Dagur - 17.03.1981, Side 1
Fermingar
gjafir
f MIKLU
JÚRVAU
64. árgangur
Akureyri, þriðjudaginn 17. mars 1981
22. tölublað
Verður
brúin
byggð?
Nú er verið að kanna mögu-
leikana á því að koma hitaveitu-
lögn frá borholunum við
Hrafnagil yfír að Laugalandi,
þannig að í framtíðinni megi
nýta þau mannvirki sem til þess
þarf við vega- og brúargerð.
Hefur verið um það rætt að
nauðsynlegt sé að koma hita-
veituvatninu yfír í sumar, en
vegur og brú til umferðar kæmu
ekki fyrr en síðar.
Verulegar líkur eru nú taldar
á því, að unnt verði að fara þessa
leið og skilningur mun vera fyrir
því hjá stjórnvöldum að það sé
bæði skynsamlegt og nauðsyn-
legt að nýta mannvirkin til
beggja hluta, þó svo að vegur og
brú verði ekki tekin í notkun um
leið og hitaveitulögnin og ekki
byrjað á þeim framkvæmdum
fyrr en að loknu þessu og næsta
ári.
Ekkert fé er til á vegaáætlun
til brúargerðar yftr Eyjafjörð
við Hrafnagil, en hins vegar
hafa hrepparnir framan við
boðist til að fjármagna vegagerð
beggja vegna við fyrirhugaða
brú um nokkur ár. Bæði Hita-
veita Akureyrar og hrepparnir
hafa sýnt því mjög mikinn
áhuga að fá þarna brú, enda
myndu allir aðilar hafa hag af.
Helgarskákmót
á Sauðárkróki
Um helgina var svokallað
„helgarskákmót" á Sauðár-
króki á vegum Tímaritsins
Skákar og Skáksambands fs-
lands. Alls tóku 57 þátt i mótinu
þar af var 21 úr Skagafirði.
Efstur var Jón L. Árnason með
5,5 vinninga, en í öðru sæti var
ungur sunnanmaður, Karl Þor-
steins.
Við Mývatn að vetrarlagi.
Mynd: J. G. J.
Krefjast fögetaaöstoðar gegn
ólögmætum verslunarháttum
Á aðalfundi Kaupmannafélags
Akureyrar á laugardag voru
samþykktar tvær ályktanir sem
báðar snerta sölustarfsemi þar
sem gengið er fram hjá smá-
söluverslunum. önnur snertir
sölu heildverslana og umboðs-
verslana til einstaklinga og fyr-
irtækja, sem ekki eru með versl-
unarrekstur, en hin snertir sölu-
mennsku þar sem gengið er í hús
og fyrirtæki með vörur.
Skorað er á umboðs- og heild-
verslanir svo og framleiðendur á
Akureyri að hætta tafarlaust sölu á
dreifingar- og framleiðsluvörum
sínum til einstaklinga og fyrirtækja,
sem ekki hafa verslunarleyfi eða
starfandi verslun. Verði ekki farið
að þessum tilmælum sjái
kaupmenn sé ekki annað fært, en
að stöðva viðskipti við viðkomandi
aðila.
í hinni ályktuninni eru gerðar
þær kröfur til Bæjarfógetans á Ak-
Nýtt aðalskipulag á Dalvlk
Innan skamms verður Dalvlkingum
gefinn kostur á að sjá tiilögur að
nýju aðalskipulagi fyrir Dalvík.
Skipulagstillögurnar eru unnar af
Hver fær
ferð til
Búlgaríu?
Seinnf hluti
getraunarinnar
er í þessu blaði
Á blaðsíðu 6 má finna seinni
hluta ferðagetraunarinnar, sem
Dagur efndi til í samvinnu við
Ferðaskrifstofu Kjartans
Helgasonar og fleiri aðila.
Vinningurinn er ferð fyrir tvo
til Búlgaríu þar sem vinnings-
hafi mun dveljast á hóteli á
strönd Svartahafsins.
Lausnirnar eiga að vera
komnar á afgreiðslu DAGS
fyrir 7. apríl n.k. Nauðsynlegt er
að svörin séu skrifuð á úrklipp-
una úr Degi og að svörin fylgist
að, þ.e. séu í sama umslagi.
Stefáni Thors, skipulagsarkitekt.
Þegar er farið að starfa eftir þessu
aðalskipulagi, en vinna við deildi-
skipuiag er rétt að hefjast. Þegar
skipulagstillögurnar hafa hangið
uppi í sex vikur mun bæjarstjórn og
skipulagsnefnd fjalla um fram-
komnar athugasemdir, en síðan
verður skipulagið sent til skipu-
lagsstjóra ríkisins og að lokum
verður ráðherra að undirrita það
svo það öðlist gildi.
Aðalskipulagið á að duga til árs-
ins 2000, en með 2% aukningu
íbúafjölda er gert ráð fyrir að t.d.
íbúðasvæðin dugi í 25 ár. í dag eru
tæplega 1300 íbúar á Dalvík og
með umræddri aukningu ættu þeir
að vera rösklega 1700 árið 2000.
