Dagur - 27.11.1980, Blaðsíða 6

Dagur - 27.11.1980, Blaðsíða 6
Muna og kökubasar verður sunnudaginn 30. nóv. í Hótel K.E.A. kl. 15, margir skemmtilegir hlutir til jóla- gjafa og gómsætar kökur. Kvennadeild Slysavarnar- félagsins Akureyri. Sjálfsbjörg og iþróttafélag fatl- aðra, halda kökubasar í Laxagötu 5 sunnudaginn 7. des. kl, 14.00. Tekið á móti brauði frá kl. 11.00 til 14.00. Félagar og velunnarar, verið dugleg að baka. Nefndin. Áafgreiðslu Dags hafa eftirtalin áheit borist til Strandakirkju kr. 5.000,- frá Jónínu Guðmundsdóttur og kr. 5.000,- frá G.A.V. Borgarbíó sýnir í kvöld kl. 9 stórmyndina Kalíkúla. Myndin er mjög berorð um það tímabil í sögu Rómverja er hún fjallar um og er stranglega bönnuð börnum innan 16 ára. TU m I.O.O.F. 2—16211288'A Slysavarnarfélagskonur Akur- eyri. Jólafundurinn verður mánudaginn 1. des. kl. 8.30 í Félagsmiðstöðinni Lundar- skóla. Takið með ykkur bolla. Vinsamlegast skilið munum á basarinn í Skipa- götu 12 laugardag kl. 15-17 og kökum frá kl. 13-14 sunnudag í Hótel K.E.A. Stjórnin. Kiwanisklúbburinn Kaldbakur. Almennur fundur fimmtu- daginn 27. kl. 19.10 í Kiwanishúsinu Gránu- félagsgötu. □ HULD 598011307 IV/V H.&.V. Frá Guðspekifélaginu. Fundur verður laugardaginn 29. nóv. kl. 20.30. Halldór Har- aldsson flytur erindi: Hug- leiðingar um Svami Vivek- amanda og andlega orku. GJAFIR 0G ÁHEIT Á fjörutíu ára afmæli Akureyr- arkirkju barst kirkjunni minningargjöf um frú Helgu Jónsdóttur Skarðshlíð lle. Gefendur eru Ingvi Jón Einarsson, Haukur Einars- son, Guðrún Kristjánsdóttir, Sigríður Pálína Jónsdóttir og Haraldur Sigurgeirsson. Áheit á Akureyrarkirkju kr. 1750 frá E.L. (hluti af happadrættisvinningi). Til Kvenfélags Akureyrarkirkju kr. 10.000 frá hjónum. Til Lögmannshlíðarkirkju kr. 2000 frá H.S.B. Til Strand- arkirkju kr. 50.000 frá N.N. Kr. 1750 frá E.L. kr. 5000 frá H.K. Til Rauðakross íslands kr. 5000 frá H.P. Gefendum eru færðar bestu þakkir. Guð blessi minningu Helgu Jónsdóttur. Birgir Snæ- björnsson. Bjóðum fullkomna viðgerðarþjónustu á sjón- varpstækjum, útvarpstækjum, steríomögnur- um, plötuspilurum, segulbandstækjum, bíl- tækjum, talstöðvum, fiskileitartækjum og sigl- ingartækjum. ísetning á bíltækjum. Slmi (96) 23626 'ZZ/ Glerárgötu 32 • Akureyri Nýja bíó sýnir i kvöld og næstu kvöld kl. 9 myndina Burn- out. Kvikmyndin er næst- um eingöngu tekin innan kvartmílubrautar þar sem þeir færustu keppa. „Burn- out“ er sérstök saga þar sem þér gefst fágætt tæki- færi til að skyggnast inn í innsta hring kvartmílu- keppninnar. Kl. 11 sýnir bi- óið þegar þolinmæðin þrýt- ur. Mchael McBain rekur júdóklúbba í Fíladelfíu. Dag nokkurn verður hann vitni að morði og mætir fyrir rétt og vitnar. Morðingjarnir eru dæmdir og fá þungan dóm en bófaforingi sá er að baki morðinu stóð hefur nú of- sóknir á hendur Michael McBain og hrekur hann úr landi. En Michael verður að lokum nóg boðið og snýst til varnar og kemur þá í ljós að friðsamur maður getur orðið hættulegri en nokkur bófi. Þegar þolinmæOina þrýtur Smekkleg jólakort Út er komið litprentað jólakort með mynd af Auðkúlukirkju. Ágóði af sölu kortanna rennur til viðhalds kirkjunnar. Þeir sem hafa áhuga á að kaupa þessi kort geta snúið sér til Guðrúnar Jakobsdótt- ur, Grund í Svínadal A.