Dagur - 03.06.1980, Side 5
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsimar: 24166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreióslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaöamaður: ÁSKELL ÞÖRISSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Styrk stjórn,
dugnaður
og félagsþroski
Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga var
haldinn á Akureyri 30. og 31. maí s.l.
Hagur félagsins, sem hefur innan
sinna vébanda milli 6 og 7 þúsund
félagsmenn, var með miklum ágætum
og framkvæmdir á síðasta ári voru
meiri en nokkru sinni fyrr í sögu fé-
lagsins. f ræðu sem Hjörtur E. Þórar-
insson, stjórnarformaður kaupfélags-
ins, hélt á aðalfundinum, sagði hann
að góðan hag félagsins væri fyrst og
fremst að þakka styrkri fram-
kvæmdastjórn, dugnaði starfsmanna
og miklum félagsþroska hins al-
menna félagsmanns.
Andstæðingar samvinnuhreyfing-
arinnar og kaupfélaganna hafa mjög
haft á orði undanfarið, að félagsleg
deyfð einkenni hreyfinguna og fá-
mennisstjórn sæti þar ein að völdum.
Þetta hafa félagsmenn í kaupfélagi
Eyfirðinga afsannað rækilega að
undanförnu. Aðalfundurlnn var mjög
vel sóttur og þar tóku 225 kjörnir
fulltrúar samvlnnumanna við Eyja-
fjörð mlkinn og almennan þátt í um-
ræðum um starfsemi félagsins og
markmið og stefnumörkun sam-
vinnuhreyfingarinnar. Nýiega er lokið
aðalfundi Mjólkursamlags kaupfé-
lagsins, þar sem saman voru komnir
150 bændur við Eyjafjörð, og síðast
en ekki síst ber að nefna mikla og
góða þátttöku almennra félagsmanna
á deildarfundum KEA, þar sem mörg
hundruð félagsmenn tóku þátt í um-
ræðum um stefnumótun félagsins.
Þá má geta þess, að á aðalfundi
KEA var samþykkt ályktun, þar sem
hvatt var til þess, að endurskoðun á
markmiðum Samvinnuhreyfingarinn-
ar, sem nú er hafin, fari fram á sem
breiðustum grunni, og verði stofnaðir
umræðuhópar meðal félagsmanna
samvinnuhreyfingarinnar um allt
iand. Með slíkri skipan er reynt að ná
til sem allra flestra almennra félags-
menna, og glögglega má sjá, að það
er út í hött að tala um félagslega deyfð
í samvinnuhreyfingunni.
Hvað rðar áróðurinn um fámennis-
stjórn skal þess getið, að miklu skiptir
að samvinnuhreyfingin og kaupfélög-
in hafa styrka framkvæmdastjórn,
sem hefur yfirsýn yfir sem flesta þætti
starfsins. Að öðrum kosti er sú hætta
fyrir hendi, að áframhaldandi sókn
samvinnumanna við uppbyggingu at-
vinnulífs í landinu verði tilviljana-
kennd og fálmandi, en það er það sem
andstæðingar samvinnuhugsjónar-
innar vilja helst. Samstarfsfyrirtæki
Sambandsins og kaupfélaganna eru
greinar á meiði samvinnustarfsins og
gilda því sömu meginatriði um sam-
starf þeirra við önnur samvinnufyrir-
tæki og deildir Sambandsins.
Sterkframkvæmdastjórn, dugnaður
starfsmanna og mikill félagsþroski
félagsmanna eru meginstyrkur sam-
vinnustarfsins.
