Dagur - 30.04.1981, Qupperneq 11
Ferðaáætlun
Ferðafélags
Akureyrar
1981
1. maf Súlur (gönfiuferð).
9. maf Kaldbakur (göngugerð, á skfðum ef færi leyfir)
16. maf Staðarbyggðarfjall (göngufcrð).
23.-24. maf Náttfaravfkur (öku- og gönguferð).
28. maí Málmey, Þórðarhöfði (öku- göngu- og bátsferð).
6.-8. júní Glerárdalur með gistingu i I.amba. Gönguferðunt
hagað eftir veðri og aðstæðum, t.d. á Kertingu,
Tröllafjall, Glerárdalshnjúk, Jökulstalla og
hugsanlega heim um Bægisárdal eða Skjóldal.
6.-8. júnf Herðubreiðarlindir, Bræörafell og nágrenni. Ef
veður leyfir, gefst kostur á að ganga á Herðubreið
og Kollóttudyngju.
6.-8. júnf Langanes. ökuferð, sérstaklega með fuglaskoð-
un i huga.
14. júnf Hraunsvatn. Létt gönguferð.
20. júnf Miðnætursólarferð á Tjörnes.
27. júnf Sögustaðir í Höfðahverfi. Kvöldferð.
28. júní Barkárdaltir. Létt gönguferð.
3.-5. júlí Gjástykki, Eldsumbrotasvæðið norður af Kröflu.
Þeir sem vilja, fá kost á göngu um Kröflu og að
Hrafntinnuhrygg, og einnig með Eldánni niður að
Reykjahlfö.
4.-11. júlf Aðalvfk á Hornströndum. Dvalist f tjöldum að
Látrum í Aðalvik. Gengið þaðan til nærliggjandi
staða, svo sem Fljótavfkur, Hestcyrar, á Straum-
nesfjall og vfðar. Ferðin er skipulögð í samvinnu
við Ferðafélag fslands.
10. -12. júli Herðubreiðarlindir og Askja.
11. -19. júlf Vestfirðir. Komið verður m.a. til Búðardals, á
Skarðsströnd, til fsafjarðar með siglingu um
Djúpið eða f Jökulfirði. Síðan ckið uin Patrcks-
f jörð, gcngið á Látrabjarg, ekið um Barðaströnd,
til Hólmavfkur, f Bjarnarfjfirð og heim.
17.-22 júlf Landmannalaugar, Þórsmörk. Gönguferð f sam-
vinnu við Ferðafélag fslands. Ekið verður frá
Reykjavfk til Landmannalauga. Sfðan gengið um
Hrafntinnusker, Álftuvatn og Emstrur til Þórs-
merkur. Gist i húsum.
21. -26. júli Borgarfjörður. Rólcg ferð fyrir alla fjölskylduna.
Gist undir þaki, sennilega allar næturnar á sama
stað. Farið i ökuferðir uin nágrennið alla dagana,
mislangar, og mcð mögiileikum á stuttum
gönguferðum fyrir þá sem þess óska.
23.-26. júlf Fjallabaksleið syðri. ökuferð með möguleikum á
göngufcrðum.
31. júlí-3. ágúst Heröubreiðarlindir, Askja og umhverfi. Róleg
ferð fyrir þá sem þcss óska, en með lengri og
skcmmri gönguferöum fyrir þá sem meira vllja
leggja á sig.
1.-8. ágúst Brúaröræfi, Snæfell, Eyjabakkar, Fljótsdalur.
ökuferð mcð tækifæri til að ganga á Snæfcll, um
Eyjabakkasvæðið og niður f Fljótsdal í veg fyrir
bflinn.
15.-16. ágúst Laugafell, Lambahraun, Gráni. ökufcrð.
22. ágúst Svcppa- og berjatfnsluferð.
22. -23. ágúst Glerárdalur með gistingu í Lamba. Gengið niður
Finnastaðadal.
29.-30. ágúst Flateyjardalur. ökuferð með mögiileika á
gönguferðum eða berjatfnslu að vild.
5. scpt. Tryppaskál. (gönguferð).
12. sept. Vatnahjalli, Sankti Pétur, Kerlingarhnjúkur
(gönguferð).
26.-27. sept. Hcrðubreiðarlindir og Askja.
Skrifstofu félagsins er í Skipagötu 12, 3. hæð. Sfminn er 22720.
