Dagur - 09.09.1980, Síða 6
Hjálpræðisherinn: Sunnudag-
inn n.k. kl. 13.30 sunnu-
dagaskóli fyrir börn. Kl. 17,
almenn samkoma þar sem
gospelsöngvarinn Willy
Hanssen syngur og talar.
(Ath. breyttan tíma. Allir
velkomnir. Mánudaginn 15.
sept. kl. 16 heimilissamband
og þriðjudaginn kl. 20.30
hjálparflokkur. Allar konur
velkomnar.
Söng- og lækningasamkomur
verða haldnar í Samkomu-
húsinu laugardaginn n.k. kl.
20.30 og í Sjálfstæðishúsinu
sunnudaginn kl. 20.30. Gos-
pelsöngvarinn Willy Hans-
sen ásamt undirleikurum
syngja og tala. Allir hjartan-
lega velkomnir.
Akureyrarkirkja, messað kl. 11
n.k. sunnudag. Sálmar:
21-224-10-505-96. P.S.
13. september. Geitafellshnjúk-
ur — Kringluvatn, grasa-
ferð.
20.-21. september. Öxar-
fjörður, Melrakkaslétta —
haustlitaferð. Ekið í Öxar-
fjörð. Gist að Lundi eða
Raufarhöfn. Ekið um Sléttu.
Komið að Rauðanúp. Brott-
för kl. 8 f.h. laugardag.
Heimkoma kl. 8 e.h. á
sunnudagskvöld.
26.-28. september. Herðu-
breiðarlindir — haustferð.
Skrifstofan er opin á mánu-
dögum og fimmtudögum kl.
18.00-19.30 Sími 22710.
Gjafir til Dvalarheimilisins
Hlíðar. Frá vistkonu kr. ein
milljón. Frá Heklu, Elfu,
Ernu, Kristínu og Svövu,
Heiðarlundi. ágóði af hluta-
veltu kr. 8.300,- Frá
Margréti, Reynilundi og
Unni Elínu, Beykilundi,
ágóði af hlutaveltu kr.
5.500,-. Með þökkum mót-
tekið, forstöðumaður.
Krabbameinsfélag Akureyrar.
Leitarstöð félagsins er opin
miðvikudaga kl. 14-17.
Tímapantanir sama dag kl
17-18 í síma 21592.
íþróttafélag fatlaðra, Akureyri.
Hlutavelta verður í Alþýðu-
húsinu á Akureyri 21. sept.
kl. 14. Félagarog velunnarar
komi munum til Hansínu
Jónsdóttur, Lyngholti 20.
Nefndin.
—HJWUIK
Kiwanisklúbburinn Kaldbakur.
Fundur í félagsheimilinu
Gránufélagsgötu 49,
fimmtudaginn 11. sept. kl.
19.15. Áríðandi að allir
mæti. Stjórnin.
Lionsklúbbur Akureyrar: 1.
fundur fimmtudaginn 11.
sept.
Þökkum af alhug vináttu og samúð við andlát og útför
ÁSRÚNARJÓNSDÓTTUR
frá Hólkoti.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Innilegt þakklæti til allra þeirra er sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og útför
MARGRÉTAR ÁRNADÓTTUR
frá Klængshóli.
Kristján Halldórsson,
dætur, tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til allra er sendu mér gjafir, blóm
og heillaóskir á áttrœðisafmœli mínu. Sérstakar
þakkir eru til barna minna og tengdabarna, sem
gerðu mérdaginn ógleymanlegan. Guð blessiykkur
öll.
SIGGERÐUR BJARNADÓTTIR.
Innilegar þakkir sendi ég börnum mínum, tengda-
börnum, barnabörnum, systkinum, Kvenfélaginu
Hjálpinni og öllum þeim sem glöddu mig með
gjöfum, blómum og skeytum á 80 ára afmœli mínu
1. sept. sl. Guð blessi ykkur öll.
MAGÐALENA ÁSBJARNARDÓTTIR.
rFRABÆRTn
@SANYO
Otrúlega hagstætt verð
Aðeins kr. 629.500,-
GLERÁRGOTU 20 — 600 AKUREYRI — SlMI 22233 — NAFNNUMER 0181-7825
Snorri Arnaldsson, Jóhann Bessason, Jóna Þórsdóttir, Ása I gáfu til sundlaugarbyggingar í Glerárhverfi ágóða af hlutavcltu
Amaldsdóttir, Sigurlaug Skaftadóttir og Alda Bessadóttir, | kr. 6.430. Börnin eru öll búsett í Glerárhverfi.
