Dagur - 09.12.1980, Síða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
LXIII. árgangur.
Akureyri, þriðjudagur 9. desember 1980
90. tölublað
mmammmmmm
Jóla-
trén
eru
komin
Jólatréssalan hófst á Akureyri á
iaugardag og seldist þegar all-
mikið af trjám og greinum, að
sögn Hallgríms Indriðasonar
hjá Skógræktarfélagi Eyja-
fjarðar.
Selt verður hvern virkan dag
fram til jóla frá klukkan 13-18,
þ.e.a.s. meðan birgðir endast, en
þær hafa yfirleitt gengið upp. Búist
er við að seld verði milli 1000 og
1200 tré, en þau eru öll norðlensk,
þ.e. úr Eyjafjarðar- og Þingeyjar-
sýslu. Leiðbeiningar fylgja með um
meðferð trjánna.
Verð á jólatrjám hefur ekki
hækkað til samræmis við verð-
bólguna og er haft eftir miklum
skógræktarfrömuði, að í fyrra hafi
verð á vodkaflösku og meðalstóru
jólatré verið álíka, en flaskan sé
núna 3 þúsund krónum dýrari.
Jólatrén kosta núna á bilinu frá
10-15 þúsund krónur og hæðin er
1-1,70 metrar.
Hiti og höfuð
verkur
F.N. flaug með tvær
stórslasaðar stúlkur
Tvær ungar grænlenskar stúlkur
slösuðust alvarlega í gasspreng-
ingu á Grænlandi s.l. sunnudag.
Flugvél frá Flugfélagi Norður-
lands var stödd á Grænlandi í
póst- og farþegaflugi og voru
stúlkurnar, ásamt sjúkraliða,
fluttar með vélinni til Islands.
Flugvélin lenti á Akureyri og þar
komu læknarnir Ólafur H. Odds-
son og Einar Hjaltason um borð og
settu upp vökvatæki, en Ólafur fór
síðan suður til Reykjavíkur með
stúlkunum, sem voru lagðar inn á
spítala. Flugmenn í þessari ferð
voru Gunnar Karlsson og Jónas
Finnbogason.
JÖLATkE 00 úkEINAk
MZm
Fyrir rúmum 10 árum síðan tók
Karl Kristjánsson að sér að rita
sögu Húsavíkur og var í upphafi
stefnt að því að bókin kæmi út á
25 ára afmæli bæjarins 1974, en
það tókst ekki og Karl féll frá.
Sonur Karls, Kristján, tók að sér
að koma verkinu út og var stefnt
að því að fyrra bindið kæmi á
markað á þessu ári, en nú er
ljóst að af því getur ekki orðið
fyrr en á næsta ári.
unar, en vegna mikils álags á
prentsmiðjuna sem prentar bókina
verður hún látin sitja á hakanum
þar til á næsta ári eins og kom fram
hér að framan. Seinna bindið á að
geta komið út tiltölulega fljótt út
þarsem mikið efni er komið í það.
Fjórfaldur
skammtur af
ávísanaheftum
Magnús Gíslason, útibússtjóri
Landsbankans, sagði í viðtali við
Dag að gífurlega mikil viðskipti
hefðu verið í Landsbankanum sl.
föstudag. Seðlabirgðir bankans eru
litlar eftir ösina. Mjög margir við-
skiptavinir fengu sér ávísanahefti
og gat Magnús sér til að afgreiddur
hefði verið tvöfaldur skammtur af
ávisanaheftum miðað við það sem
gerist venjulega. I gær voru aðeins
tveir að störfum í Landsbankanum
— Magnús og Birgir Björn Svav-
arsson.
Vatnsbirgðir H.A. minnka
Kristján Karlsson hefur óskað
eftir að annar maður tæki að sér
umsjón með útgáfu seinna bindis-
ins og hefur verið ákveðið að Björn
H. Jónsson, sóknarprestur á Húsa-
vík taki það verk að sér.