Frá júnfbyrjun og frum í miðjan septcmbcr verður hún opin kl. 18.00
til 19.30 á mántidögum og fimmtudögum. Dtan þess tfma verður hún
opin kl. 18-19 kvöldið fyrir hverja auglýsta ferð. í mars og apríl verða
styttri göngufcrðir um helgar, auglýstar í auglýsingakössum FFA og
í dagbéikum Akureyrarblaðanna.
Nauðsynlegt er að panta í ferðir ineð góðum fyrirvara, þar sem
stundum getur þurft að takmarka þátttöku. í lengri ferðir á vcgum
FFA er heitur matur, mjólk kaffi og te (en ekki brauö) venjulcgu
innifalið i fargjaldi. f þær ferðir þarf að taka farmiöa með viku
fyrirvara.
Nánari upplýsingar um hverja ferð eru gefnar á skrifstofunni, og
er fólk hvatt sérstaklega til að athuga, hvaða búnaður hentar fyrir
hverja ferð.
Jón Gauti Jónsson
TROLLAFJALL
Strýta
Hlióarfjail
Víkurókörð
(<*••* jít _ v
Sé'ktr
Vaðlaheiði
GlejárdaljJr
Bondi
Útsýni af Kerlingu. (Sigurgeir B. Þórðarson)
„Útívera er rotvamarefni
fyrir 1íkamann“
Nýlega kom út bæklingur er liefur að geyma ferðaáætlun
Ferðafélags Islands fyrir þetta ár. Er þar að vanda boðið upp á
margvísleg ferðalög um landið. Auk ferðaáætlunar F.l. eru í
honum upplýsingar um starfsemi hinna ýmsu deilda Ferða-
félagsins, sem starfandi eru út um land. Umfangsmest er þar
ferðaáætlun Ferðafélags Akureyrar, sem alls býður upp á 28
lengri og styttri ferðir.
Til að kynnast frekar starfscmi Ferðafélags Akureyrar var
brugðið á það ráð að sækja formann félagsins heim, Arna
Jóhanncsson verkstjóra hjá Mjólkursamlaginu. Viðtal var auð-
fengið og leysti Árni greiðlega úr spurningum HelgarDags.
Fyrsta meiriháttar
framkvæmd Ferðafé-
lagsins var að leggja
veg upp úr Eyjafirði,
svokallaðan Vatna-
hjallaveg
Hvenœr var Ferðafélag A kureyr-
ar stofnað og hver var tilgangurinn
með stofnun þess?
„Ferðafélag Akureyrar var
stofnað árið 1936 og er því 45 ára á
þessu ári, en skömmu eftir stofnun
þess gerðist það deild í Ferðafélagi
íslands. Tilgangurinn með stofnun
þess var að auðvelda fólki ferðalög
um byggðir og óbyggðir landsins,
kanna nýjar slóðir og auka þekk-
ingu manna á landinu. Jafnframt
var snemma stefnt að því að koma
upp skálum á stöðum sem voru vel Ami Jóhannesson formaóur Ferða-
settir sem áningarstaðir. Fyrstu félags Akureyrar.
forystumenn félagsins voru
óhræddir við að leggja út í miklar
framkvæmdir til að ná settu marki.
Má þar nefna Vatnahjallaveg, hér
upp úr Eyjafirði, en sá vegur var
gerður á árunum ’39-’47, en hann
hefur nú í seinni tið ekki fengið
neitt viðhald. Segja má að flestar
leiðir um öræfin hafi meðlimir
ferðafélaganna verið með í að
kanna og síðan merkja. I dag eru
tæplega 500 skráðir meðlimir í
Ferðafélagi Ákureyrar.
Kostir þess að ferðast
með ferðafélögunum
eru einkum þeir að
vera lausir við akst-
ursáhyggjur
Þú sagðir áðan að lilgangurinn
nieð stofnun Ferðafélagsins hefði
verið að auðvelda fólki ferðalög um
hálendið. í dag hafa verið lagðar
fjölmargar slóðir um hálendið og
margir eiga orðið híla með drifi á
öllum hjóium. Er nokkur þörf fyrir
Ferðafélagið lengur?
