Dagur - 11.12.1980, Blaðsíða 9

Dagur - 11.12.1980, Blaðsíða 9
Ibúðakaupendur - Húseigendur Getum bætt við okkur verkefnum í trésmíði. Hamar s.f. Uppl. í síma 24547. Verslunin Vlir Daivík auglýsir til jólagjafa Casper vattfóðraðar kvenkápur í öllum stærðum. Casper barna-, unglinga- og herrajakka. Athugið greiðslukjör. Leikföng: Bílabrautir, TCR fjarstýrðir bílar, rafeindaleikföng, brúður sem skríða og m.m. fleira. Mokkafatnaður: Lúffur og húfur. Á Akureyri fást lúffurnar í Klæðaverslun Sigurðar Guðmundssonar. Verslunin JYIÍ wr Dalvík Sími 61405. BENCO talstöðvar 4 0 + 40 rásir kr. 139.600. Tónabúðin sími 22111 ÍBÚÐ/N Fræðslufundir í A.-Hún. Fyrir nokkru voru haldnir fimm fræðsiufundir í Austur-Húna- vatnssýslu á vegum félagsmála- nefndar samvinnufélaganna þar. Fundirnir tókust vel í alla staði og sóttu þá samtals um 170 manns. Þar flutti Guðmundur Guð- mundsson félagsmálafulltrúi erindi og fjallaði um samvinnuhreyfing- una almennt og stefnuskrármálið. Líka voru haldnir þar vörukynn- ingar þar sem kynntar voru Goða-vörur og framleiðsla kjöt- iðnaðarstöðvar SAH. Einnig heim- sótti Guðmundur grunnskólana í sýslunni og greindi nemendum þar frá samvinnuhreyfingunni. Þá hefur fræðslunefndin ákveðið að efna til ritgerðasamkeppni meðal nemenda í grunnskólum sýslunnar. Veittar verða 200 þús. kr. í verðlaun, og er heimilt að út- hluta þeirri upphæð í einn til þrjá staði eftir því sem ástæða þykir til. Ritgerðarefnið er „Hvers vegna samvinnufélög?" Frá kjörbúðum KEA Munið KJÚKLINGANA ájólaborðið . . Aðeins kr. Halló Krakkar n koma jólin Jólasveinarnir eru lagðir af sfað ofan úr fjöllum. Á sunnudaginn 14. desember kl. 3 e. h. koma þeir til byggða. Ef veður leyfir getið þið heyrt þá og séð á svölum Vöruhúss KEA Hafnarstræti 93. Þá verða þeir örugglega komnir í besta jólaskap og raula fyrir okkur nokkrar vísur. Kaupfélag Eyfirðinga KA fer suður Um helgina fer meistaraflokkur KA í handknattleik til Reykja- víkur og V estmannaeyja og leikur við sömu lið og Þór lék við um síðustu helgi. Þeir fara til Vest- mannaeyja og leika við Tý og síðan við HK að Varmá. KA er nú efst í deildinni og getur tryggt stöðu sína til muna ef félaginu tekst að vinna þessa leiki. Bjóðum fullkomna viðgerðarþjónustu á sjón- varpstækjum, útvarpstækjum, steríomögnur- um, plötuspilurum, segulbandstækjum, bíl- tækjum, talstöðvum, fiskileitartækjum og sigl- ingartækjum. Isetning á bíltækjum. Sumar eldavélar frá ELECTROLUX eru auðvitað með blástursofni, tölvustýringu, termosplötu, sjálfvirkum steikarmæli og hitaskáp. ^ðrar ekki Electrolux eldavélarnar eru meðal þeirra þekktustu í heimi. Fyrst og fremst vegna gæða- og svo auðvitað vegna tækni- nýjunga. Electrolux hefur oft- ast verið á undan samtíðinni í eldhústækni. Þegar þú velur Electrolux eldavél geturðu valið elda- vélagerð, sem hentar plássi og pyngju. Úrvalið og mögu- leikarnir eru margvíslegir. m Electrolux Auk þess bjóðum við stórkostlegt úrval af kæli og frystiskápum uppþvottavélum o.fl. o.fl. í 5 litum. Ein þeirra mun örugglega falla að smekk þínum. * Afborgunarskilmálar eða staðgreiðsluafsláttur. GLERÁRGÖTU 20 — 600 AKUREYRI - s(MI 22233 DAGUR■9

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.