Dagur - 04.09.1980, Qupperneq 6
Ffladelfía, Lundargötu 12. —
Fimmtudag 4. sept. biblíu-
lestur kl. 20.30. Jóhann
Pálsson talar. Allir vel-
komnir. Sunnudag 7. sept.
almenn samkoma kl. 20.30.
Fórn tekin í kristniboð. Allir
velkomnir.
Hinn 9. ágúst voru gefin saman
í hjónaband í Dómkirkjunni
í Reykjavík, ungfrú Guðrún
Narfadóttir líffræðingur,
Hvassaleiti 85, Reykjavík og
Snorri Baldursson liffræð-
ingur frá Ytri-Tjörnum á
Staðarbyggð. Heimili þeirra
er að Hvassaleiti 85.
mmt —
St. Georgs-gildi. Fundur verður
mánudaginn 8. sept. kl.
20.30. Stjórnin.
Lionsklúbburinn Huginn. Fyrsti
funcfur starfsársins verður
að Hótel KEA fimmtudag-
inn 11. september klukkan
12.15. Annar fundur á sama
stað fimmtudaginn 18. sept-
ember klukkan 12.15.
Stjórnin.
Messað í Akureyrarkirkju n.k.
sunnudag, 7. sept. kl. 11 f.h.
Earl Mors, umdæmisstjóri
Gídeon félaganna predikar,
Guðni Gunnarsson túlkar.
Sálmar 294, 191, 295, 300,
248. B.S.
Áheit á Saurbæjarkirkju: Frá
S.S. kr. 25.000. Frá G.V.A.
kr. 10.000.
Áheit á Munkaþverárklaust-
urkirkju: Frá Sólveigu
Kristjánsdóttur kr. 10.000.
Frá F.H.T. kr. 5.000. Frá
Ingu kr. 10.000. Frá Nönnu
kr. 10.000. Frá I.R. kr. 5.000.
Frá H.H. kr. 12.000.
Gjafir til Munkaþverár-
kirkju: Til minningar um
Guðleifu Þorleifsdóttur frá
Grýtu, kr. 100.000. Gefend-
ur tíu frændsystkini hennar.
Til minningar um Kristján
H. Benjamínsson og Fann-
eyju Friðriksdóttur, Ytri—
Tjörnum, og Auði
Kristjánsdóttur Hólm, kr.
100.000. Gefandi, Svafa
Kristjánsdóttir. Hjartanleg-
ar þakkir. Bjartmar
Kristjánsson.
Fjórðungsþing Norðlendinga:
Ályktanir um þjónustu- og þróunarmál
Áfram starfað að
skipulagningu
samgangna
1. Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Akureyri 31. ágúst til 2.
september 1980 skorar á sam-
gönguráðuneytið að hlutast til
um að haldið verði áfram því
starfi um skipulagningu sam-
gangna sem stjórnskipuð nefnd á
vegum þess ráðuneytis hóf á síð-
asta ári, í samstarfi við lands-
hlutasamtökin og aðra heimaað-
ila. í því sambandi leggur Fjórð-
ungsþingið til að Sam-
gönguráðuneytið og Fram-
kvæmdastofnun ríkisins haldi
kynningarfundi í samstarfi við
flutningsaðila og sveitarstjórnar-
menn á Norðurlandi. Þessir
kynningarfundir leggi grundvöll
að stefnumótun sem síðan verði
lögð fram í tillöguformi fyrir
fjórðungsþing 1981.
í þessu sambandi bendir þingið
m.a. á breyttar aðstæður, sem
skapast hafa vegna hækkaðs
orkuverðs og hljóta að kalla á sem
besta skipulagningu samgangna í
landinu.
Aukin samhæfing
flutninga
2. Þingið bendir á brýna nauðsyn
þess að skipuleggja þannig sam-
göngukerfið að eðlileg viðskipti
og önnur samskipti geti átt sér
stað á milli staða á Norðurlandi
og við aðra landshluta, án þess að
sú umferð þurfi að fara fyrst um
Reykjavík. Aukin samhæfing
flutninga á landi, lofti og legi
myndi sem heild samgöngunet á
milli staða og landshluta. Þetta
telur fjórðungsþingið frumskil-
yrði þess, að vöru og þjónustu-
markaður innan fjórðungsins
nýtist sem best norðlenskum
viðskiptaaðilum og framleiðend-
um.