RÆTT VIÐ VAL ARNÞÓRSSON, KAUPFÉLAGSSTJÓRA, UM MÁLEFNI KAUPFÉLAGS EYFIRÐINGA
— Þegar á heildina er litið var
afkoma Kaupfélags Eyfirðinga
viðunandi og betri heldur en við
höfum átt að venjast um all
langt skeið. Afkoma verslunar-
innar var betri en verið hefur og
áberandi að afkoman lagaðist
eftir að vissar leiðréttingar
fengust vorið 1979. Þetta gildir
einkum um verslunina á Akur-
eyri, í aðalþéttbýliskjarnanum
við Eyjafjörðinn, en hins vegar
var áfram hallarekstur á dreif-
býlisverslun, þannig að útkoma
verslunarinnar í útibúunum við
fjörðinn var ekki viðunandi
og það þarf að gera átak til
að leiðrétta rekstrargrundvöll
þeirra, sagði Valur Arnþórsson,
kaupfélagsstjóri, í viðtali við
Dag í tilefni nýlokins aðalfund-
arKEA.
— En hvernig var afkoman í
öðrum greinum?
— Afkoman í sjávarútvegs-
greinum, þ.e. vinnslu og sölu
sjávarafurða, var yfirleitt mjög góð.
Grundvöllur rekstursins var ágætur
fram á síðari hluta ársins og við
höfum náð mjög góðum tökum á
rekstri okkar fiskvinnslufyrirtækja.
Nýting á hráefni er mjög góð og
reksturinn yfirleitt hagstæður. Það
var hins vegar áberandi, að þegar
kom fram á síðasta hluta árs-
ins, hafði rekstursgrundvöllurinn
skekkst svo mikið, að útlitið í bili er
miklu verra, heldur en það var að
meðaltali á síðasta ári. Maður
horfir með ugg til framtíðarinnar,
þegar í einn stað er þrengri staða á
erlendum mörkuðum, í annan stað
meiri og minni stöðvanir á hrá-
efnisöflun vegna fiskveiðitakmark-
ana, i þriðja lagi vaxtahækkun og í
fjórða lagi veruleg launahækkun.
Kollsteypa í
efnahagsmálum?
Nú horfir maður fram á það, að
það verður mjög mikil kollsteypa í
efnahagsmálunum, sem hlýtur að
leiða til þess, að rekstursgrundvöll
fiskvinnslufyrirtækjanna verður að
leiðrétta og þá væntanlega með
gengisbreytingu, því annað virðist
tæpast tiltækt, þar sem útflutnings-
iðnaður almennt er 55stoppa. Síð-
an, þegar farið verður að flytja inn
neysluvörur erlendis frá á lækkuðu
gengi, spennist allt verðlag upp
aftur og allir verða í sama farinu,
enginn ríkari — allir fátækari, og
rekstur fyrirtækjanna og þar með
lífsafkoma fólksins aftur komin í
hættu.
Iðnaðurinn
gekk misvel
Iðnaðarreksturinn gekk misjafn-
lega. Sumt gekk vel og þar vil ég
nefna Kjötiðnaðarstöðina og
Efnaverksmiðjuna Sjöfn og Kaffi-
brennslu Akureyrar, sem eru meðal
samstarfsfyrirtækja okkar og Sam-
bandsins.
Á hinn bóginn má nefna Smjör-
líkisgerðina, sem var með veruleg-
an hallarekstur, einkum vegna
þess, að yfirvöldum hefur ekki
þóknast að ákveða verðlag þannig
á smjörlíki, að dugi fyrir reksturs-
kostnaði. Rekstur Brauðgerðar
KEA gekk hins vegar mjög vel,
þannig að í heild gekk reksturinn
ákaflega misjafnlega.
Varðandi landbúnaðinn má geta
þess, að það er alkunnugt að miklir
erfiðleikar eru í sambandi við
sölumál landbúnaðarafurða. Óða-
verðbólgan innanlands hefur graf-
ið undan útflutningshæfni þeirra,
þannig að þær skila of litlu verði í
útflutningi. Þess vegna er nú stefnt
að samdrætti og þegar á síðasta ári
varð verulegur samdráttur hér á
svæðinu í framleiðslu landbún-
aðarvara. Sá samdráttur stafaði að
vísu mest af mjög óhagstæðu tíðar-
fari, en núna er hins vegar af ráðn-
um hug stefnt að samdrætti í fram-
leiðslunni. Mjólkurframleiðslan
minnkaði um 3,58% á síðasta ári,
miðað við 1978, og kjötframleiðsl-
an minnkaði einnig töluvert mikið.
