Dagur - 29.05.1980, Page 1

Dagur - 29.05.1980, Page 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI DAGTJR LXIII. árgangur. Akureyri, fimmtudagur 29. maí 1980 37. töhiblað „Munum svo sannarlega nota þennan vinning“ — segir vinningshafinn í ferðagetraun Dags og Útsýnar, Jóhanna Sigrún Þor- steinsdóttir, sem varð hálfri milljón ríkari á laugardaginn, þegar dregið var í myndagátunni Jóhanna Sigrún Þorstcinsdótlir tekur hér við staðfesting- eiginmaðurinn, Bjöm Jósef Arnviðarson, og lengst til hægri arskjalinu úr hendi Aðalsteins Jósepssonar, bóksala og á myndinni er Jóhann Karl Sigurðsson, auglýsingastjóri umboðsmanns Útsýnar á Akureyri. Að baki henni stendur Dags. Mynd: h.s. Rúta valt í Vaðlaheiði Helgarvinnubann — Að öllu forfallalausu munum við svo sannarlega nota þennan vinning, sagði Jóhanna Sigrún Þorsteinsdóttir, Furulundi 4g, Akureyri, sem hlaut ferðavinn- ing með ÚTSÝN að upphæð kr. 500 þúsund fyrir allar lausnir réttar í myndagátu DAGS, en dregið var úr réttum lausnum s.l. laugardag. Jóhanna er kennari við Barna- skóla Akureyrar. Hún sagði að þessi vinningur kæmi sér svo sann- arlega vel. Þau hjónin væru að byggja og auk þess hefði hún aldrei farið í sólarlandaferð og raunar aldrei langað til sólarlanda fyrr en núna í vetur, enda ekki furða, þar sem Norðlendingar fengu nær ekkert sumar í fyrra. Helst sagðist hún vilja fara til Júgóslavíu eða Ítalíu. — Af hverju tókst þú þátt i þessari myndagetraun? — Ég er áskrifandi að Degi og hef ævinlega haft gaman af að ráða krossgátur og hef reynt við allar myndagátur, sem ég hef séð. Það var þessi áhugi minn, sem réð því að ég leysti myndagáturnar í Degi, en ekki endilega vinningsvonin. — Hvernig gekk þér að leysa gáturnar? — Yfirleitt fannst mér þær mjög léttar. Ef ég var í einhverjum vafa, lagði ég þær frá mér og reyndi aftur seinna. Það gekk alltaf nema í eitt skipti, en þá leitaði ég aðstoðar mannsins míns, sagði Jóhanna, en hún er gift Birni Jósef Arnvið- arsyni, lögfræðingi. í gjafabréfi ferðaskrifstofunnar Útsýnar, sem undirritað er af Ing- ólfi Guðbrandssyni, forstjóra, segir að vinningurinn sé Útsýnarferð til sólarlanda að eigin vali, að verð- mæti kr. 500.000,-. Vinningurinn sé bundinn þátttöku í leiguflugsferð- um Útsýnar og gildi á árinu 1980 í samráði við deildarstjóra hóp- ferðadeildar. Dagur óskar Jóhönnu til ham- ingju með vinninginn og þakkar jafnframt þeim mikla fjölda les- enda Dags, sem þátt tóku í get- raununum og sendu inn lausnir. Er vonandi að allir hafi hafi ein- hverja ánægju af þátttökunni. Á laugardag var einnig dregið úr aukavinningumí lO.myndagátunni. Verðlaunin voru áskrift að Degi í eitt ár og þeir sem þau hlutu voru Kristján Bergsson, Einholti 4a, Ak- ureyri, og Ragnheiður Torfadóttir, Byggðavegi 136, einnig á Akureyri. Lausnir bárust hins vegar að hvaðanæva af landinu. Höfundur myndagátanna var Oddur Ævar Guðmundsson, kennari á Akureyri. Um kl. 17.30 á annan í hvíta- sunnu valt hópferðabíll, sem í voru 21 félagi í Ferðafélagi Ak- ureyrar, á Vaðlaheiðarvegi skammt norðan við Geldingsár- brú. Annað framhjól bifreiðarinnar losnaði af, með þeim afleiðingum, að hún fór eina veltu á veginum. Sem betur fór hafnaði bíllinn ofan vegar, en talsvert bratt er neðan vegarins. Sjúkrabíll frá