Dagur - 12.02.1981, Side 6
Stuðningsyfirlýsing til
fóstra á Akureyri
Dagana 7. 8. og 9. febrúar héldu
fóstrur alis staðar að af landinu
kjaramálaráðstefnu í húsi
B.S.R.B. að Grettisgötu 89 í
Reykjavík. Markmið ráðstefn-
unnar var að ræða og samræma
starfshætti varðandi kjaramál
fóstra og stöðu þeirra innan
hinna ýmsu starfsmannafélaga,
en sem kunnugt er hefur
Fóstrufélag íslands ekki sjálf-
stæðan samningsrétt. Fjallað
var um starfssemi B.S.R.B. og
aðildarfélaga þess í kjara-
baráttu fóstra fyrr og nú og rætt
um þá möguleika sem fyrir hendi
eru.
Á ráðstefnunni var samþykkt
stuðningsyfirlýsing við fóstrur
starfandi á Akureyri, og segir þar
Kjaramálaráðstefna Fóstru-
félags Islands haldin að Grettisgötu
89, dagana 7. 8. og 9. febrúar 1981,
lýsir eindregnum stuðningi við
kröfur fóstra á Akureyri.
Ennfremur lýsir kjaramálaráð-
stefnan stuðningi við þann mál-
flutning fóstra á Akureyri að
starfsheitið deildarfóstra sé óraun-
hæft þar sem framtíðarstefnan
hljóti að vera sú, að dagvistar-
heimili séu eingöngu skipuð fag-
lærðu starfsfólki, sem vinni hlið við
hlið, við sömu störf, á sömu laun-
um.
Kjaramálaráðstefna Fóstrufélags
íslands telur sig hafa vissu fyrir því
að engin fóstra muni sækja fóstru-
störf sem auglýst hafa verið laus til
umsóknar. Þetta mun í reynd þýða
að dagvistarheimili Akyreyrarbæj-
ar verði óstarfhæf sbr. Lög um
byggingu og rekstur dagvistar-
heimila frá 1976/112. V. KAFLI
16.gr. en þarsegir: Forstöðumaður
dagvistarheimilis og starfslið, er
annast fósturstörf, skal hafa hlotið
fósturmenntun, svo og þeir sem
annast umsjón með dagvistar-
heimilum á vegum rekstraraðila.
Övenju góð
veiði í
Grímsey
Það sem af er árinu hafa neta-
bátar í Grímsey fengið tæp 300
tonn, sem er óvenjumikill afli á
þessum árstíma. Þakka menn
m.a. hafísnum þennan afia, sem
hefur fengist á 5 báta, en þeir
eru rösklega 10 tonn á stærð.
Engin trilla er á sjó, en bátarnir
fimm kafa veitt nægjanlcga
mikið til þess að góð atvinna
hefur verið í Grímsey.
Björgvin bilar
Aðfararnótt s.l. sunnudags bil-
aði aðalvélin í Dalvíkurtogaran-
um Björgvini.
Að sögn Kristjáns Ólafssonar,
útihússtjóra á Dalvík, hefur bilunin
í Björgvini í för með sér mun minni
atvinnu á Dalvík en búist er við því
að togarinn verði frá veiðum í 2 til 3
mánuði. Kristján sagði einnig að
búist væri við því að aðalvélin í
Björgvini væri allt að því ónýt.
m.a.
Fóstrur og starfsstúlkur I Lundarseli. Mynd: á.þ.
Akureyrarkirkja. Messað n.k.
sunnudag kl. 2 e.h. Nýju
vikna fastan hefst. Prófessor
Duncan B. Forrester guð-
fræðideild Edinborgarhá-
skóla predikar. Ræða hans
verður þýdd á íslensku.
Sálmar nr. 26, 35, 288, 74,
41. P.S. Kl. 5 síðdegis verður
umræðufundur með pró-
fessornum að Hótel Varð-
borg. Þeir Akureyringar sem
hefðu áhuga á að taka þátt í
að vera á fundinum gefi sig
fram við sóknarprestinn.
