Dagur - 22.01.1981, Page 8
Akureyri, fimmtudaginn 22. janúar
RAFGEYMAR
í BÍLINN, BÁTINN, VINNUVÉLINA
VEUIÐ RÉTT
MERKI
Fóstrur hætta
I síðasta blaði sagði í fyrirsögn að
fóstrur á Akureyri væru að fara í
verkfall, en við lestur textans kem-
ur berlega í Ijós að fóstrurnar eru
búnar að segja upp allar sem ein og
ætla að hœtla störfum þann I.
febrúar. Blaðið biður fóstrurnar
velvirðingar á þessum mistökum,
en þær voru á fundi í gærkvöldi og
lítið hrifnar af fyrirsögninni. Ann-
ars sendir blaðið þeim baráttu-
kveðjur með ósk um velfarnað í
framtíðinni.
ÁHUGI FYRIR BRÚNNI
„Við munum fylgjast náið með
þessu máli og óhætt er að segja
að hér sé áhugi fyrir brúnni,“
sagði Bjarni Arthúrsson, fram-
kvæmdastjóri Kristneshælis, en
það hefur borið á góma að
ríkisspítalarnir reyndu e.t.v. að
koma á fót einhvers konar
rekstri að Laugalandi. Hins
vegar hefur alltaf komið fram að
forsendan fyrir slíkum rekstri,
sem yrði í nánum tengslum við
Kristneshæli, væri sú að brú væri
á Eyjafjarðará, skammt frá hæl-
inu.
Bjarni vildi að öðru leyti ekki tjá
sig um málið, en samkvæmt
heimildum blaðsins hafa ýmsir
aðilar sýnt áhuga á að fá afnot af
skólahúsinu að Laugalandi, sem
hefur staðið lítt notað að undan-
fömu. Menn á vegum heilbrigðis-
ráðuneytisins hafa gert athugun á
húsinu og er Ijóst að það þarfnast
mikilla viðgerða.
Ef brú yrði byggð á Eyjafjarðará,
hjá Hrafnagili, er eins líklegt að
skólinn að Hrafnagili gæti notfært
sér húsið. Viðmælendur Dags
sögðu að ef brú yrði ekki byggð yfir
ána hjá Hrafnagili í ár, væri ljóst að
hún kæmi ekki næstu 20—30 árin.
Nú þegar tími þorrablóta og
árshátíða fer í hönd og forráða-
menn félaga og klúbba geta átt í
erfiðleikum með að fá hljóm-
sveitir til danslcikjahalds getur
verið gott til þess að vita að
Hljómsveit Finns Eydal sé að
taka til starfa að nýju, eftir
nokkurra mánaða hlé.
Hljómsveitin hætti að leika í
Sjálfstæðishúsinu fyrir tæpu ári, en
þar hafði hún stárfað í þrjú ár, en
þau Finnurog Helena Eyjólfsdóttir
höfðu starfað þar samfellt í 10 ár,
lengst af með hljómsveit Ingimars
Eydal.
Auk hjónanna Helenu og Finns
leika með hljómsveitinni Alfreð
Almarsson, sem syngur og leikur á
gítar, Jóhannes Ásbjörnsson,
BMHBSBS
Nægur
snjór
Nú er kominn ágætur skíðasnjór
í Hlíðarfjalli og um næstu helgi
verða allar lyftur í gangi ef veður
leyfir. Einnig verður troðin
göngubraut í Hrappsstaðaskái.
Göngubrautina verður reynt að
troða um helgar í vetur.
Skíðaskólinn tekur til starfa
mánudaginn 26. janúar. Kennsla er
á morgnana frá kl. 10 til 11.30.
Þetta námskeið er ætlað yngstu
nemendunum. Eftir hádegi eru
námskeið milli klukkan 14-16, 17-
19 og 20-22. Að sögn fvars Sig-
mundssonar er enginn of gamall til
að læra á skíðum og sjálfsagt fyrir
þá sem geta að læra á skíði.
Margir hafa eflaust fengið
skíðabúnað í jólagjöf og segja þeir í
Hlíðarfjalli að það sé sérstök
ástæða til að minna fólk á að
merkja búnaðinn vel. Það er of al-
gengt að nýir skór eða ný skíði séu
tekin viljandi eða óviljandi við
Skíðastaði. Einnig er ástæða til að
biðja fólk um að hafa bremsur á
skíðunum.
í vetur verður aðeins eitt meiri-
háttar mót í Hlíðarfjalli, en það eru
Andrésar Andar leikarnir sem
verða 23. til 26. april. Sú nýbreytni
verður tekin upp á þessu móti að
keppt verður í göngu og stökki auk
alpagreinanna.
harmonikkuleikari og Þorleifur Jó-
hannsson, trommuleikari, sem hóf
sinn feril með „Bravó-bítlunum“ á
sínum tíma, og lék sl. sumar með
þeirri vinsælu hljómsveit, Upplyft-
ingu.
Fundur á
loftneti
Sjónvarpsloftnet eru vinsæl
meðal snjótittlinga. Á þeim
halda fuglarnir fundi og oft
eru þeir f jölmennari en þessi.
Það jaðrar við að þessar
kræklóttu „hríslur“ verði
fallegar þegar fuglarnir setj-
ast á þær. Myndtáþ.
Mun færri umsóknir um
nýjar byggingarlóðir
Hljómsveit Finns Eydal eins og hún er nú skipuð.
„Ég hef það á tilfinningunni að
umsóknir um nýjar byggingar-
lóðir verði til muna færri en ver-
ið hefur,“ sagði Jón Geir
Ágústsson, byggingarfulltrúi
Akureyrarbæjar, er DAGUR
leitaði upplýsinga um áhuga
manna á þeim lóðum, sem aug-
lýstar voru nýverið til umsóknar.
