Dagur - 30.04.1981, Síða 18
KVÍKMYNÐIR
Walk into the incredible true
experience of Billy Hayes.
And bring all the courage
youcan.
An ALaÍTRAflKER FiIrrTMlDNtGH
. PfTER GUBEfWUOUVER STONE n»«»ALAN MARSHALt
Nýja bíó sýnir í kvöld kl. 9 myndina
Midnight Express eða Miðnætur-
hraðlestin. Heimsfrægamerísk
verðlaunakvikmynd í litum.
Sannsöguleg og kyngimögnuð, um
martröð ungs, bandarísks háskóla-
stúdents í hinu alræmda tyrkneska
fangelsi Sagmalcilar.
Næsta mynd verður Kolbrjálaðir
kórfélagar er sýnd hefúr verið hér
áður. Félagarnir Lyles og Horold
sem börðust saman í Víetnam
ganga í lögregluna í Los Angeles,
þegar stríðinu er lokið. Þar komast
þeir að því að lögreglustarfið er
ekki eilífur dans á rósum, því þeir
eiga í höggi við ósamvinnuþýðan
almenning, forherta glæpamenn og
spillta skilningslausa yfirmenn.
■k
Borgarbíó mun um mánaðamótin
hefja sýningar á myndinni Púnkt-
ur, púnktur, komma, strik, eftir
skáldsögum Péturs Gunnarssonar í
leikstjórn Þorsteins Jónssonar. Með
aðalhlutverk fara Pétur Björn
Jónsson, Hallur Helgason, Krist-
björg Kjeld og Erlingur Gíslason.
Kvikmyndin lýsir uppvexti bams
rétt eftir 1950 og líklega finna
margir af kynslóð Andra sitthvað
svipað í æsku sinni og hans. í dómi
um mýndina segir m.a. En þó litið
sé tif^baka í Púnktur, púnktur,
kommá strik þá er það ekki með
sætsúrri eftirsjá, heldurgagnrýni og
skopi. Frásagnarefnið er oft á tíð-
um fislétt gaman en í annan stað
alvarlegt og umhugsunarvert.
Mér Ifkar ekki hvernig bankastjór-
inn hlær að ávísuninni, sem pabbi
gaf okkur.
l.MAÍ
hátíðahöld
verkalýðsféiaganna á
Akureyri 1981
KRÖFUGANGA
Safnast verður saman í Þórunnarstræti við Dvalarheimilið Hlíð klukkan 13.30.
Klukkan 14.00 verður gengið fram hjá Sjúkrahúsinu niður Eyrarlandsveg,
Kaupvangsstræti, Hafnarstræti og inn á Ráðhústorg.
UTIFUNDUR
Útifundur verður á Ráðhústorgi aó aflokinni kröfugöngu.
Dagskrá: 1. maí ávarp verkalýðsfélaga á Akureyri flytur Sigurður P.
Randversson.
Ræðumenn verða: Guðmundur Hjaltason, rennismiður,
fulltrúi fatlaðra.
Rögnvaldur Rögnvaldsson, húsvörður og
Guðmundur Sæmundsson, verkamaður.
Kynnir: Theodór Júlíusson, leikari. Lúðrasveit Tóniistarskóla Akureyrar leikur í
göngunni og á fundinum. Stjórnandi Roar Kvam.
BARNASAMKOMA
Barnasamkoma verður í Sjálfstæðishúsinu og hefst klukkan 15.30. Barnakór úr
Oddeyrarkóla syngur. „Spike Jones" eftirhermur, Theodór Júlíusson skemmtir,
stúlkur úr Oddeyrarskóla sýna leikfimi, hljómsveit Steingríms Stefánssonar leikur
fyrir dansi. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn frá klukkan 14. Verð kr. 10.
Kaffisala verður að loknum útifundi í Alþýðuhúsinu.
Fjölmennið til hátíðarhaldanna. Berið merki dagsins.
Baráttukveðjur,
1. maí nefnd verkalýðsfélaga á Akureyri
F.M.A. — F.V.S.A. — F.I.N.A. — EINING —
IÐJA — T.F.A. — S.E. — S.T.A.K. — B.S.R.B.
■
Kvenfélagið Framtíðin heldur
fund í Skjaldarvík
miðvikudaginn 6. maí. Farið
verður frá Ferðaskrifstofunni
kl. 8.30 stundvíslega. Stjórnin.
Hlífarkonur þær sem látið hafa
skrá sig í leikhúsferð til
Húsavíkur laugardaginn 2. maí.
mæti við bifreiðastöðina Stefni
kl. 13.30. Nefndin.
I.O.O.F. 2 - 163518'/2
U.M.S.E. Skákmenn. 15 mín.
skákmót verður n.k. laugardag
2. maí í Freyvangi og hefst kl.
13.00. Munið að koma með töfl
og klukkur.
Kvöldvaka Sambands Eyfirskra
kvenna, verður í Hlíðarbæ
laugardaginn 2. maí kl. 9.00 e.h.
Kvenfélagið Gleym mér ei.
Leikfélag Akureyrar:
TAKIÐ EFTIR
Hláturinn
lengir lífið
„VIÐ GERUM
VERKFÁLL“
Leikstjóri: Svanhildur Jóhannesdóttir
Leikmynd: Hallmundur Kristinsson
Lýsing: Ingvar Björnsson.
Fjórða sýning: Fimmtudag 30. apríl kl. 20.30
Fimmta sýning: Föstudag 1. maí kl. 20.30
Sjötta sýning: Sunnudag 3. maí kl. 20.30.
Miðasala alla daga frá ki. 16.00. Sími 24073.
Karlakór Akureyrar
Samsöngur
Föstudaginn 1. maí — Grund Svarfaðardal kl.
16.00.
Laugardaginn 2. maí — Sal Gagnfræðaskóla Ak-
ureyrar kl. 15.00.
Miðasala vió inngang. — Ónýttir miðar frá tónleik-
um 21.22. og 23. mars 1981 gilda.
Orðsending
frá Iðju
Orlofshús Iðju að lllugastöðum, verða til leigu frá
og með 4. maí n.k.
Leiga fyrir vikuna er Kr. 400,00
Þeir félagsmenn sem ekki hafa fengið hús áður
sitja fyrir. Allar upplýsingar á skrifstofu Iðju í síma
23621.
it
Eiginmaður minn og faðir okkar
JÓHANNES KRISTJÁNSSON,
frá Hellu, forstjóri Vélsmiðjunnar Odda h.f„
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri aðfaranótt mið-
vikudagsins 29. apríl.
Ingunn Kristjánsdóttlr og börn
18.DAGÚR