Dagur - 12.02.1981, Blaðsíða 7

Dagur - 12.02.1981, Blaðsíða 7
Mjólkin minnkar um 10 milljónir lítra og smiör- fjalliö að þúfu í vor miðao við framleiðslu sl. ár Á síðast liðnu ári tóku mjölkur- samlögin á móti 107,0 millj. lítrum af mjólk, en árið 1979 var innvegin mjólk 117,2 millj. Itr. Samdráttur hefur því orðið um 8,7%. Smávegis aukning varð í sölu á nýmjólk, en heildarsaia var 45,3 Itr. Það var einnig nokkur söluaukning í rjóma eða um 2,1%. Samtals seldust 1.329 þúsund lítrar. Sala á skyri var að- eins minni á síðasta ári en árið áður, sarntals voru seld 1,595 tonn. Sala á undanrennu minnkaði um 35 þús- und Itr., heildarsala á árinu varð 2,8 milljónir lítra. Framleitt var mun minna af smjöri og ostum en árið áður. Sala varð aftur á móti töluvert meiri. Söluaukning í smjöri varð 12,0%, samtals voru seld 1,670 tonn. í árslok voru birgðir af smjöri 533 tonn á móti 1.206 tonnum í upphafi ársins. Miðað við framleiðsluna vetrarmánuðina verður smjörfjall- ið orðið að lítilli þúfu í vor. Heildarframleiðsla á mjólkur- Árshátíð og umræðufundir ABA (Alþýðubandalagið á Akur- eyri) vill vekja athygli á eftirfar- andi: Eins og undanfarin ár heldur ABA árshátíð sína, laugardaginn 14. febrúar næstkomandi kl. 20 í Alþýðuhúsinu. Þar mun Auður Haralds flytja smá pistil, auk þess sem félagar í ABA fremja ýmiss- konar uppákomur í formi kvartett- söngs, upplestra og leikrænna til- burða af léttara taginu. Gunnar Jónsson gítarleikari mun skemmta gestum með leik sínum og sitthvað fleira verður sér til gamans gert. Á borðum verða heitir pottréttir og fleira góðgæti, sem lystfengir félagar á sviði matargerðarlistar- innar tilreiða sjálfir. Vegna árvissra þrengsla á þessum samkomum er vissara að tryggja sér miða í tíma og vísast til blaðaauglýsinga í þeim efnum. Enn fremur vill Alþýðubanda- lagið vekja athygli á þremur fund- um sem fyrirhugaðir eru á næstu mánuðum. Hinn fyrsti þeirra verður laugar- daginn 21. febrúar að Hótel Varð- borg, kl. 15. Árni Bergmann rit- stjóri mun m.a. fjalla þar um hvemig sósíalisminn hefur þróast í Sovétríkjunum, innan sósíalískra flokka í Vestur-Evrópu og stöðu Alþýðubandalagsins i ljósi þess. Nokkur samdráttur í sölu kindakjöts á síðasta ári ostum síðasta ár var 3,591 tonn, sem var 2,6% minni framleiðsla en árið 1979. Samtals voru seld inn- anlands 1,372 tonn, en það var 11,1% aukning frá fyrra ári. Flutt voru út 1.926 tonn. sem var 30,5% minna en árið 1979. I upphafi þessa árs voru birgðir af mjólkurostum rétt um 917 tonn, sem var um 151 tonni meira en í lok ársins 1979. Á síðasta ári voru kynntar 5 nýjar ostategundir, það var rjóma- ostur frá Mjólkurbúi Flóamanna, tveir nýir mjólkurostar frá Sauðár- króki, einn frá Borgarnesi og sá fimmti kom frá Mjólkursamlaginu á Húsavík. Þá kom Mjólkursamlag KEA með nýja framleiðslu, 'sem flestir vilja flokka sem ost en líkist að nokkru skyri og heitir „Kota- sæla“. Ef að líkum lætur, þá mun þessi mjólkurafurð seljast vel á næstu árum, því nú er vinsælt að neyta megrunarfæðu, en „kotasæl- an“ er í þeim flokki matvæla. Nokkur samdráttur varð í sölu á kindakjöti innanlands á síðast liðnu ári miðað við árið 1979. Það ár nain heildarsalan 10.423 tonnum, þar af voru 8.760 tonn dilkakjöt. Á