Dagur - 24.02.1981, Page 7
Nýkomið
Skipagötu 5
sími 22150
Hluti mótsstjómar á blaðamannafundi fyrir helgina t.f.v.: Þoibjörg Ingvadóttir, Edda Hermannsdóttir, Björn Sverrisson,
Gunnar Jónsson og Garðar Lárusson. Mynd: H. Sv.
Atvinna
Viljum ráöa nokkrar stúlkur til ýmissa starfa nú
þegar.
Upplýsingar gefa verkstjórar í síma 21466.
Niðursuðuverksmiðja K. Jónssonar & Co h.f.
Atvinna
Óskum að ráða stúlku til afgreiðslustarfa.
Heilsdagsstarf. Æskilegt að viðkomandi hafi áður
starfað í verslun og geti hafið störf fljótlega. Nánari
upplýsingar fást á skrifstofunni, ekki í síma.
@Bók |
'%/Ql Kaupvangsstræti 4,
Akureyri
ítalskir skór,
Kjólar,
Blússur (fínar)
Síðar peysur,
Sokkabuxur,
Pils,
Velúrpeysur,
Belti,
Skrautmunir,
Nælur, hálsfestar,
kambar og fleira.
Skíðafólk
Reiknaðu með Chaplín
Eins og Dagur greindi frá fyrir
helgina hefur verið ákveðið að
Landsmót skáta 1981 verði
haldið í Kjarnaskógi dagana 26.
júli-2. ágúst. Landsmót skáta
hefur ekki verið haldið fyrir
norðan sfðan 1959, en þá var það
haldið í Vaglaskógi.
Skátar á Akureyri gerðu tilboð í
mótið 1978 og mótsstjórn hefur
starfað síðan í janúar 1980. Hún
hefur meðal annars gefið út tvö
tölublöð af málgagni Landsmótsins
1981 sem ber heitið Kjarni. Raunar
má segja að allur undirbúningur sé
vel á veg kominn. Hannað hefur
verið merki Landsmótsins og var
það Valgarður Frímann sem það
gerði.
Landsmótið verður haldið und-
irkjörorðinu Nýr heimur nýtt líf og
ekki að ófyrirsynju, því í Kjarna er
gert ráð fyrir að rísi um eitt þúsund
manna þorp, sjálfstætt um flesta
hluti. Þar verður vatnsveita, raf-
veita, símakerfi og símstöð, sorp-
hreinsun, verslanir, pósthús og
banki, svo eitthvað sé nefnt.
Gönguskíði, 6 gerðir
u
ubönd, 5 gerðir
Gönguskór,
mjög vandaðir
Unglingaskíði,
mjög ódýr
Barnaskíðasett frá kr. 177.60
Stredc-buxur, ný sending.
Brynjólfur Sveinsson h.f.
Mótsgjald verður 725 krónur, en
veittur er 25% afsláttur á hvert
systkini umfram það fyrsta. Inni-
falið í mótsgjaldi er fullt fæði allan
mótstímann, mótsmerki og öll sú
þjónusta sem mótið veitir þátttak-
endum. Sérstakt tryggingagjald kr.
150 skal greiða um leið og þátt-
tökutilkynning er afhent farar-
stjórum hvers félags. Erindreki
mun heimsækja öll skátafélög á
landinu, sem eru 35, og
mótið.
Dagskrá mótsins verður mjög
fjölbreytt og meðal þess sem boðið
verður upp á eru tveir varðeldar
fyrir almenning og heill dagur sem
allir eru velkomnir að heimsækja
mótið og kynnast skátastarfinu.
Erlend skátafélög hafa mörg hver
sýnt mótinu mikinn áhuga og er
gert ráð fyrir skátum erlendis frá.
Svamphúsgogn
Ódýrt - Vandað
Seljum svampsófa, eins og tveggja manna, meó og
án rúmfatageymslu. Ennfremur svampstóla og
margt fleira úr svampi. Áklæði aó eigin vali.
0
Efnaverksmiðjan SJOFN
SIMI 21400(220).
Mjólkurinnlegg:
Mánaðarleg greiðsla
Framleiðsiuráð landbúnaðarins
ákvað á fundi sínum 23. janúar
s.l. útborgunarhlutföll vegna
mjólkurinnleggs í ár.
Tvo fyrstu og tvo síðustu mánuði
ársins verður greitt 85% af grund-
vallarverðinu. Mánuðina mars,
apríl, maí og september verður út-
borgunin 75%, í október þá verður
útborgunin 80%, aðra mánuði árs-
ins verður útborgunarhlutfallið
65%.
Ekki hefur enn verið tekin
ákvörðun um endanlega greiðslu á
mjólkurverðinu, hvort ákveðin
krónutala verði greidd eða greiðsl-
an verði ákveðið hlutfall af út-
borguninni.
Hvernig sem það verður ákveðið,
þá munu mjólkurframleiðendur fá
mun meira fyrir vetrarmjólkina en
þá mjólk sem lögð verður inn sum-
armánuðina. Markvisst mun verða
unnið að því á næstu árum að ná
meiri jöfnuði í mjólkurframleiðsl-
unni. Á síðast liðnu ári var mesta
innlegg í júní, þá tóku mjólkur-
samlögin á móti ll,8 milljónum
lítra, en í nóvember var innleggið
aðeins 6,6 milljónir lítra. í Svíþjóð
er munurinn á mesta og minnsta
mánaðarinnleggi 30%. Það er besti
árangur, sem náðst hefur á Norð-
urlöndum.
ÞORP RÍS í
KJARNASKOGI
Handbók bænda
í síðastliðinni viku kotn út hjá
Búnaðarfélagi íslands 31. ár-
gangur Handbókar bænda. Nýr
ritstjóri tók við bókinni s.I.
haust, var það Ólafur R. Dýr-
mundsson, landnýtingarráðu-
nautur Búnaðarfélagsins.
í formafa að bókinni skrifar
Ólafur m.a.:
„Reynt hefur verið að hafa efni
Handbókarinnar sem fjölbreyti-
legast, en áhersla er lögð á ýmiss
konar handbókarupplýsingar, í
texta og töflum, um hinar fjöl-
mörgu greinar landbúnaðar. Þann-
ig hefur bókin verið færð nær því
formi, sem hún var í upphaflega.
Margir nýir þættir hafa verið teknir
upp, en annað efni endurskoðað.
Svo sem fram kemur í efnisyfirlit-
inu hafa verið gerðar nokkrar
breytingar á niðurröðun og kafla-
skiptingu, og leitast hefur verið við
að dreifa auglýsingum um bókina
með hliðsjón af efninu.
Sjaldan hefur verið jafnmikið
efni í Handbókinni og nú, en hún
er466 blaðsíður.
BREYTING Á
ÁÆTLUN DRANGS
Frá og með deginum í dag verður
sú breyting á áætlun Drangs að
skipið fer frá Akureyri kl. 07 og frá
Siglufirði, áleiðis til Akureyrar, kl.
15.
Þau skipti sem skipið fer til
Grímseyjar mun það fara frá
Siglufirði til Grímseyjar og þaðan
beint til Akureyrar, með viðkomu í
Ólafsfirði og Hrísey, en ekki Siglu-
firði eins og venja hefur verið.
Áætlunarferðir Drangs eru á
þriðjudögum og fimmtudögum.
DAGUR.7