Dagur - 04.09.1980, Blaðsíða 8

Dagur - 04.09.1980, Blaðsíða 8
m DAGUR Akureyri, fimmtudagur 4. september Verslunarmiðstöðin í Glerárhverfi Fyrsta verslunin í vor Afla landað á Siglufirði. Mynd: á.þ. Hita upp bryggju Siglufirði, 29. ágúst. Nú er unnið af fulium krafti í báðum frystihúsunum hér á Siglufirði. Á mánudaginn land- aði Sigluvíkin 115 tonnum og á þriðjudaginn landaði Siglfirð- ingur 150 tonnum. Stálvíkin er svo væntanleg n.k. mánudag með ágætan afla. En nú þegar bæði frystihúsin eru komin í gang er allt stopp hjá Sigló síld. Það er reiknað með að minnsta kosti mánaðar vinnslustöðvun þar vegna blikksskorts, annað hvort eru það dósir eða lok sem vantar. Hins vegar eru þeir hjá Sigló sild að safna saman áhöldum til síldar- söltunar. Nú er verið að steypa þekju á nýju togarabryggjuna. Undir þekj- una er látin hitalögn og er þetta fyrsta bryggjan á landinu sem er með slíkan útbúnað og á vetrum verður þvi hægt að bræða af henni snjó og klaka. Ætlunin er að nota svo afgangsvatn úr Hitaveitunni og frystihúsi Þormóðs ramma ef til kemur. Fólk er byrjað að fara til berja, aðallega inn í Stífluhóla í Fljótum. Berin virðast vera heldur seint á ferðinni og það sprettur lítið af krækiberjum. En þarna er hins vegar allt löðrandi í mýi og eiga heimamenn þessu ekki að venjast. Það má líklega segja að þetta ár sé ár mýflugunnar í Fljótunum. S.B. „Það er áætlað að verslunar- miðstöðin verði fokheld f yrir vet- urinn. Við ætlum að vinna inni í vetur og væntanlega opna fyrstu verslanirnar í vor. Ég geri ráð fyrir að kaupfélagið ríði á vaðið og opni fyrstu verslunina, sem er matvöruverslun,“ sagði Tryggvi Pálsson, framkvæmdastjóri Smárans, sem sér um byggingu verslunarmiðstöðvarinnar í Glerárhverfi. í verslunarmiðstöðinni verður rúmur tugur verslana af ýmsu tagi. Eins og fyrr sagði verður KEA með matvöruverslun, en þarna verður t.d. Dúkaverksmiðjan með vefnað- arvöruverslun, Tónabúðin flytur í verslunarmiðstöðina og Handverk sömuleiðis. Einnig verður í húsinu sportvöruverslun, fataverslun og bankaútibú. Verslunarmiðstöðin í Glerár- hverfi er 4.600 fermetrar að stærð. Húsið er á þremur hæðum. Þetta veglega hús er reist í samvinnu fjölmargra er stunda verslun á Akureyri. Mynd: á.þ. Kemur heim og saman við eigin kannanir „Þessi könnun Verðlagsskrif- stofunnar kemur heim og saman við þær athuganir á vöruverði sem við höfum sjálf- ir gert,“ sagði Björn Baldurs- son, fulltrúi verslunarsviðs KEA, í viðtali við Dag um vöruverðskönnunina í Hrísa- lundi og Hagkaupi, sem sagt var frá í síðasta blaði. Verð- lagsskrifstofan gerði þá könn- un og kom í Ijós að vöruverð í Hrísalundi var tæplega 9,2% lægra en í Hagkaupi. Björn sagði að sem dæmi mætti nefna að samkvæmt könnun sem þeir hafi gert 5. ágúst s.l., hafi verið teknar 60 vörutegundir og hafi könnunin verið marktæk hvað varðar 51 tegund. Þar af hafi 39 verið ódýrari í Hrísalundi, en 12ódýrari í Hagkaupi. í heildina nam verðmunurinn rösklega 10%, Hrísalundi í hag. í Hrísalundi kostuðu þessar vörur 38.413 krónur en í Hagkaupi 42.307 krónur. Munurinn er því tæplega 4 þúsund krónur og segja má að um sé að ræða fjárhæðir sem nema helgarinnkaupum miðl- ungs stórrar fjölskyldu. 500 stærstu fyrirtækin Fyrir skömmu birti Maaneds Börsen, sem er virt viðskipta- tímarit í Danmörku, lista yfir 500 stærstu fyrirtækin á Norðurlönd- um. Miðað var við veltu árið 1979. Samkvæmt listanum er Volvo í Svíþjóð stærsta fyrirtæki Norður- landa, en í öðru sæti er sænska samvinnusambandið KF. Sam- band íslenskra samvinnufélaga er í 157. sæti, en önnur íslensk fyrir- tæki á listanum eru Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna nr. 209, Kaupfélag Eyfirðinga nr. 390, Flugleiðir nr. 410 og íslenska ál- félagið er nr. 454. o t—\ —w— ni—i—i •—• ■—\ r~ C7 r > - MILLJONATJON — Stórfelldar skemmdir unnar á aðveituæð Hitaveitu Akureyrar „Það er búið að vinna stórkost- leg skemmdarverk á aðveituæð- inni til bæjarins,“ sagði Ingi Þór Jóhannsson, skrifstofustjóri Hitaveitu Akureyrar. „Fólk hef- ur kastað grjóti í kápuna, stungið í hana hnífum og gengið á aðveituæðinni.