Dagur - 18.11.1980, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR*
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
LXIII. árgangur.
Akureyri, þriðjudagur 18. nóvember 1980.
83. tölublað
Loðnu dælt upp úr nót.
Um 30%
meira vatn
Holan við Botnslaug gefur nú um 40 sekúnduítra af
u.þ.b. 80° heitu, sjálfrennandi vatni.
Siglufjörður langhæsti
löndunarstaðurinn
Graskögglar og
grasmjöl tæp
13 þúsund tonn
Síðastliðið sumar var heildar
framleiðsla á graskögglum og gras-
mjöli samtals 12.836 tonn. Það var
tæplega 33% aukning frá árinu
1979. Eins og áður, er mikill munur
á fóðurgildi graskögglanna. Sam-
kvæmt niðurstöðum efnagreininga
frá Rannsóknarstofnun land-
búnaðarins var minnsta innihald af
hrápróteini 4,4% en mesta 21,7%.
Það þarf frá 1,2 kg í eina fóðurein-
ingu (Fe) og upp í 1,6 kg.
Samdráttur
í mjólkur-
framleiðslu
Bráðabirgðatölur hafa verið
birtar um mjólkurframleiðsluna
i október, þar kemur fram að
innvegin mjólk hjá mjólkursam-
lögunum var 19,2% minni en í
október 1979. Samtals tóku þau
á móti 7,8 milljónum lítra á móti
9,6 millj. Iítra á síðasta ári.
Mestur varð samdráttur hjá
mjólkursamlaginu á Blönduósi,
eða um 34%, þar næst kom
mjólkursamlagið á Höfn með
30,6%.
Hjá Mjólkurbúi Flóamanna var
mjólkin 17,2% minni, samdráttur
var hlutfallslega jafnmikill í Eyja-
firði, hjá mjólkursamlaginu í Borg-
amesi var minnkunin 23%, á
Hvammstanga 23,7%, á Sauðár-
króki 21,2% og á Húsavík 19,3%. í
september var samdráttur í mjólk-
urframleiðslunni 8,2% miðað við
sama mánuð 1979. Fyrstu 10 mán-
uði þessa árs hafa mjólkursamlögin
tekið á móti rúmlega 93 milljónum
lítra af mjólk en í fyrra tóku þau á
móti 101 millj. ltr. sömu mánuði,
minnkunin var 7,8%. Smávegis
aukning hefur verið í sölu á ný-
mjólk og rjóma það sem af er árinu,
sala á undanrennu er svo til óbreytt
frá í fyrra, smjörsalan var mun
minni fyrstu 9 mánuði ársins en í
fyrra, en sala á feitum ostum var
um 22,5% meiri en í fyrra.
Þann 1. nóvember s.l. voru
smjörbirgðir í landinu 110 tonn, þá
var til af ostum 1194 tonn.
Loðnuveiðarnar gengu treglega
alla síðustu viku vegna slæmrar
tíðar og ísreks á loðnumiðunum.
Er skip komu út aðfararnótt
sunnudags hafði ísinn hopað
eitthvað og gátu þau kastað, en
veður var hins vegar afleitt
þannig að afraksturinn varð
fremur litill af þeim sökum.
Þrjú skip lönduðu í Krossanesi í
gær og hafa nú borist rösklega 20
þúsund lestir í Krossanesverk-
smiðjuna. Langhæsti löndunar-
staðurinn er Siglufjörður, en þang-
að hafa borist tæplega 70 þúsund
lestir og þar á eftir koma svo
Reykjavík, Bolungarvík og
Krossanes með eitthvað álíka mik-
ið, eða um 20 þúsund lestir.
Að sögn Andrésar Finnbogason-
ar hjá loðnunefnd í Reykjavík er
heildaraflinn á vertíðinni orðinn
300 þúsund lestir. Vertíðin hefur
verið með allmikið öðrum hætti
núna en oftast áður og veldur þar
mestu um kvótaskiptingin á skipin.
