Dagur - 29.07.1980, Blaðsíða 4
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritst|órnarsímar: 24166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreiöslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaöamaður: ÁSKELL ÞÓRISSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Stórauknar
slysavarnir
Það sem af er þessu ári hefur verið
eindæma milt og gott veður um
allt land. Hefur í veðurfarslegu til-
liti orðið mikil breyting til batnaðar
frá því í fyrra, þegar sumarið kom
aldrei í stórum landshlutum. Af-
leiðingar þess hafa verið að koma
í Ijós í vor og sumar, einkum í
stórfelldum skemmdum á trjá-
gróðri, a.m.k. víða norðanlands.
En við tileinkum þetta ár trénu og
með samstilltu átaki getum við
bætt þann skaða, sem orðið hefur
á trjágróðri. Við plöntum nýjum
trjám í stað þeirra sem eyðiiögð-
ust og hlúum að þeim sem
skemmdust, en iifa enn. Tjónið er
fyrst og fremst fjárhagslegt.
En þrátt fyrir einmuna tíð til
sjávar og sveita það sem af er
þessu ári hefur stór og svartur
skuggi hvílt yfir landinu, stærri og
svartari en nokkru sinni. Svo að
segja daglega heyrast fréttir af
slysum á mönnum og hafa þær
sjaldan eða aldrei heyrst örar en
síðustu daga og vikur. Slysahol-
skeflu væri næst að kalla þessi
ósköp. Það tjón sem varð á trjá-
gróðri á síðasta ári er lítilvægt
miðað við það skelfilega tjón sem
orðið hefur á mannslífum á þessu
ári, því það verður ekki bætt. Og
það sorgiegasta við öll þessi slys
er það, að stór hluti þeirra, ef ekki
stærstur hluti, er okkur sjálfum að
kenna. Orsök alit of margra siysa
er vangá og ónóg aðgæsla.
Þjóðir heims hafa ákveðið að
tileinka næsta ár fötluðum. Þá
verður alþjóðaár fatlaðra og þá
verður væntanlega vakin athygli á
því misrétti, sem fatlaðir eiga við
að búa í ýmsum efnum. En á al-
þjóðaári fatiaðra eigum við ekki
hvað síst að leggja áherslu á að
benda á leiðir til að koma í veg
fyrir að fólk fatlist, þar sem því
verður við komið. Stórauknar
slysavarnir og stóraukin fræðsla
um þær hættur, sem hvarvetna
liggja í leyni í nútíma þjóðfélagi,
eru vænlegustu leiðirnar til að
draga úr slysum og örkumlum af
þeirra völdum.
Við getum engu ráðið um gang
náttúruaflanna og því megum við
alltaf búast við skemmdum á
gróðri landsins. En við getum
heilmiklu ráðið um það, hvort
þeim fer fjölgandi sem verða ör-
kumla eða deyja af slysförum,
sem stafa af óaðgæslu og hugs-
unarleysi. Látum alþjóðaár fatl-
aðra marka tímamót í þessum
efnum og látum öll slysin á þessu
ári okkur að kenningu verða.
1 síðasta mánuði var haldið „bamabæjarmót“ og hátíð
vegna 150 ára afmælis Narssak á Grænlandi. Hermann
Sigtryggsson og kona hans Rebekka Guðmann, fóru
sem fulltrúar Akureyrarbæjar til afmælisins, en á
„bamabæjarmótið“ fóru sex börn frá Akureyri auk
fararstjóra, Helga Barðasonar.
Bamabæjarmótið er árlegur viðburður, og var haldið
að þessu sinni í Narssak í tilefni af afmæli bæjarins.
Narssak er vinabær Gladsaxe í Danmörku, en sá bær á
vinabæi vítt og breitt um Evrópu og hafa þessir bæir
haldið árleg barnamót til skiptis í viðkomandi bæjum.
Þótt Narssak sé ekki í vinabæjartengslum við vinabæi
Gladsaxe hafa böm þaðan tekið þátt í „barnabæjar-
mótunum“ undanfarin ár. Gladsaxe átti að halda
mótið í ár, en samkomulag varð um að halda það að
þessu sinni í Narssak í tengslum við 150 ára afmælið.