„Jú vissulega, því Ferðafélagið
kappkostar enn þá að bjóða upp á
ódýrar ferðir. Jafnframt er reynt að
fá góða leiðsögumenn, er kunna að
segja frá því helsta, bæði hvað
varðar land og þjóð. Það að ferðast
í hóp hefur raunar bæði kosti og
galla. Það er alltaf gaman að
blanda geði við aðra og kynnast
Laugafell, elsti skáli Ferðafélagsins. Nú hcfur verió gerð sundlaug við skál-
ann. (SBÞ)
Gönguferð Ferðafélagsins á Kaldbak s.l. vor. 1 henni tóku þátt alls 30 manns
af 7 þjóðernum. (ÁJ)
Komið I veg fyrir akstur utan vega I grennd við Herðubreiðariindir. Ferða-
félagið hefur allt frá stofnun unnið að ýmsum vegabótum á hálendinu. (JGJ)
nýju fólki, leiðsögn er mjög mikils
virði og eins það að vera laus við
aksturáhyggjur sem er alveg ómet-
anlegt. Svo er yfirleitt ódýrara að
ferðast í hópferð en einkabíl.
Hinsvegar eru menn bundnir við
fyrirframgerða áætlun og verða að
hlýta vissum reglum, sem eru óhjá-
kvæmilegar í hópferð.“
Ferðafélag Akureyrar
á nú fimm skála á há-
lendinu
En nú gerir Ferðafélagið ýmislegt
fleira en að skipuleggja ferðalög?
„Eins og fram kom í upphafi
hefur gerð slóða um hálendið verið
eitt af markmiðum félagsins, og
hefur víða verið lögð hönd á plóg-
inn í því skini. En skálabyggingar
hafa ekki síður verið stór liður í
starfseminni. Fyrsti skálinn var
byggður í grennd við Laugafell.
Hann var reistur á lítilli grastorfu,
sem nú er orðið mikið vandamál að
vindurinn nái ekki úr höndunum á
okkur, en góðir félagar hafa unnið
dyggilega að því að reyna að varð-
veita torfuna. Heit laug er þarna og
er húsið hitað upp með vatni úr
henni. Auk þess var byggð sund-
laug þarna fyrir nokkrum árum.
Skálinn liggur á vegamótum og er
hægt að aka að honum upp úr
Eyjafirði, úr Vesturdal í Skagafirði
og af Sprengisandsleið. Árið 1959
byggði félagið skála I Herðubreið-
arlindum, Þorsteinsskála og hefur
hann verið ein aðalmiðstöð félags-
ins síðan. Eftir gosið í Öskju árið
1961 var svo Dreki reistur við gilið,
sem hann ber nafn af í Dyngju-
fjöllum. Þetta er mjög vel settur
skáli, og mætti gjarnan vera stærri.
Inn í Glerárdal var reistur lítill
skáli fyrir nokkrum árum. Hlaut
hann nafnið Lambi. Hefur hann
verið mikið notaður enda í töfrandi
umhverfi. Alltof fáir gera sér þó
grein fyrir því hvað þetta er kjörið
útivistarsvæði svona rétt við bæinn.
Ég vildi bara óska, að bæjaryfir-
völd væru svo framsýn, að þau létu
girða svæðið og friða þannig að
upphaflegur gróður fái að dafna
Lambi á Glerárdal. Tröllafjall og
tröllin I baksýn. (SBÞ)
þar á ný. Mætti t.d. hugsa sér að
girða úr Kjama, um Stórhæð og
vestur í Glerá sunnan öskuhauga.
Þetta er verkefni, sem tekur langan
tíma og má því ekki dragast að
unnið sé að því.
Fimmti skálinn, sem Ferða-
félagið hefur reist er lítill göngu-
skáli og stendur við Bræðrafell.
Hann er í um 2-3 tíma gang vestur
af Herðubreið, en um 6-7 tíma
gang frá Herðubreiðarlindum.
Þarna er töfraheimur og vel til þess
fallið að dvelja nokkra daga í skál-
anum, en nóg er að skoða í ná-
grenni hans. Dagleið er frá honum í
Dreka og tvær dagleiðir niður I
Mývatnssveit.
Bara það að halda þessum skál-
um við er mikið verk, en bygging
þeirra og viðhald er allt gert í sjálf-
boðavinnu. Ýmiss félög eða fyrir-
tæki hafa lagt sitt að mörkum til að
gera þá að veruleika, og skal það
þakkað.
Nú er unnið að útgáfu
leiðalýsinga um
Glerárdal og fjöllin
umhverfis í samvinnu
við Skátafélag Akur-
eyrar
En hvað með útgáfustarfsemina?
„Ferðafélag íslands gefur út
mjög vandaða árbók, sem meðlimir
allra félagsdeilda kaupa og er það
þeirra árgjald. Má geta þess að ár-
bókin í ár fjallar um Ódáðahraun.