Það var hins vegar út af fyrir sig bót
í máli, að miðað við allar aðstæður
komu landbúnaðarafurðareikning-
ar kaupfélagsins vel út, þannig að
kaupfélagið gat borgað framleið-
endum hagstætt verð.
Meira f járfest en
nokkru sinni fyrr
— Etvað með fjárfestingar á síð-
asta ári?
— Það var meira fjárfest á síð-
asta ári en nokkru sinni fyrr á einu
ári. Hæst bar áframhaldandi fram-
Valur Amþórsson, kaupfélagsstjóri, flytur skýrslu sfna á aðalfundi KEA. Mynd: h.s.
Höfðahverfi og þau svæði sem þar
eiga sín viðskipti. Það er verið að
hanna viðbyggingu við aðalversl-
unarhús félagsins á Dalvík og á
hönnunarstigi er viðbygging við
frystihúsið í Hrísey, þar sem að-
staða verður fyrir starfsfólkið.
Háðir ytri aðstæðum
— Það er greinilega af nógu að
taka, en hvernig er kaupfélagið í
stakk búið til að takast á við þá
erfiðleika, sem virðast blasa við í
þjóðfélaginu?
— Það er alveg ljóst að við erum
afskaplega háðir alls konar ytri að-
stæðum, þannig að þó að jafnan sé
mjög vel unnið í kaupfélaginu og
mikill kraftur í rekstri þess, getur
því miður brugðið til hins verra í
rekstrinum, vegna þess hvað við
erum háðir þessum ytri aðstæðum.
Ef þróun efnahagsmála í landinu
„Eyfirðingar haldi
áfram að efla sitt
eigið fyrirtæki“
um stjómvalda í landinu. Verði ytri
aðstæður hagstæðar, kvíði ég ekki
um rekstur félagsins.
Efla félagið til að taka
á móti skakkaföllum
— En er ekki Kaupfélag Ey-
firðinga á margan hátt betur í stakk
búið að takast á við erfiðleika en
ýmis önnur fyrirtæki í landinu, t.d.
einkareksturinn?
— Jú, það má segja það, vegna
þess, að rekstur kaupfélagsins er
ákaflega fjölþættur og spannar
raunar allar höfuðgreinar atvinnu-
lífsins. Þannig að þó að bjáti á á
einu sviði er alltaf von um að annað
rekstrarsvið gangi betur og geti
hjálpað þeim starfsgreinum, sem
eiga við tímabundna erfiðleika að
stríða. Og það er ekki vafi, að það
er gífurlega þýðingarmikið fyrir
Eyjafjarðarbyggðir að hafa þetta
stóra og sterka fyrirtæki, en það er
ekki síður þýðingarmikið að fé-
lagsfólkið og íbúar svæðisins yfir-
leitt sýni félaginu traust og skilning
og viðskiptatryggð. Það er ákaflega
mikilvægt, að félagið njóti sem
mestra viðskipta alls þorra íbúa
svæðisins, en með því móti eflir það
félagið til þess að taka á móti
skakkaföllum og kemur í veg fyrir
að leggja þurfi niður atvinnugrein-
ar, sem það hefur með höndum.
Félagið er langstærsti launagreið-
andi á Eyjafjarðarsvæðinu og
reyndar einn allra stærsti launa-
greiðandi á landinu.