Sveinbjörn Steingrímsson,
tæknifræðingur á Dalvík, sagði að
samkvæmt tillögunum væri gert
ráð fyrir að þjóðvegurinn í gegnum
kaupstaðinn yrði á sama stað og í
dag. Iðnhverfi á að vera neðan
Hafnarbrautar og gert er ráð fyrir
öðru slíku hverfi austur á sandin-
um. íbúðahverfi eiga að koma ofan
Böggversbrautar, sunnan við
kirkjuna og annað íbúðahverfi á að
koma hjá Brimnesi. Á þessu skipu-
lagssvæði er gert ráð fyrir 280 nýj-
um íbúðum, sem eiga að geta hýst
(Framhald á bls. 3).
ureyri og annarra bæjarfógeta og
sýslumanna á landinu, auk
Kaupmannasamtaka Islands og
Verslunarráðs, að öll sölumennska
á hverskonar varningi á einka-
heimilum og almennum vinnu-
stöðum verði tafarlaust stöðvuð,
hvenær sem til slíkrar sölu fréttist,
og leyfi til slíkrar sölustarfsemi
verði ekki veitt héðan í frá.
I ályktuninni segir þessi sölu-
starfsemi með tilheyrandi prangi
og ágengni hafi farið mjög í vöxt á
undanförnum árum og tekið veru-
legan skerf af sölu verslana, sem
haldi uppi almennri þjónustu á
sömu vörum árið um kring. Aðal-
fundurinn telur, að um stórfelld
skattsvik sé að ræða vegna þessarar
umfangsmiklu og ólöglegu við-
skipta, sem taki nú orðið megin-
hluta sölu á heilum og margvísleg-
um vöruflokkum á mestu sölutím-
um árlega.
Birkir Skarphéðinsson, formað-
ur Kaupmannafélags Akureyrar,
sagði í viðtali við Dag, að húsasölur
hefðu farið stórlega í vöxt undan-
farið. Menn kæmu jafnvel úr öðr-
um landshlutum til að selja vörur
sínar og hefðu til þess engar heim-
ildir. Sem dæmi um þessar vörur
nefndi hann bækur, hljómplötur,
málverk, sælgæti, jólakort og —
pappír og jafnvel egg, grænmeti og
saltfisk. Birkir sagði að þessa sölu-
starfsemi ætti að einskorða við
líknarstarfsemi, en skera hana nið-
ur að öðru leyti.
Aðalfundur Einingar:
Felldu allar tillögurnar
Aðalfundur Verkalýðsfélagsins
Einingar var haldinn s.l. sunnu-
dag. Á fundinum var lýst stjórn-
arkjöri — aðeins einn listi barst,
en auglýst var eftir framboðs-
listum. Stjórn félagsins er þvi
eins skipuð og áður að undan-
teknum einum manni, Guð-
mundi Sæmundssyni.
Á fundinum voru lagðar fram
fimm tillögur, sem fólu sumar í sér
lagabreytingar. Tillögurnar voru
allar felldar. Efni tillagnanna var
m.a. það að fyrirkomulag stjórnar-
kosninga verði mun einfaldara en
áður. I stað þess að þurfa að skila
fullskipuðum framboðslista til
stjómar, varastjórnar, trúnaðar-
mannaráðs og endurskoðenda fari
fram skoðanakönnun á félagsfundi
um skipan stjórnar og félagsmenn
geti stungið upp á mönnum í
ákveðin sæti í stjórn. Efna yrði til
slíkrar könnunar ef skrifleg tilmæli
þess efnis bærust frá minnst 40
félagsmönnum. Þá var lagt til að í
trúnaðarmannaráð yrði kjörið á
vinnustöðum eftir ákveðnum regl-
um, að stjórnarmenn mættu ekki
gegna meira en þremur trúnaðar-
störfum í einu og að enginn maður
megi sitja lengur en 6 ár samfellt í
stjórn (sem myndi þýða að Jón
Helgason form., Einingar og annar
stjómarmaður til yrðu að ganga úr
stjórn árið 1982). Þó var gert ráð
fyrir að minnst tveir stjórnarmenn
sætu áfram ef upp kæmi sú staða að
allir stjórnarmenn ættu að hætta á
sama aðalfundi vegna 6 ára-regl-
unnar.
Fjárhagsafkoma félagsins varð
góð á árinu og varð rekstraraf-
gangur í heild hjá öllum sjóðum
félagsins kr. 905.000,- Er mest
aukning hjá sjúkrasjóði. Vegna
góðrar afkomu sjúkrasjóðs, sam-
þykkti fundurinn að auka greiðslur
úr sjóðnum til félagsmanna. Á síð-
asta ári greiddi sjóðurinn bætur til
félagsmanna samtals að upphæð
kr. 588.660,-. Aðalfundurinn sam-
þykkti að styrkja byggingu endur-
hæfingarstöðvar Sjálfsbjargar með
kr. 60.000,-. Einnig var samþykkt
að kaupa hlutabréf í Alþýðubank-
anum h.f., fyrir kr. 20.000,- Sam-
þykkt var að leggja kr. 50.000,- af
tekjuafgangi félagssjóðs í bygg-
ingasjóð félagsins.
Félögum í Einingu fjölgaði á ár-
inu um 364 og eru nú 3.128, 2.057
konur og 1.161 karl.
Formaður Einingar er Jón
Helgason.
AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT: 24167 - RITSTJÓRN: 24166 OG 23207