Dagur - 31.07.1980, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR'
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
1 AKUREYRI
Akureyri, þriðjudagur 29. júlí 1980.
53. tölublað
mmmmmmmmmmmmmmmmtmmBammmmmmBmmmmaammammBBSBmmmm
LXIII. árgangur.
Séð inn Eyjafjörð.
Mynd: S. Þ.
Fyrsta blaðið litprentað:
Merk þáttaskil
í útgáfusögu Dags
Dagur hefur nú tekið í
notkun fleiri einingar við
prentvél sína, sem gerir
kleift að prenta blaðið í
fjórum litum, þ.e. full-
komnar litmyndir, eins og
lesendur sjá á þessu fyrsta
litprentaða eintaki. Þessi
viðbótartæki komu til
Akureyrar fyrir tæpum
hálfum mánuði og hefur
verið unnið að uppsetningu
þeirra síðan.
Þeir möguleikar sem opnast
með tilkomu þessara tækja
marka enn ein þáttaskil í út-
gáfusögu Dags. Eins og áður
sagði verður hægt að prenta
fullkomnar litmyndir í blaðinu,
auk þess sem hægt verður að
stækka blaðið upp í allt að 24
síður. Þá má geta þess, að í
Prentverki Odds Björnssonar,
þar sem prentvélin stendur og
blaðið er prentað, eru tæki til
litgreiningar á Ijósmyndum.
Að sögn fróðra manna er
prentvél Dags sú alfullkomn-
asta utan Reykjavíkur og jafn-
framt sú nýjasta sem til er í
landinu og sú eina utan
Reykjavíkur, sem prentar af
rúllum. Við uppsetningu á vél-
inni hafa unnið Clay Burnham
frá King-Press fyrirtækinu í
Bandaríkjunum, ásamt Herði
Svanbergssyni, verkstjóra í
prentsal og öðrum starfsmönn-
um POB.
Eins og gefur að skilja er lit-
prentun nokkuð dýr og því
mega lesendur ekki búast við
því að litmyndir eins og nú
birtast í blaðinu verði daglegt
brauð. Hins vegar verður haus
blaðsins og sitthvað fleira í lit í
framtíðinni og blaðið vonandi
fallegra og frísklegra í útliti.
Dagur óskar sjálfum sér og les-
endum sínum til hamingju með
áfangann.
Forsetaskipti
Vigdís Finnbogadóttir tekur við
embætti forseta Islands á morg-
un, föstudaginn 1. ágúst.
Innsetningarathöfnin hefst með
því, að forsetaefnið gengur úr Al-
þingishúsinu yfir í Dómkirkjuna,
ásamt fráfarandi forseta og for-
setafrú, auk handhafa forsetavalds
og nokkurra embættismanna. I
Dómkirkjunni stýrir biskup íslands
guðsþjónustu, en að henni lokinni
verður gengið til Alþingishússins,
þar sem forseti Hæstaréttar lýsir
forsetakjöri og útgáfu kjörbréfs og
mælir fram eiðstafinn, sem Vigdís
Finnbogadóttir undirritar.
Að loknu ávarpi og árnaðarósk-
um forseta Hæstaréttar gengur
hinn nýkjörni forseti úl á svalir Al-
ingishússins, en því næst ávarpar
hann boðsgesti, sem verða um 150,
í sal neðri deildar Alþingis og
þessari virðulegu en látlausu at-
höfn lýkur svo með því að þjóð-
söngurinn verður sunginn.
Litprentun fyrsta blaðsins undirbúin í P.O.B.