Engin félagsdeyfð
kvæmdir við nýju Mjólkurstöðina á
Akureyri, en til hennar var varið
1.058,4 milljónum króna. Starf-
semin hefur nú öll verið flutt í nýju
Mjólkurstöðina, en hún verður
vígð formlega 19. júní. Næst
stærsta fjárfestingin var mikil
endurbygging frystihússins á Dal-
vík, en að öðru leyti dreifðust fjár-
festingarnar á mjög mörg við-
fangsefni á Akureyri, Dalvík, í
Hrísey, Grímsey og Ólafsfirði.
Hagræðing í
smásöluverslunum
— Hvað er mest aðkallandi í
starfsemi kaupfélagsins á þessu og
næstu árum?
— Núna við þessi miklu tíma-
mót, þegar við höfum lokið fram-
kvæmdum við nýju Mjólkurstöð-
ina, sem er langstærsta fjárfest-
ingarátak sem gert hefur verið frá
byrjun í sögu þessa félags og þegar
við um leið erum að byrja nýjan
áratug, þá horfum við gjarnan
lengra fram á veginn, heldur en við
gerum við venjuleg reikningsskila-
tímamót. Það sem blasir sérstak-
lega við hjá okkur á þessum áratug,
er að taka til við hagræðingu í
smásöluversluninni, sem hefur
orðið all mikið útundan hjá okkur.
Stærsta verkefnið verður það, að
koma upp stórmarkaði í eða við
miðbæ Ákureyrar, sem leysi þá af
hólmi litlu búðirnar, sem eru of
margar og of dýrar í rekstri.
Keppikefli okkar verður að sjálf-
sögðu það, eins og jafnan áður, að
reyna að skapa okkar félagsmönn-
um sem allra hagstæðast vöruverð,
en um leið góða þjónustu og góðar
vörur.
Stækkun Hótels KEA
Fyrir utan þetta blasir við, að við
munum núna mjög fljótlega halda
áfram endurbótum á Sláturhúsinu
á Akureyri og hefjast handa við
stækkun þess, og um leið stækkun
Kjötiðnaðarstöðvarinnar. Þar fyrir
utan blasir við hjá okkur að stækka
Hótel KEA, þannig að það verði
fært um að gegna sínu hlutverki í
vaxandi byggð og með vaxandi
umferð ferðamanna. I dag eru 28
herbergi á hótelinu, en áætlanir
gera ráð fyrir að það verði byggt
upp í 72ja herbergja hótel. Sam-
komusalurinn rúmar núna tæplega
200 manns, en þar á að verða 350-
400 manna samkomusalur.
Þjónustumiðstöð
á Óseyri
Fyrirhugað er að hefja undir-
búningsframkvæmdir við stækkun
Sláturhússins og Kjötiðnaðar-
stöðvarinnar á þessu ári og einnig
er áformað að taka fyrir fyrsta áf-
anga í stækkun hótelsins á næsta
vetri. Fyrir utan þetta vinnur fé-
lagið að því að byggja hverfaversl-
un í Hlíðahverfi á Ákureyrí, byggja
húsnæði fyrir Véladeild félagsins á
Óseyri, í samvinnu við Búnaðar-
samband Eyjafjarðar. Þar á að
koma þjónustumiðstöð fyrir
bændur í héraðinu í tengslum við
vélar og viðgerðir, á þeim og þar
verður öll ráðunautaþjónusta
Búnaðarsambandsins til húsa.
Unnið er að því að skapa Brauð-
gerð félagsins nýtt húsnæði, verið
er að hanna nýja þjónustumiðstöð
fyrir félagsfólkið í Grenivík og í
verður þannig að mjög kreppir að
útflutningsatvinnuvegunum, þá
skríður rekstursgrundvöllurinn
undan fótum fiskvinnslufyrir-
tækjanna, sem eru mikilvæg í okk-
ar rekstri. Ef landbú.naðurinn
lendir í umtalsverðum erfiðleikum,
þá hefur það bein og óbein áhrif á
allan viðgang félagsins, vegna þess
að bændur 'með sína framleiðslu
eru ákaflega þýðingarmikill kjarni í
starfsemi kaupfélagsins. Einnig er
ljóst að afkoma almennings hefur
bein áhrif á t.d. verslunarrekstur-
inn, þannig að við erum í heildina
tekið mjög háðir ytri aðstæðum,
einkum þróun efnahagsmála, og
sérstaklega ýmiss konar ákvörðun-
— Hvað vilt þú segja um þá
gagnrýni sem samvinnuhreyfingin
og kaupfélögin hafa orðið fyrir að
undanfömu ?