Jafnframt var tveimur fulltrúum frá hverjum vinabæj-
anna boðið í opinbera heimsókn, en fullorðnir og börn
komu frá eftirtöldum stöðum: Gladsaxe, Gagny í
Frakklandi, Appeldoorn í Hollandi, Sutton í Englandi,
Wilmersdorf og Minden í Þýskalandi.
Heimsókn fulltrúa bæjanna stóð i 10 daga, en
„barnabæjamótið“ var frá 26. júní til 7. júlí.
naRssak
Hermann Sigtryggsson heimsótti búðir barnanna í einn dag ásamt öðrum fulltrúum,
sem voru í Narssak vegna 150 ára afmælisins. Hér er hann ásamt tveimur græn-
lenskum stúlkum.
Sigurður Magnason, cinn þá-.ttakenda i barnamótinu, virðir fyrir sér tignarlegt
landslag Grænlands.
Séð yfir Narssak. Ef vel er að gáð sjást tæki sem notuð voru við að oliumalarbera
götur.
Og hvemig kom Grænland Her-
manni Sigtryggssyni fyrir sjónir? í
pistli er hann reit eftir heimkom-
una, segir Hermann að þrátt fyrir
að 150 ár séu liðin frá því að fyrst
var sest að í Narssak hafi lengi vel
verið þar lítil byggð og fátt fólk.
Um 1950 voru þar aðeins nokkrar
fjölskyldur og 1956, þegar Agnete
Nilsen, núverandi bæjarstjóri,
byrjaði í stjórnmálum voru þar um
450 manns. Til ársins 1959 tilheyrði
Narssak Julianehaab, en þá fékk
Narssak bæjarréttindi. Síðan hefur
bærinn vaxið verulega og búa þar
nú um 1800 manns - auk 2 - til 300
manns sem búa í nágrannahéruð-
unum.
Atvinna í Narssak byggist aðal-
lega á fiskveiðum og kvikfjárrækt,
einnig er nokkuð um verslun og ber
þar danska konungsverslunin hæst.
Á siðari árum hefur verið reynt að
koma upp iðnaði. Helsta átakið í
þeim efnum er fyrirtæki sem nefn-
ist Eskimopels, en það er sauma-
stofa sem vinnur ýmsa muni og býr
til fatnað úr skinnum. Fiskveiðar
hafa þróast verulega hin síðari ár,
þótt fiskur sé ekki eins mikill og
áður fyrr. Frystihús var byggt í
Narssak 1950. Það brann 1978, en
var endurreist ári síðar. Togaraút-
gerð er hafin frá bænum.
Kvikfjárrækt er mjög viðkvæm
atvinnugrein á Grænlandi. Lítið
má útaf bera á veturna svo féð, sem
gengur sjálfala, falli ekki úr hor eða
týnist í vondum veðrum. En ef vel
viðrar er fallþungi mikill. Kýr eru
engar á Grænlandi og mjólk því
flutt inn frá Danmörku, annað
hvort frosin eða sem þurrmjólk.
Málmar og verðmæt efni finnast
í jörðu á Grænlandi. f um 7 km
fjarlægð frá Narssak er verið að
leita að úranium og hafa verið
sprengd um 800 m. löng göng í
álitlegt fjall. Alls hafa 5 þúsund
íonn af grjóti verið send til Dan-
merkur, en árangurinn hefur látið á
sér standa. Tekist hefur að vinna
um 30 grömm af úrani úr einu
tonni af grjóti. Vonir standa til að
þegar göngin verða orðin rúmlega
1000 metra löng muni finnast
verðmætara grjót, en talið er að það
borgi sig að vinna úran úr fjallinu
ef 50 grömm nást úr hverju tonni!
Eins og gefur að skilja er hol-
ræsagerð erfið á Grænlandi. Her-
mann segir að bærinn sé að miklu
leyti byggður á klöppum. Götur í
Narssak eru flestar bornar olíumöl,
fremur mjóar og lítið er um gang-
stéttir. Narssak er vel upplýstur bær
og fær hann rafmagn frá diselstöð.
