Dagur - 12.02.1981, Síða 5

Dagur - 12.02.1981, Síða 5
hmguir Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri Ritstjórnarsimar: 24166 og 23207 Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167 Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON Blaðamaður: ASKELL ÞÓRISSON Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf. Ríkisstjórnin og fiskverðið Sjaldan eða aldrei hefur gengið eins illa að ákveða fiskverð og núna. Þegar til þess er litið hversu mikilvægt fiskverðið og hækkun þess er fyrir alla verðlagsþróun í landinu, þá er þessi seinagangur í fiskverðsákvörðun í rauninni ekkert skrýtin. Ríkisstjórnin hefur markað stefnu sem fara skal eftir. Þar er gert ráð fyrir niðurtalningu verðbólgunnar þannig að hún verði orðin 40% í árslok. Gengið er út frá ákveðnum forsendum og ef svo mikilvæg forsenda sem fisk- verðið breytist, þó ekki sé nema tiltölulega lítið, þá er borin von að unnt verði að ná þeim markmiðum sem að hefur verið stefnt. Þá er Ijóst að sami hrunadansinn heldur áfram og allir, ekki síst launþegar og þar á meðal sjómenn, halda áfram að tapa. Ein af forsendum efnahagsað- gerða og áætlana ríkisstjórnar- innar mun hafa verið sú, að fisk- verð hækkaði ekki meira en um 15%. Önnur forsenda var sú, að ekki yrðu breytingar til hins verra á mörkuðum fyrir fiskafurðir okkar erlendis. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að hækki fiskverð umfram það sem fiskverkunarfyr- irtækin geta borgað og ef ekki kemur til hækkun á verði afurða á erlendum mörkuðum, þá þarf að leiðrétta hag þessara aðalút- flutningsgreina okkar. Allir vita til hvaða ráða gripið hefur verið og allir vita til hvaða ráða verður gripið, því vart er um aðra lausn að ræða. Gengið er fellt og verðbólg- an eykst. Þar sem hækkun fiskverðsins hefur svo mikil áhrif á verðlags- breytingar er Ijóst, að verði hún meiri en gert hefur verið ráð fyrir, svo einhverju nemi, þá fer allt úr böndunum. Ábyrgð forystumanna sjómannastéttarinnar og útgerð- arinnar er því mikil. Þeir hafa það í hendi sér hvort ríkisvaldið þarf að grípa til aðgerða til að bjarga fisk- iðnaðinum, aðgerða sem draga munu úr áhrifum þeirra ráðstafana sem gerðar voru um áramótin. Verði stórlega dregið úr áhrifa- mætti þeirra aðgerða er óvíst um framtíð ríkisstjórnarinnar, sem styðst þó við meirihluta á Alþingi. Þar eru kjörnir fulltrúar þjóðarinn- ar og að öllu jöfnu ætti framtíð ríkisstjórnarinnar að ráðast þar og síðan við kjörborðið. Enginn hefur kosið forystu- menn hagsmunasamtaka, hverju nafni sem þau nefnast, til að fara með umboð kjósenda í landinu. Stjórnskipun hér á landi gerir ekki ráð fyrir að í næstu kosningum verði kosið um aðgerðir Sjómannasambandsins eða ein- hverra annarra hagsmunasam- taka sem ekki bera ábyrgð gagn- vart kjósendum. Rétt er að hafa í huga að kjósendur eru að tölu- verðum meirihluta hlynntir ríkis- stjórninni og þeim aðgerðum sem hún hefur boðað. Hefur stillt tugþúsundir frekar en þúsundir hljóðfæra „Síðasta ballið sem ég spilaði á var áramótadansleikur 1945-6. Það var geysilega mikið ball, var á Hótel KEA og stóð frá klukk- an 10 á gamlárskvöld til klukkan 7 á nýjársmorgun. Ég þrumaði á nikkuna alla nóttina og sló bassatrommu með hægra fæti og diska með þeim vinstra. Sjötta janúar fór ég síðan til Dan- merkur að læra hljóðfærastill- ingar og viðgerðir og hef haft það að aðalatvinnu síðan árið 1948. Ætli megi ekki telja hljóðfærin sem ég hef stillt í gegnum árin í tugþúsundum, frekar en þúsundum.