-Hún. sími 95-7129 Auðkúlukirkja 6.DAGUR Innilegasta þakklæti flytjum við öllum þeim, sem sýnt hafa okkur hlýhug og virðingu í sambandi við andlát EIRÍKS SIGURÐSSONAR, fyrrverandi skólastjóra. Guð blessi ykkur öll. Jónína Steinþórsdóttir, Hákon Eiríksson, Marta Jóhannsdóttir, Þóra G. Ásgeirsdóttir, Hermann Huijbens og barnabörn. Kökubasar verður í Laugarborg sunnudaginn 30. nóvember kl 14.30. Léttið ykkur jólabaksturinn. Kaffisala. Nefndin. Olíustyrkur Greiðsla olíustyrks fyrir mánuðina júlí-sept. 1980 stendur yfir á bæjarskrifstofunni frá fimmtudegi 27. nóvember til mióvikudags 3. desember. BÆJARRITARI Múrarar - steypufram- leiðendur Steinsteypufélag íslands hyggst efna til eins dags námskeiðs á Akureyri þann 6. des. um niðurlögn og meðferð steinsteypu á byggingarstaó. Fjallað verður meðal annars um: Eiginleika steinsteypu, niðurlögn og aðhlynningu, niðurlögn í þröng mót, fljótandi steypu, vetrarsteypu, eftirlit með steinsteypu o.fl. Skráning þátttakenda verður hjá Möl og Sandi Akureyri, sími 21255 eða skrifst. Rannsóknarstofu byggingariðnaðarins, sími 91-83200. Lífeyrisþegar f S.K.E. 50 ára afmæli Starfsmannafélags K.E.A. verður minnst með kaffisamsæti að Hótel K.E.A. laugar- daginn 29. nóv. n.k. kl. 14.30 e.h. Verið velkomin. . .. Afmælisnefndin. Sveit Stefáns Ragnarssonar efst eftir fimm umferðir Nú er lokið fimm umferðum í sveitakeppni Bridgefélags Akur- eyrar, Akureyrarmóti. Alls spila 14 sveitir sem er mjög góð þátttaka. í fimmtu umferð sem spiluð var s.l. þriðjudagskvöld urðu úrslit þessi: Sigurður Víglundsson — Kári Gíslason 20^4 Páll Pálsson — Siguróli Kristjánsson 20-0 Alfreð Pálsson — Sveit Ferðaskrifstofu Akureyrar 19-1 Magnús Aðalbjörnsson — Gissur Jónasson 20-0 Stefán Vilhjálmsson —• Zarioh Hammad 13-7 Stefán Ragnarsson — Gylfi Þórhallsson 13-7 Jón Stefánsson —' Haraldur Oddsson 20-h 2 Röð efstu sveita er nú þessi: sveit stig 1. Stefáns Ragnarssonar 89 2. Páls Pálssonar 78 3. Alfreðs Pálssonar 75 4. Magnúsar Aðalbjörnssonar 70 5. Stefáns Vilhjálmssonar 68 6. Jóns Stefánssonar 68 7. Ferðaskrifstofu Akureyrar 49 Sveit Stefáns Ragnarssonar hef- ur verið í fyrsta sæti allt frá byrjun mótsins. Auk Stefáns, eru 1 sveit- inni Pétur Guðjónsson, Páll Jóns- son og Þórarinn B. Jónsson. Sjötta umferð verður spiluð n.k. þriðjudagskvöld að Félagsborg. Keppnisstjóri er sem fyrr Albert Sigurðsson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.