Þar sem erfitt er að koma raf-
magnsleiðslum í jörð bæði að hús-
um og ljósastaurum þá er nokkuð
um loftlínur sem eru aðallega á
stálstaurum. Fyrirhugað er að á
næstu árum verði gert átak í því að
koma sem flestum leiðslum, bæði
skolp- rafmagns- og símaleiðslum í
jörð, en það mun vera ákaflega
dýrt.
Hvernig verja Grænlendingar
tómstundum sínum?
Tækifærin eru e.t.v. ekki eins
mörg og hér, segir Hermann, en í
samkomuhúsinu í Narssak eru
haldnir dansleikir og diskótek með
svipuðu sniði og sama hávaða og
hér. Þar er einnig eina bíóið í bæn-
um, einnig eru a.m.k. tveir aðrir
staðir þar sem danssamkomur eru
haldnar og veitingar seldar. í
tengslum við skólann í bænum eru
ýmis kvöldnámskeið fyrir unga og
gamla, þar er öldungadeild starf-
rækt fyrir þá sem vilja læra og í
bænum er æskulýðsheimili. í því
eru starfræktir ýmsir klúbbar fyrir
unglinga, en alls eru í bænum 17
félög af ýmsu tagi. Einn knatt-
spyrnumalarvöllur er í bænum, en
þann tíma sem Hermann var í
Narssak var lítið spilað á vellinum.
Fyrir fulltrúa bæjanna var há-
punktur dvalarinnar í Narssak af-
mælisdagurinn l.júlí, þegarminnst
var 150 ára byggðar í Narssak. Eftir
að gestir og heimamenn höfðu hlýtt
á messu í kirkjunni var móttökuat-
höfn í ráðhúsi bæjarins. Hermann
færði bæjarstjóranum Agnete Nil-
sen borðfánastöng úr íslensku
birki, þar sem útskorin mynd af ís-
lenskum sveitabæ var á fótstalli
hennar og silfurplata með kveðju
frá Akureyrarbæ. Aðrir fulltrúar
færðu Narssak einnig gjafir. Síðar
um daginn var afhjúpuð varða, sem
bömin á barnamótinu höfðu hlaðið
og var búið að steypa í hana móts-
merkið ásamt nöfnum þeirra
barna, sem tóku þátt í mótinu.
Og lýkur hér frásögn Hermanns
Sigtryggssonar af kynnum hans af
Narssak.
Borgarisjakar eru algeng sjón á Grænlandi. Hér er einn f höfninni f Narssak. Takið
eftir skipinu sem gægist út undan jakanum.
Kirkjan i Narssak er reisuleg bygging.
Hér eru Grænlandsfararnir. Efri röð: Helga Þ. Erlingsdóttir, Kristin Jóhannsdóttir
og Sigurður Magnason. Neðri röð: Hermann Sigtryggsson, Agnete Nilsen bæjar-
stjóri, Einar Sigtryggsson, Eirfkur Jóhannsson, Heigi Már Barðason, fararstjóri
bamanna, Linda Björnsdóttir og Rcbekka Guðmann.
Akureyrarbörnin eignuðust marga kunningja
Á vegum Akureyrarbæjar fór Helgi
Már Barðason sem fararstjóri með
bömunum sex til Narssak. Meðan
á mótinu stóð bjuggu bömin og
fararstjórar þeirra í glæsilegu
skólahúsi staðarins og að sögn
Flelga var aðstaða öll og aðbúnaður
eins og best varð á kosið. En nú
skulum við gefa Helga orðið með
ferðasögu sina:
Grænlendingar eru að mínu
mati afar gestrisin og alúðleg þjóð
og þeir virðast líta mjög upp til
okkar Islendinga, fyrir margra
hluta sakir. Það fundum við oft.
