Dagur - 05.05.1981, Síða 6
hitaveitan í Reykjahlíð
Um hunda
og fleira
fólk
f Degi 28. aprfl s.l. gaf að líta
listilega samda grein eftir
„hundeiganda“. Er það raunar
furðulegt að maðurinn skuli
ekki skrifa undir fullu nafni, slfk
er stílsnilldin; og mannvitið
drýpur af hverju orði
í grein þessari er sem „hund-
eigandi" sneiði að samtökum for-
eldra á Akureyri og því fólki sem
hefur viljað berjast fyrir bættum
hag barna hér í bæ. Kemur þar
fram ríkuleg kímnigáfa höfundar
og hárbeitt háð. í stílsnilldinni felst
að börn eru hvergi nefnd á nafn,
heldur hundar í þeirra stað. Er það
auðvitað vel til fundið að líkja
börnum okkar við hunda og fara
með þau samkvæmt því. Eða
hvernig er þessu háttað á heimili
„hundeiganda"?
Áskell Örn Kárason
— Hvers vegna klukkan í Ameríku
er á eftir okkar? Það er af þvf
Ameríka fannst löngu á eftir....
(Framhald af bls. 1).
miklar útfellingar í lögnum. Jafn-
framt virðist vatnið hafa tærandi
áhrif því borið hefur á því að göt
komi á ofna. Við þetta hefur svo
bæst að í vetur hafa orðið mjög
tíðar bilanir á hitaveitunni.
Asbeströr í lögn milli ferskvatns-
holu og gufuhola hafa brotnað.
Um þverbak keyrði þegar hitinn
fór af 5 sinnum s.l. helgi á einum og
hálfun sólarhring. I öll skiptin
höfðu asbeströr brotnað. Ekki hef-
ur fengist viðhlítandi skýring á
þessum bilunum, en menn geta sér
til um að skýringuna sé að finna í
„gufuskotum“ frá borholunum.
Arnaldur Bjarnason, sveitar-
stjóri, er í dag á fundi í Reykjavík
með fulltrúum Orkustofnunar og
ráðunautum hitaveitunnar um
þessi miklu vandamál og vænta
menn nú skjótra viðbragða til úr-
lausnar.
Landeigendur Reykjahlíðar
samþykktu í gær á fundi að óska
viðræðna við Iðnaðarráðuneytið og
krefjast þess að sett verði upp
varmaskiptistöð samkvæmt
samningum frá 1975. Til athugunar
er sú hugmynd að leiða sjálfrenn-
andi frá Austaraselslind, sem er 6-7
km. austan við Námafjall og nota
það bæði fyrir hitaveituna og
vatnsveituna, en neysluvatnsmál
hér eru einnig í miklum ólestri því
vatnið hefur hitnað á undanförn-
um umbrotaárum og er nú um 20
stiga heitt í vatnsbólinu. Svo sem
gefur að skilja hafa menn miklar
áhyggjur af þessum málum og lelja
að úrbætur þoli enga bið.
Járnsmiðjan Varmi h.f.
óskar aö taka á leigu 3ja herbergja íbúö. Þarf að
vera laus 1. júní n.k. Uppl. í símum 23324 og 24836.
Blómstrandi
pottablóm
Blómstrandi pottablóm í miklu úrvali.
Einnig góð mold. Opið alla daga til kl. 18.00.
Garðyrkjustöðin Laugarbrekka.
Húsmæður Akureyri og Eyja-
fjarðarsýslu. Nú í yfirstandandi
vorhreingerningum rekist þið ef
til vill á gamla hluti sem ætlunin
var að senda á haugana. Góð-
fúslega minnist þá Minjasafns-
ins á Akureyri og gerið safn-
verði viðvart í síma 24162 eða
24272.
Kvenfélagið Hlíf þakkar af al-
hug öllum bæjarbúum og vel-
unnurum félagsins fyrir frá-
bæran stuðning og góðar við-
tökur á fjáröflunardegi félags-
ins og óskar þeim góðs og
gleðilegs sumars.