Þarna er um að ræða fjölbýlis-
húsa-, raðhúsa- og einbýlishúsa-
lóðir, nyrst og vestast í bænum, í
beinu framhaldi af þeim lóðum
sem úthlutað hefur verið síðustu ár.
Að sögn Jóns Geirs eru umsóknir
að berast inn þessa dagana, en líkur
á að þær verði mun færri en verið
hefur, og á það við um allar gerðir
lóða.
Athugað hefur verið hvort hag-
kvæmt muni reynast að þétta
byggð og hefur skipulagsstjóri það
nú sem verkefni að kanna með
hvaða hætti það mætti helst verða,
þannig að byggingarhæfar gætu
orðið lóðir á ódýrari hátt en í nýj-
um hverfum. Jón Geir Ágústsson
taldi ekki trúlegt að framundan
væru neinar stórfenglegar breyt-
ingar í þá átt, en þó væru núna
auglýstar fjórar lóðir við Einholt,
sem mætti teljast falla undir hug-
takið „þétting byggðar".
>T ÍATÍ r-p r ÐJl "p
llil ÍÍL . m & V— JiJ
% Kabarettinn
endurvak-
inn?
Það hefur heyrst utan úr bæ
að til standi að sýna kaba-
rettinn aftur í Sjálfstæðis-
húsinu um aðra helgi — þ.e.
þann 30. janúar. Ýmislegt
hefur gerst í þjóðlífinu, sem
aðstandendum kabarettsins
finnst ástæða til að fjalla um,
svo sem gjaldmiðilsbreyting-
in svo eitthvað sé nefnt.
# Kerfið
Á forsíðu er sagt frá því að
nokkrir félagar í Verkalýðs-
félaginu Einingu vilji auka
lýðræðið í félaginu. f greinar-
gerð sem einni lagabreyting-
unni kemur Ijóslega fram af
hverju þeir hafa sest niður og
samið breytingartillögurnar,
en í greinargerðinni stendur:
„Samkvæmt lögum ASf og
reglugerð er skilt að hafa
svonefnda „allsherjarat-
kvæðagreiðslu" með sér-
stöku formi, þegar félögin
kjósa sér stjórnir, trúnaðar-
mannaráð og endurskoðend-
ur reikninga, og þegar þau
kjósa sér fulltrúa á þing ASÍ
og þing þess landssambands
sem þau eru í (í okkar tilviki
Verkamannasambandsins).
Reglur ASf kveða svo á um að
kosið skuli samkvæmt fram-
boðslistum, og er óheimilt að
gera uppástungur um færri
en kjósa á í það skiptið. Þá
þurfa hverjum lista að fylgja
100 meðmælendur, nema
hvað listi sem trúnaðar-
mannaráð ber fram þarf eng-
in meðmæli!
% Rúmlega
150 manns!
Augljóst er af þessum reglum
að almennir félagsmenn eiga
óhægt um vik að koma við
breytingum á fulltrúa á þing
ASf eða Verkamannasam-
bandsins. Hafi einhverjir
félagar eða til dæmis einhver
vinnustaður áhuga á að koma
einhverjum ákveðnum félaga
sínum inn í stjórn verða þeir
að gjöra svo vel að hrista
fram úr erminni rúmlega 150
manns á lista og með-
mælendalista. Og allt á þetta
að geta gerst á tveim dögum
eða svo, skv. lögunum. Til að
berja saman svona lista, þarf
því verulega stóran hóp
manna, og helst heilan flokk
eða marga flokka á bak við.
Tillaga þessi (sem um er
getið á forsíðu) er til þess sett
fram að draga úr áhrifum
þessa ólýðræðislega fyrir-
komulags, þar sem ekki er
hægt að leggja það niður í
heild sinni vegna laga og
reglna ASÍ.
Bændanámskeið
Á bændaskólanum á Hólum vcrður efnt
til tveggja námskeiða í almennum
búfræðum í febrúar og mars n.k. Þessi
námskeið verða með líku sniði og nám-
skeið þau, sem haldin voru við skólann á
síðasta ári.
Fyrra námskeiðið stendur frá 9.-28.
febrúar, en hið siðara frá 2.-21. mars.
Bóklegt nám verður samtals 90
kennslustundir og verklegt nám 68
stundir. Áætlaður fæðiskostnaður á dag
er kr. 55,00. Umsóknir um þátttöku
skulu sendar til Matthíasar Eggertsson-
ar. Búnaðarfélagi íslands eða að Hólum
FINNUR MEÐ NÝJA HLJOMSVEIT
BJÖRGULFUR BILAÐUR
Dalvíkurtogarinn Björgúlfur
bilaði s.l. laugardag og var
dreginn á þriðjudag til Akur-
eyrar, en þar mun skipið
verða skoðað. Að sögn
Kristjáns Ólafssonar, úti-
bússtjóra á Dalvík er ekki
vitað hvað bilaði, en þegar
aðalvélin var opnuð sást að í
henni höfðu brotnað ein-
hverjir hlutir.
Kristján sagði að væntanlegir
væru til Akureyrar sérfræðingar
frá Reykjavík og væri í rauninni
fátt hægt að segja fyrr en ná-
kvæmri athugun væri lokið.
Hins vegar væri það ljóst að það
yrði stórkostlegt áfall fyrir at-
vinnulíf á Dalvík ef togarinn
yrði frá veiðum í langan tíma.
Brú hjá Hrafnagil