Dagur - 12.08.1980, Blaðsíða 7
Keppendur skráðir til leiks. Mynd: H. Sv.
fþrótta- og leikja-
námskeið
í sumar var haldið leikja- og
íþróttanámskeið á vegum
Æskulýðsráðs Akureyrar, eins
og venja hefur verið undanfarin
ár. Kenndir voru boltaleikir,
frjálsar íþróttir og ýmsir leikir
aðrir og lauk námskeiðinu með
keppni á íþróttavellinum. Einnig
fór fram víðavangshlaup, þar
sem rösklega 100 börn hlupu.
Námskeiðinu var skipt í fjóra
hópa og var kennt við barnaskóla
bæjarins. Einnig var farið í Vagla-
skóg með allan hópinn og dvalist
þar í einn dag. Umsjón með leikja-
og unglinganámskeiðunum hafði
Anna Hermannsdóttir en henni til
aðstoðar voru Sigríður Kjartans-
dóttir og Anna Maria Richards-
dóttir. Hér fara á eftir úrslit
íþróttamótsins og víðavangs-
hlaupsins:
Úrslit úr íþróttamóti Leikja- og
íþróttanámskeiðs.
Stúlkur
Fæðin^arár: 1974 stig
1. Guðrún Ýr Sigbjörnsdóttir L. 1369
2. Kristín Einarsdóttir G 1314
3. Hjördís Þórhallsdóttir L. 1219
Fæðingarár 1973 stig
1. Harpa Hallsdóttir G. 1421
2. Gunnhildur Lilý Magnúsdóttir B. 1404
3. Bjarghildur Pálsdóttir G. 1407
Fæðingarár 1972 stig
1. Anna Heiða Harðardóttir B 2033
2. Anna Brynja Smáradóttir L. 1862
3. Guðrún Gísladóttir L 1848
Fæðingarár 1971 stig
1. Þorgerður Einarsdóttir G. 2426
2. Rakel Reynisdóttir L. 2301
3. Ása Þrastardóttir L. 2287
Fæðingarár 1970 stig
1. Álfheiður Pálína Fjölnisd. G. 2196
2. Gígja Björk Valsdóttir L 2057
Fæðingarár l%8og 1%9 stig
1. Eydís Benediktsdóttir G. 3062
2. Katrín Káradóttir L. 3022
3. Harpa Smáradóttir G. 2859
Drengir
Fæðingarár 1974 stig
1. Eggert Högni Sigmundsson L. 1787
2. Arnar Sigurðsson G. 1615
3. Þorvaldur Sigbjörnsson L. 1531
Fæðingarár 1973 stig
1. Ásgeir Hjaltason O. 2310
2. Friðrik Hreinsson L. 2257
3. Steindór Gíslason G. 2226
Fæðingarár 1972 stig
1. Helgi Már Hannesson O. 2664
2. Ásmundur Arnarsson L. 2417
3. Sverrir Guðmundsson B. 2309
Fæðingarár 1971 stig
1. Skafti Ingimarsson B. 2946
2. Halldór Sveinn Kristinsson L. 2925
3. Rúnar Magnússon B. 2640
Fæðingarár 1970 stig
1. Guðmundur Guðmundsson B. 3067
2. Þorsteinn V. Guðmundsson G. 2980
3. Haukur Hauksson L. 2667
Fæðingarár 1968 og 1%9 stig
1. Adam Traustason L. 3368
2. Viðar Garðarsson O. 2784
Víðavangshlaup 25/7 ’80
Úrslit 9-12 ára.
Drengir tími
1. Adam Traustason f. ’68 L. 12:53
2. Viðar Garðarsson f. '69 O. 13:18
3. Gísli Jóhannesson F. ’70 L. 13:43
Stúlkur tími
1. Álfheiður P. Fjölnisd. f. '70 G. 14:31
2. Eydís Benediktsd. f. ’69 G. 15:53
3. Harpa Smáradóttir f.’69 G. 15:57
Úrslit 6-8 ára
Drengir tími
1. Vilhelm Þór Vilhelms. f. '12 B. 9:25
2. Hrafn Davíðsson f. '12 O. 9:51
3. Helgi Már Hannesson f.’72 O. 10:21
Stúlkur tími
1. Anna Heiða Harðard. f. '12 B. 9:46
2. Alma Sif Stígsdóttir f. '12 L. 10:48
3. Hildur Sigbjörnsdóttir f. '12 G. 11:11
Limbómeistari var Harpa Smáradóttir, fór
undir 0.65 m, næst komu Adam Traustason
og Rakel Reynisdóttir en þau fóru undir0.70
m.
Jónas frá Brekknakoti:
Sekur fundinn
borið að greiða kr. 45 í sekt. En
Mér láðist að skila bók í Amts-
bókasafnið, og mér barst í dag
póstlögð tilkynning og sektarkrafa,
kr. 350.
