Dagur - 22.01.1981, Blaðsíða 7
Liggur ekki á
eftir kosningar
— segir Ivar Sigmundsson um framkvæmdir
í Hlíðarf jalli
Hefilbekkir
Stærðir 120 og 140 cm.
Strandgötu 23.
Sími25020.
„Eflaust hafa einhverjir áhuga á að
vita hvað líður frekari framkvæmd-
um við uppbyggingu skíðamann-
virkjanna í Hlíðarfjalli — t.d. fram-
kvæmdum við lyftur, bættri flóðlýs-
ingu, upplýstri göngubraut, varan-
legri stökkbraut svo eitthvað sé
nefnt, en allt þetta var mjög í
brennidepli við síðustii bæjarstjórn-
arkosningar. Þá var svo að skilja að
Hlíðarfjall væri slík heilsulind að
uppbygging þar væri allt að því for-
gangsverkefni. Hvernig sem á því
stendur virtist ekki liggja eins mikið
á framkvæmdum í Hliðarfjalli eftir
bæjarstjórnarkosningarnar og fyrir
þær,“ segir ívar Sigmundsson, for-
stöðumaður Skíðastaða í bréfi til
Dags.
Síðan segir ívar orðrétt: „Hvort
eitthvað verður gert á þessu ári skal
ósagt látið, en vonandi er að Hlíð-
arfjall sé ekki álitið heilsulind að-
eins þegar kosningar eru í nánd. Þá
er illa komið málefnum þessa bæj-
ar, sem undanfarin ár hefur verið
nefndur „skíðabærinn Akureyri“
vegna þess, að hann skaraði fram
úr á því sviði. Menn ættu samt að
vera bjartsýnir og vonast eftir
miklum og góðum snjó, góðu veðri
og þá er næsta víst að margir eiga í
vændum ánægjulega daga í Hlíð-
arfjalli i vetur. Skíðið heil.“
Iðnvarningur til Sovét
Nú fyrir jólin var gengið frá
samningum við sovéska aðila
um kaup á vörum frá Iðnaðar-
deild Sambandsins til afgreiðslu
á árinu 1981. Það var Hjörtur
Eiríksson fr.kv.stj. sem annaðist
samningsgerðina. Stærsti
samningurinn var gerður við
Centrosoyus, sovéska sam-
vinnusambandið, og er hann að
upphæð um 7,5 milljónir dollara.
Þar er um að ræða ullar- og
skinnavörur, málningu og gaffal-
bita, og eru ullar- og skinnavör-
urnar einkum peysur, teppi og
kápur, en heildarverðið í þeim
Útflutningur á
búvörum
Allur útflutningur Búvörudeildar
Sambandsins á landbúnaðarafurð-
um árið 1980 nam 8,585 tonnum,
samanborið við 10,222 tonn árið
1979. Verðmæti þessa útflutnings í
íslenskri mynt varð hins vegar
8,400 millj. gkr. 1980 á móti 7,500
millj. gkr. 1979. Hafa því útfluttar
landbúnaðarafurðir minnkað um
16% í magni á milli áranna, en
verðmætið samt sem áður aukist
um 11,3% í krónum talið.
Þrír skálkar
Sýningar laugardags- og
sunnudagskvöld kl.
20.30. Miðasala í Bóka-
búð Jónasar og við inn-
ganginn.
Miðapantanir í síma
24936.
Freyvangur.
Nýkomið:
Mikiö úrval af frúarkjól-
um.
Kvöldkjólar síöir kjólar
jersey og ullarkjólar.
Töskur, veski og buddur
Markaðurinn
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmá
TEIKN^STOFAN
STILLi
AUGLÝSING AR -SKILTAGERÐ
TEIKNINGAR- SILKIPRENT
SÍMi: 2 57 57
hluta samningsins er um 4 millj.
dollara. Magnið, sem samið var
um, er nokkru minna en í fyrra, en
hins vegar náðist fram um 10%
meðaltalshækkun í verði. Þá var
einnig samið um sölu á peysum og
teppum til ríkisfyrirtækisins
Raznoexport fyrir um eina milljón
dollara, og sömuleiðis um sölu á
málningarvörum til ríkisfyrirtækis-
ins Sojuschemexport fyrir um 1,8
millj. dollara. Heildarupphæðin í
öllum þessum samningum er því
nálægt 10 millj. dollarar, eða sem
svarar um 62 millj. nýkr. á núver-
andi gengi.