Hálsprestakall. Barnasamkoma
á Hálsi n.k. sunnudag 15.
febr. kl. 13.30. Æskulýðs-
fundur að lokinni barna-
samkomunni. Sóknarprest-
ur.
Í.O.G.T. stúkan Brynja. Þorra-
fundur að Hótel Varðborg
mánudaginn 16. febr. kl.
8.30. Snæddur verður
þorramatur. Skemmtiatriði.
Allir templafar veikomnir.
Vinsamlegast látið vita um
þátttöku í síma 22600 á
Hótel Varðborg fyrir laug-
ardagskvöld.
I.O.O.F. 2 — 1622138 Vi — 9 =
II.
Alþýðuflokksfólk bæjarmála-
ráðsfundur verður mánu-
daginn 16. febr. kl. 20.30 í
Strandgötu 9. Stjórnin.
Fíladelfía Lundargötu 12.
Fimmtudag 12. biblíulestur
kl. 8.30. Allir velkomnir.
Sunnudagur 15. sunnudag-
askóli kl. 11 f.h. og almenn
samkoma kl. 5 e.h. Allir vel-
komnir.
Nýja bfó sýnir í kvöld kl. 9
myndina Risakolkrabbinn. í
kyrrlátri borg við strendur
Kaliforníu getur margt
óvænt gerst. íbúar eru fáir á
bandarískan mælikvarða og
rás atburða hefur ávallt ver-
ið í svipuðu hlutfalli.
Skyndilega gerast hryllilegir
atburðir, svo hryllilegir, að
mannleg skilningarvit geta
enga skýringu gefið. Ung-
bam hverfur úr kerru,
sjómaður úr báti sínum og
unglingspiltur af ástarfundi.
Líkin, eða réttara sagt hræin
finnast étin inn að beini og
bergsogin. Hver er skýring-
in? Ned Turner er einn
þeirra er reyna að komast til
botns í þessu máli. Robarts
lögregluforingi er hræddur
við uppþot og gróusögur.
Fréttir af þessu hafa ekki
borist til eyrna fjöldans. Því
hefur ekkert verið gert til að
stöðva siglingakeppni barna
á flóanum. Myndin er
bönnuð yngri en 12 ára.
AUGLÝSIU! DEGl
Borgarbfó sýnir í kvöld kl. 9
myndina „Ég elska flóð-
hesta“ með þeim Bund
Spencer og Trence Hill í að-
alhlutverkum. Að vanda
fara þeir félagar á kostum í
myndinni. Tom hefur at-
vinnu af að aka skemmti-
ferðamönnum um veiði-
lendur í grennd við heimili
sitt, -— fara í safari með þeim
— en hann hefur óbeit á því,
hvað sumir eru gikkbráðir
og veiðiglaðir. Slim er gam-
all kunningi Toms en hefur
þó ekki bjargfasta trú á
heiðarleika hans eða að
hann sé í rauninni vinur
dýranna. Hann kemur því
við og við og gerir Tom þá
skráveifu að skjóta í hjól-
barðana á bílnum, sem Tom
notar til að aka um með
veiðigestina. Sem betur fer
geta þeir „vinirnir“ samein-
ast um eitt en það er barátt-
an við Ormond nokkum
sem er mesti fantur og rekur
eins konar heildverslun á
sviði villidýraveiða. Kl. 11
sýnir bíóið æsispennandi
hrollvekju er heitir Arfurinn
með Katharine Ross og Sam
Elliott í aðalhlutverkum.
- 1 i ‘‘aj^L j Li
i
: \ ■ ■ VTV Sa
Nýju innréttingarnar f Járn og glervörudeildinni. Ljósm.: G.P.K.
