Dagur - 27.11.1980, Blaðsíða 7
Æfingar í
skíðagöngu
Skíðaráð Akureyrar mun gang-
ast fyrir æfingum fyrir þá sem
vilja æfa og keppa í skíðagöngu
á þessum vetri. Sérstaklega eru
boðnir á þessar æfingar þeir
sem kepptu í 13-17 ára flokki í
fyrra. Æfingarnar hefjast n.k.
laugardag kl. 14.00 í Kjarna-
skógi og verður Baldvin
Stefánsson þjálfari hópsins. Þá
eru allir sem áhuga hafa á þessu
boðnir velkomnir. Skíðaráðs-
menn hyggjast nú leggja meiri
áherslu á norrænu greinarnar
en gert hefur verið, og verður
t.d. á næstu Andrésar Airiar-
leikjum keppt í göngu og stökki
12 ára og yngri. Þá er fyrirhugað
svokallað „Trimmmót“ í skíða-
göngu í trimmbrautinni í
Kjamaskógi í desember, og
verður það fyrir almenning.
Kappræöu-
fundur
verður haldin í Sjálfstæðishúsinu kl. 2.00. laugar-
daginn 29. nóv.
Frummælendur: Hannes Hólmsteinn Gissurarson,
Vésteinn Ólason og Tryggvi Gíslason.
Mætum öll í góðu skapi.
Herstöðvaandstæðingar.
Frá Raftækni
Óseyri 6, Akureyri
Bjóðum 5% staðgreiðsluafslátt af öllum IGNIS og
Girmi raftækjum frá 29. nóv. -10. des. 1980.
Verið velkomin.
Raftækni
Óseyri 6, Akureyri sími 24223
Hitatuba óskast keypt
Hefill h/f, Flateyri óskar eftir að kaupa hitatúbu 15
til 30 kílówött. Upplýsingar í síma 94-7637 og 7731.
AKUREYRARBÆR
Utboö
Hitaveita Akureyrar óskar eftir tilboðum í niður-
setningu á svartolíukatli í kyndistöð, svo og tengi-
og járnsmíðavinnu honum tilheyrandi. (Rafmagns-
vinna undanþegin).
Útboósgögn verða til afhendingar á skrifstofu
Hitaveitunnar frá föstudegi 28. nóvember n.k.
Tilboðum sé skilað til Hitaveitu Akureyrar Hafnar-
stræti 88b, í síðasta lagi 5. desember 1980.
Hitaveita Akureyrar.
Vísnavinir á
Akureyri
Næstkomandi laugardag og
sunnudag verður hér á Akureyri
hópur á vegum Vísnavina, en það
er félagsskapur sem mikið hefur
látið að sér kveða í menningarlífi
höfuðborgarinnar á undanförn-
um árum. Þeir hafa staðið fyrir
hinum rómuðu Vísnakvöldum á
Hótel Borg þar sem margir
landsþekktir tónlistarmenn hafa
komið fram og áður óþekkt
hæfileikafólk hefur uppgötvast.
Vísnavinir standa fyrir tveimur
„vísnastundum" á Akureyri,
önnur verður í Dynheimum á
laugardagskvöldið og hefst
klukkan 20. Hin verður síðan í
Sjálfstæðishúsinu á sunnudaginn
oghefst klukkan 16.
Dagskrá vísnavina er mjög
fjölbreytt og skipulögð en þess er
vænst að einhverjir gestir láti í sér
heyra hvort sem það er tónlistar-
flutningur, ljóðalestur eða eitt-
hvað í þeim dúr. Akureyringar
eru hvattir til að koma og kynnast
nýju formi skemmtunar.
Nýtt leikrit
Dags hríðar spor
eftir Valgarð Egilsson
Út er komið hjá Almenna bóka-
félaginu leikritið DAGS HRÍÐAR
SPOR eftir Valgarð Egilsson sem
Þjóðleikhúsið er að sýna um þessar
mundir.
Höfundurinn Valgarður Egils-
son er ungur læknir og vísinda-
maður og er þetta leikrit fyrsta
skáldverkið sem út kemur eftir
hann.
Á kápu leikritsins segir að leik-
ritið fjalli um nokkur einkenni í ís-
lenzku þjóðfélagi samtímans með
skírskotun til fortíðarinnar. Nafnið
DAGS HRÍÐAR SPOR er kenn-
ing úr vísu eftir Þormóð Kolbrún-
arskáld og merkir sár.
Höfundurinn sem er frábær
teiknari hefur gert myndir við'leik-
ritið, og eru þær mjög skýrandi
fyrir það. Einnig hafa leikararnir
Brynja Benediktsdóttir, Erlingur
Gíslason og Sigurjón Jóhannsson
ritað við það eftirmála um aðferð
sina við sviðsetningu þess. Þau
segja þar m.a. um leikritið:
„Þetta leikrit er váboði og sér
fyrir heimsendi. Það leitast við að
benda á þau atriði, sem hljóta að
leiða til Ragnarraka. Orsöíc fyrir-
sjáanlegra ófara er leitað innan
okkar litla samfélags, sem veldur
illa hlut sínum gagnvart umheimi.
Texti er ýmist látlaus og fagur, til-
gerðarlegt menntamannahjal, fjöl-
miðla-, ljóna- og möppudýrabull,
og loks upphafinn, tær, ljórænn, —
raunar ljóð.“
Höfundur hefur ráðið öllu útliti
bókarinnar sem er prentuð í Prent-
smiðju Árna Valdimarssonar. Bók-
in er pappírskilja.
Hreingemingar
Tökum að okkur
teppahreinsun,
hreingerningar,
húsgagnahreinsun,
með nýjum og
fullkomnum tækjum.
Gerum föst verðtilboð
ef óskað er.
Sími 21719 og 22525.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 62., 64. og 68. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1979 á fasteigninni Malar- og Steypustöð í
landi Flúöa, Akureyri, þingl. eign Malar- og
Steypustöðvarinnar h.f., fer fram eftir kröfu Iðn-
lánasjóðs og Byggðasjóðs á eigninni sjálfri mánu-
daginn 1. desember n.k. kl. 14.45.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 22., 25. og 27. tbl. Lögbirtingar-
blaðsins 1979 á fasteigninni Steypustöð Dalvíkur
sunnan við Sandskeið, Dalvík, þingl. eign Steypu-
stöðvar Dalvíkur h.f., fer fram eftir kröfu Iðnlána-
sjóðs á eigninni sjálfri föstudaginn 5. desember
n.k. kl. 14.00.
Bæjarfógetinn á Dalvík.
Skíðavörurnar
drífa að daglega
Erum að taka upp gönguskíði, skó
og bindinga.
Dúnvesti, dúnhúfur fl. teg.
Stretsbuxur, púðapeysur, moon-
boots, barnaskíðaskó 26/34.
Fíbersvefnpoka, bakpoka.
Brynjólfur Sveinsson h.f.
EJR
Tilkynning frá Hitaveitu
Akureyrar
Hafnar eru á vegum Hitaveitu Akureyrar lokunar-
aðgerðir vegna vangoldinna vatnsreikninga. Ein-
dagi þeirra var 12. nóvember s.l.
Þeir sem enn hafa ekki gert full skil er bent á að
gera það nú þegar, þar sem annars má búast við að
lokað verði fyrir heita vatnið einhvern næstu daga,
fyrirvaralaust og án frekari tilkynningar.
Forðist óþarfa kostnað og óþægindi sem lokunar-
aðgerðum fylgja.
Hitaveita Akureyrar
á stelpur og stráka, Z-IZ ára
/i y r T 1 0 LU
DAGUR.7