Þetta bamabæjarmót vakti mikla at-
hygli í Grænlandi, t.d. hjá græn-
lenska útvarpinu. Fréttamenn það-
an voru oft á eftir okkur og tóku
viðtöl og eitt sinn söng hver hópur
lag fyrir útvarpsmenn. Og stundum
stóðu þeir bara hjá okkur með
hljóðnemann til þess að heyra
okkur tala á öllum þessum tungu-
málum. Hið daglega skipulag var í
stórum dráttum á þá leið að á
hverjum morgni drógu börnin upp
þjóðfána sinna landa. Eftir morg-
unverð hófst dagskrá sem stóð
venjulega til kl. 16. Um sexleytið
voru fánar dregnir niður og eftir
kvöldverð var kvöldvaka eða
skemmtun, sem bæirnir skiptust á
um að halda. Þetta skipulag hélst í
meginatriðum frá degi til dags. Að
vísu kom það stundum fyrir að
áformin urðu önnur en áætlað var,
oftast vegna snöggra veðurbreyt-
inga eða annarra óviðráðanlegra
orsaka, sem alltaf má gera ráð fyrir
Dagskráin þessar tvær vikur var
geysifjölbreytt. Það var farið í
stuttar ferðir frá Narssak, veiði-
ferðir, skoðunarferðir og fjall-
göngu. Auk þess voru íþróttir og
leikir, utanhúss sem innan, stund-
aðir af miklu kappi. Akureyrsku
börnin virtust mér falla vel inn í
hópinn og skáru sig ekki úr að
neinu leyti nema e.t.v. að þau héldu
örlítið meira hópinn en hin börnin
gerðu. En það fylgir nú íslending-
um hvar sem þeir eru og hvert sem
þeir fara svo það getur vart talist
óvenjulegt. Sum erlendu börnin
voru dálitið hrædd við Grænlend-
inga í fyrstu en ekki bar á neinu
slíku meðal „minna barna“ og gekk
þeim vel að umgangast þessa
granna sína. Þau eignuðust marga
kunningja meðal hinna barnanna,
mikið var um að skipst væri á gjöf-
um og fyrir kom að sterk vináttu-
tengsl sköpuðust.
Akureyrarbörnin tóku fullan og
virkan þátt í öllum leikjum og
störfum og voru engir eftirbátar
hinna barnanna, nema síður væri.
Ég álít raunar að hópurinn hafi
verið sérdeilis vel valinn og sam-
hentari og skemmtilegri börn hefði
ég varla getað fengið til umsjónar.
Samskipti þeirra við hin börnin og
fararstjórana gengu eins og fyrr
segir, snurðulaust þótt tungumálin
væru mörg og erfið. Ég fékk nóg að
gera við að túlka og mátti venja mig
við að tala fjögur tungumál auk
móðurmálsins. Þetta gerði mann
hálfruglaðan stundum, einkum
þegar á leið, og það má mikið vera
ef ég hef ekki einhvern tímann
ávarpað minn hóp á dönsku eða
þýsku.
Heilsufarið á íslensku börnunum
var gott, þótt svæsin kvefpest gerði
nokkur strik í reikninginn undir
það síðasta. Helsti sjúkdómurinn
sem gerði vart við sig á mótinu var
heimþráin. Var hún víða býsna
sterk en ekki var ég var við að hún
legðist mjög þungt á „mín börn“
eins og hún gerði hjá mörgum
hinna. Sennilega hefur ferðin verið
ögn tilkomuminni fyrir okkur ís-
lendinga en hina, sakir þess hve Is-
landi og Grænlandi svipar á marg-
ar hátt saman, bæði náttúru lands-
ins og þjóðinni.
Bömin sögðu mér, að Grænland
væri mjög svipað og þau höfðu átt
von á. Það er hrjóstrugt og víða
hrikalegt og eyðilegt en veðurfar
var hins vegar miklu hlýrra en við
höfðum áður haldið. Þá voru ís-
jakamir, sem alis staðar flutu, okk-
ur óvenjuleg sjón. Annars var
veðrið fremur leiðinlegt við okkur
þessar tvær vikur, oftast súld og
rigning og sjaldan logn. Sólskin var
sjaldgæft en þegar sólin á annað
borð skein varð veðrið jafn yndis-
legt og það verður best hér á Akur-
eyri.
