Dagur - 21.08.1980, Page 8

Dagur - 21.08.1980, Page 8
Jón Friðriks- son bæjar- stjóri Ólafs- fjarðar Jón Friðriksson. sveitarstjóri Skútustaðahrepps, hefur verið ráðinn bæjarstjóri í Ólafsfirði. Jón tekur við starfinu af Pétri Má Jónssyni, sem hefur gengt þvi undanfarin ár. Jón hóf starf sem sveitarstjóri Skútustaða- hrepps sumarið 1978 og tekur við bæjarstjórastarfinu 1. des- ember. Sveitarstjórn Skútu- staðahrepps er búin að ákveða að auglýsa starf sveitarstjóra laust til umsóknar. HEKLA GERDI MANNI RUMRUSK I FLATEY Mikið hefur verið um það rætt í blöðum, hvenær fyrst hafi orðið vart við eldgosið í Heklu. Skeikar þar yfirleitt ekki nema örfáum minútum. En það er at- hyglisvert, að fólk sem statt var í Flateyjardal fann greinilega þegar gosið byrjaði, svo og maður sem staddur var í Flatey, þó svo að fólkið hafi ekki gert sér grein fyrir því í fyrstu, hvað væri að gerast. Aðalfundur SSA á Vopnafirði Sigurður Gunnarsson, Holta- götu 12 á Akureyri, var ásamt tæp- um tveimur tugum manna í Flat- eyjardal, nánar tiltekið við gamla kirkjugarðinn á Brettingsstöðum, og heyrði fólkið einhvern tímann á tímabilinu frá 13.10-13.20 á sunnudag greinilega hvelli, ekki ósvipaða dempuðum sprengingum, sem þó virtust ekki vera í mikilli fjarlægð. Sigurður sagði, að fyrst hafi sumir fundið eins konar fiðring í jörðinni, en síðan hafi kontið ntikill hvellur og meiri en þeir sem á undan voru gengnir og þá hafi allir fundið fyrir greinilegum hræring- um í jörðinni. Síðan komu aftur minni slög og óreglulegri. Stóð þetta í 4-5 mínútur. Fólkið gerði sér enga grein fyrir því hvað þetta var og voru uppi ýmsar getgátur. Héldu menn helst að holur bakki hafi hrunið ofan í læk skammt frá og var gengið með læknum til að reyna að finna verks- (ummerki eftir hrunið. Ekkert fannst að sjálfsögðu, en þegar fréttist af gosinu síðar, voru menn ekki lengur í neinum vafa um hvað valdið hefði hvellunum og tit- ringnum. Þá sagðist Sigurður hafa rætt við Eystein Gunnarsson frá Húsavík. Hann var staddur úti í Flatey og ætlaði að leggja sig eftir hádegis- verð, þegar hann heyrði spreng- ingarnar, sem voru dempaðar en virtust þó ekki langt undan. Þetta allt gerðist um svipað leyti og menn sáu Heklu byrja að gjósa. Rætt um stóriðju og orkumál Aðalfundur Sambands sveitar- félaga á Austurlandi veröur haldinn á Vopnafiröi 21. og 22. ágúst og í franihaldi af honum veröur sameiginlegur fundur stjórnar SSA og þingmanna kjördæmisins um orkumál. Að sögn Halldórs Ásgrímssonar, alþingismanns. skipa atvinnumálin langstærstan sess á aðalfundinunt. Rætt verður unt fiskveiðistefnuna og flytur Steingrímur Hermanns- son, sjávarútvegsráðherra, fram- sögu í því máli, og fleiri erindi verða unt fiskveiðarog fiskvinnslu. Þá verður fjallað unt orkufrekan iðnað og er þetta í fyrsta skipti sem það mál er tekið beint á dagskrá aðalfundar SSA. Er það gert í framhaldi af sameiginlegri ályktun sveitarstjórna Eskifjarðar og Reyð- arfjarðar, þar sem skorað var á stjórnvöld að hlutast til um að i tengslum við