Dagur - 29.07.1980, Blaðsíða 1

Dagur - 29.07.1980, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI DAGUR LXIII. árgangur. Akureyri, þriðjudagur 29. júlí 52. tölublað Drógu ýsurá Dalvík Dalvík, 25. júlí. Það er af togurum á Dalvík að frétta að Björgvin kom inn í vikunni sem leið með 217 tonn og Björgúlfur kom í gærkvöldi með u.þ.b. 220 tonn, annars er lítið byrjað að landa úr honum. Aflinn var aðallega þorskur. t>að hefur verið ágætisafli á •ogurunum núna. Svo verður stopp hérna hjá okkur í þorsk- 'num, frá 26. júlí og minnsta kosti fram yfir verslunar- ntannahelgi. Togararnir fara báðir í slipp og fólkið í frí. Þeir eru að reyta svolítið á færabátunum út við Grímsey og hefur það verið meiriparturinn ufsi. Það hefur verið frekar kalt °g óstillt fyrir smærri triilur en þeir fiskuðu dálítið um daginn hérna rétt utan við Dalvík og fengu ýsu. Hún var að vísu smá, en ýsa engu að síður og þetta hefur ekki gerst hér í mörg ár. Það er fremur kalt í veðri en hann hangir þó þurr í dag, en eitthvað rigndi í nótt. Júlímán- uður hefur verið einstaklega leiðinlegur hvað sólskinið varð- aT maður hefur ekki séð það. En vonandi verður áeúst betri. I.L. Þörf fyrir Norðurlandsskip Á ráðstefnu um viðskipti og þjónustu, sem Fjórðungssam- band Norðlendinga hélt seint á síðasta ári, hélt Þórgnýr Þór- hallsson, fulltrúi hjá KEA, er- indi sem nefndist Markaður og framleiðsla innan Norðurlands. Þar drap hann m.a. á hversu sérstakt Norðurlandsskip myndi stórlega bæta aðstöðu við að koma t.d iðnaðarvörum frá Ak- ureyri á markað á reglubundinn og vafalaust ódýrari hátt. Dagur fór þess á leit við Þórgný að hann segði lítillega frá þessari hugmynd og hvort þetta mál hefði Hvetja til sam- stöðu — um Blönduvirkjun í síðustu viku var haldinn kynn- ingarfundur á Akureyri um orkumál í Norðlendingafjórð- ungi, með sérstöku tilliti til Blönduvirkjunar. Til fundarins voru boðaðir alþingismenn Norðlendinga, odd- vitar þeirra sveitarfélaga, sem eiga landnýtingarhagsmuni vegna Blönduvirkjunar, Jakob Björnsson, orkumálastjóri og Kristján Jóns- son, rafmagnsveitustjóri, og höfðu tveir þeir síðasttöldu framsögu á fundinum. Enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um það, í hvaða tímaröð þessar virkjanir verða reistar, en Blönduvirkjun er þar mjög ofar- lega á blaði. Bæði hefur sá valkost- ur mest verið rannsakaður, auk þess sem hún er utan hins virka eldgosabeltis. Þá kom það fram, að orkumálaráðherra hefur nú falið Rafmagnsveitum ríkisins yfirum- sjón með Blönduvirkjun og skipuð hefur verið ráðgjafanefnd um virkjunarvalkosti. Eitt verkefni þessarar nefndar er að leita eftir samkomulagi við landeigendur á virkjunarsvæði Blöndu. Eftir framsöguerindi tóku fjöl- margir til máls, þ. á m. fimm al- þingismenn. Hvöttu flestir til sam- stöðu Norðlendinga um Blöndu- virkjun. Fundinum barst símskeyti frá fjórum oddvitum austan Blöndu og tilkynntu þeir þar, að aðstaða landeigenda væri óbreytt og að þeir væru andvígir Blöndu- virkjun í þeirri mynd, sem nú væri til umræðu. eitthvað verið rætt. „Ég er nú sjálf- sagt ekki upphafsmaður að þessu en erindi mitt varðandi þetta mál tengdist nú því að það er ekki nokkrum vandkvæðum bundið að koma vörum til fjarlægari staða, þangað eru nokkuð beinar og ábyggilegar ferðir. En ef við tökum staði hér nær okkur, t.d. Hólmavík, þá er hreinlega gestaþraut að koma þangað vörum. Strandferðaskip koma þar ekki við og yfirleitt er öllum Húnaflóa sleppt. Viðkomu- staður á vesturleið er Siglufjörður, ef nægur flutningur fæst, svo er næsti viðkomustaður Norðurfjörð- ur á Ströndum." Þórgnýr sagði ennfremur að þar sem Akureyri