— Fjölskylduhátíð
(Framhald af bls. 5).
yngstu hlupu bara með pabba
sínum, já allir voru með jafnt
ungir sem gamlir ú þessari eftir-
minnilegu fjölskylduhátíð.
Um kvöldið mættu síðan allir
að félagsheimilinu Melum en þar
var haldið discotek með
dúndrandi fjöri allt kvöldið. Þar
voru dansaðir gömlu dansarnir,
marserað nýjustu discólögin og
að sjálfsögðu gamli góði kokkur-
inn. Um miðnættið var samkom-
unni slitið og hver hélt til síns
heima eftir ánægjulegan dag.
Eflaust hafa hinir yngstu sofn-
að fljótt er heim var komið eftir
að hafa hlaupið, dansað, hoppað
og sungið allan liðlangan daginn
með fjölskyldu sinni. Svona fjöl-
skylduskemmtun sannar það að
ungir og gamlir geta og eiga að
skemmta sér mun meira saman,
yfir svona skemmtun er hress-
leiki, gleði og vinarhugur, allir
eru með og kynslóðabil er ekkert.
Að sjálfsögðu krefst svona
skemmtun undirbúningsvinnu en
undirbúningur og skemmtunin
öll var stjórn félagsins og fram-
kvæmdarnefnd til mikils sóma.
Halldór Sigurðsson.
6.DAGUR
Sjö ár frá valda-
ráninu í Chile
Þann 11. septcnibcr n.k. eru lið-
in 7 ár frá valdaráninu í Chile.
Löglega kjörinn forseti lands-
ins, Salvador Allende, var myrt-
ur og stjórn landsins hrakin frá
völdum Með valdatöku herfor-
ingjaklíkunnar, hófst tímabil
fádæma kúgunar og grimmdar,
tímabil sem stendur enn, og litl-
ar líkur á að því linni á næstunni.
1 tilefni þessa, höfðu Samtök
herstöðvaandstæðinga á Akureyri
ætlað sér að sýna kvikmynd um
Chile og ástandið í landinu. Því
miður hefur dregist, að myndin
komi til landsins, þannig að af sýn-
ingu getur ekki orðið fyrr en síðar,
sennilega 1 októbermánuði. Sýn-
ingin verður auglýst, þegar þar að
kemur.
Þann 11. verður hins vegar hald-
inn fundur um málefni Samtaka
herstöðvaandstæðinga, einkum
fyrirhugaða landsráðstefnu sam-
takannna. Á hann eru boðaðir allir
herstöðvaandstæðingar og þess
vænst að þeir séu endurnærðir eftir
sumarið. Fundurinn verður hald-
inn í Einingarhúsinu, Þingvalla-
stræti og hefst kl. 20.30.
Fréttatilk. frá stjórn
Samt. herst.andst. Ak.
ÍBÚBIN
YAMAHA
PÍANÓ
Kr. 1,540.500,-
[ m m m mm m mm *
ÍUmBUÐIN
sími 22111
Félagsmálastofnun:
Breyttar út-
hlutunarreglur
Félagsmálaráð Akureyrar ákvað
á fundi sínum þann 25. júní sl. að
frá I. sept. skyldi sú venja tekin
upp við úthlutun leiguíbúða á
vegum ráðsins að auglýst verði
eftir umsóknum hvert sinn sem
íbúð er laus til ráðstöfunar, og
skuli umsóknir, sem ekki koma til
greina það skiptið, falla þar með
úr gildi. Komi því aldrei til þess
að umsóknir séu geymdar, og
biðlistar myndaðir um húsnæði
til leigu á vegum FMA Ak. eins
og verið hefur. Við úthlutun
íbúða tekur FMA tillit til að-
stæðna umsækjanda og vega
slæmar aðstæður þyngra á met-
unum en langur biðtimi, en af
þessu leiðir að margir umsækj-
endur telja sig órétti beitta þegar
nýrri umsóknir en þeirra fá út-
hlutun. Með þessu álítur FMR
Ak. að íbúðir komi hverju sinni í
hlut þeirra, sem helst þurfa.
Af sérstökum ástæöum
ertil sölu þessi Willys.
Mjög fallegur bíll, 6 cyl.
Verð 3.2 milljónir.
Upplýsingar í síma 91-
71455 og 91-41073.