“ Það er Ottó Ryel, fyrrum kaupmannssonur á Akureyri, sem hefur orðið. Faðir hans hét Baldvin Ryel, danskur maður, sem lengi höndlaði á Akureyri, en hætti því fyrir nær 20 árum síðan. Hann byggði meðal annars húsið þar sem nú er Byggðasafnið og þar var heimili fjölskyldunnar. Bróðir Ottós er Herluf Ryel, sem flestir kannast við úr Gránubúðinni. Móðir þeirra býr nú i hárri elli á Hrafnistu, en hún er heiðursfélagi í þremur kvenfélögum á Akureyri. Faðir hennar var norskur en móðir hennar íslensk. Hún bjó í Pálmholti og gaf dóttirin síðan landið undir barnaheimili það, sem nú ber nafn bæjarins. Ottó hefur haldið tengslum við Akureyri og gamla kunningja í gegn um píanóstillingar, sem hann hefur stundað árum saman, eins og fram kom áður. Hann var við þann starfa þegar Dagur náði samtali við hann. „Ég hef nú vanalega komið a.m.k. tvisvar sinnum á ári til að stilla hljóðfæri hér á Akureyri og þá venjulega einnig farið í nærsveit- irnar. Að jafnaði er ég svona viku í ferðinni en býst við að verða lengur núna, því nokkuð hefur safnast upp af verkefnum vegna þess, að ég kom ekkert á síðasta ári. Nú liggur fyrir langur listi af hljóðfærum fyrir nemendur tónlistarskólans. Akur- eyri er mikill tónlistarbær og ég held að hljóðfæraeign sé hlutfalls- lega meiri hér en víðast hvar annars staðar á landinu," segir Ottó Ryel. Hann byrjaði 19 ára gamall að spila á böllum og hefur gaman af að rifja upp þá góðu gömlu tíma: „Eitt fyrsta ballið sem ég spilaði á var við ísafjarðardjúp, en þar var ég í sveit. Ég fékk túkall á tímann og var mjög hreykinn af. Ég keypti svo vínarbrauð fyrir allt kaupið og var það mikil tilbreyting frá annars fábrotnu mataræði í sveitinni. Þeir sem spiluðu með mér eftir að ég fór að spila í hljómsveit voru Kalli Jónatans, Óskar Rósberg, Héðinn Friðriks, Jóel Ingimars, Palli Guðlaugs og Kalli Adolfs og var lengi spilað á Hótel Norður- ljósi. Eitt sumarið spiluðum við Kalli Adolfs þrisvar í viku á böllum í Vaglaskógi í bragga sem .Loftur Einarsson ríki rak þar. Það var miklu meira fjör á böllunum í gamla daga heldur en nú er. Það kom fyrir að spilað var linnulítið til klukkan níu að morgni. Fólk fór fremur sjaldan á böll og vildi því fá eitthvað almennilegt, loksins þegar það skemmti sér á annað borð. Kvenfólkið sat á bekkjum en karl- mennirnir stóðu í hnapp við dyrnar og þustu eins og byssubrenndir þegar músíkin byrjaði. Stundum var sungið svo hátt og mikið að maður heyrði ekki einu sinni í har- monikkunni, sem maður var þó að spila á. Ég hef ekkert spilað á böllum eftir að ég kom frá námi, en hef alltaf orðið að eiga harmonikku eða eitthvert annað hljóðfæri." Ottó rifjar upp óteljandi ferðir sem hann hefur farið með tónlist- armönnum eins og Askenasy og fleirum, til að stilla hljóðfæri fyrir hljómleika. I þessari ferð stillti hann m.a. píanóið sem Berkovsky lék á s.l. laugardag á hljómleikum á Akureyri. Ottó minnist einnig bernskuáranna á Akureyri m.a. þess, þegar börnin sungu fyrir utan verslanir til að sníkja gotterí á öskudögum. Fyrir utan eina versl- unina var eftirfarandi vísa sungin og þarf ekki að fara fleiri órðuni um hvers vegna: Ó, Guðmann bróðir besti og barnavinur mesti, lipur varstu og laginn að loka á öskudaginn. Ottó hlær mikið þegar hann rifj- ar upp bernskubrekin, sem fjöl- niargir Akureyringar