Mjög fátítt er að skipin séu öll á
miðunum í einu og keppnin um
loðnuna, sem einkennt hefur
þennan veiðiskap, hefur minnkað
til muna.
Nú keppa menn að því að fylla
sinn kvóta, en jafnframt á sem
hagkvæmastan og skjótvirkastan
hátt. Aðeins einu sinni á vertíðinni
Jarðborinn Narfi, sem nú er við
boranir við Botnslaug í Hrafna-
gilshreppi fyrir Hitaveitu Akur-
eyrar, kom á sunnudagsmorgun
niður á nýja æð á um 800 metra
dýpi. Við það stórjókst vatns-
rennslíð úr holunni og gefur hún
nú um 40 sekúndulítra af u.þ.b.
80° heitu, sjálfrennandi vatni.
Þann 4. nóvember s.l. kom bor-
inn niður á æð á 480 metra dýpi
og fengust þá strax um 20
sekúndulítrar, en þá hafði ekki
verið borað nema í u.þ.b. viku.
Bendir nú allt til þess, að tals-
vert vatn sé að finna í vestan-
verðum Eyjafirði, sem ekki var
fullljóst áður.
Að sögn Vilhelms V. Steindórs-
sonar, hitaveitustjóra, má reikna
með að unnt verði að fá a.m.k.
50-60 sekúndulítra úr holunni við
Botnslaug með dælingu, þannig að
þessi eina hola eykur vatnsmagn til
Hitaveitu Akureyrar um yfir 30
prósent, en það sem af er hefur
mesta vatnsnotkun verið 150
sekúndulítrar.
voru nær öll skipin á miðunum í
senn. Skipin byrjuðu ekki á vertíð-
inni öll í einu, eins og oftast hefur
verið, heldur hafa þau verið að
dreifast á tímabilið sem liðið er frá
því veiðarnar hófust.
í gær spáði batnandi á loðnu-
miðunum og eins og fram hefur
komið hafði ísinn eitthvað hopað.
Vilhelm sagði, að þetta mikla
vatnsmagn úr holunni réttlætti það,
að svæðið yrði virkjað og er stefnt
að því að búið verði að virkja fyrir
næsta vetur, að óbreyttum aðstæð-
um. Haldið verður áfram borun
þessarar holu við Botnslaug og er
enn ekki útséð með hversu mikið
vatn kemur úr henni áður en yfir
lýkur, né hve mikið vatn kann að
vera á svæðinu í heild. Þó má segja
að nú þegar sé ljóst, að þessi góði
árangur við Hrafnagil breyti vatns-
öflunaráformum hitaveitunnar
verulega.
Undanfarið hefur verið unnið að
borun tilraunahola að Reykjum í
Fnjóskadal. Búið er að bora sex
holur og fer þeim borunum senn að
Ijúka. Árangur þessara tilrauna-
borana hefur verið jákvæður.
Metsala
hjá
Iðnaðar-
deild
Salan hjá Iðnaðardeild SlS í
október nam hærri upphæð í
krónutölu en nokkru sinni
áður í einum mánuði hjá
deildinni. Hjá séreignarverk-
smiðjum deildarinnar varð
salan samtals 2.200 millj. kr.,
þar af útflutningur 1.300
millj. kr. Stærstu liðirnir í
þessum sölutölum voru sala
Skinnaverksmiðjunnar Ið-
unnar, 551 millj. kr., og sala
Ullarverksmiðjunnar Gefj-
unar, 471 millj. kr.
Þessar upplýsingar gaf Hjört-
ur Eiríksson framkvæmdastjóri
og hann gat þess einnig að þrátt
fyrir þetta yrði að teljast mjög
erfitt ástand í rekstrarmálunum.