Óbreytt sölufyrirkomulag á BSO
Opnunartími kvöldsölu-
staða lengist með vorinu
Allt útlit er fyrir að leyft verði
áfram að selja á afgreiðslu BSO
þær vörur, sem hingað til hafa
verið seldar þar, þrátt fyrir kæru
eigenda annarra bensínsölu-
stöðva til heilbrigðisyfirvalda.
Þegar ekki tókst samkomulag
með öllum bensín- og sælgætis-
sölustöðvum um að loka kl. 22
eins og kvöldsölur nú gera, þá
barst heilbrigðisyfirvöldum
kæra um að sama afgreiðslufólk
hjá BSO af greiddi sælgæti,
gosdrykki og bensín og ölíuvör-
ur.
Valdimar Brynjólfsson, heil-
brigðisfulltrúi, skýrði blaðinu
frá því að heilbrigðisnefnd væri
ekki búin að afgreiða þetta mál
ennþá. Hins vegar væri búið að
kanna það og mætti augljóst
teljast að ekki þætti ástæða til
að krefjast breytinga á núver-
andi afgreiðsluháttum, þar sem
ekki væru seldar á sama stað
pylsur eða önnur óvarin mat-
væli, aðeins innpakkað sælgæti
og gosdrykkir í flöskum.
Verslunin Höfn verður áfram
opin á kvöldin eins og venju-
lega, en þar eru engar olíuvörur
seldar.
Ekki er ráðgert að hinn
breytti og takmarkaði kvöld-
opnunartími gildi nema yfir
háveturinn og er búist við því að
jafnskjótt og fer að vora verði
a.m.k. afgreiðslutími bensín-
stöðva lengdur og verði þá
svipaður og fyrri sumur.
NORDLENZK
HLUT AF JÁRÚTBOÐ
Norölensk trygging h/f er eina alhliða trygginga-
félagið, sem starfar sjálfstætt utan Reykjavíkur. Allt
frá stofnun þess 4. nóvember 1971 hefur félagiö
kappkostað að veita sem besta þjónustu fyrir
Norðlendinga. Samkvæmt lögum um vátrygginga-
félög hefur ákvæðió um lágmarks hlutafé verið
hækkað verulega.
í samræmi við það samþykkti aðalfundur Norð-
lenskrar tryggingar h/f 1980 aó heimila stjórn
félagsins að auglýsa aukningu á hlutafé félagsins
um allt að 800.000,- Nýkr. Hlutafjárkaupin eru öllum
heimil.
Skráning hlutafjárloforða fer fram á skrifstofu
félagsins að Ráðhústorgi 1,2. hæð, Akureyri kl. 8 til
12 og 13 til 16 daglega, en skal lokið fyrir 15.
febrúar1981.
Stjórn Norðlenskrar tryggingar h/f
Óskum eftir að ráða
skrifstofumann
Þarf að hafa reynslu í meðferð tollskjala og verðút-
reikninga. Einnig vanan mann til starfa á vörulager.
Upplýsingar á skrifstofunni. Fyrirspurnum ekki
svarað í síma.
Örugg atvinna
Óskum að ráða ungan mann til starfa fyrir fjár-
málastofnun
< Við bjóöum örugga atvinnu.
< Við teljum æskilegt aö umsækjandi hafi
verslunarmenntun eöa
< staðgóða aimenna menntun.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu vorri.
Bókhalds- og
rekstrarráðgjöf
Strandgötu 7,
pósthólf 748,
sími 25455.
Laus staða
Við embætti bæjarfógetans á Akureyri og Dalvík og
sýslumannsins í Eyjafjarðarsýslu er laus til um-
sóknar staða aðstoðargjaldkera.
Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkis-
ins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf óskast sendar undirrituðum fyrir 16.
febrúar n.k.
Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík.
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
19. janúar 1981.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 83., 86. og 91. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1980 á húseigninni Oddeyrargötu 24,
austurenda, Akureyri, þinglesinni eign Bjarna Sig-
tryggssonar, fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn
26. janúar n.k. kl. 15.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 83., 86. og 91. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1980 á húseigninni Lerkilundi 14, Akur-
eyri, þinglesinni eign Kristins Steinssonar, ferfram
á eigninni sjálfri mánudaginn 26. janúar n.k. kL
16.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 31., 35. og 37. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1980 á húseigninni Heióarlundi 1b, Akur-
eyri, þinglesinni eign Jóns Stefánssonar, fer fram á
eigninni sjálfri þriðjudaginn 27. janúar n.k. kl.
14.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri
DAGUR.7