Húsavík bar þarna að rétt eftir slysið, en hann var á leið austur. Síðan komu tveir sjúkrabílar frá Akureyri og einnig lögreglan á Akureyri. Alls voru 14 farþeganna fluttir á sjúkrahúsið á Akureyri til skoðunar og meðferðar. Þeir fengu allir að fara heim að því loknu, nema þrír en þeir fengu að fara heim daginn eftir. Enginn slasaðist mjög alvar- lega, en margir mörðust og togn- uðu í baki. Ein stúlka fékk nokkuð stórt sár á höfuð, sem þurfti að sauma, og einn fór úr axlarliðnum. Þá valt fólksbíll á föstudag á veginum milli Grenivíkur og Sval- barðsstrandar, í Víkurhólum. Þrír voru í bílnum og slösuðust tveir, þar af einn alvarlega og var hann fluttur suður á Borgarspítalann. Að undanförnu hefur Verka- lýðsfélagið Eining látið fara fram könnun á því á stærri vinnustöðum á félagssvæðinu, hver hugur verkafólks væri til þess, að sett yrði á helgarvinnu- bann í sumar, mánuðina júní, júlí og ágúst. Niðurstöður könnunarinnar urðu þær, að í fiskiðnaði, en þar hefur yfirvinna verið langmest að undanförnu, reyndist yfirgnæfandi meirihluti verkafólksins fylgjandi yfirvinnubanni og á mörgum vinnustöðum allt starfsfólkið. Á öðrum vinnustöðum en í fiskiðn- aðinum reyndust skoðanir mun skiptari og sumsstaðar flestir eða allir mótfallnir helgarvinnubanni. Á fundi trúnaðarmannaráðs Einingar, sem haldinn var 19. þ.m. var svo í framhaldi af könnun þessari ákveðið að setja á helgar- vinnubann í fiskvinnslu mánuðina júní, júli og ágúst, en samkvæmt því skal ekki unnið í fiskvinnslunni á laugardögum né sunnudögum þessa mánuði. Óákveðið er enn hvað verður á öðrum vinnustöðum. Hver skyldi nú hafa hlotið hálfu niilijónina? Það voru Katrín Brynja Hcrmannsdóttir, Þóra Birgisdóttir og Aðalsteinn Arnarson, scm drógu út vinningana. Mynd á.þ. Sykursýkis- könnun lýkur á mánudag Nú um helgina lýkur sykursýkis- könnuninni á vegum Samtaka sykursjúkra á Akureyri og er síð- asti skiladagur bréfanna með upplýsingum um niðurstöður þvagsykursathugunarinnar á mánudag, 2. júní. Þeim má skila í apótekin á Ak- ureyri og Læknamiðstöðina. Nauðsynlegt er að allir skili nið- urstöðunum, hver svo sem niður- staða litaprufunnar hefur orðið, Þeir sem ekki hafa fengið send þessi gögn, eiga þess enn kost að vera með í þessari viðamiklu könnun, með því að fá þau í Læknamiðstöðinni. Kappreiðar á laugardag Á laugardag kl. 14 hefjast kapp- reiðar á vegum hestamannafé- lagsins Léttis á gamla skeiðvell- inum á Eyjafjarðarárbökkum. Keppt verður í ýmsum greinum og fari svo, að íslandsmet verði slegin, verða veitt peningaverð- laun að upphæð 200 þúsund krónur. Fermingarbarna- mót í Hrísey Fermingarbarnamót Eyjafjarðar- prófastsdæmis verður í Hrísey hinn 4. júní. Farið verður frá Ak- ureyrarkirkju kl. 8 að morgni. Þátttakendur taki með sér nesti til dagsins og klæðist til útiveru og leikja. Væntanleg til mótsins eru fermingarbörn úr öllum presta- köllum prófastsdæmisins. Ferða- og mótskostnaður þátttakenda frá Akureyri verður ca 3.500,- kr. Hjálpar- markaður Kvenfélagið Hjálpin gengst fyrir markaði í Sólgarði laugardaginn 31. maí frá klukkan 14-16. Á markaðinum verða seld blóm, brauð, föt og ýmislegt fleira. Þá verður fjölbreytt dýrasýning og hestaleiga, auk úrvals veitinga. MT

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.