Þetta var lítt lesin, þýdd stráka-
bók, sem ég var að kynna mér,
„Elvis, Elvis“ hét hún. Hún hafði
falið sig í vitlausum bókabunka og
var orðin 9 daga á eftir áætlun. Ég
tók auðvitað bílinn, steig í botn og
skilaði bók og sekt. Þá settist ég við
blaðahornið að venju, rakst á
Vísisblað frá 3 þ.m. þar sem kynnt
er sú regla við bókasafn í Reykja-
vík, að fella niður sektir fyrir van-
skil bóka í júlímánuði og reynist
þetta mjög vel, bækur koma fram,
sem lengi hefur vantað — (ótti við
háa sekt hindrað skilsemi?). Annars
er sekt þar miðuð við 5 kr. fyrir
daginn, þegar of seint er skilað.
Eftir því hefði mér í þessu tilfelli
„sinn er siður í landi hverju" og
mismunur þessi er vitanlega ekkert,
sem mér — eða öðrum — dregur,
en reglur Amtsbókasafnsins í þessu
efni eru mér alls ókunnar og mun
svo um fleiri. Mætti ekki úr því
bæta? En það skal viðurkennt, að
vel gæti skeð, að þær væru þar uppi
á vegg hengdar, án þess athygli mín
rumskaði.
Ég kem mjög oft í „safnið" mér
til gagns og ánægju og þakka þar
ágæta þjónustu, fæ þar marga tugi
bóka árlega, m.a. til glaðningar
aldraða fólkinu í Hlíð.
Ég minnist þess, að það skeði
einu sinni — fyrir nokkrum árum
— að ég skilaði bók of seint og
greiddi 10 kr. í sekt. Það skeði og
eitt sinn sl. vetur, að bók, sem ég
var að ljúka lestri á fyrir Hlið-
ar-„fjölskylduna“, kom fám dög-
um of seint til baka, en ég þó látinn
sleppa við sektina. Ég gætti þess
ekki að spyrja um gildandi reglur.
Því fór nú svona með Elvis litla.
Vara mig næst. Líka safnsins
vegna. Frímerki eru dýr.
„Brekknakoti" 9. júlí, 1980.
J. J.
Óskum að ráða
stúlku til afgreiðslustarfa. Upplýsingar í Versluninni
Skemmunni Brekkugötu 3.
— Refarækt
(Framhald af bls. 1).
Grund, 30 að Lómatjörn og 100 til
Grávöru við Grenivík, en þrír sið-
asttöldu staðirnir eru í Höfða-
hverfi. Milli 50 og 60% læðanna
gutu, sem er mjög gott á fyrsta ári,
en búast má við að um 90% gjóti á
næsta ári.
Tómas sagði að mikil eftirspurn
væri eftir refaskinnum á mörkuð-
um erlendis og verðið sem nú fæst
fyrir hvert skinn er á bilinu 27-30
þúsund krónur. Ef dýrin eru seld
sem lífdýr, eins og horfur eru á með
flest dýranna núna, greiðist 70%
aukaálag á verð skinnanna. Af-
rakstur búanna fjögurra er því um
33 milljónir miðað við að allt verði
pelsað, en 56 milljónir miðað við að
allt fari i lífdýr. Reiknað er með að
lífdýr verði seld til Skagafjarðar og
Vestfjarða, að minnsta kosti.
Tómas Stefánsson sagði að tals-
verð vinna væri að hugsa um refina
og að þeir þyrftu umönnunar við
upp á hvern dag. Taldi hann að
refarækt gæti orðið heppileg auka-
búgrein með kúabúi. Tómas hefur
nú lokið störfum fyrir Grávöru og
landbúnaðarráðuneytið og hyggst
setja á stofn eigið refabú. Sá staður
sem komið hefur helst til greina er i
Krísuvík, en þar eru ónotuð gróð-
urhús, sem eru heppileg til þessara
nota með nokkrum breytingum.
— „hin þöglu svik“
(Framhald af bls. 4).
manna þurkaðar út. í stað þess er
á næsta degi að helst virðist, risið
á staðnum útibú frá öðru félagi og
auðvitað er hinn sami dándis-
maður þar við stjórn. Þess verður
ekki vart að skotið sé á stjórnar-
né fulltrúafundi i kaupfélaginu.
Þarna er enginn aðdragandi.
Kaupfélagsstjórinn er einvaldur!!
Hvers er að vænta af venjulegu
fólki sem iítil eða engin kynni
hefur haft af samvinnumálum,
þegar maður sem telur sig ábyrg-
an höfund og til stórra hluta fær-
an, er svo fáfróður, eða á hinn
bóginn svo haldinn ofstæki, að
hann lætur sem að þetta geti
gerst?
Mér er ekki kur.nugt hvort eða
hvað, hefur verið ritað í blöð um
kvikmyndina Óðal feðranna. Þó
mun ég hafa rekist á tvær að-
finnslugreinar af hendi sam-
vinnumanna, en báðar þykir mér
skrifaðar af helsti áberandi lin-
kind. Og nú leyfi ég mér að spyrja
framámenn kaupfélaganna, sem
bæði eru margir og merkir: Ætl-
ið þið að láta hinn fjandsamlega
áróður sem á lofti er haldið í
kvikmynd þessari, sem vind um
eyru þjóta?
Hvareru nú arflakar Benedikts
á Auðnum, Hallgríms Kristins-
sonar og Jónasar Jónssonar? Ver-
um minnugir þess, að „þau eru
verst hin þöglu svik, að þegja við
öllu röngu."
Jon Bjarnason,
frá Garðsvík
DAGUR.7