Dagur - 04.07.1980, Blaðsíða 4
FÓTBOLTI
FÓTBOLTI
FÓTBOLTI
Þetta hófst með því að svörtum og
hvítum bolta var stillt upp á miðju
grasbalans, sem á höfðu verið mál-
uð hvít strik, sennilega til leiðbein-
ingar leikmönnum sem áttu fyrir
höndum að þeytast um svæðið.
Fávísum blaðamanni kom ekkert
annað í hug en að þessi strik væru í
sama tilgangi og hvítu strikin sem
máluð eru á göturnar til að blikk-
beljurnar rekist ekki saman. En
leikmennirnir áttu oft eftir að rek-
ast á í þessum leik, og það var engin
gangbraut máluð á völlinn, enda
stugguðu lögreglumenn við öllum
þeim sem sýndu áhuga á að ganga
inn á og voru ekki í einkennis-
búningum fótboltamanna.
Dómarinn, sem var í svörtum og
hvítum einkennnisbúningi, flaut-
aði til leiks og leikurinn hófst —
aðallega á áhorfendapöllunum.
Leikurinn sem fór fram var á
milli Akureyrarliðanna KA og Þórs
sem spilaður var 18. júní s.l.
Áhorfendapallarnir voru þéttskip-
aðir og eins var fólk í brekkunum
norðan við stúkuna, því hún er
staðsett beint á móti syðri vallar-
helmingi. Rétt eins og hönnuður
svæðisins hefði gert ráð fyrir því að
mörkin yrðu alltaf skoruð í syðra
markið. Áhorfendur voru úr öllum
aldurshópum og virtust taka leik-
inn mjög alvarlega, því þeir stukku
sumir hæð sína í loft upp þegar
leikmönnum annars liðsins tókst að
pota tuðrunni inn í mörk þau sem
standa við sinn hvorn enda leik-
vangsins.
Svo virtist sem að bæði
liðin væru með öskur- og
kiapplið á sfnum snærum
í áhorfendastúkunni.
Ungur strákur stóð ann-
að slagið upp og öskraði
sig hásann. Spurði hann
lið sitt nokkurra spurn-
inga: Hverjir eru bestir?
Hverjir vinna leikinn?
Hverjir komast í úrslit?
Hverjir skora mörkin?
Svar hópsins var alltaf
það sama, samstillt ösk-
ur: KÁ AAAA!
Þórsarar fóru hægar í
sakirnar, en létu þó ekki
sitt eftir liggja við hvatn-
ingu sinna manna.
Úti á vellinum virtist allt ganga
sinn vanagang, þrátt fyrir óhljóðin
á áhorfendapöllunum. Leikmenn
hlupu þar skipulagslítið fram og
aftur á eftir boltanum. Beittu þeir
alls kyns brögðum gagnvart hvor
öðrum. Stundum sá dómarinn þau
og dæmdi þá leikmönnum and-
stæðinganna boltann. En oftast sá
dómarinn brotin en dæmdi ekki.
Virtist mér sem sum fantabrögð
væru leyft, en önnur ekki. Sem
dæmi um brot sem ekki var dæmt á
voru kjaftshögg, spörk undir
bringuspalir, fæti brugðíð fyrir
andstæðing og andstæðingi haldið í
skefjum með því að grípa í bux-
urnar hans og snúa hressilega upp
á.
Fyrst í stað varð ég dauðhræddur
þegar ég sá leikmennina fljúga á
hausinn og kútveltast um völlinn
og liggja svo marflata, eins og
steindauðir væru. Svo lærðist mér
að þetta voru bara brögð til að
reyna að fá dómarann til að dæma
0 Þessir hressu strákar gættu þess að boltinn kæmist fljótt í hcndur leikmanna færi
hann aftur fyrir markið.
|r* jf/ | i I -v # 4 L ' m 1' 1 Ifc, ‘ > 1
0 Þann tima sem leikurinn stóð sýndu veðurguðirnir ýmis sýnishorn veðurs; rign-
ingu, sólskin, logn og hvassviðri. Það er ekki við hæfi kvefaðra og þvi þurfti annað
slagið að draga upp vasaklútinn.
0 Unninn leikur og formaður KA, Jón
Amþórsson, brosir sfnu bliðasta.
