Dagur - 12.02.1981, Blaðsíða 1

Dagur - 12.02.1981, Blaðsíða 1
TRULOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR ) SIGTRYGGUR & PÉTUR 1AKUREYRI KodaK Orkustofnun Stóriðja öðru hvoru megin Hörgáiósa „Athuganir leiddu í Ijós að út frá sjónarmiðum um landnýtingu virðist staðsetning meiriháttar iðnaðar við Eyjafjörð helst koma til greina á strand- lengjunni við vestanverðan fjörðinn, rétt norður eða suður af Hörgárósum.“ Þannig segir í skýrslu Orkustofnunar og iðju- svæði og iandnýtingu við Eyja- fjörð, sem gefin var út í október í fyrra. Skýrslan byggir á könn- unum á ætluðum áhrifum land- nýtingar á staðarval fyrir orku- frekan iðnað og á hvern hátt sú landnýting sem fyrir er getur haft takmarkandi áhrif á stað- arvalið. Þar sem þessi mál hafa verið SAMNINGUM BREYTT HJÁ KÍSILIÐJUNNI Mývatnssveit 11. febrúar. febrúar. Nýgerðir kjarasamningar starfsmanna Kísiliðjunnar taka gildi 16. þessa mánaðar, en þeir eru í samræmi við kjara- samninga starfsmanna á Grundartanga. Helsta nýmæli þessara samninga er veruleg stytting vinnutíma. Vegna þessa þarf nú að fjölga starfsmönnum við verksmiðjuna um fjóra. Horfur eru á að sala fyrstu þrjá mánuði þessa árs verði fremur treg eins og undanfarið, en menn gera sér vonir um að eitthvað muni úr rætast með vorinu. Engin sérstök framkvæmdaáform eru uppi hjá Kísiliðjunni að sögn Hákonar Björnssonar, framkvæmdastjóra. J.I. mjög til umræðu undanfarið m.a. í bæjarstjórn Akureyrar, er fróðlegt að athuga hvað stendur í þessari skýrslu og fer það hér á eftir:, Mælingar sýna að rúmlega 80% af undirlendi við Eyjafjörð er gróið land og þar af er um fjórðungur undirlendis ræktaður. Hlutfall ræktaðs lands er hæst á Svalbarðs- strönd, eða um 44%, en lægst 19% í Grýtubakkahreppi. Byggð er um 6% athugunarsvæðis og hún er þéttust kringum Akureyri og út með firðinum að vestan. Við aust- anverðan fjörðinn er byggð mun strjálli, enda er stór hluti austur- strandarinnar í eyði. Af náttúru- verndarsvæðum hefur aðeins frið- land Svarfdæla verið friðlýst að lögum, en það land sem talið er æskilegt að friðlýsa nær yfir tæp 17% athugunarsvæðisins. Á þessa leið segir í ágripi af skýrslunni. í niðurstöðum segir meðal ann- ars að við Dalvík og undirlendið í mynni Svarfaðardal henti illa til stóriðju, á Árskógsströnd þekur beitiland mikinn hluta sveitarinnar og ræktað land um fjórðung undir- lendis, sem auk snjóþyngsla gera svæðið óhentugt. Utanverður Hörgárdalurinn ásamt Gálma- strönd og Kræklingahlíð virðist einna helst koma til greina fyrir staðsetningu stóriðju og er mælt með frekari athugun á áhrifum stóriðju, bæði á umhverfi og sam- félag. Þéttbýli er of mikið við Ak- ureyri og Svalbarðseyri og land- rými takmarkað, sama er að segja um Grenivík, auk þess sem eitt merkasta votlendissvæði landsins er í Höfðahverfi og vegalengdin frá Akureyri orðin nokkuð mikil. Þess má geta að höfundur skýrslunnar er Sigríður Hauksdótt- ir. Skýrslan er eins og áður gat, gefin út af Orkustofnun, nánar til- tekið raforkudeild. Sunna Borg og Thcodór Júlíusson í hlutvcrkum sínum scm Rósa og inaður hcnnar, Ólafur. Mynd: Páll A. Pálsson. Skáld-Rósa: Lánuðu 500 bækur á dag Útlán bóka frá Amtbókasafninu á Akureyri voru samtals 137.424 bindi og útlánadagar voru 275, þannig að meðalútlán á dag voru rétt tæplega 500 bindi á síðasta ári. Þetta kemur m.a. fram í ársskýrslu Amtbókasafnsins fyrir 1980, sem nýlega er kontin út. Bókakostur heimlánadeildar var í árslok 30.606 bindi og jókst um 1156 bindi á árinu. Afskrifuð voru 804 bindi, sem er óvenjumikið, en stafar af þvi hve fáar bækur voru afskrifaðar árið áður. Þess má geta að lán á bókakössum til skipa og stofnana voru 3.857 bindi og jókst úr 2.957 bindum frá árinu áður. Skráðir gestir á lestrarsal voru samkvæmt gestabók 7.152 og var aðsóknin mest í mars og nóvember. Bókalán í lestrarsal voru 19.327 bindi. Heildarútlán safnsins voru mest í janúar, febrúar og mars. Gerð var tilraun til að hafa grafík til láns á safninu og voru í því skyni fengnar nokkrar grafíkmyndir frá listlánadeild