Ég held að það sé íhugunarefni
fyrir yfirvöld Akureyrar, hvort ekki
borgi sig að vera árlegir þátttak-
endur í þessu ágæta móti. Þessi mót
eru greinilega gífurlega þroskandi
fyrir börnin jafnt sem fullorðna.
Bömin öðlast reynslu í ferðalögum,
útivist, leikjum og skemmtunum og
kynnast nýjum þjóðum, siðum og
menningu.
Við komum öll ánægð heim,
bæði ánægð með góða og
skemmtilega ferð og fegin og glöð
að vera komin heim.
Unglingamót UMSE í
frjálsum íþróttum - Úrslit
Unglingamót U.M.S.E. í frjáls-
um íþróttum fór fram á Ár-
skógsvelli laugardaginn 19. og
sunnudaginn 20. júlí. Keppt var
í þremur aldursflokkum stúlkna
og drengja, þ.e.a.s. í flokki 12
ára og yngri, 13 og 14 ára og 15
og 16 ára. Mótsstjórn skipuðu:
Vilhjálmur Björnsson, Gísli
Pálsson og Björn Ingimarsson.
Veður var mjög óhagstætt til
keppni, kuldi og strekkingur.
Meðvindur var í 100 m og 60 m
hlaupinu. Úrslit í flokki stelpna
(12 ára og yngri) 60 m hlaup: Auður Gunnlaugsdóttir R. 8,8 sek.
Sigríður Árnadóttir Skr. 8,9 sek.
íris Guðmundsdóttir Skr. 9,0 sek.
800 m hlaup:
Auður Gönnlaugsdóttir R. 2:53,3 mín.
Sigríður Árnadóttir Skr. 2:58,3 mín.
Yrsa Helgadóttir Sv. 2:59,0 mín.
Langstökk:
Auður Gunnlaugsdóttir R. 4,26 m
Ásdís Gunnlaugsdóttir R. 4,10 m
Sigríður Árnadóttir Skr. 4,00 m
Kúluvarp: (4 kg. kúla)
Gréta Bjömsdóttir Árr. 5,98 m
Auður Gunnlaugsdóttir R. 5,84 m
Sigríður Ámadóttir Skr. 5,73 m
Flest stig í stelpnaflokki hlaut Auður
Gunnlaugsdóttir, 18 stig. Úrslit í strákaflokki (12 ára og yngri) 60 m hlaup: Davíð Sverrisson Skr. 8,8 sek.
Hlynur Sigursveinsson Sv. 9.0 sek.
Atli Snorrason Þ. Sv. 9,2 sek.
800 m hlaup:
Atli Snorrason Þ. Sv. 2:49,7 mín.
Einar Hjörleifsson Sv. 2:50,5 mín.
Hlynur Sigursveinsson Sv. 2:59,6 mín.
Langstökk:
Atli Snorrason Þ. Sv. 3,79 m
Hlynur Sigursveinsson Sv. 3,66 m
Einar Hjörleifsson Sv. 3,62 m
Kúluvarp: (4 kg. kúla)
Guðni Stefánsson Sv. 7,32 m
Jóhann B. Gylfason R. 6,90 m
Ásgeir Hauksson Skr. 6,19 m
Flest stig í strákaflokki: Atli Snorrason
Þorst. Svörf. 12 stig.
Orslit í telpnaflokki:
(13 og 14 ára)
100 m hlaup:
Kristín Guðmundsdóttir Skr. 13,4 sek.
Auður Gunnlaugsdóttir R. 14,3 sek.
Sigrún Jóhannesdóttir M. 14,3 sek.
Hafdís Rafnsdóttir R. 14,3 sek.
Stérsigur Þórs
í leiðinlegum leik
400 m hlaup: 800 m. hlaup:
Kristín Guðmundsdóttir Skr. 67,0 sek. Kristín Guðmundsd. Skr. 2:47,8 mín.
Erla Höskuldsdóttir R. 70,8 sek. Þuríður Árnadóttir Skr. 2:57,8 mín.
