu.
Tónlistin er eftir Andrew Loyd
Webber, úr samnefndri popp-
óperu, en textarnir eru eftir Birgi
Gunnlaugsson og dansar eftir Báru
Magnúsdóttur. Með aðalhlutverk
fara Gyða Kristinsdóttir og
Guðbergur Garðarsson, en auk
þess koma dansarar úr dansflokki
Báru fram í veigamiklum hlut-
verkum. Sögumaður er Birgir
Gunnlaugsson og hljómsveit hans
flytur tónlistina, sem er í útsetningu
Ólafs Gauks. Að uppsetningu
verksins vinna 34 manns.
Eva Peron er og var mjög um-
deild. Að sögn Birgis túlka dansar-
arnir sögu hennar, en sögumaður
iýsir viðhorfum nútímamanna til
hennar.
EVITA verður frumsýnd í Sjálf-
stæðishúsinu klukkan 21 annan
föstudag, eins og áður sagði, og
forsala aðgöngumiða verður 27. og
28. maí. Að lokinni sýningunni
hefst hæfileikakeppni Birgis
Gunnlaugssonar og Dagblaðsins,
þar sem koma fram að minnsta
kosti þrír keppendur héðan að
norðan og sá sem sigrar fer síðan í
úrslitakeppnina í spetember, sem
haldin verður í Reykjavík. Hæfi-
leikafólk verður síðan valið víðs
vegar að af landinu, til að taka þátt
í þeirri keppni. Sá sem ber sigur úr
býtum í úrslitakeppninni á síðan
möguleika á að komast í úrslita-
keppni, sem haldin verður í Bret-
landi á vegum BBC. Góðir vinn-
ingar eru í boði, bæði í undanúr-
slitum og úrslitakeppninni.
Hlutafélag um flugvél
Félagiö Vélflug h.f. Akureyri
hefur hafið starfssemi sína.
Markmið þess og tilgangur er að
örfa flugáhuga meðal almenn-
ings, sameinast um kaup og
rekstur flugvéla og að gera sem
allra flestu fólki kleift að hafa
aðgang að einkaflugvél, án þess
að það þurfi að leggja út í
óheyrilegan stofnkostnað.
Félagið verður rekið sem áhuga-
mannafélag og reynt að halda niðri
útleiguverði flugvéla. Flugvélar fé-
lagsins verða aðeins leigðar hlut-
Flugfrakt
Ný hljómsveit á Akureyri
Stofnuð hefur verið ný hljóm-
sveit á Akureyri, sem ber nafnið
„Flugfrakt". Hljómsveitina
skipa 6 Akureyringar: Sigfús E.
Arnþórsson (hljómborð, söng-
ur), Ingjaldur Arnþórsson
(söngur, gítar), Hreinn Laufdal
(gítar, flauta, söngur), Jón Berg
(trommur), Gunnar Sveinars-
son (bassi, söngur) og Leó
Torfason (gítar).
Fjórir af meðlimum hljóm-
sveitarinnar hafa áður komið
við í ýmsum Akureyrarhljóm-
sveitum. Hljómsveitin leikur
nær eingöngu fjöruga og
hressilega rocktónlist og er hluti
af efnisskránni frumsamið af
meðlimum hennar. Hljómsveit-
in mun taka að sér að leika á
almennum dansleikjum frá 1.
júní.
FLUGFRAKT
höfum. Félagið er öllum opið.
Leigutaki flugvéla þarf ekki að
hafa flugréttindi sjálfur. Félagið
mun aðstoða við útvegun flug-
manna er fljúga án gjaldtöku.
Félagið hefur fest kaup á nýrri
4ra sæta flugvél að gerðinni Piper
Warrior II.
Verð á hverju hlutabréfi á félag-
inu er 100.000,- kr. og er hægt að fá
greiðslukjör við hlutafjárkaup.
Skrifstofuaðstaða félagsins er til
bráðabirgða hjá Flugfélagi Norð-
urlands Akureyrarflugvelli sími
21824.