Komið verði upp
samgöngumið-
stöðvum
3. Fjórðungsþingið ítrekar fyrri
ályktanir um nauðsyn þess að
koma upp samgöngumið-
stöðvum, þar sem flutningaleiðir
mætast, og að tengja saman þá
aðila sem nú annast flutninga-
þjónustu til áð auðvelda sam-
göngutengsl á sem hagkvæmast-
an hátt. Það er ljóst að skipu-
lagning samgöngukerfisins og
6.DAGUR
uppbygging samgöngumiðstöðva
á sér ekki stað nema fyrir til-
stuðlan ríkisvaldsins í samstarfi
við flutningaaðila og aðra
heimaaðila. Þingið leggur til að
innanhéraðssamgöngukerfi verði
endurskipulagt m.a. með því að
nýta betur þá samgönguþætti sem
fyrir eru s.s. póstflutninga, vöru-
flutninga, skólaflutninga o.fl.,
sem meginstofn í almennu sam-
göngukerfi innan héraða i tengsl-
um við verslunarstaði og flutn-
ingaþjónustu.
Gerð verði áætl-
un um viðskipta-
og þjónustu-
starfsemi
4. Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Akureyri 31. ágúst til 2.
september 1980 vekur aíhygli á
því að upplýsingar sem fram
komu á ráðstefnu Fjórðungssam-
bandsins um viðskipta- og þjón-
ustustarfsemi í fjórðungnum
bendi eindregið til þess að þessar
atvinnugreinar búi við skarðan
hlut miðað við hlut verslunar og
þjónustu í atvinnusköpun í land-
inu. Með tilliti til þess að þjón-
ustustarfsemi og viðskipti skapa í
vaxandi mæli aukin atvinnutæki-
færi ásamt iðnþróun leggur
fjórðungsþingið áherslu á, að
bæði samhliða og í framhaldi af
iðnþróunaráætlun verði gerð
áætiun fyrir Norðurland um við-
skipta og þjónustustarfsemi.
Þingið bendir á nauðsyn þess að
gert verði stór átak til.að ná jafn-
vægi á þessu sviði í samanburði
við landið í held.
I þessu sambandi leggur þingið
áherslu á:
1. Bætt verði skilyrði heild-
verslunar og þjónustuaðila,
sem reka viðskipti sín frá
Norðurlandi þannig að ekki
gæti aðstöðumunar í rekstri
vegna staðsetningar.
2. Stuðlað verði að sem
greiðustum samgöngum frá
helstu viðskipalöndum til
Norðurlands á framhalds-
farmgjöldum.
3. Samgöngutengsl verði við
það miðuð að þjónustu- og
viðskipafyrirtæki á Norður-
landi njóti nálægs markaðar.
4. Bættur verði reksturs-
grundvöllur dreifbýlisversl-
unar og þjónustustarfsemi
sem býr við þröngan markað.
þannig að þessir aðilar hafi
skilyrði til að bjóða íbúum
sinna markaðssvæða upp á
viðunandi þjónustu og vöru-
framboð, sem ella þarf . að
sækja á kostnaðarsaman hátt
til stærri markaðssvæða.
5. Leitað verði samstarfs við-
skipa- þjónustuaðila og opin-
berra aðila um uppbyggingu
sameiginlegrar starfsaðstöðu,
þar sem saman geti farið á
einum stað verslun, þjónustu-
starfsemi og opninber stjórn-
sýsla. Slíkar viðskipta- og
þjónustumiðstöðvar nái til
aðila, þótt þeir fylgi ólíkum
rekstrarformum sem hafi með
sér verkefnaskiptingu. Telur
fjórðungsþingið nauðsynlegt
að sett verði lög um sérstaka
lánafyrirgreiðslu við verslun-
ar- og þjónustumiðstöðvar og
þeim veitt fyrirgreiðsla á borð
við iðngarða.
6. Byggðasjóður stuðli að,
með lánafyrirgreiðslu að efla
uppbyggingu almennrar
þjónustustarfsemi.
7. Haldið verði áfram í sam-
starfi við þjónustu- og við-
skiptaaðila að afla upplýsinga
um möguleika til eflingar við-
skipta og þjónustugreina inn-
an Norðurlands. Á grundvelli
þeirra verði í samráði við
Byggðadeild Framkvæmda-
stofnunar ríkisins sköpuð nú
atvinnutækifæri á þessum
sviðum.
8. Á vegum Fjórðungssam-
bands Norðlendinga verði
haldnfr fundir með viðskipta-
og þjónustuaðilum til mótun-
ar atvinnumálastefnu á sviði
viðskipta og þjónustustarf-
semi.
9. Stefnt verði að aukinni
kynningu á vöru- og þjón-
ustuframboði milli norð-
lenskra aðila og á almennum
markaði. í þessu sambandi
verði hafin undirbúningur að
kynningarbæklingi.
10. Sett verði lög um
flutningsráð ríkisstofnana og
þess gætt að leita umsagnar
þess áður en ríkisstarfsemi er
staðsett. Jafnframt verði unn-
ið að eðlilegri dreifingu opin-
berrar þjónustu með það fyr-
ifaugum að íbúar byggðanna
geti fengið sem næst sér al-
menna þjónustu á sviði
stjómsýslu, heilbrigðismála
og skólamála, og í sem mestu
samræmi við skiptingu fjórð-
ungsins í atvinnu- og þjón-
ustusvæði.
