Dagur - 04.07.1980, Qupperneq 2
Nýtt - Nýtt - Nýtt
Fimmtudag kl. 9-1:
Heimsfrægur breskur plötusnúður í fyrsta skipti
á íslandi BRIAN ESTCOURT. Nú dönsum við
sveitt frá kl. níu til eitt.
Föstudagur:
Finnur Eydal með lög af plötunni Kátir dagar.
Stórkostlegur matseðill að sjálfsögðu frá kl.
20-22. Sjallastemmingin í fullum gangi. Brian í
diskótekinu með toppklassa tónlist.
Laugardagur:
Dansað kl. 20-03. Föstudagskvöldið endurtek-
ið.
Sunnudagur:
Brian þeytir skífum frá kl. 9-1. Nú veistu að þær
koma beint frá útlöndum. Já sá fyrsti verður
ábyggilega ekki sá síðasti.
Nýtt - Nýtt - Nýtt
Opið öll kvöld. Brian í diskótekinu.
Skógræktin og bömin
Sjálfstæðishúsið
Nú er ár trésins á eyjunni okkar.
Ár, sem á að minna okkur á, að
klæða landið skógi aftur, eftir að
hafa rúið það trjágróðri á liðnum
öldum.
Það er ánægjulegt hve al-
mennur áhugi er fyrir skógrækt
og hve mörgum litlum trjáplönt-
um er komið í mold á ári hverju.
Störf skógræktarfélaga eru víða
þróttmikil og bera ýmis útivistar-
svæði þess merki.
Fyrir rúmum 40 árum voru
fyrstu plöntumar settar niður í
marga skógarreiti hér í nágrenn-
inu. Þær eru nú sumar orðnar að
fögrum trjám. En hverjir settu
þessar plöntur niður? Nokkrir
áhugasamir félagar í Skógrækt-
arfélagi Eyjafjarðar og skólaböm.
—Já ég sagði skólabörn. Á fjórða
og fimmta áratugnum var það
föst venja að börn úr bamaskól-
anum færu á skógræktardaga hér
í bænum. Þau nutu þar leiðsagnar
skógræktarmanna. Ég minnist
nokkra ferða í Vaðlaskóg þegar
byrjað var að planta þar. Síðar
var byrjað að gróðursetja í
Kjamaskógi, og skógræktarreit-
unum vestur í dölunum. En
þangað var líka farið. Þá komu
skólabörnin einnig við sögu í
trjáplöntun í Eyrarlandsbrekk-
unni og í brekkuna norðan við
skólann plöntuðu þau með kenn-
umm sínum. Jakob Karlsson
beitti sér fyrir að planta trjám
nyrst í Eyrarlandsbrekkuna og þá
man ég að við íbúar brekkunnar
lögðum fram hver 10 krónur til
plöntukaupa. En þá voru 10
krónur nokkurs virði.
Minningar okkar kennaranna
frá skógræktardögunum eru
margar ljúfar og skemmtilegar.
Það var engin deyfð yfir þessum
ferðum heldur glaumur og gleði,
hvort sem sólin skein eða norð-
angustur geisaði. Þeir sáu um
gleðina Snorri Sigfússon, Guð-
mundur Karl Pétursson og
Tryggvi Þorsteinsson svo að ein-
hver nöfn séu nefnd. Guðmundur
Karl lét sig ekki vanta í þessar
ferðir þrátt fyrir miklar annir. Oft
varglatt á hjalla meðan nestið var
snætt í fögrum hvammi úti í nátt-
úmnni.
Mér er ekki kunnugt um þátt-
töku skólabama nú í skógrækt, en
hún var veruleg áður fyrr. Eflaust
er hún einhver enn. En ég vildi
með þessum Iínum ekki aðeins
rekja minningar, heldur miklu
fremur minna á, hve nauðsynlegt
er að rœkta það hugarfar hjá
börnunum, sem skógræktin vinn-
ur að. Það er gott að eiga áhuga-
sama skógræktarmenn, en það er
eigi siður nauðsynlegt, að kom-
andi kynslóð hafi skilning á að
klæða landið skógi og auka gróð-
ur þess. Þess vegna held ég að
skógræktardagar með börnum og
unglingum séu enn nauðsynlegir,
þó að fleiri séu nú um að leggja
hönd á plóginni og einhverjir
fastir starfsmenn.
Ég veit að okkur er öllum ljóst
að ræktun hugarfars æskunnar í
þessu efni er nauðsynjamál. Ef
ekki er hirt um þá skógreiti og
útivistarsvæði sem nú eru í fram-
tíðinni er hætt við að þau verði
fáum til yndisauka.
Ég sagði einhverntíma að það
merkasta sem þessi kynslóð lætur
eftir sig til hinnar næstu hér í
bænum væri Kjamaskógur, sem
útivistarsvæði, og Amtsbókasafn-
ið. Nú má bæta hitaveitunni við,
sem á eftir að spara bæjarbúum
mikið í framtíðinni. Um Amts-
bókasafnið er að segja, að þó að
tölvurnar reyni að afsanna gildi
bókanna, tek ég því með varúð.
Þar er þó sá fróðleiksbrunnur sem
ausið verður af í framtíðinni. En
útivistarsvæðið í Kjarnaskógi
vona ég að verði íbúum Akureyr-
ar til ánægju á komandi tímum.
Að lokum þetta: Gleymum því
ekki að glæða fyrir börnunum að
prýða landið okkar og skrýða það
skógi. Ég tel víst að skólunum sé
þetta ljóst. Um leið og við gróð-
ursetjum litla trjáplöntu í mold,
þarf að rækta hugarfar barnanna
að hlynna að henni. Einnig að
umgangast allan gróður með var-
úð og valda þar ekki skemmdum.
Þar eigum við mikið ólært. En
skógræktardagar eru einmitt vel
til þess fallnir að kenna rétta um-
gengni við gróður landsins.
Eiríkur Sigurðsson.
StátaBSBBBIsIalaBlslaBlalálslsBBBIslgláBBBBBG
Intemational
TRAKTORAR
Kaupfélögin
umalltland
Véladeild
Sambandsins
Armuia 3 Reyk/avtk Stmt 3890Í
0 Unglingar við skógræktarvinnu f Láginni á Dalvfk. Ljósm.: Rögnv.
Ný og endurbætt International
heybindivél er nú komin á markaðinn.
Til afgreiðslu strax
Eigum hina vinsœlu International traktora
til afgreiðslu i eftirtöldum stærðum:
45 hö. - 52 hö. - 62 hö. - 72 hö. og 80 hö.
GÓÐ GREIÐSLUKJÖR
Kaupfélögin
UM ALLTIAND
Samband islenzkra samvinnufe!nyrt
VÉLADEILD
Armula 3 Reykjavik s»ni 38900
BBBBIalalalatalalaBIalalalalaEilálalsíIálalaSBSIsIalala
2
KktUfi.É i MiIT U I ».<r l