Fyrra bindið er tilbúið til prent-
Fátt minnir meira á jólin og jólahald en jólatrén, en sala hófst á þeim á Akureyri á
laugardag. Ekki er vitað um upphaf þess siðar að hafa jólatré, en hann bzrst fyrst til
Íslands um 1850 og varð algengur upp úr aldamótum. Krakkar sem leið áttu um
miðbæinn á iaugardag komust strax í jólaskap við að handfjatla trén og greinarnar.
Mynd: H.SV.
Kuldinn eykur á notkun heita vatnsins:
Saga Húsavíkur kemur
ekki út fyrir þessi jól
hrjá
Akureyringa
„Að undannförnu hef ég verið á
vöktum og þurft að sinna fólki
sem hefur haft háan hita, hósta
og hálssærindi. Þetta er dæmi-
gerð veirupest, en einnig hefur
verið að ganga í bænum uppköst
og niöurgangur. Þar áður var
mjög áberandi vírusveiki, sem
lagðist í augu,“ sagði Ólafur H.
Oddsson, héraðslæknir.
Þessi veirusjúkdómur hefur ekki
verið greindur, ein einkennin eru
hár hiti, höfuðverkur, hálssær-
indi og hósti. Ólafur sagði að engar
tölur væru til um fjölda tilfella, og
því má bæta við að langflestir hafa
aldrei samband við sinn heimilis-
lækni heldur liggja heima og bíða
að pestin rjátli af þeim.
„Undanfarna mánuði hefur ver-
ið mikið álag á Hitaveitu Akur-
eyrar og framundan eru miklir
álagstímar, en af reynslu und-
anfarinna ára er það Ijóst að
vatnsnotkun er mjög mikil yfir
jólin. Það er því ósk forráða-
manna Hitaveitunnar að fólk
taki tillit til þess og reyni að
draga úr vatnsnotkun eins og
unnt er til þess að koma i veg
fyrir að grípa verði til aðgerða,“
sagði Vilhelm Steindórsson
hitaveitustjóri í samtali við Dag.
Vilhelm sagði einnig að haustið
hefði verið óvanalega kalt og því
hefðu notendur hitaveitunnar þurft
á miklu vatni að halda, sem hefur
svo leitt til þess að það hefur
gengið á vatnsbirgðir hitaveitunn-
ar. „Við höfum gengið meira á
þessar birgðir en við áætluðum, en
það er ekki þar með sagt að það sé
orðið vatnslaust — síður en svo.
Framundan eru tveir mánuðir sem
samkvæmt fyrri reynslu geta verið
kaldir og því kann það að vera
rangt að halda áfram að tengja jafn
mikið af húsum og gert hefur ver-
ið,“ sagði Vilhelm.
Hitaveitustjóri gat þess að þeirri
ósk hefði verið komið á framfæri
við nýja notendur í Öngulsstaða-
hreppi að þeir frestuðu að láta
tengja hús sín þar til eftir áramót.
Þessi málaleitan fékk jákvæðar
undirtektir og hér á Akureyri eru
pípulagningamenn að kanna fyrir
Vegna rafmagnsskorts á orku-
veitusvæöi Landsvirkjunar hefur
vélasamstæða Laxárvirkjunar á
Rangárvöllum á Akureyri verið
keyrð 16 klukkustundir á sólar-
hring síðan 25. nóvember. Þessi
vélasamstæða sem mun vera
stærst sinnar tegundar á landinu
brennir svartolíu.
Vélin framleiðir 6,5 megavött og
hitaveituna hve mikið er áætlað að
tengja á næstu vikum, með það
fyrir augum að athuga hvaða teng-
ingum megi slá á frest.
Eins og komið hefur fram í
fréttum er unnið að byggingu
kyndistöðvar. Þegar hún verður
tekin í notkun, en það er áætlað að
gera um miðjan janúar, verður
unnt að mæta kuldaköstum án þess
að ganga óþarflega mikið á vatns-
birgðir Hitaveitu Akureyrar.
eyðir 26 til 27 þúsund lítrum á
hverjum 16 tímum. Kostnaður við
þá keyrslu er um 4 milljónir króna.