Fljótsdalsvirkjun verði komið á stóriðju við Reyðar- fjörð. Um stóriðjumálin sagði Halldör Ásgrímsson, að á það hefði skort, að þessi mál væru rædd í nógu mikilli hreinskilni. Menn hafi ekki beinlínis sett sig á móti stóriðju í hvers konar mynd. en verið var- kárir. Nú væru menn tilbúnir til að ræða málin og meta jákvæðar og neikvæðar hliðar stóriðju og áhrif- anna sem hún gæti haft á líf manna, atvinnu í fjórðungnum og umhverfi. Hann sagði að þessi mál tengdust því, að Austfirðingafjórðungur væri nú í orkusvelti og þar væru miklar ónýttar orkulindir. auk þess sem menn vildu gjarnan meiri breidd í atvinnulífið. Þá væri ljóst, að taka þyrfti ákvörðun um næstu stórvirkjun næsta vetur og þá væri nauðsynlegt að vita um mögulega nýtingu orkunnar. Helst hefur verið rætt unt járn- blendiverksmiðju fyrir austan, þar sem slík frantleiðsla þyrfti minni mannafla í upphafi en t.d. álverog mengun væri minni. auk þess sem eldsneytisframleiðsla væri ekki í næsta sjónmáli. Siglufjörður: Þessi mynd er dæmigerð fyrir þá þróun sent orðið hefur i sanigöngumálum þjóðarinnar. Bifrciðin hefur nú rutt hestinum, áður þarfasta þjóninum, úr vcgi og incga hestanicnn láta sér Ivnda að ríða utan vega, en þar licfur blikkbcljan öll völd. Mynd: H. Sv. Vinna hafin Siglufirði 19. ágúst. Það hefur verið fremur dauft yfir atvinnulífi hér á Siglufirði i sumar. Frystihús Þormóðs ramma fór af stað fyrir viku eftir langt hlé og á mánudag hefst vinna á ný hjá ísafold. Það hefur verið unnið hjá Sigló síld í sum- Vilhjálmur á Syöra-Lóni látinn Cunnarsstöðum í Þistilfirði 19. ágúst. Nýlátinn er Vilhjálmur Guð- mundsson, hreppstjóri á Syðra- Lóni. Vilhjálmur var mikill merkismaður og foringi i héraði. Hann var 67 ára gamall er hann lést s.l. mánudagsmorgun. Ó.H. Þrír Ólafar úti Cunnarsstöðum í Þistilfirði 19. ágúst. Heyskap er nú lokið — það er þá ekki nema eitthvað óverulegt sem menn eru enn að reyta. Heyfengur er með minna móti að vöxtum. Sérstaklega á þetta við um innri bæina þar sem tún voru skemmd. Ég geri þó ekki ráð fyrir að menn þurfi að kaupa hey í haust. Heyin munu vera mjög góð. Afli handfærabáta sem róa frá Þórshöfn mun vera sæmilegur og nú eru stærri bátarnir komnir á dragnót. Afli dragnótabátanna er minni en vant er að vera í upphafi vertíðar, en fyrstu dagarnir eru venjulega hvað bestir. Þrír Ólafar eru nú í Noregi að skoða togara. Þetta eru þeir Ólafur Rafn Jónsson, sveitarstjóri á Þórs- höfn, Ólafur Kjartansson, fram- kvæmdastjóri Rauðanúps, og Ólafur Aðalbjörnsson, skipstjóri á Rauðanúpi. Þeir eru að skoða árs- gamlan togara sem er talinn henta vel fyrir okkur og þá á Raufarhöfn. Ætlunin er að togarinn, ásamt Rauðanúpi, landi til skiptis á stöð- unum. Miklar vonir eru bundnar við útgerð togaranna. Talað er urn að nýja skipið komi til landsins í nóvember. Ö.H. ar, en nú er búið að boða þar uppihald vegna dósaskorts. Annars er stöðugt verið að segja upp starfsfólki hjá Sigló, en það er endurráðið jafnharðan. Sum- ar konurnar munu nú eiga ein 7 uppsagnarbréf sem þær