Þeir sem hafa áhuga á þessu máli
hafi samband við félagið sem allra
fyrst, en ennþá er ekki of seint að
gerast hluthafi.
Þegar sundlaugin er opnuð klukkan 7 á morgnana, bíður iðulega álitlegur hópur
morgunhana eftir því að komast í laugina, heita pottinn og að sjálfsögðu kjafta-
klúbbinn, sem gjarnan fylgir svona samkomum. Þetta er 30-40 manna hópur, sem
iðkar morgunsundið af kappi, og um daginn gerðu þeir sér dagamun og fóru að
loknu sundinu upp í Skíðahótel, þar sem þeir fengu sér morgunkaffi. Myndin er
tekin af hluta hópsins fyrir framan hótelið.
Nú er unnið að þvi að gcra nýjan heitapott við Sundlaug Akureyrar. Nýi potturinn
verður svipaður að stærð og sá gamli, en hitastig vatnsins verður haft heldur
lægra. Áætlaður kostnaður við gerð pottsins er 3,5 milljónir króna og hann verður
væntanlega tilbúinn um miðjan júní. Þá er nú unnið að þvi að skipta um alla
glugga í sundlaugarbyggingunni, en þeir gömlu voru orðnir fúnir og illa farnir. Þá
má geta þess, að næturheimsóknir i laugina eru nú að mestu aflagðar. Fylgst
hefur verið með lauginni á nóttunni, Haukur Berg, sundlaugarstjóri, hefur haft
samband við nokkra unglinga sem þarna komu nærri og hafa þeir lofað bót og
betrun, en nokkrír hafa verið settir i sundlaugarbann. Myndin er af framkvæmd-
um við nýja pottinn. Mynd: H. S.
Fjárhagsáætlun Sauðárkróks afgreidd
Engar malbikunar-
framkvæmdir í ár
SAMKOMAI
IÐNSKÓLANUM
Á afmælisdegi Jóns Sigurgeirssonar
Þegar Jón Sigurgeirsson lét af
meira en aldarfjórðungsstarfi
sem skólastjóri Iðnskólans á
Akureyri, bundust öll starfandi
iðnaðarmannafélög, ýmsir iðn-
aðarmenn og iðnstofnanir í
bænum samtökum um að sýna
honum þakklætis- og virðingar-
vott.
Þetta ber ljóst vitni um hvers
virði Iðnskólinn og stjórnendur
hans eru í huga iðnaðarmanna og
þeirra sem iðnaði eru tengdir.
Frá upphafi hefur Iðnskólinn
reynst farsæll, og lyftistöng Akur-
eyri og norðlenskri byggð í fram-
kvæmda- og atvinnumálum, þó
hann hafi ekki hlotið verðskuldað-
an sess og fyrirgreiðslu í skólakerfi
landsins.
Þann 24. maí næstkomandi, sem
er afmælisdagur Jóns Sigurgeirs-
sonar, verður efnt til samkomu í
Iðnskólanum kl. 2 e.h.
Þar verður meðal annars skólan-
um afhent til eignar og varðveislu
málverk af Jóni sem Sigurður Sig-
urðsson listmálari hefur gert, ræður
haldnar og tónlist flutt af Tónlist-
arskólanum.
Jón Sigurgeirsson.
Fyrir skömmu var fjárhagsáætl-
un Sauðárkróks endanlega
samþykkt við aðra umræðu í
bæjarstjórn. Tekjuliðir áætlun-
arinnar eru að upphæð 853,3
milljónir eftir að ákveðið var að
nota heimild í nýju tekjustofna-
Iögunum til að leggja á 12,1% í
stað 11% á síðasta ári. Til sam-
anburðar má geta þess að á síð-
asta ári voru heildartekjur bæj-
arsjóðs 563,8 milljónir og 60
milljónum hærri en áætlun árs-
ins 1979, sem var 503 milljónir.
Tekjuáætlun hækkar því um
70% milli ára.