Nýjar innréttingar
Nýlega lauk framkvæmdum við
breytingar í Járn- og glervöru-
deild í Vöruhúsi K.E.A. Skipt
var um innréttingar í deildinni
og keyptar nýjar frá dönsku fyr-
irtæki, sem er eitt fremsta á því
sviði í Danmörku.
Jám- og glervörudeildin er nú
mun bjartari og skemmtilegri eftir
þessar breytingar, auk þéss sem
nýju innréttingarnar gera það auð-
veldara fyrir viðskiptavininn að
skoða vörurnar. Stefnt er að því að
auka vöruval deildarinnar í búsá-
höldum og gjafavörum, en deildin
hefur söluumboð fyrir mjög vand-
aðar og heimsþekktar vörur eins og
t.d. A.E.G. og Bauckneckt.
Ljósgjafinn sá um uppsetningu
raflagna og Stefán Jónsson annað-
ist málningu.
Hafnarframkvæmdir
og aukinn rækjukvóti
Fyrir skömmu komu saman á
Blönduósi hreppsnefndarmenn,
nokkrir útgerðarmenn og hafn-
ar- og atvinnumálanefnd. Á
fundinum voru ítrekaðar fyrri
samþykktir hreppsnefndar um
að framkvæmdir við hafnar-
mannvirki á Blönduósi yrðu
hafnar á þessu ári, en nú liggur
fyrir að hægt verði að fá u.þ.b. 1
milljón nýkróna til að fram-
kvæma fyrir í höfninni.
Á fundinum var einnig rætt um
fyrirhugaða fiskvinnslu á
Blönduósi. Til þessa hefur Sæ-
rún h/f verið með rækjuvinnslu og nú
er verið að gera fyrirtækið þannig
úr garði að hægt verði að vera þar
með fiskvinnslu. Nú er verið að
ræða við forráðamenn Skagstrend-
ings h/f um hugsanleg kaup á fiski
frá þeim.
Skipting rækjukvótans í Húna-
flóa var einnig til umræðu. Ibúum á
Blönduósi hefur þótt þeir vera af-
skiptir þegar rækukvótinn er ann-
ars vegar og var samþykkt á fund-
inum að skora á sjávarútvegsráð-
herra að taka til endurskoðunar
skiptingu á aflakvóta vegna rækju-
veiða í Húnaflóa, þannig að hlutur
Blönduósinga verði aukinn. í dag
fá þeir 10% rækjunnar sem kemur á
land. Jafnframt var skorað á Haf-
rannsóknarstofnunina að auka
rannsóknir á rækju og hörpudiski á
miðunum í Húnaflóa og Skaga-
firði.
Að sögn sveitarstjórans á
Blönduósi, Eyþórs Elíassonar,
gerði atvinnumálanefndin könnun
á atvinnuástandi og horfum meðal
fyrirtækja á Blönduósi og þar kom
frani að nú er um tímabundna
deyfð að ræða. Hins vegar er alltaf
jafn mikil ekla á húsnæði og fólk
sem gjarnan vill flytja til Blönduóss
fær hvergi inni.
Bestu þakkir til allra sem sýndu mér sóma og vin-
semd á sextugsafmœli mínu 29. janúar sl.
Guð blessi ykkur öll.
VALDIMAR HALLDÓRSSON,
Barmahlíð 8.
Öllum þeim sem mundu eftir mér á sextugsafmœl-
inu 13. des. sl.,fœri ég mínar bestu þakkir.
ÓLAFUR KJARTANSSON,
Litla-Garði, Saurbæjarhreppi.
Eiginkona mín, móðir og tengdamóðir,
KRISTÍN JÓHANNESDÓTTIR,
frá Syðra-Hvarfi,
Helgamagrastræti 49,
andaðist í Fjóróungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn 8.
þessa mánaðar.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 17. þessa
mánaðar klukkan 13.30.
Böðvar Tómasson,
Tómas Böðvarsson og Ragnhelður Stefánsdóttlr.
6.DAGUR