Faðir okkar
ÞORMÓÐUR SVEINSSON,
Rauðumýri 12,
sem lést 28. ágúst, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju,
föstudaginn 5. sept. kl. 13.30.
Rannveig Þormóðsdóttir,
Ingólfur Þormóðsson,
Eiríkur Þormóðsson.
f
Maðurinn minn og faðir okkar,
ÁRNI VALDIMARSSON,
sem andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 2. september
sl. verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 9. sept-
ember n.k. kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hans, vinsamlega láti Dvalarheimilið
Hlíð njóta þess.
Ágústa Gunnlaugsdóttir,
Sverrir Árnason,
Ragnar Árnason,
Emma Árnadóttir,
Haukur Árnason,
Unnur Berg Árnadóttir,
Hörður Sverrisson.
Öllum, sem glöddu okkur á gullbrúðkaupsdaginn
27. ágúst, með skeytum, blómum, gjöfum og heim-
sóknum, fœrum við innilegustu þakkir.
KRISTLAUG OG VALDEMAR,
Halldórsstöðum I
Fjórðungsþing Norðlendinga:
Ályktanir fjórðungs-
og allsherjarnef ndar
Um f jármál
fræðsluskrifstofu
Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Akureyri 31. ágúst til 2.
september 1980 beinir þeim
eindregnu tilmælum til þing-
manna fjórðungsins að þeir beiti
sér fyrir því að nú þegar verði
fundin varanleg lausn á fjárhags-
vanda fræðsluskrifstofa.
Þingið lýsir fullum stuðningi
við þær hugmyndir að tillögum til
breytinga á lögum um grunnskóla
er formenn og framkvæmda-
stjórar landshlutasamtaka sveit-
arfélaga og fræðslustjórar lands-
ins hafa lagt fram til lausnar
þessu máli.
Umræddar hugmyndir að til-
lögum verði, ásamt greinargerð
Fjórðungsráðs, sendar þing-
mönnum fjórðungsins með þess-
ari álvktun. Með þessari tillögu
eru fylgiskjöl 1 og 2.
Um sjávarútvegs-
mál
Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Akureyri 31. ágúst til 2.
september 1980 bendir á, að já-
kvæð byggðaþróun í fjórðungn-
um á undanförnum árum er fyrst
og fremst að þakka útfærslu
landhelginnar og aukinni útgerð
og fiskvinnslu á Norðurlandi.
Þingið leggur áherslu á, að við
mótun nýrrar fiskveiðistefnu
verður að setja það að aðalmark-
miði að afrakstur þjóðarbúsins af
fiskveiðum og vinnslu verði sem
mestur, þegar til lengri tíma er
litið.
Þinginu er ljóst, að við val leiða
að settu marki verði að taka tillit
til markaðslegra, atvinnulegra og
félagslegra aðstæðna og stað-
bundinnar sérstöðu.
Sérstaklega vill þingið benda á,
að vöruvöndun er ein aðalfor-
senda sterkrar markaðsaðstöðu
og leggur áherslu á að auka þurfi
samstarf fiskvinnsluaðila og út-
gerðar til að ná þessu marki.
Um tekjustofna
sveitarfélaga
Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Akureyri 31. ágúst til 2.
september 1980 leggur áherslu á
aukna valddreifingu m.a. þannig
að sveitarfélögunum verði falin
aukin verkefni og meira frum-
kvæði gagnvart ríkisvaldinu.
Samhliða þessu telur þingið
nauðsynlegt að fram fari hlutlægt
mat á tekjustofnaþörf sveitarfé-
laganna miðað við það hlulverk
sem þeim yrði falið. Á niðurstöð-
um slíks mats verði tekjustofnar
markaðir.
Um umdæma-
skipulag
Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Akureyri 31. ágúst til 2.
september 1980 telur að samein-
ing og samvinna sveitarfélaga sé
æskileg og leiði til félagslegrar
jöfnunar í landinu. Sveitarstjórnir
eru eindregið hvattar til að kjósa
sameiningarnefndir á ákveðnum
svæðum. Nauðsynlegt er að
nefndirnar hafi aðgang að sér-
fræðilegri aðstoð við könnun á
þeim breytingum, sem til greina
koma á umdæmaskipulagi. Þing-
ið skorar á Félagsmálaráðuneytið
að veita fé tii slíkrar þjónustu.
Fjórðungsþingið varar ein-
dregið við því að lögbinda um-
dæmaskipulag og sameiningu
sveitarfélaga nema að undan-
genginni könnun á því, að al-
mennur vilji sé fyrir þeirri skipan,
sem stefnt er að.