í rekstri eru almannatrygging-
ar og félagshjálp langstærsti liður-
inn, með 140 milljónir. Tið
fræðslumála renna 108 milljónir, til
stjórnunar bæjarins 107,8 milljónir,
vextir og bankakostnaður eru 78
milljónir, til æskulýðs- og íþrótta-
mála renna 38 milljónir og til
hreinlætismála (sorphreinsun) 40,2
milljónir. Að frádregnum rekstrar-
liðum eru eftir samkvæmt fjár-
hagsáætluninni 277,9 milljónir
króna til fjárfestingar.
Helstu fjárfestingarliðirnir eru:
(framlög á móti fjárveitingum rík-
is): Til fjölbrautarskólans 56,7
milljónir (frá ríki 95 milljónir), til
gagnfræðaskólans 35,5 milljónir
(frá ríki 35,5), til leikskóla 21
milljón (frá ríki 19 milljónir), til
íþróttahúss 30 milljónir (frá ríki 5
milljónir), til byggingar nýs félags-
heimilis 15 milljónir, til byggingar
dvalarheimilis aldraðra 10 milljón-
ir, til Safnahúss Skagfirðinga 3
milljónir, til hafnarinnar 3,3 mill-
jónir, til áhaldahúss 7,3 milljónir,
til Steinullarfélags Skagfirðinga h/f
og Iðnþróunarfélags Skagafjarðar
eru ætlaðar 5,5 milljónir samtals.
Til gatna og holræsagerðar í nýjum
hverfum, að frádregnum aðal-
gatnagerðargjöldum, er áætluð 6,1
milljón, til grjótvarnar vegna land-
brots 17 milljónir, auk ríkisfram-
lags sem er 6,5 milljónir.
Tillaga fulltrúa Framsóknar-
flokksins um malbikunarfram-
kvæmdir fyrir 120 milljónir króna
var felld með 5 atkvæðum gegn 3.
Því verða engar framkvæmdir með
bundnu slitlagi hjá Sauðarkróksbæ
í ár. Hins vegar mun Vegagerð rík-
isins, samkvæmt upplýsingum frá
umdæmisverkfræðingi, undir-
byggja og leggja varanlegt slitlag á
flugvallarveg frá Hegrabraut að
Sauðárkróksflugvelli.
Nú er verið að skipuleggja nýtt
íbúðarhúsahverfi á túnunum
sunnan sjúkrahússins. Stefnt er að
því að þar verði hægt að úthluta 20
einbýlishúsalóðum á komandi
sumri, en öllum einbýlishúsalóð-
um, sem tilbúnar eru, hefur nú
verið úthlutað.
Kolbeinn endurkjörinn
Aðalfundur Félags verslunar og
skrifstofufóiks á Akureyri, var
haldinn 3. maí s.l. formaður
Kolbeinn Sigurbjörnsson var
einróma endurkjörinn.
Aðrir í stjórn eru Jóna Stein-
bergsdóttir, Þórður Rist, Hörður
Steinbergsson, Gunnar Hallsson,
Ólafur Aðalsteinsson, Ása Helga-
dóttir og Kristín Jóna Halldórs-
dóttir.
Formaður rakti félagsmálin al-
mennt, og það sem bar hæst var er
félagsdómur kvað upp úrskurð i
máli Haldar s/f gegn F.V.S.A.
varðandi launagreiðslur er taka til
verslunarmanna og fór að lokum
að Höldur s/f var dæmdur til að
greiða skv. almenna verslunar-
samningnum og söluturna-
samningur felldur úr gildi á félags-
svæðinu.
I tilefni 50 ára afmælis F.V.S.A.
er verður 2. nóv. n.k. afhenti félagið
peningagjafir til endurhæfingar-
stöðvar Sjálfsbjargar (1 milljón) til
S.Á.Á. (l'/2 milljón) og til Lista-
skála Alþýðu (1 milljón).
Starfsemi félagsins hefur verið
mjög góð, efnt var til starfsþjálfun-
amámskeiðs, kennari Konráð
Adolfsson, og var það vel sótt.