0 Jónas Jónsson frá Brekknakoti.
SpUaði með Þór
upp úr 1930
Þeir sem sækja völlinn, þekkja allir Jónas í Brekkna-
koti, a.m.k. í sjón. „Ég sæki alla þá leiki sem kostur er.
Annars þekki ég ekki strákana eins og maður gerði hér
áður fyrr. Einnig er ég farinn að sjá illa og verð að nota
kíki til að hafa fulla ánægju af leiknum.“ Þess má svo
geta að Jónas spilaði með Þórsliðinu á árunum 1930 til
1932.
0 Ámi Ingimundarson.
Fór frá laxveiði
til að sjá leik
„Það fer enginn leikur fram hjá mér, það er ábyggi-
legt,“ fullyrti Árni Ingimundarson, þegar hann var
spurður hvort hann færi oft á völlinn. „Ég hef meira að
segja farið frá laxveiði til að horfa á leik, og þá er nú
mikið sagt!“ Árni sagðist vera alinn upp við fótbolta frá
bamæsku og hann spilaði með KA á árum áður.
0 Þessi mynd sýnir fótbolta í hnotskurn. Leikmenn ryðjast hver um annan þveran, sparka og slá sem mest þeir
mega. Eins og sjá má á svip a.m.k. eins leikmannsins virðist þessi iþrótt reyna mjög á taugarnar.
sér boltann. Stundum tókst þetta,
en ekki alltaf.
Þar sem ég sat norðan við
völlinn og beið eftir að
Þórsarar skoruðu mark
komu nokkrir strákar til
mín sem höfðu það hlut-
verk að hirða boltann
sem skotið var út af vell-
inum.
„Frá hvaða blaði
ertu?“
„Kemur mynd af okk-
ur?“
„Ég ber út Dag!“
Þessir strákar gegna
mikilvægu hlutverki og
Jónas í Brekknakoti
minntist á það við mig að
það ætti að láta þá vera í
einkennisbúningum lið-
anna við þessi störf sín
aftan við mörkin. Þeirri
ábendingu er hér með
komið á framfæri til við-
komandi aðila.
Eftir venjulegan leiktíma, 2x45
mínútur, var markatalan jöfn, 2:2,
og varð því að framlengja leikinn
svo að úrslit fengjust. Tókst þá
KA-mönnum að hnoða boltanum
inn fyrir Þórsmarkið og urðu það
úrslit leiksins, 3:2 fyrir KA. Leik-
menn beggja liða voru útkeyrðir
eftir leikinn og hálf skriðu inn í
búningsklefana.
Allir voru ánægðir mcð
úrslit leiksins; KA-menn
vegna þess að þeir unnu
leikinn og Þórsarar vegna
þess að þá voru þeir lausir
út úr bikarkeppninni og
ættu því að geta einbeitt
sér betur að deildar-
keppninni.
GUÐBRANDUR MAGNÚSSON.
Lciknum er lokið og þá ryðjast áhorfendur út á móti fótboltahetjunum og faðma þær og kyssa. Ekki
sýndust leikmenn ýkja hrifnir af þeim atlotum.
Þjálfari Þórsliðsins, Ámi Njálsson,
er aftur á móti ekki jafn hýr.
0 Slappaö af í Þórsmarkinu.
0 Þrátt fyrir kuldahrollinn leynir áhuginn sér ekki.
0 Starf markmanns felst I þvi aö reyna að koma i veg fyrir að boltinn lendi inn á
milli stanganna sem eru umhverfis hann. Þetta svarta og hvita fyrir aftan markið
er fótbolti sem virðist á hraðri leið út fjörð.
0 Það getur oft verið erfitt að þurfa að sitja á varamannabekkjunum þegar leikur
inn er f alglcymingi.
0 Ólafur Ásgeirsson.
Fréttaritari Dags
við löggæslustörf
„Það er nú lítið að gera fyrir okkur núna, þetta er rólegt
kvöld. En annað gildir ef leikur er t.d. á föstudags-
kvöldi, þá er fyllirí mikið. Sumir vilja þá ólmir komast
inn á leikvanginn og hjálpa þar til, aðrir kasta tómum
flöskum í átt að leikmönnum og enn aðrir „deyja“ hér á
bekkjunum,“ sagði Ólafur Ásgeirsson lögreglumaður.
Hann hefur einnig umsjón með íþróttafréttum Dags.
4
5