— Það var ákaflega kærkomið
og athyglisvert að það skuli hafa
komið svo glögglega í ljós á aðal-
fundinum, að gagnrýnin um al-
menna félagsdeyfð og fámennis-
stjóm á ekki við rök að styðjast. 225
fulltrúar af 235, sem rétt áttu til
fundarsetu, mættu á fundinn auk
allmargra annarra félagsmanna og
starfsmanna. Þátttaka í fundar-
störfum og umræðum var mikil,
afar góður andi meðal fulltrúa og
mikill áhugi á að taka þátt í
stefnumótun félagsins og efla hag
þess og samvinnustarfsins.
Þegar við héldum aðalfund
(Framhald á bls. 7).
,1 HEILDINA VAR AFKOMA KAUPFÉLAGSINS VIÐUNANDI OG BETRI EN VIÐ HÖFUM ÁTT AÐ VENJAST UM LANGT SKEIÐ
Nýtt
Evrópumet
Arthur Bogason bætti gamla metið í réttstöðulyftu
Norðurhjaratröllið Arthur
Bogason gerir það ekki
endasleppt í lyftingunum. Á
íslandsmótinu i kraftlyfting-
um, sem fram fór um helgina,
setti hann nýtt Evrópumet í
réttstöðulyftu, flokki 110 kg
og yfir, þegar hann lyfti 340
kg. Arthur háði mikið einvígi
við Jón Pál Sigmundsson úr
KR, í þessum flokki. Þegar
kom að réttstöðulyftunni, var
annað hvort fyrir Arthur að
tapa gullverðlaunum eða
setja nýtt Evrópumet á
stöngina, því Jón Páll stóð
betur að vígi eftir hné-
beygjuna og bekkpressuna.
Aflið brást ekki Arthuri og
hann lyfti örugglega 340 kg
og hlaut gullverðlaun í sinum
flokki, setti glæsilegt
Evrópumet.
I 67.5 kg flokki varð Kári
Elísson Islandsmeistari en hann
lyfti samtals 542.5 kg sem er ís-
landsmet. Það var eins hjá hon-
um, hann varð að sigra Daníel
Ólsen með nokkrum mun í
réttstöðulyftunni en hann
ætlaði að tryggja sér gullverð-
launin, og eins og hjá Arthuri
brást ekki aflið og upp fóru
lóðin.
Kristján M. Falsson háði líka
mikið envígi við Ólaf Sigur-
geirsson formann lyftingar-
sambandsins í 90 kg flokki. Eins
og hjá hinum Akureyringunum
þurfti Kristján að sigra Ölaf
með nokkrum mun í réttstöðu-
lyftunni þar eð Ólafur hafði
unnið bæði hnébeygjuna og
bekkpressuna með nokkrum
Ófært
til Eski-
fjarðar
Þór átti að fara til
Eskifjarðar og keppa
við Austra á laugar-
daginn. Þórsarar fóru
með flugvél austur en
flugu yfir firðina í tvo
tíma en hvergi var
hægt að lenda, þannig
að þeir komust ekki til
leiks. Frá því var skýrt
í fréttum útvarps og
sjónvarps að leikurinn
hefði verið flautaður á
og dæmdur Þór tap-
aður, en það er vit-
leysa því þeir hafa
skeyti undir höndum
frá mótanefnd KSÍ
þar sem segir að
leiknum sé frestað um
óákveðinn tíma.
mun. Kristján er hins vegar
harður og vanur keppnismaður
og lyfti 250 kg í réttstöðulyftu en
Ólafur aðeins 215 og Kristján
sigraði í samanlögðu. Jóhannes
Hjálmarsson varð þriðji í 100 kg
flokki og sonur hans, Halldór,
annar í 110 kg flokki.