muna vafa- laust með honum, en við þökkum honum spjallið og látum því lokið. Otto Ryd við píanóstillingar á Akureyri. Mynd: H.Sv. Um meðferð og frágang ullar Á síðari árum hefur mikið verið rætt um íslenskan ullariðnað, enda æ ljósara hvaða þýðingu hann getur haft fyrir atvinnulíf og eins fyrir útflutning og gjaldeyr- isöflun þjóðarinnar. Stjórnmálamenn og aðrir ráðamenn birðast sammála um að hinar hefðbundnu atvinnu- greinar, sjávarútvegur og landbúnaður, geti ekki tekið við meira vinnuafli, a.m.k. um sinn, og því verði iðnaðurinn að mæta auknu framboði vinnuafls á næstu árum en þar er hlutur ull- arvinnslunnar mjög stór eins og kunnugt er. Ýmsir benda að vísu á stóriðju sem allra meina bót. En aðrir benda á léttan iðnað, eins og ullariðnaðinn, sem vænlegri lausn og tengja þá atvinnu- uppbyggingu er hann gæfi við byggðastefnuna og vilja láta hann jafna búsetuskilyrði á lands- byggðinni. Ekki ætla ég að taka þátt í þeirri umræðu hér. E.t.v. eiga þessi sjónarmið bæði rétt á sér og þurfa að haldast í hendur ef vel á að fara. Taka þarf tillit til margra og ólíkra hluta. En í sambandi við létta iðnað- inn þarf að gera sér fulla grein fyrir því hve miklar vonir eru bundnar við vinnslu á ull og gær- um, og því má einskis láta ófreistað til að bæta gæði hráefn- isins sem við ætlum að gera að söluhæfri vöru. Það er ekki nóg að sjá hina þjóðhagslegu hag- kvæmni í ullariðnaðinum, fjölg- un atvinnutækifæra, arðbæra markaði og auknar gjaldeyris- tekjur. Þessi iðngrein mun eiga við harðnandi samkeppni að etja, og því getur þetta allt mistekist eða glatast ef við leggjum ekki áherslu á vöruvöndun allt frá byrjun, reynum að auka gæði og bæta meðferð hráefnisins, sem við vinnum vöruna úr. Þótt sölu- horfur séu góðar eins og er, bæði í Rússlandi, Vestur-Evrópu og Bandaríkjunum, á þessi iðngrein framtíð sína og vöxt komna undir því að vandað sé til framleiðsl- unnar frá byrjun og samræmd vinnubrögð framleiðandans (bóndans) og þeirra sem vinna úr hráefni hans. Því þykir mér ástæða til að brýna enn fyrir bændum nokkur atriði sem snerta frágang og meðferð á ull, enda er vetrarrún- ingur nú víða að hefjast. Ég hef unnið við ullarmat í all mörg ár og er reynsla mín sú að með lítilli fyrirhöfn geti margir ullarfram- leiðendur .skilað betra hráefni og aukið tekjur sínar um leið. Fyrst og fremst á ég við meðferð á ull- inni við rúning og frágang þegar hún er sekkjuð, þótt fleiri atriði komi vissulega til er snerta gæði hráefnisins eins og síðar verður vikið að. Hér þó aðeins unnt að minna á nokkur grundvallarat- riði, en að öðru leyti vísa ég á grein Stefáns Aðalsteinssonar: Leiðbeiningar fyrir ullarfram- leiðendur í Handbók bænda 1980 og Lög um flokkun og mat ullar og greinargerð við þau lög, sem birtar voru í Handbók bænda 1978. Gagnlegt er fyrir ullar- framleiðendur að kynna sér glöggar og ítarlegar reglur um flokkun ullar sem þar er að finna. Við rúning er margs að gæta. Féð þarf að vera þurrt og bleyta má alls ekki komast að ullinni eftir rúning og moð- og heyrusl má ekki komast í hana. Æskilegt er að ullin geti kólnað áður en reifin eru sekkjuð og þarf því nokkurt pláss, vel hreinsað, þar sem rúningsmenn geta lagt ullina frá sér. Best er síðan að hafa borð eða fleka við hendina þar sem hægt er að breiða úr hverju reifi, snyrta það og vefja. Ætíð skal þá gœta pess að toghliðin snúi upp. Jaðrarnir eru svo lagðir