Laxárvirkjun framleiðir nú 18 til
18,5 megavött. Frá Kröfluvirkjun
koma 10 til 12 megavött og gufu-
aflsstöðin í Bjarnarflagi framleiðir
rúmt megavatt— allt eftir því hver
notkunin er í Kísiliðjunni.
Gestur Jónsson, gjaldkeri í Bún-
aðarbankanum, sagðist ekki muna
eftir jafn miklum viðskiptum á
einum degi og sl. föstudag. f Bún-
aðarbankanum fór fjórfalt magn af
ávísanaheftum og sagði Gestur að
það hefði ekki verið óvanalegt að
fólk hefði tekið nokkur hundruð
þúsund út úr bankabókum.
Skarphéðinn Ásgeirsson, for-
stjóri Amaro, sagði að verkfall
bankamanna kæmi ekki hart niður
á fyrirtækinu — ekki fyrst í stað
a.m.k. Fyrirtækið væri t.d. búið að
leysa út mestan hluta af þeim vör-
um sem það yrði með á boðstólum
fyrir jólin.
„I rauninni vitum við lítið um
hvaða áhrif verkfall bankamanna
getur haft á starfsemina þegar til
lengdar lætur," sagði fsak Guð-
mann, aðalgjaldkeri K.E.A. „Þetta
er fyrirbæri sem aldrei hefur komið
fyrir áður og því erfitt að sjá fyrir
hvaða afleiðingar það getur haft.“
Dijúgt sopið á Rangárvöllum
Barnapössun
KFUM og K
Unglingadeild KFUM og K
gengst fyrir barnapössun dagana
13. (næsta laugardag), 18., 19.,
20., 22. og 23. desember frá kl.
13-19 alla dagana nema á Þor-
láksmessu, en þá verður pössun
frá 13-22. Þetta er kjörið tækifæri
fyrir foreldra sem eiga erfitt með
að komast frá börnum sínum en
eiga annríkt vegna jólaundir-
búnings. Barnanna verður gætt
að Hólabraut 13 (Zion) og þar
verður haft ofan af fyrir þeim
með leikjum, söng, föndri og
kvikmyndasýningum, svo eitt-
hvað sé nefnt. Kostnaður er að-
eins 600 kr. á tímann og rennur
ágóðinn til húsbyggingasjóðs
KFUM og K.
Tvær ferðir á is-
lendingaslóðir í
Kanada
f sumar voru farnar tvær ferðir á
íslendingaslóðir í Kanada, sem
skipulagðar voru í samvinnu við
Þjóðræknisfélagið á fslandi. Var
að venju flogið í gagnkvæmu
leiguflugi til Winnipeg á austur-
ströndinni en í sumar var einnig
bryddað á vesturströndinni.
f báðum tilfellum fór flugvélin
full utan með fslendinga sem
heimsóttu vini og kunningja þar
vestra, og heim aftur flaug hún
með Vestur-íslendinga sem
dvöldust hérlendis. Mikill áhugi
er ávallt fyrir þessum ferðum og
samvinna við Þjóðræknisfélagið
og félagasamtök Vestur-fslend-
inga í Kanada hefur gefist mjög
vel.
Ný verslun á Fá-
skrúðsfirði
Kf. Fáskrúðsfirðinga opnaði fyrir
stuttu nýja og glæsilega verslun á
fyrstu hæðinni af þremur í ný-
byggingu sinni á Fáskrúðsfirði.
Hófst byggingin vorið 1978, og er
gert ráð fyrir að tvær efri hæðirn-
ar verði teknar í notkun á næstu
árum. Verslunin er um 2800
rúmmetrar.
IAUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT: 24167 - RITSTJÓRN: 24166 OG 23207I