Norræna hússins. Varð raunin sú að ástæða þykir til að halda því áfrani. Starfsmenn í fullu starfi auk Lárusar Zophoníassonar, amts- bókavarðar. voru fimm, tveir í hálfu starfi og einn í fjórðungs- starfi. FRUMSÝNING IKVÖLD í kvöld frumsýnir Leikfélag Ak- ureyrar leikritið Skáld-Rósu eftir Birgi Sigurðsson. Leik- stjóri er Jill Brook Árnason, leikmynd hefur Steinþót Sig- urðsson gert og Freygerður Magnúsdóttir sér um búninga. Hlutverk í leikritinu eru 23 og eru þau í höndum 17 leikara. Fjárveitingavaldið á leikinn Eins og fram hefur komið er mjög mikill áhugi fjölmargra aðila á að fá brú yfir Eyjafjarð- ará hjá Hrafnagili. Enn hafa engar ákvarðanir verið teknar, en margt bendir til að bygging brúarinnar muni ná fram að ganga. Ef þessi brú verður að veruleika mun rætast margra áratuga gamall draumur íbúa í hreppunum framan við Akur- eyri. Eins og sjá má á meðfylgjandi korti er gert ráð fyrir því að vegur- inn beygi í vestur skammt sunnan við Laugalandsskóla og að brúin komi skammt sunnan við Hrafna- gilsskóla. Samkvæmt þeim upplýs- ingum sem blaðið fékk í gær eru starfsmenn V.r. búnir að fullhanna veginn og brúarhönnunin er langt komin. Það er því fjárveitingavald- ið sem á næsta leik, en ekkert er því til fyrirstöðu að brúin verði byggð á þeim slóðum sem rætt hefur verið um. Vegurinn frá Eyjafjarðarárbraut vestari að Eyjafjarðarárbraut eystri er 2.140 metra langur. Áætlaður kostnaður við vegagerðina er 1,8 milljónir, en áætlaður kostnaður við brúna er 5,2 milljónir. Brúin er rúmir fjórir metrar á breidd og lengd hennar er áætluð 137 metrar. Brúin yrði í fimm höfum, stálbita- brú með steyptu gólfi. Nokkurs misskilnings gætti í frétt DAGS í síðasta tölublaði þeg- ar sagt var frá jarðvegssýnishorn- um og fyrirhuguðu brúarstæði. Jarðvegurinn á brúarstæðinu er þéttur og vel nothæfur, en hins vegar er austasti hluti flatlendisins austan ár blautur og fyrirsjáanlegt að vegurinn á þeim slóðum mun síga mikið á um 500 m. löngum kafla. Með hlutverk Rósu fer Sunna Borg með önnur lielstu hlutverk fara Gestur E. Jónasson, Guðmundur Sæmundsson, The- odór Júlíusson, Þuríður Schi- öth, Heimir Ingimarsson og Þórey Aðalsteinsdóttir. Um leikritið Skáld-Rósu og höf- und þess segir Sigurður A. Magnússon: Með Skáld-Rósu fær- ist Birgir Sigurðsson meira í fang en með fyrri verkum sínum, því það getur varla talist á meðfæri annarra en þjálfaðra og þroskaðra höfunda að taka til leikrænnar krufningar persónur á borð við Vatnsenda- Rósu og Natan Ketilsson, sem löngu eru orðnar þjóðsagnaper- sónur á Islandi og standa þjóðinni ljóslifandi fyrir hugskotssjónum. Það er til marks um þroska og skáldgáfu höfundarins að hann kemst mætavel frá þeirri raun og skapar heilsteypt listaverk með skáldlegum tilþrifum og mörgum minnisverðum persónum. í þessu leikriti eru okkur leiddar fyrir sjónir aðstæður örbirgðasam- félagsins á öndverðri nítjándu öld. sem voru ekki síður til þess fallnar að afskræma mannlífið og mann- eskjuna, en gerist í okkar nýrika þjóðfélagi. Snjóflóð á Húsavík Á cllefta tímanum í gærkvöldi féll snjóflóð á tnilli skíðalyft- anna í fjallinu fyrir ofan Húsa- vík. Talið er að breidd snjóflöðsins sé tæpir 300 metrar. Allmargt fólk hafði skömmu áður átt leið um svæðið þar sem snjóflóðið féll. Engan sakaði og ekkert tjón varð á mannvirkjum. Ishrafl við Grímsey Sjómenn á netabátum frá Grímsey urðu varir við ishrafl á miðunum s.l. sunnudag. Sumir færðu trossurnar, en aðrir tóku þær allar upp. í fyrradag var gott veður og náðu menn að fara og vitja um. Að sögn fréttaritara DAGS í Grímsey reyndist aflinn góður, enda er það oft svo að góður afli fylgir hafís. I gær var suðaustan hvassviðri og snjókoma í Grímsey og voru menn að vona að hafísinn svifaði eitthvað frá eynni. Fréttaritarinn sagði einnig að samkvæmt upplýsingum frá Landhelgis- gæslunni hefði ísbrúnin verið 12 til 15 sjómílur frá Grímsey s.l. þriðjudag. AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT: 24167- RITSTJÓRN: 24166 OG 23207

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.