inn á reifið og það síðan varið saman og byrjað aftan frá. Ekki er ástæða til að teygja úr bæálsullinni og vefja utan um reifið. Það hefur enga þýðingu, tefur aðeins fyrir í mati. Ert það 4 ■ DAGUR .. . AÐ UGGVÆNLEGA HORFIR .... Á næstunni tekur Bæjarráð Ak- ureyrar fyrir beiðni af hálfu Myndlistaskólans á Akureyri um aukna styrkveitingu til reksturs skólans. Eins og kunnugt er, hef- ur Myndlistaskólinn á Akureyri átt í rekstrarörðugleikum enda fjárframlag af skornum skammti og skólinn í leiguhúsnæði. Ef fram heldur sem horfir erum við nemendur uggandi um framtíð og starfsemi skólans í heild og þá sérstaklega fomámsdeildarinnar, sem er rekin í fullu samráði við Myndlista- og handíðaskóla ís- lands og veitir rétt til áframhald- andi sérnáms í þeim skóla. Það er mikill akkur fyrir bæ eins og Akureyri að hafa fyrsta áfanga myndlistarnáms í bænum og því ætti bæjarfélagið að styðja við bakið á Myndlistaskólanum á sama hátt og við Tónlistaskóla Akureyrar. Hingað til hefur bæj- arfélagið sýnt nokkurn skilning á listþörf bæjarbúa sem kemur einna best fram í því að Tónlist- arskólinn er í húsnæði bæjarins ogfær ríkulegan fjárstyrk. Er það góðra gjalda vert. Blómlegt tón- listarlíf virðist haldast í hendur við grósku bæjarins og velmegun. Því skýtur skökku við að myndlistarnám skuli hafa dregist aftur úr með tilliti til nauðsynlegs jafnvægis milli atvinnulífs og menningarmála. Okkur virðist sem skilnings- leysi almennings og bæjaryfir- valda á því að sérmenntað myndlistarfólk skili sér út í at- vinnulífið sé enn við lýði. Skilningsskortinn teljum við fyrst og fremst stafa af lítilli vitneskju um myndlistarnám almennt. í almennum umræðum um slíkt náni vill oft gleymast sú töl- fræðilega staðreynd að tekjur ríkissjóðs í formi tolla og sölu- skatts á myndlistarvörum eru hærri en kostnaður við list- menntun og styrkveitingar. Bæj- aryfirvöld virðast ekki koma auga á hagnýtt gildi mynd- og hand- menntar í hinum ýmsu greinum þjóðfélagsins, s.s. kennslu, aug- lýsingateiknun, hönnun o.s.frv. að ógleymdum þeim iistamönn- um sem getið hafa sér gott orð hér heima og á erlendri grund sem verðugir fulltrúar hinnar íslensku þjóðar. Eins og minnst var á í upphafi er það staðreynd, að Myndlista- skólinn á í rekstrarörðugleikum vegna fjárskorts, svo miklum að uggvænlega horfir. Sú staðreynd kallar á skjótar úrbætur. Á s.l. ári greiddi bæjarfélagið gkr. Í7.000.000 (sautján milljónir) og er það hlægileg upphæð miðað við efniskostnað, kennaralaun og annan rekstrarkostnað. Eins og komið hefur fram í blaðaviðtölum við Helga Vilberg skólastjóra hafa bæjaryfirvöld sýnt skólanum stuðning og vel- vilja undanfarin ár. Við treystum því að sá stuðningur aukist jafnt viðgangi skólans. Starfsemi skól- ans hefur aukist og áhugi fólks er mikill. Árið 1980 var stigið stórt skref í átt til jafnvægis í mynd- listanámi á landsbyggðinni, þ.e, með stofnun fornámsdeildar og hefur það marga kosti í för með sér. Slíkt átak í almenni listnámi hér á Akureyri kallar á enn frek- ari skilning Bæjarráðs þó ekki væri nerna vegna mikilvægis þessa þáttar í byggðastefnunni. Þegar ákvörðun um aukna styrk- veilingu verður tekin viljum við biðja Bæjarráðsmenn að rnuna einnig eftir því að Myndlista- skólinn á Akureyri er eini skólinn fyrir utan borgarmörk Reykja- víkur sem veitir sambærileg rétt- indi við Myndlista- og handíða- skóla Islands. Nemendur fornámsdeildar