Heimskautabangsinn, Vík-
Á föstudagskvöldið var fyrsti
leikurinn i íslandsmótinu í
knattspymu, háður á Akur-
eyri. Þar áttust við KA og
Þróttur frá Neskaupstað.
Leikurinn fór fram á gras-
vellinum hjá Menntaskólan-
um, en sá völlur er æfinga-
völlur KA. Þegar leikurinn
fór fram var nokkur norðan
gola, sólarlítið og frekar kalt.
KA sigraði nokkuð auðveld-
lega í leiknum, en þeir gerðu
fjögur mörk.
KA spilaði fyrri hálfleik
undan golunni, en þrátt fyrir
það náðu þeir ekki almennilega
saman, og Þróttarar sóttu fyrstu
mínúturnar. Á 7. mín. fengu
Þróttarar homspyrnu, og
nokkrum mín. síðar bjargaði
Steini, markmaður hjá KA,
með mjög góðu úthlaupi. Fyrsta
mark leiksins kom á 15. mín. Þá
lék Elmar alveg upp að enda-
mörkum, gaf vel fyrir og
Gunnar Gíslason kastaði sér
fram og skallaði boltann í netið
af miklu harðfylgi. Nú fór
nokkuð líf að færast í sóknina
hjá KA, og sóttu þeir stanslaust,
en skutu annað hvort framhjá
eða yfir.
Þrisvar sinnum á þessum
tíma skutu KA menn í hliðar-
netin. Markamínútan margum-
talaða, eða 43, brási ekki
Donna, en hann skaut á markið
úr góðu færi, en markmaður
ingur Traustason, keppti í
flokki með Arthuri og félögum
og varð í þriðja sæti.
Gullsmiðurinn Flosi Jónsson
varð annar í 75 kg flokki rétt á
eftir Baldri Borgþórssyni KR.
Akureyringarnir urðu aðrir í
stigakeppni félaga, rétt á eftir
KR.
Þróttar náði aðeins að hafa
hendur á boltanum, en missti
hann í netið. Þannig var staðan í
hálfleik, tvö mörk gegn engu.
KA byrjaði síðari hálfleikinn
af miklum krafti, og strax á
fyrstu mín. fengu þeir tvær
homspyrnur.
Á 2. mín. sótti Elmar upp
hægri kantinn og skaut á mark-
ið rétt við endamarklínuna, og
boltinn lenti aftan við mark-
manninn sem hlaupið hafði út,
og í hornið fjær.
Næstu mín. jafnaðist leikur-
inn nokkuð, en Þrótturum tókst
aldrei að skapa sér umtalsverð
marktækifæri. Á 40. mín. var
dæmd hendi á markmann
Þróttar rétt við vítarteigshornið
hægra megin. Gunnar Gíslason
skaut góðu skoti á markið, en
yfir. Á 43. mín. kom svo síðasta
markið. KA fær homspyrnu, og
Elmar gefur stuttan bolta á Ás-
bjöm, sem vippar boltanum
laglega inn í teiginn og yfir
markmanninn. Boltinn barst
síðan til Óskars sem skallaði
örugglega í markið. Þannig
urðu úrslit leiksins fjögur mörk
gegn engu, og KA hlaut sín
fyrstu stig í deildinni í ár. Leik-
menn Þróttar eru stórir og
sterkir, en ekki flinkir að sama
skapi.
Dómari leiksins var Sævar
Frímannsson og línuverðir Þór-
oddur Hjaltalín og Amar Ein-
arsson og skiluðu þeir allir sínu
hlutverki óaðfinnanlega.
Auðveldur sigur KA
4.DAGUR
DAGUR.5