“ Aðveituæðin er klædd með þunnri álkápu og því veitist fólki létt að skemma hana. Svo virðist sem einhverjir hafi að auki notað aðveituæðina sem brú, þar sem hún liggur yfir Eyjafjarðará. Liggur í augum uppi hve mikil hætta er bú- in hverjum þeim sem það gerir. Akureyringar verða að taka saman höndum og sjá til þess að þessum skemmdar- verkum linni. Ingi Þór sagði ennfremur að að- veituæðin væri einkum skemmd hjá gróðrarstöðinni, sunnan Akur- eyrar og á flötunum austan við á. Því miður verður að segja eins og er, að mestu skemmdirnar eru þar sem börn úr vinnuskólanum héldu sig í sumar þ.e. hjá Gróðrarstöð- inni. „Við höfum unnið að því undanfarna daga að gera við þessar skemmdir. Fólk hefur ekki áttað sig á hve kápan er viðkvæm, en ef raki kemst inn fyrir kápuna er sú hætta fyrir hendi að tæringargöt komi á sjálfa pípuna, en þá er voðinn vís. Ljóst er að hér er um milljónatjón að ræða. En þeir sem hér eiga hlut að máli hafa ekki látið sér nægja að skemma kápuna því þeir hafa trampað og hoppað á litlu „boga- bröggunum" sem sjá má víða á að- veituæðinni, með þeim afleiðing- um að þeir hafa verið stór- skemmdir. Ingi Þór sagði að þessi skemmdarverk hefðu verið unnin á löngum tíma og hann vildi taka það fram að það væri ljóst að fullorðnir hefðu verið hér að verki — ékki síður en börn og unglingar. lö m 0 Eru börnin ekki menn? Margir hafa velt því fyrir sér, hvort viðhorf fullorðinna til barna hafi breyst eitthvað af völdum barnaársins og þeirr- ar umræðu, sem á því ári fóru fram um stöðu þeirra í þjóð- félaginu. Dagur þykist þess fuliviss, að viðhorf hafa breyst minna en margir ætla og flestir höfðu vonað. Þrátt fyrir það að menn vilji nú sem minnst hugsa um skattseðil- inn sinn, — nóg sé að berja þau ósköp augum einu sinni, þá vill Dagur hvetja alla þá sem haldnfr hafa verið þeirri blekkingu að viðhorf hafi breyst til barna, að lesa neðstu línuna í leiðbeining- unum aftan á skattseðlinum. Þá kemur glögglega í Ijós, að a.m.k. skattayfirvöld hafa ekki breytt viðhorfum sínum, því þar stendur: „Sjúkra- tryggingagjald barna er reiknað á sama hátt og hjá mönnum“!!! 0 Búiðmeð bitlinga? Það hefur lengi loðað við Framkvæmdastofnun ríkis- ins, að hún væri eins konar bankastofnun og þar væri bitlingunum úthlutað og hrossakaupin gerð. Nú er iðnþróunaráætlun fyrir Norð- urland í burðarliðnum og nánast tilbúin, en frést hefur að yfirmenn t Framkvæmda- stofnun hafi alls ekki verið tilbúnir að leggja blessun sína yfir hana. Þar er nefni- lega gert ráð fyrir nýjum vinnubrögðum, sem binda hendur þeirra sem vilja út- hluta bitlingum. Gert er ráð fyrir að tilteknum fjármunum verði varið í að koma iðnþró- unaráætluninni í fram- kvæmd, en þar með er búið að binda þetta fé og erfiðara um vik að koma við hrossa- kaupum og bitlingaúthlutun- um. Ef af verður er þessi nýi háttur algjör stefnubreyting, sem mun koma allri áætl- anagerð mjög til góða. 0 Ósamræmi Ef verktaki gerir tilboð í hús fyrir opinbera aðila þarf hann að leggja fram tryggingu eins og eðlilegt er, en ef sami verktaki er t.d. að byggja blokk eða raðhús fyrir ein- staklinga er honum ekki gert skylt að leggja fram neina tryggingu. Hins vegar er til þess ætlast að kaupendurnir greiði verktakanum — selj- andanum — háar mánaðar- greiðslur. En hvað gerist ef verktakinn ieggur upp iaup- ana? Kaupandinn hefur ekki fengið þinglýstan samning í hendur og má þakka sínum sæla fyrir ef hann fær eitt- hvað til baka. Er ekki kominn tími til að endurskoða sam- skipti kaupenda og selj- enda?

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.