væri fortakslaust miðstöð Norðurlands, þá væri hans tillaga sú að þaðan gengi skip og Akureyri yrði þá nokkurs konar umhleðsluhöfn. Norðurlandsskip myndi spara Skipaútgerð ríkisins þvæling inn á hafnir t.d. til Sauðárkróks, Siglufjarðar, Húsa- (Framhald á bls. 6). Gamla folkið greiðir fóður- bætis- skatt Fóðurbætisskatturinn kemur víða við og til marks um það má geta þess, að gamla fólkið á Dvalarheimili aldraðra á Dalvík þarf að borga veru- legan fóðurbætisskatt. Þannig stendur á þessu, að á elliheimilinu hefur verið til siðs að nota hveitiklíð í bakstur. Hveitiklíð flokkast hins vegar undir fóður og er skattlagt sem slíkt. Því leggst nú 200% fóður- bætisskattur á hráefnið, sem notað er í heilsubrauð gamla fólksins á Dalvík. Ráðherra á fund um fram- leiðslumálin Almennur bændafundur verður haldinn á vegum Bún- aðarsambands Eyjafjarðar í Freyvangi 5. ágúst n.k. og hefst kl. 20.30. Á fundinn mæta Pálmi Jóns- son, landbúnaðarráðherra, og Ingi Tryggvason, formaður Framleiðsluráðs landbúnaðar- ins. Umræðuefni verður fóður- bætisskattur og aðrar ráðstaf- anir í framleiðslumálum land- búnaðarins. Landsmót AA í Kjarnaskógi Um síðustu helgi var haldið í Kjarnaskógi árlegt landsmót AA-samtakanna. Þetta var í 6. skiptið sem slíkt mót er haldið og í annað skiptið hér á Akur- eyri. Mótið var sett á föstu- dagskvöld og slitið um hádegis- bil á sunnudag. Landsmót samtakanna er fjöl- skyldu- og vinamót og sóttu það nú um 300 manns á öllum aldri. Stórt tjald var reist á svæðinu og voru þar haldnir fundir bæði AA-félaga og Al-Anon, sem er félagsskapur að- standenda drykkjufólks. Á laugar- dagskvöldið var kvöldvaka í tjald- inu með ýrnsum skemmtiatriðum og á eftir var stiginn dans fram eftir nóttu. Á sunnudagsmorgun var helgistund sem séra Pétur Þórar- insson á Hálsi annaðist, síðan var opinn AA-fundur og loks mótsslit. Þrátt fyrir leiðinlegt veður og rigningu skemmti fólk sér hið besta en það var ekki fyrr en á sunnudag sem sólin lét sjá sig og sögðu móts- gestir að það væri þó altént hægt að rúlla tjöldunum þurrum saman. Uppboðá graðhestum Fyrir stuttu var gerður út leið- angur á vegum stjórna hrossa- ræktarsambanda Skagfirðinga og A.-Húnvetninga, þar sem grunur lék á að stóðhestar gengju lausir í samlægum afrétti á fjallgarðinum milli sýslnanna. Þrír graðhestar fundust í leiðangrinum ,og voru þeir afhentir hreppstjóra Staðar- hrepps. Uppboð hefur verið aug- lýst á hestunum á morgun, mið- vikudag kl. 14 á Sauðárkróki. Laugahátíð 1980 um verslunar- mannahelgina Um verslunarmannahelgina stendur Héraðssamband Suður- Þingeyinga fyrir hátíð á Laugum, svokallaðri Laugahátíð ’80. Há- tíðin hefst á föstudagskvöld og stendur fram á sunnudagskvöld. Dansleikir verða öll kvöldin, þar sem hljómsveitin Pónik leikur, auk þess sem diskótek verður í gangi. Þá má nefna kvikmynda- sýningar, tískusýningar, íþrótta- leiki, unglingadansleik, gaman- mál o.fl. Öll meðferð áfengis er bönnuð á svæðinu. Sumarhátíð hestamanna á Vindheimamelum Sumarhátíð hestamanna á Vind- heimamelum verður haldin um verslunarmannahelgina og hefst kl. 13 á laugardag með dómum á góðhestum. Síðar um daginn verða undanrásir kappreiða og á laugardagskvöld verður uppboð á hrossum, einkum frá bæjunum Vallanesi og Krossanesi í Hólmi. Klukkan 14 á sunnudag hefst dagskráin með helgistund og síð- an verða úrslit í góðhestakeppni, kappreiðar og unglingakeppni. Sumarhátíðinni lýkur á sunnu- dagskvöld. Dansleikir verða í Miðgarði föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld. Búist er við þúsundum manna og hesta á mótið.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.