Bingó verður í Glerárskóla
fimmtudaginn 7. maí kl. 20,00.
Góðir vinningar. Kvenfélagið
Baldursbrá.
Frá Ferðafélagi Akureyrar. 9.
maí Kaldbakur Sjálfsagt er að
hafa skíði og þeirsem treysta sér
ekki alla leið á fjallið geta
gengið út á Grenjadal. Farið
verður úr Skipagötunni kl.
12.30. Fararstjóri verður Jón
Dalmann Ármannsson.
16. maí. Staðarbyggðarfjall.
Gönguferð og farið verður úr
Skipagötunni kl. 10.00. Það væri
æskilegt að þátttakendur kæmu
sér samun um að vera á eigin
bílum.
23.-24. maí Náttfaravíkur. Ekið
að Björgum og gengið í víkurn-
ar og þar verður gist.
Kvöldvaka. Kl. 20.30 verður
kvöldvaka í Hrafnagilsskóla og
þar verða kynntar ferðir á sum-
aráætlun. Kaffi verður á boð-
stólum. Bílferð verður úr
Skipagötunni kl. 20.00.
Akureyrarkirkja messað n.k.
sunnudag kl. 2 e.h. Kirkjukórar
Siglufjarðarkirkju og sóknar-
prestur koma í heimsókn. Séra
Vigfús Þór Árnason messar.
Organisti Guðjón Pálsson. P.S.
Möðruvallaklaustursprestakall.
Messað verður í Bægisárkirkju
n.k. sunnudag 10. maí kl. 2 e. h.
Ferming: Fermd verður Helga
Margrét Sigurðardóttir Staðar-
bakka Hörgárdal. Sóknarprest-
ur.
Hjálpræðisherinn: Á föstu-
dögum kl. 17 er opið hús fyrir
börn í Strandgötu 21. Sunnu-
dagaskóli er n.k. sunnudag kl.
13.30 og kl. 20.00 er almenn
samkoma. (ath. breyttan tíma)
Allir velkomnir. Mánudaginn
II. maí kl. 20.30 er hjálpar-
flokkur fyrir konur. Verið vel-
komin.
Fíladelfía Lundargötu 12.
Fimmtudaginn 17. Biblíulestur
kl. 20.30. Allir velkomnir.
Laugardaginn 9. Safnaðarsam-
koma kl. 20.30. Sunnudaginn
10. sunnudagaskólinn fer í
ferðalag kl. 10 f.h. Almenn
samkoma kl. 17. Allir velkomn-
ir.
Kristniboðshúsið Zíon sunnu-
daginn 10. maí samkoma kl.
20.30. Ræðumaður Bjarni
Guðleifsson. Allir velkomnir.
I.O.G.T. Bingó í Alþýðuhúsinu
föstudaginn 8. maí kl. 20.30.
Góðir vinningar. Stjórnandi
Sveinn Kristjánsson. Barna-
stúkan Von.
AUGLÝSIÐIDEGI
I.O.O.F. Rb. 2
130568‘/2
Lionsklúbburinn Hængur fund-
ur fimmtudaginn 7. maí kl.
19.15 áHótelK.E.A.
Frá Guðspekifélaginu. Næsti
fundur verður föstudaginn 8.
maí kl. 21.00 og er hinn síðasti á
starfsárinu.
Kvenfélagið Hlff heldur vor-
fund sinn miðvikudaginn 6. maí
1981 kl. 20.30 í Amaróhúsinu.
Skýrslur nefndar o. m. fl. til
umræðu. Mætið vel og takið
með ykkur nýja féiaga. Stjórnin.
Kvcnfélagið Framtfðin heldur
fund í Skjaldarvík miðvikudag-
inn 6. maí. Farið verður frá
Ferðaskrifstofunni kl. 8.30
stundvíslega. Stjórnin.