hafa fengið í gegnum tíðina. Ástæðan fyrir þessum tíðu uppsögnum eru yfirst andandi rekstrarerfið- leikar. Hins vegar er svo mikill barlóm- ur í þeim sem stjórna fyrirtækjun- um, að það liggur við að fólk fari til vinnu með trega. Svo er búið að hamra á taprekstri að sjálfsagt eru menn að gera fyrirtækjunum ógagn með því að mæta. Að undanförnu hefur verið reyt- ingur hjá trillunum. Og handfæra- bátur sem hefur róið á Skagagrunn hefur gert það gott. Stálvíkin kom hingað inn áður en farið var til Englands. Úr skip- inu var landað 30 tonnum af ufsa og 2 guðlöxum, sem skipstjórinn og stýrimaðurinn ætla að láta stoppa upp. Sagan segir að það eigi að stilla löxunum upp heima hjá þeim og þar muni þeir minna þá sem heima sitja á sjómennina. Það gengur örugglega vel í öðru tilfell- inu því vöxturinn er svipaður. S.B. DAGUR Af óviðráðanlcgiini ástæðum hófst prcnt- un þriðjudagsblaðsins ckki fyrr cn sncmma í gærmorgun. Að öllu forfalla- lausu átti þriðjudagsblaðið að hafa borist kaupcndum á miðvikudag. Kaupcndur og auglýscndur cru beðnir velvirðingar á scinkuninni. s ra X 1»ÍI "P gJ Jl 0 Bæjar- yfirvöldum þakkað Starfsmenn Akureyrarbæjar standa nú í ströngu við að malbika götur bæjarins. Þegar er búið að malbika umtalsverða vegalengd og hafa göturnar tekið stórum breytingum til batnaðar. En um leið og yfirvöldin fá þennan þakkiætisskammt eru þau vinsamlega beðin um að sjá svo til að nýja malbikið verði ekki brotið upp ein- hvern næstu daga. Það er nefnilega of algengt að ný- malbikaðar götur séu skorn- ar í sundur þvers og kruss — rétt eins og bæjarfyrirtækið sem í hlut á hafi ekki gengið nógu vel frá sínum lögnum. 0 Gang- brautarljós Fyrr í vikunni var ekið á barnavagn á gangbraut. Sem betur fer mun barnið sem í vagninum var hafa sloppið við stórvægileg meiðsl og sömuleiðis stúikan sem ýtti vagninum, en hún var að fara yfir Þingvallastrætið á grænu Ijósi. E.t.v. væri rétt að setja upp hindranir sitt hvoru megin við gangbrautina á þessum stað og gera sams- konar ráðstafanir annars- staðar í bænum, svo bílstjór- ar neyðist til að hægja ferð- ina. 0 Næsti ók hratt (búi í næsta húsi við gang- brautarljósið hjá Hríslundi sagði biaðinu, að skömmu eftir slysið, hefði bifreið komið upp Þingvallastræti. Ökumaður var á um 80-90 km. hraða. Hvað hefði gerst ef hann hefði ekið á vagninn? 0 Þjónusta Þegar hafður er í huga opn- unartíma banka og opinberra stofnana verður að segjast eins og er að það virðist ekki vera hlutverk umræddra fyr- irbæra að veita almenningi þjónustu. Það sést e.t.v. best á því hve margt fólk verður að taka sér frí úr vinnu til að fá þar afgreiðslu. Á það hefur verið bent að rýmri opnunar- tími komi fram í hækkuðu verði á þeirri þjónustu er þessir aðilar veita. Sjálfsagt er hægt að reikna út hækk- unina — ef einhver er — á auðveldan hátt, en hefur nokkur tekið saman það tap sem þjóðarbúið verður fyrir vegna óhagkvæms opnunar- tíma stofnana, banka og verslana svo eitthvað sé nefnt?

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.