Myndlistaskólans á Akureyri. að togið snúi ætíð inn tel ég þýð- ingarmest. Þegar reifið er vafið saman á sárið, þelið, gerist það að ullin límist saman, svo að ómögulegt er stundum að greiða reifin í sundur. Það veldur því í senn óhagræði og lakari vöru og flokkun. Þá vil ég eindregið ráðleggja bændum, ekki síst þeim sem hafa ær sínar ekki á grindum, að nota tækifærið þegar þeir vefja reifin saman að klippa frá þeim alla skítaklepra og skánir. Gott getur þá líka verið að grófflokka ullina og halda t.d. kviðarullinni sér. Nauðsynlegt er líka að gæta þess að ekki blandist saman hvít ull og mislit eða dökkleit, heldur sé hverjum ullarlit haldið aðgreind- um. Best er síðan að koma ullinni svo fljótt sem kostur er á ullar- þvottastöð. Framansögð atriði gætu þótt sjálfsögð. Reynslan sýnir þó að margir geta enn bætt vinnubrögð sín og umhirðu, þótt aðrir gangi vel frá sinni ull og sýni þessu fullan skilning. Hafa verður líka í huga að vetrarrúna ullin er mjög viðkvæm í meðförum. Að lokum vil ég minna á tvö atriði sem stuðla munu að bættu hráefni. Reynslan sýnir að vetr- arrúningur gefur betri ull, auk þess sem hún skilar sér betur, og sparar fyrirhöfn. Því vil ég hvetja bændur til að vetrarrýja fé sitt, ef húskostur frekast leyfir og aðrar aðstæður, og hentugasta tímann tel ég fyrri hluta marsmánaðar eða þar um bil. Þessa stefnu þyrftu allir bændur að taka upp og reyna að laga aðstæður sínar að henni. Suniar- og haustrúin ull hefur yfirleitt komið mun lakar út í mati, sérstaklega haustrúna ull- in, vegna hins mikla sandflóka er henni fylgir oft. Þeir matsflokkar sem slík ull og klepraullin lenda gjarna í þyrftu alveg að hverfa, (3. og 6. fl.). Þá ætti einnig að hafa hugfast að verðmesta ullin er sú hrein- hvíta. Mislita ullin er nú orðin allt of stór hluti af heildarullarmagn- inu og jafnvel dökkleit ull, svört, grá og mórauð, kemur oft illa út. Þar sem liturinn er ekki nógu hreinn fellur ullin í annan flokk. Varðandi mislita féð mun sama vandamál koma fram hjá þeim sem fjalla um gærurnar og ástæða til að ætla að þær muni lækka í verði. Auka þarf því hlut hvítu gæranna í heildarframleiðslunni. Æskilegast er því að sem flestir reyni að byggja upp hvítan fjár- stofn með hreinhvíta og þelmikla ull. Það er það hráefni sem íslenskan ullariðnað vantar helst nú og öruggast er að treysta á í framtíðinni. Ég vona svo að bændur og aðrir ullarframleiðendur taki þessi atriði öll til athugunar. Þeir gera sér grein fyrir því að hlutur ullar og gæra hefur farið vaxandi í afurðaverði og því beinn hagur þeirra að vel takist til um alla meðferð og gæði þessa hráefnis. Ef samstarf og gagnkvæmur skilningur tekst milli þeirra og hinna, sem úr ullinni vinna, á þessi iðngrein mikla framtíð fyrir sér. Akureyri 7. febrúar 1981, K.S. Febrúarmót í svigi, fyrir 12 ára og ungri, hefst laugar- daginn 14. 2. 81. kl. 11.30. Sunnudaginn 15. verður opin göngubraut 1,5 km að lengd, fyrir alla fjölskylduna. Stökkpallur við Strýtu fyrir alla sem vilja reyna. Svigbraut með hindrunum og einnig auð- veld braut fyrir alla. Akureyrarmeistarar í fótbolta Drengir úr sjötta flokki KA sem urðu Akureyrarmeistarar í knattspyrnu 1980. Stúlkur úr Þór scm urðu Akureyrarmeistarar f knattspyrnu 1980. Piltar úr öðrum flokki KA sein urðu Akureyrarmeistarar i knattspyrnu 1980. Piltar úr þriðja flokka KA en þeir urðu Akureyrarmeistarar f knattspyrnu 1980. Urslit í stórsvigi KA 7. 