Ferðafélag Akureyrar gefur einnig
út sitt ársrit, Ferðir. Þetta rit hefur
fjallað um margvísleg efni tengd
félagsstarfinu. Nú síðustu ár hefur
Glerárdalur verið aðalefni ritsins;
landslagslýsing, ömefnaskrá, jarð-
saga og gróðurfar. Jafnframt er
unnið að útgáfu leiðalýsinga um
dalinn og fjöllin beggja vegna hans.
Þetta verkefni hefur verið unnið í
samvinnu við Skátafélag Akureyr-
ar.“
„Ferðaáætlun Ferðafélags Ak-
ureyrar hljóðar alls upp á 28 ferðir i
vor og sumar, og er reynt að hafa
þær sem fjölbreytilegastar þannig
Megnið af þeirri starfsemi, sem þú
hefur verið að segja frá, fer fram að
sumdrlagi. Hvað með vetrarstarfið?
„Fyrri part vetrar er ávallt haldin
fjölskylduhátíð, vandað er til efnis
og veitinga, og hefur hún ætíð verið
vel sótt. Nú á næstunni hefjast auk
þess ferðir á vegurn félagsins, stutt-
ar gönguferðir í nágrenni Akureyr-
ar, sem er mjög góð æfing fyrir
lengri ferðir I sumar. Ferðafélag
íslands hefur tekið upp svona
stuttar gönguferðir I nágrenni
Reykjavíkur og hafa þær orðið
mjög vinsælar. Á vorin er svo
haldin kvöldvaka, þarsem fram fer
kynning á ferðum sumarsins í máli
og myndum.”
Ferðafélagið býður
alls upp á 28 iengri og
styttri ferðir um landið
Nú er ferðaáœtlun sumarsins
komin út. Hvað hyggst Ferðafélagið
hjóða fólki upp á i sumar?
að hver og einn geti fundið eitthvað
við sitt hæfi. Nýbreytni er að dvelja
allan ferðatímann á sama stað og
aka dagsferðir út frá honum, en
þetta er gert í ferð um Borgarfjörð
21.-26 júlí. Þetta er létt ferð en gef-
ur jafnframt möguleika á lengri
gönguferðum t. d. að ganga á
Baulu. Af öðrum lengri ferðum má
nefna ferð um Brúaröræfi og niður
I Fljótsdal. Þeir sem vilja geta
gengið á Snæfell. Homstrandaferð
er á dagskrá og ferð i Landmanna-
laugar og gönguferð I Þórsmörk. Þá
er og tveggja daga gönguferð um
Glerárdal í byrjun júní.
Ég til eindregið benda fólki á að
afla sér upplýsinga um ferðirnar í
tíma, því oft á tíðum er sætafram-
boð takmarkað."
En livert á fólk að snúa sér til að
afta sér nánari upplýsinga?
„Skrifstofa félagsins að Skipa-
götu 12 verður opin í sumar frá 1.
júní- 15. sepember á mánudögum
og föstudögum milli kl. 18 og 19.30.
Ferðir í vetur og vor verða auglýst-
ar í blöðunum, sem út eru gefin á
Akureyri, og er þá skrifstofan opin
kl. 18-19 kvöldið fyrir auglýstar
ferðir.
Og Arni, eitthvað að lokum?
„Ferðafélögin öll hafa góða um-
gengni sem aðalsmerki á stöðum,
sem þau hafa sótt heim. Þetta atriði
er mikilvægt ekki sist með vaxandi
ferðamannafjölda. Hafa þau miðl-
að reynslu og þekkingu til hins op-
inbera eftir að það fór að hafa af-
skipti af náttúruverndarmálum og
sinna vörslu á mikið sóttum stöð-
um.
Ég vil svo ekki láta hjá líða að
hafa svolítinn áróður fyrir útivist
almennt. Þetta að vera úti; reyna
hæfilega á sig, er einskonar rot-
varnarefni fyrir líkamann. Ég held
það skipti ekki svo rniklu máli hvað
gert er, ef fólk er úti, og veðrið er
ekkert stóratriði, það er bara að
búa sig viðeigandi.
Að lokum bestu þakkir til allra
þeirra sem sífellt eru að vinna fyrir
félagið og gera því kleyft að starfa.“
Gengið á Herðubrcið. Ljósm. Gunnar Helgason.
Þorsteinsskáli I Herðubreiðarlindum hefur um árabil verið ein aðal miðstöð
félagsins ásamt Dreka.
10.DAGUR
DAGUR.11