Hafdís Rafnsdóttir R. 71,1 sek. Halldóra Gunnlaugsd. Skr. 3.00,2 mín.
Langstökk: Langstökk:
Erla Höskuldsdóttir R. 4,21 m Þuríður Árnadóttir Skr. 4,14 m.
Hafdís Rafnsdóttir R. 4,21 m Halldóra Gunnlaugsd. Skr. 4.09 m.
Kristín Guðmundsdóttir Skr. 3,92 m Ingigerður Júlíusdóttir Sv. 3,78 m.
Hástökk: Hástökk:
Erla Höskuldsdóttir R. 1,30 m Halldóra Gunnlaugsdóttir Skr. 1,30 m.
Sigrún Jóhannesdóttir M. 1,30 m Ingigerður Júlíusd. Sv. 1,25 m.
Dýrleif Svavarsdóttir R. 1,25 m Þuríður Árnadóttir Skr. 1,15 m.
Kúluvarp: (4 kg. kúla) Kúluvarp:
Dóra 5L Hauksdóttir Skr. 7,47 m Helga St. Hauksd. Skr. 8.30 m.
Eydís Eiríksdóttir Sv. 6,54 m Ragnheiður Sverrisd. Skr. 8,16 m.
Dýrleif Svavarsdóttir R. 6,40 m Anna G. Snorrad. R. 6,73 m.
Spjótkast: Spjótkast:
Auður Eiríksdóttir Dbr. 25,21 m Sóley Einarsdóttir R. 25,93 m.
Dýrleif Svavarsdóttir R. 25,09 m Helga St. Hauksd. Skr. 23,05 m.
Hjördís Stefánsdóttir Dbr. 24,89 m Anna G. Snorrad. Ri 22,19 m.
Flest stig í telpnaflokki: Erla Hösk- Flest stig í meyjaflokki
uldsdóttir, Reyni 13 stig. : Halldóra
Gunnlaugsdóttir Skr. 21 stig.
Úrslit í piltaflokki: (13 og 14 ára) Úrslit í sveinaflokki:
100 m. hlaup: Víkingur Arnason Sv. 13,2 sek. (15 og 16 ára)
Ragnar Stefánsson R. 13,4 sek. 100 m. hlaup:
öm Viðar Arnarson R. 13,5 sek. Eyþór Hauksson Skr. 12,7 sek.
Amþór Hermannsson R. 12,8 sek.
400 m. hlaup: Ragnar Stefánsson R. 63,2 sek. Halldór Gunnarsson ö. 12,8 sek
öm Viðar Arnarson R. 65,0 sek. 400 m. hlaup:
Amar Snorrason Þ.Sv. 66,5 sek. Amþór Hermannsson R. 60,0 sek.
Árni G. Árnason R. 66,5 sek. öm Traustason R. 60,2 sek.
Halldór Gunnarsson Ö. 62,0 sek.
Langstökk: öm Viðar Arnarson R. 4,71 m. 800 m. hlaup: '
Ragnar Stefánsson R. 4,64 m. Jóhannes Antonsson Sv. 2:39,4 mín.
Arnar Snorrason Þ.Sv. 4,30 m. Amþór Hermannsson R. 2:39,5 mín.
Brynjólfur Jóhannsson V. 2:52,8 mín.
Hástökk: öm Viðar Arnarson R. 1,45 m. Langstökk:
Víkingur Arnason Sv. 1,40 m. Rúnar Berg R. 4,90 m.
Árni G. Árnason R. 1,25 m. Arnþór Hermannsson R. 4,85 m.
öm Traustason R. 4,70 m.
Kúluvarp: (4 kg. kúla) Anton Níelsson Sv. 10,87 m.
öm Viðar Arnarson R. 8,75 m. Hástökk:
Óli Þór Árnason R. 8,36 m. Rúnar Berg R. 1,55 m.
Amþór Hermannsson R. 1,50 m.
Spjótkast: Óli Þór Árnason R. 36,34 m. öm Traustason R. 1,40 m.
Anton Níelsson Sv. 31,31 m. Kúluvarp: (4 kg. kúla)
Vilhelm Hallgrímsson Sv. 30,51 m. Rúnar Berg R. 12,62 m.