2. og 8. 2. 1981 Stúlkur 7 ára. . I. Harpa Hauksdóttir KA 81,79 2. Helga Malmqvist Þór 107,00 3. Sísí Malmqvist. Þór 116,08 Drengir 7 ára 1. Gunnlaugur Magnússon KA 77,24 2. Gunnar N. Ellertsson Þór 82,58 3. Stefán Þ. Jónsson KA 85,14 Stúlkur 8 ára. 1. María Magnúsdóttir KA 74,94 2. Harpa M. Örlygsdóttir KA 88,80 3. Mundina Magnúsdóttir KA 145,66 Drengir 8 ára. 1. Sævar Guðmundsson Þór 72.38 2. Magnús H. Karlsson KA 74,75 3. Andri M. Þórarinsson KA 84,43 Stúlkur 9 ára. 1. Rakel Reynisdóttir KA 74.90 2. Ása Þrastardóttir Þór 76.37 3. Sigriður Þ. Harðardóttir KA 79,60 Drengir 9 ára. 1. Sigurbjörn Þorgeirsson KA 69.02 2. Sverrir Ragnarsson Þór 69.80 3. Vilhelm Þorsteinsson KA 72.47 Stúlkur 10 ára. 1. Þorgerður Magnúsdóttir KA 86,11 2. Sólveig Gísladóttir Þór 86,89 3. Jórunn Jóhannsdóttir KA 98.71 Drengir 10 ára 1. Jón Harðarson KA 78.23 2. Kristinn Svanbergsson KA 78.56 3. Árni Þ. Árnason Þór. 79,67 Stúlkur 11-12 ára 1. Gréta Björnsdóttir Þór 76,38 2. Arna Ingvarsdóttir Þór 77.84 3. Erla Björnsdóttir Þór 80,91 Drcngir 11-12 ára 1. Hilmar Valsson Þór 72,71 2. Gunnar Reynisson Þór 77.60 3. Jón H. Harðarson Þór 78.54 Drengir 13-14 ára 1. Jón Björnsson Þór 80,24 2. Helgi Bergs KA 81,04 3. Guðmundur Sigurjónsson KA 81.45 Stúlkur 13-15 ára 1. Guðrún J. Magnúsdóttir Þór 75.16 2. Guðrún H. Kristjánsdóttir KA 78.49 3. Anna M. Malmqvist Þór 79.36 Drengir 15-16 ára 1. Bjarni Bjarnason Þór 97,83 2. Gunnar Svanbergsson KA 101.45 3. lngi Valsson KA 101,93 Kvcnnaflokkur 1. Nanna Leifsdóttir KA 109,50 2. Hrefna Magnúsdóttir KA 111.06 3. Ásta Ásniundsdóttir KA 112.01 Karlaflokkur 1. Haukur Jóhannsson KA 102.63 2. Björn Víkingsson Þór 103,63 3. Finnbogi Baldvinsson KA 103,91 Ólafur Friðriksson: Dýr mistök Auðunn Benediktsson og félagar skrifuðu grein í síðasta tölublað Dags, er nefnist „Hvers vc u mis- tökin". Grein þessi fjallar m a. um það hversu mikilvægur nýi hafnar- garðurinn á Kópaskeri er okkur heimamönnum. Undir það atriði vil ég taka heilshugar, enda er það hverju orði sannara að hafnar- skilyrði gjörbreyttust hér á staðn- um bæði fyrir báta og flutninga- skip. Hins vegar virðist Auðunn og félagar gleyma því að garðurinn hefur stórskemmst í vetur, og ef heldur fram sem horfir er hætta á að skjól garðsins rninnki rneira frá því sem nú er. Það er einkum fremsti hluti garðsins sern látið hefur á sjá, en fremst á honuni var nokkurskonar „haus“, sem stóð lengi vel af sér alla sjóa. En nú hefur hann einnig orðið að láta undan þunga sjávar og er nú mun líkari skcri. Þetta gildir raunar einnig um mikinn hluta framparts garðsins. Það vil ég þó taka skýrt fram. eins og ég hf raunar gert áður, i þeim fréttum sem ég hef látið frá mér fara, að sá hluti garðsins sem neðansjávar er virðist nokkuð heill ogstoppar alla sjóa inn í höfnina. Hvers mistökin voru í byggingu garðsins skiptir ekki máli í þessu sambandi, heldur liitt að svona mistök endurtaki sig ekki. Lítið þjóðfélag eins og okkar hefur ekki efni á svona mistökum. Það er lítil skynsenii að leggja áherslu á lengd garðsins, en skeyta Ólafur Kriðriksson. ekki urn að einhver von sé að hann standi þá sjóa sem til er ætlast. Og þar með höfum við þurft að horfa á eftir stórurn hluta af okkar kær- kornnu fjárveitingu i hafið, þeirri fjárveitingu sem beðið hefur verið eftir i svo mörg ár. DAGUR•5

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.