Það er fyrst og fremst vaxta-
byrðin sem leggst með miklurn
þunga á iðnreksturinn og er
farin að skapa þar geysilega
erfiðleika. Kvaðst Hjörtur hafa
miklar áhyggjur af verðbólg-
unni, því að ljóst væri að héldi
hún áfram með sama hraða
væru ýmsir þættir í rekstri Iðn-
aðardeildar sem þyrfti að taka
til algjörrar endurskoðunar.
Heimilt að lóga hundinum
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið hefur staðfest nýja
„Samþykkt um hundahald á
Akureyri,“ sem tók gildi þann 6.
nóvember s.l.
f samþykktinni er ný grein sem
hljóðar svo: „Þegar hundur er tek-
inn úr umferð, skal honum komið í
vörslu í húsnæði, sem Akureyrar-
bær leggur til og er sérstaklega út-
búið til geymslu dýra. Sé hunds
ekki vitjað innan 2ja sólarhringa
frá handsömun hans, er heimilt að
lóga honum. Hættulegum hundi og
hundi, sem eigi er leyfi fyrir, má
þegar lóga. Kostnað af handsöm-
un, geymslu og aflífun hunds
greiðir eigandi."
í samþykktinni kemur fram að
hundahald er bannað á Akureyri,
að undanteknum þarfahundum á
lögbýlum, leiðsöguhundum til
hjálpar blindu fólki og leitarhund-
um til aðstoðar björgunarsveitum.
Hinsvegar er bæjarstjórn heimilt að
veita mönnum, búsettum í bænum,
undanþágu til hundahalds ef hann
— þ.e. eigandinn — getur uppfyllt
sex skilyrði.
Félagsmanna-
prósenta í Aust-
ur-Húnavatns-
sýslu
f nýju Fréttabréfi samvinnu-
félaganna á Blönduósi er gefið
sundurliðað yfirlit um þa3 hvað
stór hluti af þeim íbúum ein-
stakra hreppa A.-Húnavatns-
sýslu, sem eru 16 ára og eldri, séu
félagsmenn í KF. Húnvetninga,
og er það sundurliðað eftir kynj-
um. I ljós kemur að hlutfall karla
er allt frá 83% og niður í 35%, en
hlutfall kvenna sveiflast á milli
57% og 11%. 1 heildina eru 51%
karla og 27% kvenna í félaginu,
sem gerir 40% allra íbúa. Líka er
greinilegur munur eftir búsetu,
því að félagsmenn í sveitahrepp-
um eru 59% af íbúum en í þéttbýli
27%.
Guðlaugur les úr
Pelastikk
Guðlaugur Arason, rithöfundur
mun kynna nýjustu bók sína —
Pelastikk — á setustofu heima-
vistar M.A. í kvöld kl. 20.30. Að-
gangseyrir er kr. 500. Allir vel-
komnir. Bókmenntafélag
Menntaskólans.
Prjónabókin Elfn
Prjónabókin Elín er komin út í
þriðja sinn. Hún hefur að geyma
40 prjónauppskriftir með lit-
myndum, og eru það allt verð-
launauppskriftir úr samkeppni
um prjónaflíkur sem fram fór s.l.
vetur. Bókin er gefin út af Ullar-
verksmiðjunni Gefjun á Akur-
eyri, en ritstjórn annaðist Gunn-
steinn Karlsson auglýsingastjóri
Eiga ekki ruslið
í bókun náttúruverndarnefndar,
sem var að hluta birt í Degi fyrir
skömmu var m.a. talað um
brotajárnshauga við Slippstöð-
ina. Ekki var getum að því leitt
hver ætti þessa hauga, en flestir
hafa víst talið þá i eigu Slipp-
stöðvarinnar. Þannig er því ekki
varið því haugarnir eru eign
Sindra h/f sem fékk lóðina undir
haugana leigða af bænum.
IAUGLYSINGAR OG ASKRIFT: 24167 - RITSTJORN: 24166 OG 23207I