Gjafir of áheit til Stærra-Ár-
skógskirkju 1980. Konráð
Sigurðsson kr. 20.000.
Sveinbjörn Jóhannsson kr.
10.000. Frá ónefndum gef-
endum kr. 51.000. Útgerð
Arnþórs og Sæþórs kr.
100.000. Sigríður og Jónas
kr. 10.000. Birgir Svein-
björnsson og fjölskylda kr.
40.000. Minningargjöf um
Gunnar Níelsson gefin af
eiginkonu hans Helgu Jóns-
dóttur kr. 100.000. Gefinn
kirkjunni sumarhökull
ásamt stólu o.fl. tilheyrandi.
Þessir munir eru gerðir á
Vefstofu Guðrúnar Vigfús-
dóttur fsafirði, gefnir af
henni og systkinum hennar
að Litla-Árskógi, til minning-
ar um foreldra þeirra, Elísa-
betu Jóhannsdóttur og Vig-
fús Kristjánsson, og tvo
bræður er dóu ungir. Sókn-
arnefnd færir gefendum
kærar þakkir.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta, á húsgrunni aó Flötusíðu 6, Ak-
ureyri, þinglesin eign Eysteins Guðmundssonar,
fer fram eftir kröfu Björns Jósefs Arnviðarssonar
hdl., Jóns E. Ragnarssonar hrl., bæjargjaldkerans
á Akureyri og Jóns Kr. Sólnes hdl. á eigninni sjálfri
mánudaginn 11. maí 1981 kl. 11.00.
Bæjarfógetinn Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 83., 86. og 91. tbl. Lögbirtinga-
blaðs 1981 á Tjarnarlundi 17e, Akureyri, talin eign
Guðmundar Halldórssonar fer fram eftir kröfu
bæjargjaldkerans á Akureyri og Tryggingastofn-
unar ríkisins, á eigninni sjálfri mánudaginn 11. maí
1981 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta, á fasteigninni Eyrarbakki á
Hjalteyri, þingl. eign Stefáns Jörundssonar, fer
fram eftir kröfu Hreins Pálssonar hdl. og Inga R.
Helgasonar hrl. á eigninni sjálfri mánudaginn 11.
maí 1981 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 17., 23. og 26. tbl. lögbritinga-
blaðs 1981 á Löngumýri 36, Akureyri, þinglesin
eign Jóns M. Jónssonar fer fram eftir kröfu
innheimtumanns ríkissjóös, á eigninni sjálfri
þriðjudaginn 12. maí 1981 kl. 11.00.
Bæjarfógetinn Akureyri.
Passíukórinn
flytur Messu í D-dúr eftir Dvorak fimmtudaginn 7.
maí kl. 20.30 í Akureyrarkirkju. Orgelleikari: Gígja
Kjartansdóttir. Einsöngvari: Þuríður Baldursdóttir.
Stjórnandi: Róar Kvam.
Rauð hryssa í óskilum
Aó Garðshorni í Kræklingahlíð er í óskilum rauð
hryssa 4-5 vetra ótamin. Mark: Fjöður fr. hægra og
gagnbitað vinstra.
Réttur eigandi gefi sig fram við Ólaf Ólafsson í
Garðshorni, sími 21925.
Móöir okkar,
HREFNA GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Þúfnavöllum
er látin.
Steingrímur Bernharðsson, Berghlidur Bernharðsdóttir.
Eiginmaður minn og faðir okkar,
JÓHANNES KRISTJÁNSSON
forstjóri,
Krlnglumýri 22, Akureyri
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 7. maí kl.
13.30.
Ingunn Kristjánsdóttir og börn.
Mínar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför móður minnar,
KRISTÍNAR EINARSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks B-deildar Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Akureyri fyrir góða umönnun í veikindum hennar. Fyrir
hönd ættingja,
Klara Guðmundsdóttir.
6.DAGUR