Flest stig í piltaflokki: Örn Viðar Am- Gunnar Garðarson R. öm Traustason R. 11,29 m. 9,56 m.
arson, Keyni 1». stig.
Úrslit í meyjaflokki Spjótkast: (600 grömm) Rúnar Berg R. 37,29 m.
(15 og 16 ára) 100 m. hlaup: Sigfús Gunnarsson Dbr. 30,23 m.
Halldóra Gunnlaugsdóttir Skr. 13,4 sek. Flest stig í sveinaflokki: Rúnar Berg,
Þuríður Árnadóttir Skr. 13,7 sek. Reyni hlaut 21 stig.
Anna G. Snorradóttir R. 15,1 sek.
400 m. hlaup: Á mótinu kepptu 89 ungling-
Halldóra Gunnlaugsd. Skr. Þuríður Árnadóttir Skr. 66,6 sek. ar frá 9 ungmennafélögum og er
Anna G. Snorradóttir R. 75,3 sek. stigakeppni milli félaganna.
Þórsarar fengu kærkomið
tækifæri til að jafna marka-
tölu sína, er þeir mættu
Austra á Akureyrarvelli á
föstudagskvöldið. Fyrr í
sumar höfðu KA menn skor-
að ellefu mörk hjá Austra,
þannig að búast mátti við
markaregni.
Þórsarar byrjuðu á fullum
krafti og sóttu stíft að Austra-
markinu. Á 9. mín. lék Guð-
mundur Skarphéðinsson upp
hægri kantinn og lék á einn eða
tvo varnarmenn og skoraði síð-
an örugglega. Nokkrum mín.
síðar bætti Oddur Óskarsson
öðru markinu við, eftir mis-
heppnað úthlaup markmanns-
ins. Fleiri urðu mörkin ekki í
fyrri hálfleik, en smám saman
dró af Þórsurum og það sem
eftir var hálfleiksins var mest
um miðjuþóf að ræða.
í síðari hálfleik byrjuðu
Þórsarar galvaskir og á 8. mín.
sótti Guðmundur Skarphéðins-
son upp hægri kantinn og gaf
síðan vel fyrir og þar kom Óskar
Gunnarsson aðvífandi og skor-
aði viðstöðulaust.
Nokkrum mín. síðar gaf
Guðmundur aftur góðan bolta
fyrir markið og Árni Stefánsson
skallaði í netið með tilþrifum. Á
21. mín. bættu Þórsarar fimmta
markinu við er Guðmundur
skoraði eftir að skotið hafði
verið í stöng. Þannig lauk
leiknum með fimrn mörkum
gegn engu.
Leikurinn var aldrei
skemmtilegur því mótspyrna
Austra var svo lítil að þeir áttu
aldrei möguleika á að halda i
við Þórsara, sem hefðu getað
unnið með enn meiri yfirburð-
um.
Úrslit stigakeppninnar:
Umf. Reynir (R.) 165,5 stig
Umf. Skriðuhr. (Skr.) 95,0 stig
Umf. Svarfdæla (Sv.) 57,0 stig
Umf. Þorst. Svörfuður 16,5 stig
Umf. Dagsbrún (Dbr) 14,0 stig
Umf. Árroðinn (Árr) 8,0 stig
Umf. Möðruvallas. (M) 5,0 stig
Umf. Öxndæla (Ö) 4,0 stig
Umf. Vorboðinn (V) 3,0stig
Hjördís Stefánsdóttir Umf.
Dagsbrún setti íslandsmet í
spjótkasti stelpna 12 ára og
yngri, kastaði spjótinu 24,89 m.
Hún átti sjálf eldra metið, sett á
Meistaramóti íslands 14 ára og
yngri í Reykjavík 28. júní sl.
Minningar-
leikur
Á fimmtudagskvöldið verður
hinn árlegi minningarleikur
um Jakob heitinn Jakobsson.
Þá leika toppliðin í fyrstu og
annarri deild, Valur og KA.
4.DAGUR
DAGUR.5