síðast liðnu ári voru seld innanlands 9.918 tonn af kindakjöti, þar af 8.226 tonn af dilkakjöti, sem var 6,1% minna en árið áður. Heildarútflutningur á kindakjöti árið 1979 nam 5.052 tonnum, þar af voru 5.046 tonn dilkakjöt. Á síðast liðnu ári voru flutt úr 4.262 tonn af dilkakjöti og 144 tonn af kjöti af fullorðnu. Árið 1980 var slátrað 831.307 dilkurn og 60.478 fullorðnum kindum. Dilkakjötið reyndist vera 12.177 tonn, sem var 2,9% minna en árið áður, meðalfallþungi var 14,65 kg. Kjöt af fullorðnu var 1,364 tonn en það var rúmlega 48% minna en árið 1979. Birgðir af dilkakjöti 1. janúar s.l. voru 8.061 tonn, en það var 470 tonnum minna en 1. janúar 1980, og af kjöti af fullorðnu voru til 1.756 tonn sem var 527 tonnum minna en á sama tíma í fyrra. Mikið var rætt og skrifað um kjötskort um mánaðarmótin ágúst/sept. 1980. Það var skammast yfir því að of mikið af kjöti hefði verið flutt út og nú væri ekkert kjöt eftir handa okkur. Samkvæmt skýrslum voru til hjá sláturleyfishöfum um þessi mánaðarmót rétt um 460 tonn af dilkakjöti. Þá hafði um nokkurt skeið verið óvenjulega mikil sala í dilkakjöti. Þetta kjöt dugði vel fram á haustið og fékkst víða eftir að nýtt kjöt kom á markaðinn. Nokkur óvissa ríkir nú varðandi útflutning á kindakjöti í ár og næstu ár, ef framleiðslan helst óbreytt. Besti markyðurinn erlendis fyrir íslenzkt dilkakjöt hefur verið í Noregi. Þangað hafa verið seld undanfarin ár, 2000 til 2750 tonn af dilkakjöti árlega. Norðmenn auka framleiðsluna á dilkakjöti verulega á næstu árum. Undanfarin ár hefur nokkur aukning verið í framleiðslu kinda- kjöts í Noregi, en það hefur nokkuð haldist í hendur við aukninguna í neyzlunni. Vegna verulegra hækk- ana á verði til bænda í lok síðasta árs og minnkaðra niðurgreiðslna í upphafi þessa árs, hefur smásölu- verð á kindakjöti hækkað mjög mikið í Noregi. Það er því reiknað með að sala dragist eitthvað saman. í áætlun um innflutning á dilka- kjöti gera Norðmenn ráð fyrir að ekki verði flutt inn á árinu 1982 meira en 1300 tonn og gæti jafnvel farið svo að innflutningurinn yrði innan við 500 tonn. Fjölmenni á stofn- fundi jafnréttisfélags Sunnudaginn 8. febr. var hald- inn að Hótel KEA á Akureyri stofnfundur jafnréttishreyfing- ar. Fundinn sóttu um 80 manns. Rætt var um starfsgrundvöll og skipulag félagsins, sem undir- búningshópur hafði gert tillögur FANN TVÆR GIMBRAR 15. mars verður svo fundur undir yfirskriftinni Fjölskyldan í nútíma þjóðfélagi. Fylgist með þegar fundarstaður og ýtarleg dagskrá verða síðar auglýst. Þriðji fundurinn verður svo haldinn 4. apríl. Þar verður fjallað um umhverfismál Akureyrar í víðu samhengi, t.d. um samgöngu-, úti- vistar-, iðnaðar-, náttúruverndar- og hreinlætismál. Fundarstaður og nánari dagskrá verða auglýst síðar. Athygli skal vakin á að fundirnir eru öllum opnir, láti þeir sig þessi mál einhverju varða. Verið velkomin Alþýðubandalagið á Akureyri ( Fréltaíilkynning ). Mývatnssveit ll.febrúar. Ámi Halldórsson, bóndi í Garði, hefur verið iðinn við fjárleitir að undanförnu. í síðustu viku fór hann til fjalia á vélsleða sínum og í þeirri ferð fann hann á með gimbur sunnan við Bláfjöll. Þær „mæðgur“ voru frá Grænavatni. Á sunnudagsmorguninn lagði hann aftur upp í sleðaferð og þá í samfylgd Gylfa Ingvasonar, frá Skútustöðum. Þeir fóru upp hjá Ketildyngju og síðan norðan Herðubreiðarfjalla, austur í Graf- arlönd. í Ferjufjalli við Jökulsá, fundu þeir á og lambhrút frá Vog- um. Syðst í Grafarlöndum var nær snjólaust og til að komast á sleð- unum í Herðubreiðalindir urðu þeir því að fara austur yfir Jökulsá á ís og aftur vestur yfir á móts við lindarnar. Undir norðurvegg Þorsteinsskála fundu þeir tvo dauða lambhrúta, enda þótt jörð væri sumarauð í lindunum og nægur hagi. Virtust hrútarnir hafa drepist fyrir löngu og sáust þess ekki merki að þeir hefðu hafst lengi við þarna. Þeir Árni og Gylfi héldu síðan í Möðrudal, gistu þar aðfararnótt mánudagsins í góðu yfirlæti. Héldu síðan heim með kindurnar og gekk heimferðin tíðindalítið, nema hvað bilun í öðrum vélsleðanum angraði þá nokkuð. Engar rjúpur sáu þeir í ferðinni og lítið af tófuslóðum. Virðist vera minna af tófu á þessu svæði en oft áður. J.I. að. Umræður voru mjög fjörug- ar, einkum varðandi aðild karl- manna að félaginu. Voru flestir þeirrar skoðunar að santvinna karla og kvenna væri nauðsynleg í jafnréttismálum. Þó voru áhöld um það, hvort þeir ættu að eiga aðild að grunnhópum félagsins, sem fyrirhugað er að setja á laggirnar, sem starfseiningar félagsins. Greinilegt er að stofnun þessa félags hefur vakið mikla athygli og umræður í bæjarfélaginu. Fyrsti fyrirhugaði starfsfundur félagsins verður laugardaginn 14. febr. í Einingarhúsinu, Þingvalla- stræti 14, kl. 16.00. Eru allir jafn- réttissinnar hvattir til að mæta. Þá verður væntanlega gengið frá starfsgrundvelli félagsins og starf- semin framundan rædd. Einnig mun þá verða skipt niður í hópa eftir áhugasviði hvers og eins. Nemendur í starfskynningu allir þangað, þar sem togarinn Björgúlfur var bilaður. Starfskynningar þessar hafa ver- ið á hverjum vetri í eina viku und- anfarin ár. Ætlunin er að halda áf- ram að kynna nemendum þau störf sem þeir hafa áhuga fyrir. Dagana 9.-13. þessa mánaðar stendur yfir starfskynning fyrir 9. bekk Dalvíkurskóla. Trausti Þor- steinsson skólastjóri sagði að flest- ir nemendurnir hefðu farið að kynna sér ýmis störf á Akureyri. Nokkrir nemendur óskuðu eftir því að fara á sjó en ekki komust Bjóóum fullkomna vlögerðarþjónustu á sjón- varpstækjum, útvarpstækjum, steríomögnur- um, plötuspilurum, segulbandstækjum, bíl- tækjum, talstöövum, fisklleitartækjum og sigl- ingartækjum. ísetnlng á bíltækjum. Hll Slim (96) 73676 uy Febrúar TILBOÐ Á Electrolux eldavélum útborgun aóeins 1á 25% og eftirstöðvar á allt að 8 mánuóum Electrolux eldavélarnar eru meöal þeirra þekktustu í heimi. Fyrst og fremst vegna gæða- og svo auðvitað vegna tækni- nýjunga. Electrolux hefur oft- astverið á undan samtíðinni í eldhústækni. Þegar þú velur Electrolux eldavél geturðu valið eida- vélagerð, sem hentar plássi og pyngju. Úrvalið og mögu- leikarnir eru margvíslegir. H3I Electrolux Auk þess bjóðum við stórkostlegt úrval af kæli og frystiskápum uppþvottavélum o.fl. o.fl. í 5 litum. Ein þeirra mun örugglega falla að smekk þínum. * Afborgunarskilmálar eða staðgreiðsluafsláttur. GLERÁRGÖTU 20 — 600 AKUREYRI - SÍMl 22233 DAGUR.7

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.